Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Qupperneq 48
í
1
*
Afmæli
Andrés Torfason
Andrés Torfason, bóndi og verka-
maður, Gileyri, Tálknafirði, verður
sjötíu og fimm ára á morgun.
Starfsferill
Andrés er fæddur að Hlíðarenda
í Tálknafirði og ólst upp á þeim slóð-
um. Hann byijaði snemma að létta
undir við bústörf og önnur sveita-
störf er til féllu. Sem ungur maður
fór hann á vertíö í Grindavík og
vann ennfremur í hvalstöðinni á
Suðureyri og við vegagerð.
Andrés stundaði verkamanna-
vinnu og vörubílaakstur hjá Hrað-
frystihúsi Tálknafjarðar með bú-
skap á Gileyri en á síðustu árum
hefur hann unnið viö laxeldi og ger-
ir enn.
Fjölskylda
Andrés kvæntist 27.10.1948 Krist-
ínu Guðbjörgu Ingimundardóttur,
f. 4.4.1919, ljósmóður. Foreldrar
hennar voru Ingimundur Jóhannes-
son, f. 3.3.1895, d. 8.4.1973, bóndi í
Ystu-Tungu í Tálknafirði, og kona
hans, Guðbjörg Jóhannesdóttir, f.
28.10.1887, d.22.3.1962.
Börn Andrésar og Kristínar: Ingi-
mundur Guðberg, f. 20.7.1948, svæð-
isstjóri O.V., maki Sigurjóna Kristó-
fersdóttir, þau eiga þrjú börn og eitt
barnabarn; Torfi Elís, f. 16.4.1950,
bifreiðastjóri, maki Jörgína Elín-
björg Jónsdóttir, þau eiga eitt barn
en Jörgína átti barn fyrir; Kristjana,
f. 12.4.1957, starfsm. Pósts og síma,
maki Heiðar I. Jóhannsson, þau eiga
þrjú börn.
Systkini Andrésar er upp komust:
Kristinn, f. 29.9.1917, d. 24.2.1974,
kona hans var Nína Guðmundsdótt-
ir, þau eignuðust fimm börn; Her-
mann, f. 28.4.1921, maki Halldóra
Ólafsdóttir, en Halldóra á tvö börn;
Valdimar, f. 27.7.1922; Guörún Jóna,
f. 11.6.1924, maki Björgvin Sigur-
björnsson, þau eiga eitt barn en
Guðrún átti þrjú áður; Guðríður
Jóna, f. 8.4.1927, maki Ingólfur Jóns-
son, þau eiga á fimm böm; Ólafur,
Andrés Torfason.
f. 15.9.1928; Ásta, f. 23.9.1932, maki
Páll Guðlaugsson, þau eiga fimm
börn; Unnur, f. 6.6.1934.
Foreldrar Andrésar voru Torfi
Snæbjörn Ólafsson, f. 18.9.1888, d.
4.4.1967, b. á Gileyri og síðar Ey-
steinseyri, og Elísabet Guðjónsdótt-
ir,f. 15.1.1897, d. 8.9.1986.
Andrés verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Til hamingju með afmælið 26. október
90 ára
Sigríður Þorkelsdóttir,
Fornósi5, Sauðárkróki.
80 ára
JóhannesÁsbj ömsson,
Stöð, Stöðvarhreppi.
Elinóra Samúelsdóttir,
Eyrarvegi 14, Akureyri.
70 ára
Vigfús Pétursson,
Bárðarási 7, Neshreppi.
Hanna Valdimarsdóttir,
Miðvángi 13, Hafnarfirði.
60 ára
Sigurður Sigurðsson,
Gnoðarvogi 60, Reykjavík.
Guðlaug Vigfúsdóttir,
Austurbrún 4, Reykjavik.
Friðjón Jónsson,
Grenihlíð 2, Sauðárkróki.
Jón Magdal Bjarnason,
Þrastahrauni 3, Hafnarárði.
Elín Friðriksdóttir,
Hjallalundi 3b, Akureyri.
50 ára
Kjartan Leifur Sigurðsson,
Starrahólum 8, Reykjavík.
Hann tekur á móti gestum á afmæl-
isdaginn á heimili sínu kl. 17-19.
Georg Tryggvason,
Arnartanga 32, Mosfellsbæ.
Erna Jakobsdóttir,
Kotárgerði 10, Akureyri.
Runólfur Haraldsson,
Syðri-Rauðalæk, Holtahreppi.
