Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1992, Síða 46
58
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992.
Afmæli
Ingimar Ingimarsson
Ingimar Ingimarsson, fréttamaður
hjá Sjónvarpinu, Fálkagötu 28,
Reykjavík, varð fertugur í gær.
Starfsferill
Ingimar er fæddur á Akureyri.
Hann lauk BA-prófi í heimspeki frá
HÍ1977 og tók magisterpróf í heim-
speki við Kaþólska háskólann í Leu-
ven í Belgíu en þar stundaði Ingi-
marnám 1977-83.
Ingimar var stundakennari við
Kaþólska háskólanum í Leuven
1981-82, fréttaritari Ríkisútvarpsins
í Amsterdam 1983-84, upplýsinga-
fulltrúi hjá Eimskip 1984-85, frétta-
maður RÚV1985-87, aðstoðarfram-
kvæmdatjóri Sjónvarpsins 1987-88
og fréttamaður Sjónvarpsins frá
1988.
Ingimar er einn stofnenda Félags
áhugamanna um heimspeki og var
fyrsti forseti þess 1975-77.
Fjölskylda
Ingimar kvæntist 24.8.1973 Hólm-
fríði Svavarsdóttur, fídO.l. 1953,
heimspekingi. Foreldrar hennar:
Svavar Júlíusson, kaupmaður í
Hafnarfirði, og Unnur Kr. Sveins-
dóttir, rannsóknarmaður á Rann-
sóknastofnun iðnarins.
Böm Ingimars og Hólmfríðar:
Ingimar, f. 26.9.1973; Brynhildur, f.
21.1.1984; Róbert, f. 4.1.1986.
Systkini Ingimars: Þorkell skóla-
stjóri, maki Gunnþóra Önundar-
dóttir deildarstj.; Bjöm forstjóri;
maki Helga Rolfsdóttir félagsráð-
gjafi; Sigurgísli tannlæknir, maki
Kristín Guðjónsdóttir hjúkrunar-
fræðingur; Hrafnhildur fóstra, maki
Bjarni Óskarsson veitingamaður.
Foreldrar Ingimars: Ingimar Ingi-
marsson, prestur á Þórshöfn, og
kona hans, Sigríður Sigurgísladótt-
ir.
Ætt
Ingimar er sonur Ingimars, b. og
útgerðarmanns á Þórshöfn, Bald-
vinssonar, b. á Fagranesi á Langa-
nesi, Metúsalemssonar, b. í Hamra-
gerði, Sigurðssonar, umboðsmanns
á.Eyjólfsstöðum á Völlum, Guð-
mundssonar, bróður Páls, langafa
Móeiðar, ömmu Helga Skúlasonar
leikara. Móðir Ingimars Baldvins-
sonar var Hólmfríður, systir Ing-
unnar, ömmu Gylfa Þ. Gíslasonar
og Gunnlaugs Schevings listmálara.
Móðir Ingimars Ingimarssonar var
Oddný Árnadóttir, pósts á Vopna-
firði, Sigbjamarsonar, prests á
Kálfafellsstað, Sigfússonar. Móðir
Sigbjamar var Ingveldur Jónsdótt-
ir, prests í Þingmúla, Hallgrímsson-
ar, bróður Þorsteins, afa Jónasar
Hallgrímssonar skálds. Móðir Árna
var Oddný Pálsdóttir Thorarensen,
prófasts í Sandfelli, Magnússonar,
klausturhaldara á Munkaþverá,
Þórarinssonar, sýslumanns á
Grund, Jónssonar, ættföður Thor-
arensenættarinnar.
Sigríður er dóttir Sigurgísla, skó-
smiðs og síðar sjómanns í Reykja-
vík, Jónssonar, b. á Skaganesi í
Mýrdal, Jónssonar, b. í Skammadal,
Tómassonar. Móðir Sigríðar var
Ingimar Ingimarsson.
