Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1992, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1992.
Svipmyndin
Hver var maðurinn?
peninga. Starfs síns vegna var
hann oft aö heiman. Charlotte
undraöist hvaö hann hefði þá fyrir
stafni. Hélt hann áfram aö eiga
fundi meö ástkonum sínum? Eigin-
konan leigði spæjara til að fylgjast
með honum.
Charles komst í uppnám. Hann
frétti af grunsemdum konu sinnar.
í þeim hópi, sem hann inngekkst,
þótti hliöarspor ekki tiltökumál.
Reyndar var það í tísku að eiga
ástkonu. Sjálfur konungurinn gaf
fordæmi í því efni.
Veginn í Hollandi
En Charlotte var greinilega ann-
arrar skoðunar. Það komu brestir
í hjónabandið. Og þegar það hafði
staðið í sex ár lauk því með skiln-
aði. í hlut Charlotte kom aö sjá um
drengina tvo sem þau höfðu eign-
ast. Sá sem svipmyndin er af hafði
ekki tíma til að sinna uppeldinu.
Hann var framagjarn.
Honum vegnaði vel um þessar
mundir og var skipaður í eitt æðsta
embætti ríkisins. Þegar landið lenti
í stríði var honum fengin yfirstjóm
mikils herafla. Árið 1673 féll hann
í árás á virki í Hollandi.
Til er eignaskrá frá heimili hans.
Líklega var hún samin eftir andlát
hans. Þar má lesa um það sem var
í húsinu við Quai de la Grenouill-
ere.
Það var heldur fábrotið tveggja
hæða hús. Á neðri hæðinni var eld-
hús og borðstofa. Á efri hæöinni
vora nokkur stór herbergi og nokk-
uð af íburðarlitlum húsgögnum.
Sá sem svipmyndin er af hafði
stórt herbergi á efri hæðinni. Rúm-
ið hans var á bak við hlíf og yfir
því var himinn og tjöld úr ósviknu
silkiefni.
Húsgögnin voru ekki mikils virði.
Hins vegar hafði Charles átt mikið
af fótum, jakka, buxur úr leðri,
peysur, sloppa, skikkjur, sokka og
skinnhanska.
Til notkunar við hátíðleg tæki-
færi átti hann einkennisjakka með
gullísaumi og silfurblómum. Þá
voru silfur- og gullhnappar á mörg-
um fata hans.
Á listanum er einnig tyrkneskur
morgunsloppur og neftókbaksdósir
en engar bækur, peningar eða
skjöl, að frátöldu þó aðalsbréfinu,
hjúskaparsamningnum og nokkr-
um vhdlblöðum.
Skuldimar voru miklu meiri en
eignimar en þær voru taldar 4.500
franka virði.
í búinu fundust einnig sverðin
hans. Eitt er með mattfáguðu hjalti
úr gulli og látúnsgripi. Þaö eru
sverðin sem hafa gert hann frægan
um allan heim, því þeim er vel lýst
í skáldsögunum um hann og ótelj-
andi kvikmyndum um ævi hans og
ævintýri.
Það er þess virði að íhuga hvaö
fengist fyrir þau á uppboðum í dag.
Hver var hann?
Svar á bls. 56
Allir þekkja eftimafn þess sem
svipmyndin er af. En það em ekki
margir sem vita að fomafn hans
var Chaiies.
Hann átti sér athyglisverðan fer-
il. Líf hans einkenndist af áhrifa-
miklúm atburöum og ævintýmm.
Það einkenndist einnig af ást.
Vitað er aö hann átti margar ást-
konur. Ýmsar af þeim vom vel efn-
aðar. En sá sem hér er lýst vildi
halda sig ríkmannlega og laun hans
nægðu ekki til þess að hann gæti
það. Útgjöldin vom alltaf meiri en
tekjumar.
Þess vegna þáði hann fé af ást-
konum sínum. Hann skammaðist
sín ekki fyrir það. Það var viðtekið
á þeim tímum meðal þess fólks sem
hann umgekkst.
