Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Page 50
Trimm
Um Kendo
Kendo er bardagaaðferð sem er
i því fólgin að nota á hættulausan
máta bambusverðið Shinai sem
er staðgengill japanska sverösins
Kata. Þessi tegund skylminga er
óhemjuvinsæl í Japan og er áætl-
að að u.þ,b. 23 milljónir manna
þar í landi leggi stund á Kendo.
Vinsældirnar stafa ekki síst af
því að Kendo geta allir stundað,
karlar og konur á öllum aldri, og
víöa er þetta skyldunámsgrein i
framhaldsskólum. Íþróttineróiík
vestrænum keppnisíþróttum og
er miklu frekar listgrein þar sem
nemandinn eykur færni sina eftir
því sem árin líða.
Þó Kendo sé arfleifð bardaga
sem japönsku stríðsmennirnir
Samurai háðu á liðnum öidum
með hárbeittum sverðum, Kat-
ana, er af augljósum öryggisá-
stæðum notast við bambussverð
og trésverð í nútíma Kendo en
það síðastnefnda er notað við
grunnæfmgar. í bardaga er
líkaminn varinn af öflugum hlífð-
arbúnaði, Dogu, en hann gerir
kleift að stunda bardaga án nokk-
urrar áhættu.
Markmiðið með þvi að stunda
Kendo er ekki síst að ná stjórn á
eigin líkama og huga. I stað
óheftrar árásarhneigðar kemur
baráttuandi sem nýtist á öllum
sviðum lífsins og sjálfstraust
eykst.
Að jafnaði fara sjð klukkustundir
i Kendo-asfingar i hverri viku,
segir ingólfur Örn.
DV-mynd ÞÖK
H j
yÍ B *-r ::
1
Hópurinn sem mætti á æfingu i Kendo sl. miðvikudag. Tryggvi Sigurðsson er fyrir miðju i fremri röð.
Stríðsöskur og skylmingar í Laugamesskóla:
Japanska skylm-
ingaíþróttin Kendo
- aðferð fyrir manninn til að rækta sjálfan sig
í Kendo er mikið öskrað og er það m.a. til að skelfa andstæðinginn.
DV-myndirGVA
IngóIfurÖrn Björgvinsson:
Erfitt og
krefj-
andi
„Ég hafði lesið um þetta í bók-
um og þetta höfðaði til mín og um
leið og ég frétti að þetta væri
stundaö hér á landi skellti ég mér
í þetta. Síöan hef ég verið í þessu
sleitulaust en að jafnaöi fara í
þetta um sjö klukkustundir í
hverri viku,“ sagði Ingólfur Örn
Björgvinsson, nemi í MHÍ, í sam-
tali við DV eftir æfmguna.
Ingólfur Öm hefur stundað
Kendo í tæp fimm ár og á þeim
tíma m.a. farið í æfmgabúðir til
Frakklands og Japans. En hvað
er það sem menn fá út úr þessu?
„Mikil líkamleg útrás, þetta er
bæði erfitt og krefjandí. Þrekið
eykst og það er nokkuö sem allir
sækjast eftir en síðan má ekki
gleyma sjálfsaganum sem maður
lærir."
Þátttakendur í Kendo eru vel
gallaðir og það hlýtur að kosta
sitt. „Þú getur æft í jogginggalla
til að byrja með, enda þarf ekki
þennan búnað strax í byrjun. Ef
viðkomandi ætlar síðan að halda
áfram kostar búningurinn frá
5-10 þúsund krónur, allt eftir
gæðum, en þetta á að geta dugað
árum saman.“
-GRS
„Ég er búinn að vera í þessu síðan
1982 en ég kynntist Kendo í Frakk-
landi og varð heillaður, enda vill
þetta verða ástríða. Ég komst í kynni
viö þetta sem námsmaður og þegar
ég kom heim fór ég af stað með Kendo
^hérlendis. Ætli það hafl ekki verið
1986. Allar götur síöan höfum við
haft aðstöðu hér í leikfimisal Laugar-
nesskóla. íslendingar hafa verið
veikir fyrir þessu eins og öðru og
þeir þekkja júdó og karate sem eru
skyldar greinar. Þó sverö sé notað í
Kendo er þetta mjög skylt fyrrnefnd-
um greinum. Að vísu er Kendo upp-
runalegra, þ.e.a.s. minna breytt.