40 ára
Laufey Eiríksdóttir,
Brávöllum 10, Egilsstaðahreppi.
Bergrós Ananíasdóttir,
Stórholti 12, Akureyri.
Guðrún Ólöf Mikkaelsdóttir,
Markarílöt 53, Garðabæ.
Helga Óskarsdóttir,
Háaleítisbraut 121, Reykjavík.
Ragnar Danielsen,
Smáraflöt 3, Garðabæ.
Andlát
Guðmunda Jóna Jónsdóttir
Guömunda Jóna Jónsdóttir frá
Hofi í Dýrafirði lést 21.10. sl. en
útför hennar er gerð frá Þingeyrar-
kirkju í dag, laugardaginn 26.10.,
klukkan 14.00.
Guðmurida Jóna fæddist á
Kirkjubóli í Valþjófsdal í Önundar-
firði 19.10.1905.
Hún giftist 23.11.1921 Gunnari
Guðmundssyni, f. 30.5.1898, d.
23.10.1987, en þau bjuggu að Hofi
í Dýrafirði á árunum 1923-58.
Gunnar var sonur Guðmundar
Einarssonar refaskyttu og Katrín-
ar Gunnarsdóttur húsfreyj u.
Á efri árum sneru þau sér bæði
að myndlist. Gunnar málaði með
olíu á striga en Guðmundar vann
myndir á krossvið úr skeljum,
sandi og grjóti. Þauhéldu sýningar
á Vestfjörðum og í Reykjavík.
Böm Guðmundu Jónu og Gunn-
ars em Jón, f. 1921, d. 1991, b. á
Þverá, en eftirlifandi kona hans er
Kristín Þorleifsdóttir og eignuðust
þau sjö böm; Guömunda Steinunn,
f. 1923, ekkja eftir Tómas Guö-
mundsson bílstjóra og eru börn
Guðmunda Jóna Jónsdóttir.
þeirra fjögur; Gunnar Ríkharður,
f. 1924, bifvélavirki í Reykjavík,
kvæntur Ólöfu S. Sylveríusdóttur
og era börn þeirra þrjú; Guömund-
ur, f. 1926, d. 1927; Aðalsteinn, f.
1928, vélsmiður á Þingeyri, kvænt-
ur Guðlaugu Vagnsdóttur verka-
konu og eru börn þeirra sex; Björg-
vin Hofs, f. 1931, bifvélavirki í
Reykjavík, kvæntur Borghildi
Flórensdóttur og á hann eina dótt-
ur; Marsibil Guðrún Anna, f. 1933,
starfsstúlka í Reykjavík, og á hún
tvo syni; Katrín, f. 1941, húsmóðir
á Þingeyri, gift Davíð Halldóri
Kristjánssyni og eiga þau sex börn;
Kristján, f. 1943, vélsmiður á Þing-
eyri, kvæntur Öldu Sigurveigu Sig-
urðardottur og eiga þau þrjú börn.
Barnabörn Guðmundu Jónu og
Gunnars eru þrjátíu og tvö,
langömmubörnin fjörutíu og sex
og langalangömmubörnin sjö tals-
ins.
Guðmunda Jóna átti fimm eldri
systkini. Elstur var hálfbróðir
hennar, Daníel Benediktsson. Hin
voru Guðmundur, Kristján, Vil-
berg og Guðrún. Af þeim er Kristj-
án á lífi, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Guðmundu Jónu voru
Marsibil Guðbjörg Kristjánsdóttir
frá Breiðadal og Jón Guðmundsson
frá Grafargili.
Andlát
Björgvin Finnsson læknir andaðist í
Landspítalanum 25. október.
Hallgrímur Jónasson, fyrrum kenn-
ari við Kennaraskóla íslands, lést í
Elliheimilinu Grund 24. október.
Tónleikar
Jass á Fógetanum
Sunnudaginn 27. október ætlar jass-
hljómsveitin „Istanbul Jass“ að leika
tónlist frá fjórða, funmta og sjötta ára-
tugnum, á veitingahúsinu Fógetanum.
Liðsmenn hljómsveitarinnar eru: Kristj-
án Guðmundsson, píanó, Páll Pálsson,
bassi og Steingrímur Guðmundsson á
trommur. Tónhstarflutningurinn hefst
kl. 22 og er aðgangur ókeypis.
