Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1992, Side 31
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1992.
43
Allar manneskjur óttast dauöann innst inni. A banastundinni er haldiö til móts við hiö óþekkta og eiginlegri
tilvist er lokið. Eftir því sem sjálfsmynd einstaklingsins er sterkari þeim mun betur gengur að mæta og sætta
sig viö þá óvissu sem fylgir dauðanum. í nútímasamfélagi hefur báðum andlitum dauðans hins vegar verið
úthýst. Menn reyna að forðast alla nálægð við andlátjð.
Tvö andlit
dauðans
Janus var einhver elsti guð Róm-
veija. Hann gætti dyra og innganga
og hafði tvö andlit svo að ekkert
færi fram hjá vökulum sjónum
hans. í augum flestra hefur Than-
atos, þjónn og sendiboði dauðans,
líka tvær ásjónur. Annars vegar
ber hann andstyggilega ásýnd ræn-
ingjans sem sviptir fjörlegt fólk líf-
inu í bílslysi eða með snöggum ill-
kynja veikindum og bindur þannig
vondan endi á allar framtíðaráætl-
anir og lífshamingju. Hins vegar
er blíðlegt, jákvætt andht lausnar-
ans sem lýkur þjáningum og byrð-
umlífsins.
Vonda andlitið
Auðvelt er að skilja þá neikvæöu
mynd sem margir gera sér af dauð-
anum. Flestir hræðast eigin enda-
lok. Dauðinn er sláttumaðurinn
slyngi sem heggur á lífsblómið og
slær allt hvað fyrir er. Hann er
raunveruleg og skelfileg ógnun við
mannlegatilveru.
Margir telja því að beijast skuh
gegn dauðaiium með öUum tiltæk-
um ráðum. Þetta þekkja læknar
sem einhvem tíma hafa kynnst
fjölskyldu sem skyndhega horfist í
augu við alvarlegan sjúkdóm.
Krabbameinið verður eins og
hamslaust dýr sem læsir klóm sín-
um í þann sjúka og reynir að hrífa
hann með sér ofan í djúp hins
óþekkta.
Dauðinn tekst á við lífsorku,
kraft og sálarþrek sjúklingsins og
ættingja hans. Þau fyUast ótta
gagnvart því ofurefh sem dauðinn
er. Sjúklingurinn deyr fuUur af
beislgu og angist. Hann berst fram
í síðasta andvarpið og heldur
krampakenndu taki í lífið þar til
yfir lýkur. Aðrir deyja undrandi
og reiðir á svip eins og bam sem
týnt hefur frá sér uppáhaldsleik-
fanginu.
Góða andlitiö
Allir þekkja dauðann sem leysir
frá kvöl. Margir sem lifað hafa góða
ævi en horfast í augu við alvarlega
sjúkdóma, eUi og bjargarleysi hta
á dauöann sem frelsara. Læknar
sjá þetta hjá þeim sem Utur um öxl
á ævi sína og ber hana samæi viö
það ástand sem viö blasir. Hann
skhur að engin leið er fær til þess
lífs sem eitt sinn var og þess vegna
kýs hann að deyjaog fá þannig ei-
lífa ró og hvUd. Eg hef séð fólk deyja
með bros á vör eins og það væri
að leggja upp í langferð sem lengi
hefði veriö tilhlökkunarefni.
Sigmund Freud lýsti oft dauðan-
um sem blíðlyndum frelsara. Sjálf-
ur hafði hann lengi þjáðst af iU-
kynja krabbameini sem olh honum
miklum sársauka. Hann lýsti lífi
sínu einu sinni eins og „eyju af
sársauka í úthafi þar sem allir létu
sér fátt um finnast". Hann vUdi feg-
inn komast frá þessu eylandi þján-
ingarinnar.
Þessar tvær ásjónur dauðans búa
saman í sálarlífi aUra. AUar mann-
eskjur óttast dauðann innst inni. Á
banastundinni er haldið til móts
við hið óþekkta og eigiiUegri tilvist
er lokið. Eftir því sem sjálfsmynd
einstaklingsins er sterkari þeim
mun betur gengur að mæta og
sætta sig við þær ógnir sem lífið
hefur í för með sér og þá óvissu sem
fylgir dauðanum. Þeir sem hafa
Álæknavaktiimi
ólj ósa mynd af eigin persónu,
styrkleika og veikleika eiga erfitt
með að takast á við þá angist sem
dauðanum er samfara.
Dauðinn
í samfélaginu
í nútímasamfélagi hefur báðum
andhtum dauðans veriö úthýst.
Menn reyna að foröast aUa nálægð
við andlátið. Fólk deyr á sjúkra-
húsum og ættingjar sjá vart líkið.