Sumir flnna sig vel í þessu og það
eru hér menn sem hafa verið í Kendo
alveg frá því við byrjuðum og aðrir
hafa komið og farið. Þetta er eríltt
og krefst mikils af manni og það eru
líka margir sem hætta. En í dag eru
u.þ.b. 20-30 manns sem stunda þetta
að staðaldri," sagði Tryggvi Sigurðs-
son, sálfræðingur og leiðbeinandi í
Kendo, í samtali við DV.
Kendo er ein þeirra íþróttagreina
sem er tiltölulega stutt á yeg komin
hérlendis og umfjöllun um hana hef-
ur verið í samræmi við það. Trimm-
síðunni þótti samt ástæða til að for-
vitnast frekar um greinina og brá sér
því á æfingu sl. miðvikudag og þá lá
beinast fyrir að spyija um hvað
Kendo væri eiginlega.
„Kendo er mjög margt. Þetta er
íþrótt eða aðferð til að halda sér í
formi. Þetta er erfitt en Kendo er líka
ákveðin aðferð við t.d. að aga sig og
ennfremur að rækta sjálfan sig. Þetta
er vinsæl grein í Japan og velgengni
Japana í viðskiptalífinu er ekki síst
þessu að þakka vegna þess að Kendo
kemúr inn á svo margt. Þetta er skák
líkamans, fáir leikir en möguleikarn-
ir eru óteljandi en viðkomandi þarf
að sjá þá út, vera snöggur þegar and-
stæðingurinn gefur færi á sér og eins
að leiða hann í gildru. Ákveðni, ein-
beiting og styrkur kemur auðvitað
líka við sögu.
í stuttu máli sagt er Kendo aðferð
fyrir manninn til að rækta sjálfan sig
í víðasta samhengi til aö verða sterk-
ari og líða betur og betur.“
Bardaginn
ekki aðalatriðió
Þegar DV bar að garði voru nokkr-
ir byrjaöir að hita upp og notuðu til
þess sverð sem sýndist ekta en allar
hreyfmgar voru mjög hægar og ein-
beitingin virtist algjör. Hver og einn
virtist hita upp fyrir sig þó hópurinn
væri samtaka í hreyfmgunum. Er á
leið tíndust fleiri í hópinn og þá tóku
við upphitunaræfingar sem ekki eru
ókunnar í öðrum íþróttagreinum.
Síöan voru ákveðnar höggæfingar
og loks var barist. Átökin voru mikil
og það var mikiö öskrað en skyldi
þetta allt ganga út á bardagann sjálf-
an?
„Þetta eru ekki tveir óvinir að berj-
ast og bestu bardagarnir eru við þína
bestu vini. Það þarf að hafa mikið
fyrir þvi að sigra andstæðinginn og
það næst gott samspil sem þú sérð
ekki en ég finn. Hjá okkur eru menn
á mismunandi stigi og stundum er
þetta ekki bardagi heldur er verið
að kenna þeim til að þeir geti farið
að höggva. En þegar verið er aö berj-
ast við mann sem getur skylmst í
Kendo er búin til ákveðin spenna þar
til annar nær að rjúfa hana og gefur
högg.
Þetta er ekki bardagi og markmiðið
er ekki að klekkja á einhverjum and-
stæðingi heldur ertu nánast að tefla
skák við mann á móti þér. Það eru
mjög skilgreindar leikreglur í Kendo
og slysatíðni er mjög lítil. Þaö eru
níu staðir sem þú mátt slá á og þeir
eru allir varðir með hlífðarfatnaði,"
sagði Tryggvi.
Hefð eftir
fastmótuðum reglum
Munurinn á þessu og t.d. öðrum
skylmingum er sá að í Kendo er ekki
til neitt sem heitir vörn. Sókn and-
stæðings er strax breytt í gagnárás.
Eitt stig er gefið þegar næst að slá á
réttan stað en tvö stig þarf til að
vinna leikinn. Það er þó hægara sagt
en gert aö skora þessi stig.
Hérlendis var fyrsta mótið haldið
í fyrravor og ætlunin er að senda
menn á Evrópumótið á næsta ári.
Japanir teljast fremstir í Kendo, enda
er þetta upprunnið þaðan og áhrifm
og hefðirnar eru frá þeim komin.
„Við notum eingöngu japönsk orð,
enda er okkur mjög annt um Kendo,
við erum að stunda ákveðna hefð
sem fer eftir fastmótuðum reglum og
við viljum ekki breyta því. Við viljum
halda í upprunann og þessi orð eru
alþjóðleg fyrir íþróttina og við breyt-
um þeim ekki. Öskrin eru líka stór
hluti af þessu, bæði til að skelfa and-
stæðinginn og til að fá góða tilfinn-
ingu.“
-GRS
Velgengni
þökkuð Kendo