Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1992, Side 8
8
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992.
Svipmym
Hver er maðurinn?
. „Hvað stendur á blaðsíðu 43 í
félagsfræðikennslubókinni?“
Sá sem svipmyndin er af fór með
textann. Hann kunni allar
skólabækumar sínar utan að.
Skólabræður hans voru undr-
andi. Það var erfitt að skilja hvem-
ig nokkur gat verið með svona gott
minni.
Og lyki síðasta orðinu á einhverri
síðu með bandstriki af því að hluti
þess færðist yfir á næstu síðu vissi
hann það líka!
Þar fyrir utan var hann besti
íþróttamaðurinn meðal nemend-
anna. Hann var úthaldsbestur í
víðavangshlaupi. Hann varð meist-
ari í borðtennis. Og hann stóð sig
best allra í köfubolta.
Hann hafði brennandi áhuga og
vildi ætíð sigra. Hefði hann lagt
íþróttir fyrir sig hefði hann getað
orðið heimsfrægur.
Loks lauk hann prófinu. Hann
varð doktor í lögum, félagsfræði og
stjórnvísindum. Þetta var námsár-
angur sem vakti virðingu.
Eftir prófið opnaði hann mála-
færsluskrifstofu ásamt tveimur fé-
lögum sínum. En best lét honum
að hjálpa fátæku fólki. En þessi
„vonlausu“ mál færðu ekki miklar
tekjur.
Þremur árum síðar fór sá sem
svipmyndin er af í fangelsi. Þá shtn- •
aði upp úr hjónabandinu. Hann leit
þannig á að Mirta hefði svikið sig
með því að taka við peningum af
ríkisstjóminni. Líklega var hér um
samsæri að ræða. En sá sem hér er
lýst var ófús til sátta.
Síðan hafa aðrar konur komiö við
sögu í lífi hans. En hann hefur aldr-
ei gengið í hjónaband aftur.
Hann á marga vini og aödáendur.
En hann á líka marga óvini.
Af efnafólki kominn Drekkur eðalviskí
Faðir þess sem svipmyndin er af
var efnaður og gat greitt fyrir skóla-
göngu sonarins. Hánn var sendur á
heimvistarskóla sem var i miklu
áliti, enda giltu þar strangar reglur.
Allir urðu að ganga í skólabúningi.
Piltamir vom vaktir klukkan hálf-
sjö á morgnana. Klukkan sjö urðu
þeir að vera komnir að morgun-
verðarborðinu.
Hann var stór, sterkur og mynd-
arlegur. Hins vegar eignaðist hann
ekki marga vini í skólanum. Hann
virtist ekki eiga mikla samleið með
hinum nemendunum. Þeim fannst
hann vera of alvörugefinn og inn-
hverfur.
Eftir að hafa lokið námi í heima-
vistarskólanum fór hann i háskóla.
Hann las lög því að hann vildi verða
málafærslumaður.
Kvæntistkonu
afefnafólki
í háskólanum kynntist hann
stúlkunni sem varð konan hans.
Hún hét Mirta og var systir eins
skólabróður hans.
Mirta var af efnaðri og áhrifamik-
illi ætt. Hún var dökk yfirhtum og
lagleg. Foreldrar hennar vom ekki
ánægðir með val hennar. Þeim leist
ekki á þann sem svipmyndin er af.
Er hér var komið sögu var hann
tuttugu og tveggja ára og var að lesa
undir próf.
Brúðkaupið fór fram í rómversk-
kaþólskri kirkju í heimaborg brúð-
arinnar. Síöan fóra ungu hjónin í
brúðkaupsferð til Bandaríkjanna.
Ári síðar eignuðust þau son sem
varð síðar mikið uppáhald fóðurins.
HÖónabandið varð hins vegar eng-
inn dans á rósum. Oftast skorti fé á
heimilinu. Meginhluti fram-
færslufjárins kom frá foður þess
sem hér er lýst.
Afskipti af stjóm-
málum og fangavist
Meðan á háskólanáminu stóð hóf
hann afskipti af stjómmálum. Oft
varð Mirta að sitja ein heima.
Sá sem svipmyndin er af er mikið
fyrir mat og drykk. Hann kýs mag-
urt kjöt og glóðaðan fisk. Þegar
hann var ungur gat hann borðað
mikið af spagettí. Honum finnst
gæsalifur líka góð. Með matnum
drekkur hann gjaman rauðvín fra
Alsír.
Uppáhaldsviskíið hans er Chivas
Regal.
Þegar á unga aldri lét hann sig
miklu skipta hvemig fótum hann
klæddist. Þá gekk hann oft í dökk-
um fötum og með slifsi. Nú em við
vanari að sjá hann öðmvísi klædd-
an.