Þeir sem lifa á þennan hátt eiga
eðlilega ýmsa óvildarmenn. Tál-
dregnir eiginmenn og eiginkonur,
sem sviknar era í tryggðum, em
ekkert lamb að leika sér við. Oft
var reynt að ráða þann sem svip-
myndin er af af dögum. Launmorð-
ingjar vom fengnir til að myrða
hann. Og nokkrum sinnum slapp
hann lifandi fyrir hreina heppni.
Mest er vitað um þann sem svip-
myndin er af úr bók sem skrifuö
var fyrir langa löngu. í rúma öld
lá hún gleymd og grafm í bókasafni
og hjá fornbóksala en svo var hún
dregin fram í dagsljósið.
Því miöur er bókin mjög óáreið-
anleg. Hún hefur bæði að geyma
staðreyndir og skáldskap. Þess
vegna em stórir þættir í lífi Char-
les myrkri huldir.
Kvæntist35 ára .
Margir telja að sá sem svipmynd-
in er af hafi byijað meö tvær hend-
ur tómar og líkja megi honum við
þá sem á okkar dögum vinna sig í
áht og verða að lokum forstjórar
fyrirtækisins sem þeir byrjðu hjá
sem sendisveinar.
En þannig var það þó ekki. Sá
sem hér er lýst var af efnafólki.
Foreldrar hans höfðu notið vel-
gengni. Og án stuðnings áhifaríkra
ættingja hefði hann líklega aldrei
komist eins langt og raun bar vitnl
Þær vom margar kommiar sem
dreymdi um að gjftast Charles. En
það var ekki fyrr en hann var orö-
inn þijátíu og fimm ára að hann
gekk í hjónaband. Og eiginkonan
var honum að skapi. Hún var rík
ekkja, Charlotte að nafni.
Auðvitaö var brúpkaupsveislan
glæsileg. Bæði konungurinn og for-
sætisráðherrann vom viðstaddir.
Brúðhjónin settust síðan að í húsi
við Quai de la Grenouillere í París,
með útsýni yfir Signu.
Ekki er Ijóst hvemig Charlotte
leit út. En þaö má slá því fostu að
hún hafi verið skynsöm. Hún leit
nefnilega á það sem skyldu sína að
vemda eignir sínar með sérstökum
kaupmála.
Charlotte var sparsöm og hagsýn.
Sá sem svipmyndin er af var aftur
á móti eyðslukló og kunni að meta
Matgæðingur vikuimar
Fiskréttur
sælkerans
„Ég fékk þennan fiskrétt í
Reykjavík, hjá Hafliða Kristins-
syni, forstöðumanni í Hvítasunu-
kirkjunni. Ég útvegaði mér náttúr-
lega uppskriftina enda er hann
mjög ljúffengur," segir Rósa Aðal-
steinsdóttir á Vopnafirði.
Rósa tók áskorun Guðrúnar
Markúsdóttur eftir að Guðni Ein-
arsson, sem skorað var á í blaðinu,
neitaði að vera með. Rósa segist
hafa gaman af góðum mat og segist
af og til elda eitthvert góðgæti, sér-
staklega við hátíðleg tækifæri. Hún
segist fá uppskriftir hjá hinum og
þessum, auk þess sem hún leikur
af fingmm fram.
Rósa býður upp á ýsurétt, fiskrétt
sælkerans. Ekki era gefin upp
ákveðin mál svo lesendur verða aö
„spila eftir eyranu“.
Það sem þarf
í þennan sælkerarétt þarf:
ýsuflök
salt
pipar
sítrónusafa
hveiti
'A tsk. karrí
smjör
1 pela rjóma
Skorin í stykki
Ýsuflökin em roðflett og skorin í
Rósa Aðalsteinsdóttir.
hæfileg stykki, þerruð og söltuð.
Sítrónusafa er síðan hellt yfir
stykkin þar sem þau hggja á skurð-
arbrettinu eða diski og þau látin
standa þannig í nokkrar mínútur.
Þá eru fiskstykkin þerruð aftur
með eldhúsrúllu.
Þá er hveiti, salti, pipar og 'A tsk.
af karríi blandað saman, fiskinum
velt upp úr og hann snöggsteiktur
í smjöri. Stykkjunum er síðan rað-
að í smurt eldfast mót.