Hólmfríður, móðir Jóns G. Sólnes
alþingismanns. Hólmfríður var
dóttir Jóns, pósts á ísaflrði, Þorkels-
sonar, prófasts á Staðastað, Eyjólfs-
sonar. Móðir Jóns var Ragnheiður
Pálsdóttir, prófasts í Hörgsdal, Páls-
sonar, bróöir Karítasar, langömmu
Guðfmns, fóður Péturs, fram-
kvæmdastjóra Sjónvarpsins.
Júiíus Sigurðsson
Júlíus Sigurðsson, fv. skipstjóri,
Hrauntungu 16, Hafnarfirði, er sjö-
tugurídag.
Starfsferill
Júlíus er fæddur og uppalinn í
Hafnarfirði. Hann tók próf frá Stýri-
mannaskölanum í Reykjavík 1948.
Júlíus fór ungur til sjós. Að loknu
námi var hann stýrimaður og skip-
stjóri á togurum og bátum frá Hafn-
arfirði til 1971. Júlíus starfaði sem
verkstjóri hjá Hreifa hf. og síðar hjá
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Hann
hóf störf sem lagerstjóri í Áhalda-
húsi Hafnarfjarðar 1985 og hefur
starfaðþarsíðan.
Fjölskylda
Júlíus kvæntist 12.1.1945 Ástu Sig-
urhildi Magnúsdóttur, f. 3.11.1924,
starfsmanni á Hrafnistu í Hafnar-
firði. Foreldrar hennar: Magnús
Magnússon, útvegsbóndi í Móakoti
í Staðarhverfi, og Helga Ásmunds-
dóttirhúsfreyja.
Börn Júlíusar og Sigurhildar eru:
Guðrún E., f. 8.9.1944, fóstra, maki
Finnur Siguröarson sölumaður og
eiga þau þrjú böm; Bára A., f. 23.7.
1946, starfsstúlka á gæsluvelli, maki
Geir Sigurðsson prentmyndasmið-
ur og eiga þau tvö böm; Magnús
Már, f. 17.5.1949, kennari, maki
Hildur Sigurbjömsdóttir fóstra og
eiga þau tvö böm; Ólöf Helga, f. 29.2.
1952, hárgreiðslukona, maki Berg-
mundur Elli Sigurðsson trésmiður
og eiga þau tvö böm; Hafrún Dóra,
f. 5.8.1957, skrifstofustúlka, maki
Þórður Sverrisson markaðsstjóri og
eigaþauþijúbörn.
Systkini Júlíusar: Gústaf, f. 16.3.
1921, d. 23.11.1980, verkamaður í
Hafnarfirði; Þorlákur, f. 29.8.1923,
netagerðarmaður í Hafnarfirði;
Rósmundur, f. 3.9.1924, verkamaður
í Hafnarfirði; Inga, f. 25.12.1925,
starfsmaður á Hrafnistu í Hafnar-
firði; Ragnar, f. 7.5.1927, húsvörður
í Flensborgarskóla í Hafnarfirði;
Anna, f. 13.11.1931, starfsmaður á
Júlíus Sigurðsson.
Sólvangi í Hafnarfirði; Ragnheiður,
f. 4.12.1932, starfsmaður við Sund-
höll Hafnarfjarðar.
Foreldrar Júlíusar: Sigurður
Gunnlaugur Þorláksson, f. 24.3.
1891, d. 10.5.1974, trésmiður og Ólöf
Sesselja Rósmundsdóttir, f. 14.11.
1896, d. 31.1.1975, húsfreyja. Þau
vora búsett í Hafnarfirði.
Júlíus er staddur ásamt fjölskyldu
sinni að Knappstöðum í Fljótum.
Sviðsljós
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Annar tveggja kraftmestu ísbrjóta
heims, sem ekki eru kjamorkuknúnir,
kom nýlega til Keflavíkurhafnar öðra
sinni. Var hann hér áður 1990.
