Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1992, Page 27
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1992.
35
verður ofan á
- segir Ragnheiður Runólfsdóttir, íþróttamaður ársins
„Eg held nú að Skaginn verði
ofan á. Það er búið að bjóða mér
framkvæmdastjórastööu og þjálf-
un hjá sundfélaginu hérna,“ sagði
sunddrottningin Ragnheiður Run-
ólfsdóttir og íþróttamaður ársins
1991 í viðtali við helgarblaðið rétt
áður en hún hélt aftur til Banda-
ríkjanna í gær þar sem hún er við
nám. Ragnheiður hefur ekki bara
fengið tilboð um þjálfunarstarf á
íslandi að loknu námi heldur einn-
ig í Bandaríkjunum og Kanada.
Skagamenn, sem ekki vilja missa
sunddrottninguna sína, tóku á móti
Ragnheiði með flugeldasýningu er
hún kom heim í foreldrahús á
fimmtudagskvöld eftir að hún hafði
verið kjörin íþróttamaður ársins.
„Það var eins og forsetinn væri á
ferðinni. Götunni, sem hús foreldra
minna stendur við, haföi verið lok-
að með lögreglubíl og bæjarstjóm-
in og stjórnir íþróttafélaganna voru
í móttökunefndinni sem ég held
næstum að hafi samanstaðið af
helmingi Skagabúa. Mér bárust
heillaóskir, blóm og peningagjafir."
Æfir sex klukku-
stundir á dag
í Bandaríkjunum taka við strang-
ar æflngar, allt að sex klukku-
stundir á dag. Ragnheiður setur
markið hátt, þjálfarinn hennar seg-
ir að hún eigi möguleika á að verða
ein af átta bestu á ólympíuleikun-
:: ;.y -xf:.
Ragnheiður Runólfsdóttir, sunddrottning og íþróttamaður ársins 1991, hefur keppt í sundi í fimmtán ár. Hér
hampar hún heiðursverðlaununum. DV-mynd Brynjar Gauti
* ' 5 V\ >>
'jMÆ í h, J' . Jt'
um í Barcelona í sumar. En hvenær
hefur Ragnheiður tíma fyrir
íþróttalífeðhsfræðina sem hún er
að læra í háskólanum í Alabama?
„Það þarf að skipuleggja tímann
vel. Ég vakna yfirleitt kortér yfir
fimm á morgnana og syndi um tvo
til tvo og hálfan tíma áður en skól-
inn byijar. Eftir skólann fer ég í
þrekæfingar á milli klukkan tvö og
þijú, síðan er sundæfing til klukk-
an hálfsex. Þá er að koma sér heim
og fá sér næringu og síðan tekur
lestur við, oft til miðnættis. En ég
á frí frá æfingum á sunnudögum
og þeir eru þá oft notaðir til að
bæta upp lesturinn því auðvitað
koma dagar inni á milli þegar mað-
ur getur ekki annað en farið
snemma í rúmið.“
Boðin skólavist
Það var á ólympíuieikunum í
Seoul 1988 sem þjálfarinn Don
Gambril bauð henni að koma og
æfa hjá sér í háskólanum í Alab-
og uppihald og frí skólagjöld. Auk
þess fær hún fríar ferðir heim til
íslands. En sambýhsmaður Ragn-
heiðar, Óskar Þór Adolfsson, sem
er að læra næringarfræði, þarf að
greiða fyrir sig eins og aðrir náms-
menn.
Ragnheiður segir Alabama ekki
vera vinsælt fylki meðal Banda-
ríkjamanna og því sækist náms-
menn ekki eftir því að stunda nám
þar. Mikið kynþáttahatur er ríkj-
andi í fylkinu. „En það hefur alltaf
verið mikið íþróttastórveldi í há-
skólanum mínum. Hér er byggð
hver stórhöllin eftir aðra. Við
græðum svo mikið á fótboltanum,
við erum með eitt besta liðið í
Bandaríkjunum. Hér er völlur sem
tekur 75 þúsund manns í sæti og
við fyllum hann auðveldlega. Það
er gríðarlega mikill peningur sem
kemur inn við það og það lítur út
fyrir að hægt verði að borga völlinn
upp á tveimur árum.“
Ragnheiður leggur áherslu á það
hversu dýrmæta reynslu hún hafi
Sunddrottningin á góðu skriði.
ama þar sem hún ráðgerir að ljúka
námi í vor. „Ég bætti mig í öllum
greinum en var nú ekki nema í
kringum 20. sætið. En hann hefur
séð góðan efnivið í mér.“
Gambril er núna orðinn yfirmað-
ur allra íþrótta í háskólanum en
núverandi þjálfari Ragnheiðar er
Johnty Skinner sem er frá Suður-
Afríku. Hann er einn af fremstu
sundþjálfurum Bandaríkjanna, að
því er Ragnheiður segir. „Hann
setti heimsmet í 100 metra skrið-
sundi en það var ekki viðurkennt
þar sem hann var frá Suður-Afríku.
Hann fékk heldur ekki að keppa á
ólympíuleikum."
Ragnheiður telur að hann geti
orðið aðstoðarþjálfari bandaríska
ólympíuhðsins en það fer eftir því
hversu mörg stig hans fólk fær á
úrtökumótinu fyrir ólympíuleik-
ana. Í skólanum eru nú þegar þrjár
stelpur í bandaríska ólympíulið-
inu. Þama eru einnig stelpa frá
Puerto Rico, strákur frá Venesúela,
annar frá Brasilíu. Auk þess er
þarna strákur frá Svíþjóð. „Við er-
um sem sagt nokkur þarna sem
keppum fyrir okkar þjóð á ólymp-
iuleikunum í Barcelona."
Alltfrítt
Ragnheiði var boðið frítt húsnæði
fengið í Bandaríkjunum. Hún hafi
getað keppt á móti mörgum af þeim
bestu í heiminum.
Langelst hér heima
Fyrir leikmann hljómar það und-
arlega þegar Ragnheiður, sem er
25 ára, lýsir því yfir að hún ætli
að hætta æfingum að loknum
ólympíuleikunum. „Ég er langelst
í sundinu hér heima. Yfirleitt hætt-
ir sundfólk keppni fyrir og um tví-
tugt. En þetta er nú að breytast úti
í heimi með nýjum þjálfunarað-
ferðum. Áður var fólk oft búið að
vera um tvítugt. Það voru ýmiss
konar meiðsli sem hijáðu það. Að-
alkeppinautur minn hérna heima,
Guðrún Ágústsdóttir, hætti til
dæmis mjög snemma svo ég hef
eiginlega þurft að keppa við klukk-
una. Núna eru margar bringu-
sundsstelpur á toppnum úti í heimi
að keppa alveg undir þrítugt þann-
ig aö eg er ekkert gömul á alþjóð-
legum markaði.
Aðspurð um hvað taki við eftir
ólympíuleikana svarar Ragnheið-
ur: „Lífið. Ég fer bara að vinna og
líklegast á Skaganum til að byija
með. En ég kemst alltaf út þegar
ég vil, ég hef það góð sambönd."
-IBS