Samsöngur kirkjukóra á
Snæfellsnesi
Kirkjukórar Grundafjarðar, HeUissands,
Ólafsvíkur og Stykkishólms hafa í tilefni
af ári söngsins ákveðið að ganga í eina
sæng og halda stórtónleika á öUum fjór-
um stöðunum. Raunar má segja að sam-
starfið sé endurtekning á starfi Jökla-
kórsins svokallaða sem samanstóð af
þessum fjórum kórum og gerði m.a. garð-
inn frægan í ísrael en þangað fór hann
um jólin 1986. Stjómendur kóranna eru
þau Jóhanna Guðmundsdóttir í Stykkis-
hólmi, Friðrik V. Stefánsson í Grundar-
firði, Helgi Kristjánsson í Ólafsvík og Kay
Wiggs á Hellissandi. Tónleikamir verða
á eftirtöldum stöðum: 26. okt. kl. 16 Röst,
hellissandi, 30. okt. kl. 21 í Grundarfjarð-
arkirkju, 1. nóv. kl. 21 í Stykkishólms-
kirkju og 2. nóv. kl. 21 í Ólafsvíkurkirkju.
Mikki refur I Edinborg
Hljómsveitin Mikki refur leikur fyrir
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1991.
Myndgáta_______________________dv
M I K K I
R E F U R
dansi í veitingahúsinu Edinborg í Kefla-
vík í kvöld. Hin margrómaða „Gleðikr-
anastund" verður á milli kl. 23-24 fyrir
þá sem mæta snemma. Mikka ref skipa:
Jón Ari Ingólfsson gitargúrí og gólari,
Flosi Þorgeirsson bassatröll og rappari,
Jósep Gíslason, hljómborð og öskurapi,
Höskuldur Örn Lámsson allveg eins og
Brian Adams, Ingi R. Ingason brasilíski
tmbuslagarinn, og auðvita hinn ómiss-
andi yfirrótari GulU GAS.
islenskur tónlistardagur
Útihátíð á Lækjartorgi
í dag laugardaginn 26. október er haldinn
hátíðlegur „íslenskur tónlistardagur". í
því tilefni em hátíðahöld í miðbæ Reykja-
víkur og þau hefjast með skrúðgöngu frá
Hlemmi kl. 15. Þaðan vefður gengið niöur
Laugaveginn með Lúðrasveit Verkalýðs-
ins í fararbroddi, fjölmargir kórar taka
þátt í göngunni og samsöngur allra
göngumanna verður í fyrirrúmi. Þegar
komiö er á Lækjartorg hefst skemmtun
þar sem m.a. eftirtaldir koma fram:
Spaugstofan, Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð, Hljómsveitin Ný Dönsk, Guð-
mundur Jónsson og Kristinn Hallsson,
heimsókn frá íslensku óperunni. Kynnir
verður Magnús Kjartansson. Ennfremur
er opið hús í mörgum tónlistarskólum
fyrr um daginn þar sem starfsemi þeirra
verður kynnt.
Tilkyimmgar
Félag eldri borgara
Félagsvist spiluð á sunnudag kl. 14 í Ris-
inu. Dansað í Goðheimum frá kl. 20 um
kvóldið.
Félagsstarf aldraðra,
Gerðubergi
Mánudagur 28. okt: kl. 9 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 11 hádegishressing í kaf-
fiteríu, kl. 12.30 spilasalur opinn, kl. 13
kóræfing, keramik og silkimálun, kl. 14
kemur séra Halldór Gröndal og kynnir
og les kafla úr bók sinni Tákn og undur
sem síðan verður lesin á mánudögum kl.
14.30. Kaffitími kl. 15 og dansæfing kl.
15.30.
Húnvetningafélagið
Félagsvist í dag, laugardag, kl. 14 í Húna-
búð, Skeifunni 17. Keppni hefst. Allir
velkomnir.
Kvenfélag Seljasóknar
minnir á haustfagnaðinn í kvöld aö Auð-
brekku 25. Borðhald hefst kl. 19.30.
Hljómsveit Jónasar Þóris leikur fyrir
dansi.
Hjónaband
Nýlega voru gefin saman í hjónaband í
Lágafellskirkju af séra Guðmundi Þor-
steinssyni Agneta Lindberg og Árni Þór
Árnason. Heimili þeirra er að Bergsgat-
an 22, Frasen, Östersund, Svíþjóö.
Ljósm. Rut.
Þann 25. maí voru gefm saman í hjóna-
band í Dómkirkjunni af séra Pálma Matt-
hiassyni Kristín Sigurðardóttir og
Reynir Jónsson. Heimili þeirra er að
Garðsenda 3, Reykjavík.
Ljósmst. Gunnars Ingimarss.