Nokkmm dropum af sojasósu er
bætt í pönnuna auk pela af ijóma
og sósan soðin aðeins niður (ef vill
má blanda mjólk í rjómann). Sós-
unni er hellt fyir fiskinn, ostur rif-
inn og stráð yfir auk smávegis af
raspi. Mótið er loks sett í 200 gráða
heitan ofn í 15-20 mínútur. Með
þessu eru snædd soðin hrísgijón,
sojasósa og hrásalat.
Rabarbarapæ
TO að setja punktinn yfir i-ið
ákvað Rósa að gefa einnig upp-
skrift að finnsku rabarbarapæi
sem hún fékk hjá mágkonu sinni.
í það þarf:
100 g smjörlíki
'A dl sykur
2 dl hveiti
/i kg rabarbara
2 dl sykur
Smjörlikinu, sykrinum og hveit-
inu er hnoðað saman í skál (verður
laust í sér). Rabarbarinn er settur
í eldfast mót og 2 dl af sykri stráð
yfir. Þá er deiginu stráð yfir og aht
sett í 225 gráða heitan ofn í rúman
hálftíma. Rabarbarapæið er borið
fram með ís eða þeyttum rjóma.
Rósa skorar á mágkonu sína,
Astrid Öm Aðalsteinsson, að vera
matgæðingur næstu viku.
-hlh
Hinhliðin
Ætla að halda
lífsgleðinni
- segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
hefur vakið athygh sem pistlahöf-
undur á rás tvö en ekki em allir
ahtaf sammála því sem hann hefur
fram að færa. Hannes Hólmsteinn
hefur í gegnum árin verið umdeild-
ur maður og varla breytist þaö í
bráð. Um þessar mundir er að
koma bók út eftir Hannes þar sem
hann segir frá lífi Jóns Þorláksson-
ar. Það er Hannes Hólmsteinn sem
sýnir hina hhðina að þessu sinni:
Fullt nafn: Hannes Hólmsteinn
Gissurarson.
Fæðingardagur og ár: 19. febrúar
1953.
Maki: Ókvæntur.
Böm: Ég er barnlaus.
Bifreið: Nissan NX 100 1991 (th af-
nota við og við).
Starf: Dósent í stjómmálafræði.
Laun: Um 150 þúsund á mánuði.
Áhugamál: Stjómmál, fagrar bók-
menntir, klassísk tónhst, saga og
síðast en ekki síst lifandi fólk.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur i lottóinu? Eg tek ekki þátt í
því.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að skrifa bækur og sitja aö
skrafi með skemmtilegu fólki um
lífið og tilveruna.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að lenda í vandræðum vegna
vanrækslusynda annarra.
Uppáhaldsmatur: Steiktir humar-
halar og góður íslenskur fiskur
(ýsa og lúða).
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
dósent í stjórnmálafræði.
Uppáhaldsdrykkur: Chateau Cant-
enac Brown rauðvín og Puhgny
Montacket hvítvín.
Hvaða íþróttamaður fmnst þér
standa fremstur í dag? Carl Lewis.
Uppáhaldstímant: Bókmennta-
tímaritið Times Literary Supple-
ment.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð? Frænka mín, Hólmfríð-
ur Karlsdóttir. (Sumir segja að
sterkur svipur sé með okkur!)
Ertu hlynntur eða andvígur rikis-
stóminni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Margréti Thatcher.
Uppáhaldsleikari: Chnt Eastwood.
Uppáhaldsleikkona: Hanna Schy-
guha.
Uppáhaldssöngvari: Pavarotti.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Dav-
íð Oddsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Andrés önd.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir og
breskir gamanþættir.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás tvö.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Sigurður
G. Tómasson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Jafnmikið. Mér finnast
fréttimar á Stöð 2 hressilegri en
ýmsir þættir í Sjónvarpinu að jafn-
aði betri.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ehn
Hirst.
Uppáhaldsskemmtistaður: Café
Romance og Bíóbarinn.
Uppáhaldsveitingahús: Við Tjöm-
ina og Hótel Holt.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? Róðrar-
félag Oxford-háskóla.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Aö halda lífsgleðinni
hvemig sem viðrar á lífsleiðinni.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu?
Skipti tímanum sl. sumar á milli
dönsku sólarinnar og bókasafna í
Kaupmannahöfn. -ELA