Þjóöarleiðtogi með aðstoð CIA
Hann hefur farið víða og heimsótt
mörg lönd. En fram til þessa hefur
hann ekki komið til Vestur-Evrópu,
ef frá er talin klukkustundardvöl á
flugvelhnum í Madrid.
Heista dægradvöl hans er neðan-
sjávarveiðar. Hann klæðist þá kaf-
arabúningi og veiðir með skutli.
Fiskurinn, sem hann veiðir, endar
oft á hádegisverðarborðinu hjá hon-
um.
Þegar sá sem svipmyndin er af tók
völdin í heimalandi sínu fékk hann
til þess fjárhagsstyrk frá CIA. Það
var athyglisvert tímabil í lífi hans
en hefvir þó ekki verið mikið til
umræðu.
CIA lagöi honum til fimmtíu þús-
und dali þá. Það kom honum vel
því hann var í fjárþröng.
Hann var aldrei sammála Tító for-
seta Júgóslavíu. Þessir þjóðhöfð-
ingjar rifust eins og hundar og kett-
ir. Og báðir kepptust þeir um hylli
annarra þjóða.
Sá sem hér er lýst er kominn til
ára sinna. Sonur hans er nú fiöratíu
og tveggja ára. Hann er eðlisfræð-
ingur og hlaut menntun sína í Sov-
étríkjunum. Síðar varð hann form-
aður kjamorkumálanefiidar hei-
malands síns. Margjr halda því
fram að hann sé afar líkur fóður
sínum í flestu.
Hann heitir sama nafhi og faðir-
inn en er kallaður Fidelito.
Hver er þessi dularfulli maður
sem svipmyndin er af?
Lausnin er á bls. 56
Matgæðingur vikuimar
Kjúklingur hvítlauks-
drottningarinnar
„Ég elska mat og veit ekkert dá-
samlegra en setjast niður og borða.
Við emm nokkrar valkyrjur í mat-
arklúbbi og hittumst stundum og
eldum saman. Það fer oft heill
vinnudagur í eldamennskuna,"
segir Guðný Einarsdóttir, matgæð-
ingur vikunnar. Kiddý kokkur
benti einmitt á hana vegna þess
hversu mikill sælkeri hún er. „Ég
fer með matreiðslubækur í rúmið
og hef hina mestu skemmtun af,“
segir Guðný.
Hún segir að í matreiðsluklúbbn-
um búi þær vinkonurnar oft til
íburðarmikla eftirrétti eins og inn-
bakaða osta og ávexti pakkaða-í
grískt deig og bakaða í ofni. Meðal
rétta sem þær dunda viö að útbúa
er súkkulaðifonda og í hana dýfa
þær lakkrís, banönum, jarðarberj-
um og kirsubeijum.
Guðný ætlar að bjóða lesendum
upp á sérstæðan kjúkhngarétt sem
hún hefur þróað sjálf og gerir mikla
lukku. Guðný segir að enginn þurfi
að hræðast að rétturinn sé erfiður
því svo sé ekki. „Það þarf einungis
svolitla natni,“ segir matgæðingur-
inn.
„Þetta er fylltur kjúklingur en
fyllingunni er komið undir húð við
bringubeinið þar sem opið er
stærst og síðan þrýst að bringu,
vængjum og læmm með skeið,“
útskýrir Guðný. Þaö sem þarf er
ekki margt en uppskriftin lítur
svona út:
Guðný Einarsdóttir, matgæðingur
vikunnar. DV-mynd Brynjar Gauti
Uppskriftin
1 stór kjúkhngur, 1700-1800 grömm
6 stór, pressuð hvítlauksrif
2 tsk. itahan season
200 g ijómaostur
Aðferð
Hvítlauk, kryddi og osti hrært
saman. Ef fólk er hrætt við aö gera
blönduna sjálft má líka kaupa til-
búinn kryddaðan ijómaost effir
smekk og nota í staðinn. Hræran
er sett undir húð kjúklingsins við
bringubeinið þar sem opið er
stærst. Þrýst í átt að lærum, bring-
um og vængjum með skeið. Áður
hefur kjúklingurinn verið krydd-
aður með salti.
Kjúklingurinn er settur í eldfast
smurt form og bakaöur við 200
gráða hita í tæplega 60 mínútur.
Þegar eldunartíminn er hálfiiaður
er gott að pensla kjúklinginn með
hvítlaukssinjöri (4 pressuð hvít-
lauksrif og 3 matskeiöar af smjöri,
bræddu).
