Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992.
7
Fréttir
Sólveig Júlíusdóttir hefur hjólað 1200 km í sumar:
Hjólaði frá Sigló til
Reykjavíkur á 4 dögum
JUNO-IS
Skipholti 37
Barna-ís kr. 55,
millist. shake, kr. 190.
- fór norður til að taka þátt 1 Sildarævintýrinu
4. júlí síðastliðinn lögðu fimm kon-
ur upp í langferð á reiðhjólum frá
höfuðborgarsvæðinu. Þær hjóluðu á
einni viku rúmlega 400 kílómetra leið
til Sigluíjarðar Ein þeirra, Sólveig
Júlíusdóttir, lét það ekki nægja held-
ur fór aftur síðar í júlí til Siglufjarð-
ar til að taka þátt í Síldarævintýrinu
og tók hjóhð með sér og hjólaði til
baka, nú ein, og var hún aðeins fjóra
Seyðisfjörður:
Wathnehúsið
horfið
Pétur Kristjánssan, DV, Seyðisfirði:
Wathnehús við Hafnargötu, eitt
kunnasta húsið á Seyðisfirði í ára-
tugi, var endanlega rifið 1. ágúst.
MikilT bruni varð í húsinu í janúar
síðastliðnum af völdum íkveikju.
Ágreiningur var um hvort rífa ætti
húsið eða endurbyggja það. Maður
sem grunaður er um að hafa kveikt
í því bíður nú dóms.
Áhugamannahópur hér í bænum
hafði gert áætlun um endurbyggingu
hússins og þegar ljóst var að eigend-
ur þess ætluðu að fjarlægja rústirnar
1. ágúst boðaði byggingarnefnd bæj-
arins til fundar í skyndi. Á fundinum
var eigendum bent á að ekki hefði
verið sótt um leyfi til þess að rífa
húsið. Reynt var að fá þá til þess að
fresta niðurrifi svo að áhugamanna-
hópnum gæfist tími til að koma sín-
um málum á hreint. Höfðað var til
þess að.hér væru um mikil menning-
arverðmæti að ræða.
Eigendur höfðu hins vegar boðist
til þess að gefa áhugamönnunum
húsið en vildu ekki greiða með því
fé. Þeir hefðu tvívegis frestað niður-
rifi til þess að hópnum gæfist tóm til
aðgerða. Að lokum töldu þeir sig
ekki geta beðiö lengur með að fjar-
lægja húsið, sem var ónýtt að þeirra
mati, og bentu á að ekki hefði tíðkast
að sækja um leyfi til þess að fjar-
lægja brunarústir. Þeir töldu sig bera
ábyrgð á skaða sem rústimar gætu
valdið mönnum og umhverfi enda
væri töluvert um mannaferðir í þeim
og nánasta umhverfi þeirra. Auk
þess hefði bæjarstjóri ítrekað farið
þess á leit við eigendur að húsið yrði
fjarlægt. Niðurstaðan varð sú að
húsið var rifið. Eigendum, sem og
öðrum bæjarbúum, þykir mikil eftir-
sjá af Wathnehúsinu.
Síðustu leifar Wathnehússins.
DV-mynd Pétur
BÍ\A
BOH
ULTRA
GLOSS
Sterkasta
handbónið
á fslandi.
8 ára reynsla.
ESSO stöðvarnar
Olíufélagið hf.
Sólveig Júlíusdóttir nýkomin heim
eftir að hafa lagt að baki vegalengd-
ina frá Siglufirði til Reykjavíkur.
DV-mynd S
daga í þeirri ferð. Sólveig er mikil
hjólreiðakona og hefur hjólað vítt og
breitt um landið:
„Það eru nokkur ár síðan sú hug-
mynd korri upp hjá okkur nokkmm
konum að hjóla til Siglufjarðar, en
ég er frá Siglufirði, og þegar við loks-
ins létum verða af þessu var þetta
alveg stórkostlegt ævintýri."
Sólveig sagði að þrátt fyrir að ferð-
in hefði verið mjög skemmtileg hefði
stundum verið erfitt, sérstaklega á
bakaleiðinni, þar sem hún hún hjól-
aði rúma eitt hundrað kílómetra á
dag en hún sagði að það hefði hjálpað
að vera í góðri þjálfun.
„í sumar er ég búin að hjóla rúma
1200 kílómetra. Auk þess að hafa
hjólað til Siglufjarðar og til baka hef
ég hjólað tvisvar sinnum í Grímsnes-
ið, til Þingvalla og ýmsar styttri
vegalengdir." -HK
------
DALEIÐSLA
Hef opnað fyrir bókanir í einkatíma. Dóleiðsla getur hjálpað
þér á fjölmörgum sviðum eins og t.d.: Hætta að reykja, losna
við aukakílóm, streitu, flughræðslu, lofthræðslu, kynlífsvanda-
mál, bæta minni og einbeitingu, ná meiri árangri í íþróttum,
öðlast aukinn viljastyrk og margt fleira.
Friðrik Páll er viðurkenndur í alþjóðlegum fagfélögum
dáleiðara eins og International Medical and Dental
Hypnotherapy Association, American Guild Of
Hypnotherapists og National Society Of
Hypnotherapists.
Friðrik PállÁgústsson R.P.H. C.Ht.
Vesturgata 16, Sími: 91-625717
Einkaumboð fyrir Renault bíla á islandi
Krókhálsi 1 Reykjavík
Sími 686633
RENAULT Clio
Frábær fólksbíll á fínu verði
Tryggðu þér einn - fyrir hækkun!
Clio RT - 80 hestöfl
Clio RN - 60 hestöfl
Verð með ryðvörn og skráningu:
5 dyra, sjálfskiptur kr. 964.000,-
5 dyra, beinskiptur kr. 899.000,-
Verð með ryðvörn og skráningu:
3ja dyra, beinskiptur kr. 769.000,-
5 dyra, beinskiptur kr. 799.000,-
Bflaumboðið hf.
RENAULT
fer á kostum
Athugið!
Næsta sending verður
búin hvarfakút og mun
þvi hækka verulega
8ÁRA
RYÐVARNAR
ÁBYRGÐ
3ÁRA
VERKSMIÐJU
ÁBYRGÐ
Rúmgóður, lipur, snarpurog þægilegur
Fallegur bíll með miklum aukabúnaði