Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1992, Blaðsíða 13
Átta manna hljómsveitin Af lífi og sál:
Stendur á tímamótum
Hljómsveitin Af lífi og sál hefur
verið að sækja í sig veðrið og styrkja
stöðu sína á tónleikamarkaðinum að
undanfomu. Hingað til hefur hún
einskorðað sig við að flytja þekkta
tónlist frá ýmsmn tímum en innan
skamms verður frumsaminni tónlist
bætt við prógrammið.
„Að því leyti stendur hjjómsveitm
á tímamótum um þessar mundir,"
segir Ósvaldur Guðjónsson trompet-
leikari. Það er ýmislegt fleira í deigl-
unni, svo sem saxófónleikaraskipti.
Skúli Thoroddsen ákvað að hætta og
við erum einmitt að prófa nýjan
mann þessa dagana."
Átta manns leika og syngja með
Af lífi og sál og Ósvaldur segist vel
geta hugsað sér að bæta við básúnu-
leikara og öðrum trompetleikara!
„Það verðrn- þó tæplega á næst-
imni,“ segir hann, „nema við tökrnn
þátt í einhveijum sýningum. Þá
styrkjum við blásarasveitina"
Með honum í hljómsveitinni eru
Birgir Jónsson trommuleikari, Bent
Marinósson gítarleikari, Jón bassi
Erlingsson, Sigmundur Sigtryggsson
hijómborðsleikari og söngvararnir
Haukur Hauksson og Kristjana Ól-
afsdóttir. Sá áttundi í hópnum er
saxófónleikarinn sem er að bætast í
hópinn þessa dagana.
Það fylgja því bæði kostir og ókost-
ir að spila með stórri hljómsveit Það
getur til dæmis verið ókostur þegar
þarf að koma hljómsveitinni fýrir á
sviðinu. Ósvaldur segir að hingað til
hafi það þó tekist með því að koma
trommusettinu fyrir fyrst. Síðan
hafa hinir raðað sér upp með txUiti
til þess.
„Við höfum til dæmis mikið spilað
á Gauki á Stöng. Hann hefur eigin-
lega verið fasti punkturinn okkar í
tilverunnL Þar er sviðið hins vegar
svo lítið að við þurfum að standa
ansi þröngt Þegar við komum fram
á Hótel íslandi á dögunum nutum
við okkar hins vegar til fulls. Þar
hafði hver og einn nóg olnboga-
rými,“ segir Ósvaldur.
Hann segir að Aflífi og sál hafi ein-
beitt sér jafiit að rokki og soultónlist
hingað tiL Á prógramminu er að
finna mörg þekktustu lög Blood Swe-
at And Tears og Chicago í bland við
annað gott „Við þökkum okkur eig-
inlega það hve margir þekkja orðið
tónlist Blood Sweat And Tears
núna,“ segir hann og hlær. „Annars
erum við ákaflega ánægð með þá at-
hygh sem við höfum vakið. Reyndar
hefur okkur gengið mun betur en við
bjuggumst við. Við komum hvert úr
sinni áttinni og erum á mismunandi
aldri, allt frá nítján ára og upp í þri-
tugt. Og stefiian er að sækja hressi-
lega í sig veðrið á næsta ári og helst
að keppa við þá bestu í bransanum."
Af lífi og sál: Mannmörg hljómsveit sem hefur vakið mikla athygli að undanförnu.
Sjöunda sólóplatan:
Rúnar Þór
Hugsun
Rúnar Þór sendi fyrr í vikunni
frá sér sjöundu sólóplötu aína. Sú
nýja heitir Hugsun. Skifan gaf út
tvær síðustu plötur listamanns-
ins en kvikmyndafelagið + Film
er útgefandi Rúnars að þessu
sinnL
Á Hugsun er að finna eitt lag
affVrstu plötu Rúnars Þórs, Auga
í vegg. Það er lagið Friður. Texti
þess er eftir Jónas Friðgeir sem
íést ftrrr á þessu ári. Lagið hefur
verið hijóöritað að nýju og er til-
einkað minningu textahöfundar-
ins. Jónas Friögeir á annan texta
á Hugsun, svo og Sverrir Storm-
sker, Þorsteinn Magnússon gítar-
leikari í hljómsveit Rúnars og
fjórir eru eftir Heimi Má, bróður
Rúnars. Þá er eitt lag plötunnar
samið viðljóð eftir Stein Steinarr.
Þá heldur Rúnar Þór þeim sið
sinum að bjóða upp á eitt ósungið
lag á plötu sinni eins og undan-
farin ár. Ósungna lagið á Hugsun
heitir Alda. Þótt haldið sé i ýmsar
hefðir segist Rúnar Þór þó leita
að ýmsu leyti nýrra leiða á nýju
plötunni.
LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1992.
Helgaipopp
Keith Richards
í Evrópuferð
Keith Richards leggur upp í
sina fyrstu hljómleikaferð um
Evrópu án The Rolling Stones á
næstu dögum. Hann hefur æft af
kappi fyrir ferðina ásamt hinni
hijómsveitinm sinni, The
Xpensive Vinos. Fyrstu hjjóm-
leikamir veröa í Kaupmanna-
höfh. Síðan liggur leiðin til Hol-
lands, Frakklands, Spánar og
Bretlands. Hugsanlegt er talið að
fleiri löndum veröi bætt við eftir
að ferðin er hafin.
Kehh Richards ætlar í ferðinni
að fylgja eftir nýrri sólóplötu
sinni sem heitir Main Offender.
Hún er önnur sólóplata Richards.
Mick Jagger verður önnum kaf-
ínn við það á næstu mánuðum
að fylgja sinni þriöju plötu eför.
Fastlega er búist við að Fimm-
menningarnir í Rofiing Stones
komi saman á næsta ári til að
vinna að nýrri plötu. Jafhvel
strax i mars. Richards sagði í
nýlegu blaðaviðtali að hann
byggist fastlega við að Bill Wy-
man yröi með þrátt fyrir að Wy-
man hafi lýst því yfir að hann sé
hættur.
>
...BÆTA TM TRYGGINGAR TJÓNIÐ!
Tryggingamiðstöðin hefur starfað
á íslenskum vátryggingamarkaði í
áratugi og er nú þriðja stærsta vá-
tryggingafélag landsins. Félagið er
leiðandi í fiskiskipatryggingum
landsmanna, en býður einnig allar
almennar vátryggingar fyrir
einstaklinga svo sem bifreiða-,
fasteigna- og fjölskyldutryggingar.
í nýlegri könnun kom fram sterk
staða Tryggingamiðstöðvarinnar í
allri þjónustu við viðskiptavini
sína, t.d. símaþjónustu, upplýsinga-
gjöf og persónulegri þjónustu.
Við erum sveigjanleg í samningum,
bjóðum góð greiðslukjör og sann-
gjarna verðlagningu.
Hafðu samband við sölumenn
Tryggingamiðstöðvarinnar í- nýjum
húsakynnum í Aðalstræti 8,
sími 91-26466 eða næsta umboðs-
mann og kynntu þér góð kjör á
TM tryggingum.
TRYGGINGA
MIÐSTÖÐIN HF.
Aðalstræti 6-8, sími 91-26466