Með þessum rétti er gott að bera
fram bakaða kartöflubáta. Kartöfl-
umar eru burstaðar, skomar í báta
. og settar á salti stráð eldfast form.
Þær em bakaöar í 45 mínútur og
verða þá stökkar og góðar.
Einnig er gott að bera fram með
réttinum smjörgljáðar gulrætur.
Miðað er við hálfa gulrót á mann,
hún er skorin í strimla eða sneiðar
og soðin í smjöri í 4 mínútur. Ág-
ætt er líka fyrir kanínusinnaða að
hafa Iceberg en það gerir réttinn
fahegan.
Guðný ætlar að skora á frænku
sína, Guðrúnu Fræ, bóndakonu í
Hvolhreppi, að vera næsti matgæð-
ingur. Guðrún er mikh hestakona
og rekur stórt hrossabú ásamt for-
eldram sínum. „Hún er mikih sæl-
keri og tók meðal annars þátt í
stofhun valkyrjumatarklúbbs okk-
ar en hefur síðan ekki getað mætt
vegna mikilla anna í sveitinni. Þar
fyrir utan hefur hún kennt mér
margt í sambandi við eldamennsk-
una, ekki síst að njóta matarins,"
segirGuðnýEinarsdóttir. -ELA
Hinhliöin
Maturinn hennar
mömmu er bestur
- segir skemmtanastjóri Tunglsins
Leifur Bjöm Dagfinnsson er
skemmtanastjóri skemmtistaðar-
ins Tunglsins sem opnað var eftir
langt hlé 11. september síðasthð-
inn. Nýir eigendur tóku við staðn-
um og gjörbreyttu honum. En hvað
gerir skemmtanastjóri?
„Hann sér um hönnun auglýs-
inga í blöð og útvarp, hönnun boö-
smiða og öh almannatengsl, er and-
ht staðarins út á við. Þá sér hann
um að gestir staðarins séu ánægðir
og leysir úr þeim vandamálum sem
upp kunna að koma,“ segir Leifur.
Hann segist þokkalega ánægður
með starfið. Hann hefur áður unnið
við auglýsinga- og kvikmyndagerð
en dijúgur hluti frístunda hans fer
í iðkun handbolta. Hann leikur nú
með Haukum í Hafnarfirði en hef-
ur annars leikið með KR. Leifur
sýnir á sér hina hhðina að þessu
sinni.
Fullt nafn: Leifur Bjöm Bjamason
Dagfinnsson.
Fæðingardagur og ár: 18. mars
1968.
Maki: Enginn.
Böm Engin.
Bifreið: Engin eins og er, er að leita.
Starf: Markaðs- og skemmtana-
sfjóri Tunglsins og nemi.
Laun: Yfir meðahagi.
Áhugamál: íþróttir, auglýsinga-
gerð, kvenfólk og siglingar.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Man það ekki.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Drekka bjór og Gammel
Dansk úti á Eyrarsundi.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
Leifur Bjöm Dagfinnsson.
gera? Leggja bíl í miðbænum og
borga stöðumælasektir, ég þoh það
ekki.
Uppáhaldsmatur: Maturinn henn-
ar mömmu.
Uppáhaldsdrykkur: Jim Beam á
klaka.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Michael
Jordan.
Uppáhaldstímarit: Premier.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð? Michehe Pfeiffer.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Michael Jordan og líka
Robert de Niro.
Uppáhaldsleikari: Robert de Niro.
Uppáhaldsleikkona: MicheUe
Pfeifíer.
Uppáhaldssöngvari: Pavarotti. Svo
er Bono í U2 góður.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Jón
Kristinn Snæhólm, hann á eftir að
verða forsætisráðherra.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Bugs Bunny.
Uppáhaldssjónvarpsefni: NBA-
körfuboltinn og Ráð undir rifi
hveiju með Bertie Wooster og þjón-
inum Jeeves.
Ertu hlynntur eða andvigur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan, en ég hlusta líka svo-
htið á Sólina.
Uppáhaldsútvarpsmaður: HaU-
grímur Thorsteinsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Bjami
Fel.
Uppáhaldsskemmtistaður: Tungl-
ið, að sjálfsögðu.
Uppáhaldsmatsölustaður: Nokken
í Rungsted, siglingaveitingstaður
sem Janni Spies átti í um tíma. Það
er enginn staður í uppáhaldi hér
heima.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ég hef
aUa tíð haldiö með KR en spUa nú
handbolta með Haukum þannig að
það er erfitt fyrir mig að svara.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtiðinni? Upp á við og að halda
heUsu.
Hvað gerðir í sumarfríinu? Sigldi
um Eyrarsundið á skútu og sphaði
tennis.
-hlh