Dauðinn er þó daglegur gestur í
fréttum sjónvarps og ótal þáttum
,en þar er hann fjarlægur, stundum
skoplegur og mjög óraunhæfur.
Fæstir hafa raunverulega tilfinn-
ingu fyrir eigin endalokum. Eðh-
legur og eðhslægur kvíði fyrir
dauðann verður óljós og fljótandi.
Margir mannvinir, s.s. Tjörvi
læknir, telja að sá mikh ótti og
kvíði sem tröUríöur nútímamönn-
um eigi rætur að rekja til þessa
dauðaótta sem fæstir geta þó skU-
greint.
Önnur afleiðing þessa eru ahar
sjálfsmorðstilraunir sem gerðar
eru. Fólk tekur of stóra skammta
af lyfjum til að komast frá hvers-
dagsleikanum. Margir gera sér
grein fyrir því sem þeir eru að flýja
en fæstir vita hvert þeir ætla sér
að fara. Dauðinn verður óraun-
verulegur og fólk htur á hann sem
skamma hvUd frá dagsins önn og
amstri.
Dauðinn í
íslendingasögum
Höfundar íslendingasagna gerðu
sér góða grein fyrir dauöanum
enda var hann þeim bæði raun-
verulegur og endanlegur. Þeir
lögðu á þaö ríka áherslu að menn
brygðust vel við banastundinni.
I Islendingasögum er urmuU af
frásögnum um dauödaga söguhetj-
anna og því lýst hvemig þær deyja
með hreystiyrði á vörum og glotta
við tönn eöa gera að gamni sínu
fram í andlátiö. En höfimdur Njálu
vissi líka að banastundin væri eng-
inn leikur. Þegar Ath húskarl
Bergþóru hittir fyrir Víga-Kol,
vinnumann Hahgerðar Höskulds-
dóttur, og leggur hann með spjóti
segir hann þessi fleygu orð: „Það
átt þú eftir er erfiðast er, en það
erað deyja.“
Hvemigerbest
að hjálpa fólki?
Þeir sem lengi bíða dauðans, bæði
óttast hann og þrá. Sú mynd sem
einstaklingurinn gerir af sjálfum
sér ráeður miklu um afstöðu hans
tileiginlífs.
Þeir sem lifa í stöðugri eftirsjá
og ófuhnægju eiga erfitt með að
sætta sig við þá tilhugsun að lífinu
sé skyndUega lokiö. Þeir gleymdu
að lifa í núinu en heUluðust af
óhamingju gærdagsins.
Þeir sem fulhr eru sjálfstrausts
og lifa í deginum í dag eiga mun
auöveldara með að sætta sig við þá
óvissu sem fram undan er. Þeir sem
lifðu í sátt og samlyndi við guð og
menn deyja venjulega sáttir. Hinir
sem höfðu aht á homum sér og
fundu aldrei neina fullnægju eða
sálarró skhjast við þetta jarðlif
bæði beiskir og bitrir.
Allir finna þó fyrir einhverriang-
ist og kvíöa gagnvart dauðanum.
Ástvinir þurfa að átta sig á þessum
kvíða til að geta aðstoöað sjúkling-
inn. Best er að geta talað um dauð-
ann og þá skilnaðarstund sem fram
undan er. Dauöinn er alltaf erfiður
en skhningur og samhugur ástvina
getur létt mörgum þessi síðustu
erfiðu skref að ánni Styx til fundar
við Karon feijumann.
Uppboð
Upppboði á mb. Herái HF-227, skipaskránúmer 1626, þinglýst eign Skelja-
kletts hf„ verður framhaldið á skrifstofu sýslumannsins í Hafnarfirði, Strand-
götu 31, Hafnarfirði, þriðjudaginn 10.11. 1992 kl. 16.00. Gerðarbeiðandi
er Byggðastofnun.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
LEITIN ENDAR
HJÁ OKKUR
SALAN ER ÖRUGG HJÁ OKKUR
m
JNIff
BRAIIT HF.
SÍMAR 681510 OG 681502
á næsta sölustað • Áskriftarsími 63-27-00
TÍVOLÍ
Við höfum lokað í vetur.
Þökkum öllum sem heimsóttu okkur á árinu.
|____Sjáumst heil á árinu 1993._
Tívolí, Hveragerði
í .
£I_ANTRA
...þessi með betri hUðamar
- bíllinn sem ber af
• 4 dyra stallbakur
• 114 hestafla vél.
• 16 ventla.
) sjálfskipting. -- * *
drifhar rúður og samlaising á hurðum. VGTO ITa
• Hvar&kútur. 1.059.000,-kr.
HYUnöRi
.til framtídar
!£i
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ÁRMÚLA 13, SfMI: §8 12 00