Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Side 56
A S
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Bitstjórn - Augiýsíngar - Askrift - Dreífing: Sími
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1991.
Alifuglabú á uppboði:
Eiginkonan
keypti búið
á 61 milljón
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Þrotabú alifuglabúsins í Svein-
bjarnargerði á Svalbarðsströnd í
Eyjafirði hefur verið selt á uppboði
fyrir 61 milljón króna. Kaupandinn
er Anný Larsdóttir en hún er eigin-
kona Jónasar Halldórssonar, fyrrum
eiganda búsins. Sláturhús á staðnum
var selt Mjólkurfélagi Reykjavíkur á
16,1 milljón króna.
Fyrirtækið var tekið til gjaldþrota-
skipta í júní síðastliðnum og var
gjaldþrotið talið vera um 300 milljón-
ir. Tap Kaupfélags Eyflrðinga varð
mest eða um 100 milljónir.
Framhald á
gæsluvarðhaldi
Maður og kona um tvítugt, sem
grunuð eru um innflutning og sölu
fikniefna, voru úrskurðuð í einnar
viku áframhaldandi gæsluvarðhald á
ísafirði í gær. Parið var handtekið á
Suðureyri, þar sem það býr, fyrir
viku. Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur yfirheyrt parið vegna þáttar í
málinu er varðar tékkasvik. -hlh
Útsala á not-
uðum bflum
Sjá nánar á bls. 29^44
LOKI
Syngur þá ekki Björn
Grétar: Segðu ekki nei,
segðu kannski...?
Aætla að segja
upp sjötíu
Islendingum
Hugmyndir eru uppi um að
fækka enn íslenskum starfsmönn-
um hjá Varnarliðinu á Keflavíkur-
velli. Samkvæmt þeim er rætt um
að segja allt að sjötiu starfsmönn-
um upp innan tíðar. Æðsti yfir-
maður herafla Norður-Atlants-
hafsflotans er nú í heimsókn á
Keflavikurvelli. Samkvæmt heim-
ildum DV verður honum kynnt
þessi áætlun um uppsagnirnar
meðan hann dvelur hér á landi.
Fyrir skömmu var 33 ræstinga-
konum hjá Varnarliðinu sagt upp
störfum. Nýja áætlunin gerir ráð
fyrir að 10-15 íslenskum ræstinga-
konura til viðbótar verði sagt upp.
Þá er fyrirhugað að segja upp Is-
lendingum sem vinna undir svo-
kallaðri Tómstundastofnun varn-
arliðsins. Undir hana falla klúbbar,
ferðaskrifstofa og keilustaður, svo
eitthvað sé nefnt. Loks gerir áætl-
unin ráð fyrir að íslendingum, sem
vinna í birgðageymslu, við versl-
unar- og skrifstofustörf, svo og
stjórnunarstarfsmönnum verði
sagt upp. Samtals eru það um sjö-
tiu manns sem geta búist við upp-
sagnarbréfum.
Þróunin í atvinnumálum hjá
Varnarliðinu hefur verið sú, að
undanfarin tvö ár hefur íslenskum
starfsmönnum fækkað allverulega,
en bandarískum hefur fariö fjölg-
andi. í árslok 1989 voru hinir fyrr-
nefndu 1.099 talsins, en hafði í lok
september 1991 fækkað niður í 963,
eða um 136. Er um að ræða 12,4
prósent samdrátt.
Bandarískir borgaralegir starfs-
menn voru í árslok '89 samtals 428.
Fjöldi þeirra var í lok síðasta mán-
aðar 466, sem er 8,9 prósent aukn-
ing.
Þessi þróun stafar af svokölluðu
„ráðningafrosti" sem verið hefur í
gildi hjá Varnarliðinu síðan í árs-
lok 1989.
-JSS
Svo gæti farið að verð á notuðum
bílum lækkaði verulega á næstunni.
Mikið framboð hefur verið af nýleg-
um notuðum bílum og flest bíla-
umboðin, sem tekið hafa notaða bíla
upp í nýja, hafa setið uppi með tölu-
vert magn óseldra bíla.
Undanfarna daga hafa birst auglýs-
ingar frá bílaumboðunum þar sem í
boði er verulegur afsláttur á veröi
notaðra bíla og boðið upp á góð
greiðslukjör.