Skipið heitir Polar See og er eign
bandarísku strandgæslunnar. Aðalhlut-
verk þess er að bijóta ís og veita banda-
rískum rannsóknarhópum á Suður-
heimsskautslandinu, Alaska og Græn-
landi stuðning og aðstoð. í ferðum um
heimsskautin sinnir áhöfnin einnig
rannsóknum og gagnasöfnun.
Skipið er sjálft úbúið sem vísindastöð
í fremstu röð. Fimm rannsóknarstofur,
skrifstofur og svefnskálar geta hýst 20
vísinda- og tæknimenn. Einnig tekur
skipið virkan þátt í björgunarstörfum
og löggæslu.
Skipið er búið 75 þúsund hestafla vél
og í áhöfn þess era 170 manns, jafnt
konur sem karlar. Polar See kom hingað
til aö ná í vísindamenn en skipið mun
sigla til norðausturstrandar Grænlands
og vera þar í mánuð við rannsóknir. Um
borð era 2 þyrlur af Dolphin-gerð.
ísbrjóturinn í Keflavikurhöfn - gestir að skoða skipið og þyrluna.
"" DV-myndir Ægir Már
ísbrjótur í Keflavík:
Vísindastöð í
fremstu röð
afmælið 8. ágúst
90 ára
60ára
ÁgústaS. Guðmundsdóttir,
Óðinsvöllum 16, Keflavik.
Þórarinn Alexandersson,
Stigahlíð 20, Reykjavík.
Ólafur Guðmundsson,
HellatúniII, Ásahreppi.
FriðrikJ.Eyfjörð,
Viðihlíð 14, Reykjavík.
Kristinn Tryggvason,
Rjúpufelli 29, Reykjavík.
Jón Gíslason,
Lyngmóum 11, Garöabæ.
Jón verður að heiman.
Ásta Óiafsdóttir,
Höfðavegi 27, Vestmannaeyjum.
Guðjón Hermann Hannesson,
Aðalstræti 84, Patreksfirði.
HalldórV. Viihjálmsson,
Hverafold 146, Reykjavík.
50 ára
Ólafur Guðlaugsson,
Hólmgarði49, Reykjavík.
Ágústa Jónsdóttir,
Kirkjubraut 13, Akranesi.
Ruth Guðmundsdóttir,
Ölduslóð 18, Haíharfirði.
Ruth er ekkja Ólafs Arnlaugssonar
slökkviliðs-
stjóra.
Húntekurá
mótigestumí
Haukahúsinu
v. Flatahraun í
Haíharflrðikl,
14-17 áaftnæl-
isdaginn.
Þóra Jóhannesdóttir,
Hagamel 53, Reykjavík.
Guðmundur I. Eiríksson,
Blöndubakka 20, Reykjavík.
Ingólfur Karlsson,
Borgarhrauni 11, Grindavík.
Ágústa Snorradóttir,
Yrsufelli 5, Reykjavfk.
Björgvin Jóhannsson,
Ötkaupstaðarbraut3a, Eskifirði.
Ásta Kristinsdóttir,
Hátúrú2, Vestmannaeyjum.
Heiga Sigurðardóttir,
Árkvörn 2a, Reykjavík.
Guðj ón H. Hj altason,
Strandgötu 79a, Eskifiröi.
40ára
Guðjón Heimir Sigurðsson,
Hiarðarlundi 6, Akureyri.
Brynjólfur Sigurðsson,
Næfurási 17, Reykjavík.
Halldór grillar
Hér hellir Halldór Ásgrímsson alþingismaður olfu á eldinn. Tilefniö er
sumarferð framsóknarmanna á Austurlandi á dögunum. í ferðinni var
áð við Snæfell og grillað. Yfirgrillmeistari ásamt Halldóri var vitaskuld
Jón Kristjánsson alþingismaður. Á leiöinni upp aö Snæfelii gróðursettu
framsóknarmenn 3000 trjáplöntur í landi Ekkjufells í Fellahreppi.
DV-mynd Emil Thorarensen