Það er mat margra sem starfa við
bílasölu að of hátt verð hafi verið á
notuðum bílum hér á landi og benda
gjarnan á löndin í kringum okkur
þar sem affoll á notuðum bílum eru
mun meiri en hér, og það jafnvel
þótt nýir bílar séu lítið ódýrari en
hér á landi, en til dæmis í Danmörku
er verð nýrra bíla síst lægra en hér
á landi.
í DV í dag auglýsa flest stóru bíla-
umboðanna eða fyrirtæki tengd þeim
mikinn íjölda notaðra bíla á vildar-
kjörum og vegna þess varð að stækka
DV-bílauppítólfsíður. -JR
Veörið á sunnudag
ogmánudag:
Hlýttí
austan
áttinni
A sunnudag og mánudag eru
horfur á austan- og suðaustanátt.
Rigning eða skúrir verða víða um
land, síst þó á Vesturlandi og í
innsveitum norðanlands. Hiti
verður á bilinu 5-7 stig.
Skattalækkanir:
segir nei
„I fjárlagafrumvarpinu er ekki gert
ráð fyrir því að skattleysismörkin
verði hækkuð umfram verðlag.
Varðandi sjómannaafsláttinn hggur
fyrir að hann verður ekki lagður af
en við erum að kanna hvort fram-
kvæmdin á honum sé með eðlilegum
hætti. Það eru hins vegar engar hug-
myndir uppi um að láta hann ná til
fleiri aðiia en sjómanna," segir Frið-
rik Sophusson íjármálaráðherra.
Á þingi Verkamannasambandsins
kom fram sú krafa af hálfu fisk-
vinnslufólks að fá sambærilegan
skattaafslátt og sjómenn. Þá hefur
þingið gert kröfu um að persónufrá-
dráttur verði hækkaður.
Friðrik segist ekki sjá neina sann-
girni í því að fiskvinnslufólk fái auk-
inn skattaafslátt umfram annað
landverkafólk sem vinni svipuð
störf, til dæmis í sláturhúsum. Hann
segir einu rökin fyrir sjómannaaf-
slættinum vera þau að sjómenn verði
vinnu sinnar vegna að dvelja fjarri
heimilum sínum, jafnt að degi sem
nóttu.
Friðrik segist tilbúinn til viðræðna
við aðila vinnumarkaðarins um að-
gerðir til að tryggja stöðugleika í
efnahagslífmu og forðast atvinnu-
leysi. Svigrúm fyrir skattalækkanir
sé þó ekki fyrir hendi og því ekki
raunhæft að gera ráð fyrir hækkun
persónufrádráttar miðað við núver-
andi aðstæður. Líklegra sé að grípa
þurfi til enn frekari niðurskurðar á
útgjöldum og draga úr lántökum rík-
isins. „Við neitum þó ekki að ræða
neina hluti,“ segir Friðrik. -kaa
- Sjá einnig bls. 2
Ólafsvík:
Sá bílinn
fuðra upp
Það lifnaði heldur betur yfir smáfólkinu i efri byggðum Reykjavíkur i gærmorgun. Þar var jörð alhvít þó ekki
væri snefill af snjó viðast annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Börnin i Seláshverfi voru ekki lengi að skella sér
í gallana og út að búa til snjókarla og vist er að jafnaldrar þeirra í neðri byggðum hafa sáröfundað þau.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Þegar ég var staddur undir Enn-
inu kom mikill svartur reykur undan
vélarhlífinni. Ég stoppaði bíhnn og
ætlaði að opna vélarhúsið en gat það
ekki vegna hitans. Skyndilega bloss-
aði eldurinn upp og bíllinn varð al-
elda á augabragði. Eg gat ekki annað
en horft á bílinn fuðra upp. Eftir tíu
mínútur var ekkert eftir nema járn-
ið,“ sagði Andrés Kjartansson, ungur
maður úr Ólafsvík, viö DV.
Andrés var einn á leiðinni frá Ól-
afsvík til Rifs um fjögurleytið í gær
þegar kviknaði í bílnum hans, árgerð
1987. Engin slökkvitæki voru í bíln-
um og áður en varði stóðu logarnir
marga metra upp í loftið. Þegar
slökkviliö kom á vettvang var ekkert
eftir nema sótsvört grindin. Andrés
slappómeiddur. -hlh
ÞJÓFAVARNIR
FYRIR FYRIRTÆKI OG HEIMILI
Vönduð og viðurkennd þjónusta
m 0 91-29399
$rjr Allan sólarhringinn
Oryggisþjónusta
ViftílB síðan 1 9Ó9
TVOFALDUR1. vinningur
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
4