Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1992, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1992, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1992. Otgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Sæstrengsórar Sæstrengsverksmiðja er til ýmissa hluta nytsamleg fiárfesting, en alls ekki til að auka atvinnu fólks í Reykja- vík. Þeir eru á villigötum, sem rökstyðja stuðning sinn við könnun málsins á þeim forsendum, að Reykjavíkur- borg sé með þessu að efla atvinnutækifæri borgarbúa. Sæstrengsverksmiðja kostar fimm milljónir króna á hvert starf, sem hún skapar. Að því leyti er hún afar dýr kostur, sem tekur fjármagn frá tækifærum, er gætu veitt mörg störf á hverjar fimm milljónir í fjárfestingu. Enn óhagstæðari eru hlutfólhn í tilheyrandi orkuverum. Stóriðja og orkuframkvæmdir eru girnilegir kostir í þjóðfélagi, þar sem ríkir umframatvinna, þar sem reynt er að efla verðmætasköpun, er truflar vinnumarkaðinn sem minnst. Á þeim forsendum var á sínum tíma ráðizt í samninga um byggingu álvers í Straumsvík. Viðhorfm hljóta að vera allt önnur í þjóðfélagi at- vinnuleysis. Þá hljóta Ijármagnsfrekar framkvæmdir að hverfa í skugga aðgerða til að hlúa að atvinnugrein- um, þar sem lítil flárfesting er að baki hvers starfs, sem búið er til. Þannig nær hver króna meiri árangri. Sæstrengsverksmiðja getur samt verið góður kostur, en á allt öðrum forsendum en atvmnuaukningar. Hún gerir ríkinu og dótturfyrirtæki þess í orkugeiranum kleift að koma ónotaðri orku í verð. Þetta er grundvall- arforsenda aðildar Landsvirkjunar að slíku dæmi. Sæstrengnum fylgir sá hliðarkostur, að hann er ekki í málmgeiranum eins og áhð og járnblendið, sem lenda í sérstaklega mikhh sveiflu, þegar krepputitringur fer um heimsbyggðina í kjölfar þess, að köldu stríði lýkur og hergagnaverksmiðjur neyðast til að loka. Sæstrengsverksmiðja getur líka verið gagnleg fyrir sveitarfélagið, þar sem hún starfar. Henni fylgja að- stöðugjöld og útsvar, ef ríkið hrifsar ekki til sín of mik- inn hlut í formi einhvers konar landsútsvars á gamal- kunnum forsendum baráttu gegn byggðaröskun. Forráðamenn sveitarfélags á borð við Reykjavík verða að hafa í huga, að gráðugt og stundum lítt vin- veitt ríkisvald getur stjórnað því með handafli skatt- heimtu og byggðastefnu, hve mikið borgin hefur upp úr að leggja morð fjár í áhætturekstur af þessu tagi. Einnig verða forráðamenn Reykjavíkur að hafa í huga, að eignaraðild að viðskiptavini hefur stórfehd vandamál í för með sér, þegar iha gengur. Þannig sjáum við nú, að ríkið neyðist th að láta Landsvirkjun lækka spottprísinn á orku til járnblendiversins í Hvalfirði. Þegar iha gengur hjá sæstrengsverksmiðjunni fyrir- huguðu, munu forráðamenn hennar hlaupa grátandi til stóra hluthafans og biðja um frestun og afslátt á greiðsl- um. Þeir munu biðja um borgarábyrgð og rekstrarlán og aukið hlutafé, alveg eins og jámblendimenn. Sæstrengsdraumurinn er reldnn áfram af órum, sem við þekkjum úr stóriðjudraumum, fiskeldisdraumum og loðdýradraumurn. Hann felur í sér tækifæri, en getur hæglega breytzt í martröð, einkum ef opinberir aðhar á borð við ríki og borg eiga að útvega peningana. Samt er ekki vitlaust af Reykjavíkurborg að verja 20 mihjónum á móti 80 milljónum frá útlöndum til að láta kanna hagkvæmni slíkrar verksmiðju. Sumt af pening- unum og reynslunni skhar sér th baka, þótt ekki verði af framkvæmdum. Athugun jafngildir ekki martröð. Hinu megum við svo ekki gleyma, að hugmyndin um sæstreng th orkuflutnings er ekki háð því, að sjálfur strengurinn sé framleiddur í landinu eða í borginni. Jónas Kristjánsson Jeltsín leitar liðs framkvæmda- manna úr nóm- enklatúrunni Eftir því sem nær dregur mánaða- mótum eykst pólitísk spenna í Moskvu. Fyrsta desember á Þing þjóðfulltrúa, æðsta löggjafarsam- koma Rússneska sambandslýð- veldisins, að koma saman til síðara hálfs mánaöar þinghalds á árinu. Andstæðingar Boris Jeltsín Rúss- landsforseta hafa gert lýðum ljóst aö fyrir þeim vakir að nota þing- haldið tii allsherjaratlögu gegn honum og stjórn hans. Þing þjóðfulltrúa var kjörið 1990, viö aðstæður gjörólíkar þeim sem nú ríkja. Valdaeinokun Kommún- istaflokks Sovétríkjanna hafði ný- skeð verið aflétt og flokksvélin hafði enn mátt til að ráða þorra þingfulltrúa af landsbyggðinni. Síðan hafa Sovétríkin leyst upp og flokkurinn veriö bannaður en tahð er að gömul flokksbönd geti ráðið afstöðu verulegs meirihluta þing- manna. Þingið kýs 252 manna Æðsta ráð til að sitja að staðaldri í Moskvu. í störfum þess hefur hvað eftir ann- aö sýnt sig að raunverulegir stuön- ingsmenn Rússlandsforseta eru þar í miklum minnihluta. Fyrir viku gekk Æðsta ráðið í berhögg við forseta og ríkisstjóm með því að samþykkja frumvarp um aö rík- isstjómin væri ábyrg fyrir þinginu en ekki forsetanum. Atkvæði féllu þannig að 137 í Æðsta ráðinu greiddu atkvæði með þessari stork- un viö Jeltsín en aðeins 13 á móti. Engar líkur em á að þessi breyt- ing á stjómskipan taki gildi. Til að svo yrði þyrfiti að gera sjö breyting- ar á gildandi stjórnarskrá og þar að auki er víst að Jeltsín neitar að undirrita frumvarpið þótt það fái fullnaðarafgreiöslu. Styrkur Jeltsíns er að hann var þjóðkjörinn sumarið 1991 meö yfir- gnæfandi meirihluta eftir að raun- verulegt stjómmálafrelsi hafði náð að hafa áhrif. Þingfulltrúamir, sem kjörnir vom ári áður, em flestir gersamlega vonlausir um endur- kjör af því að valdabakhjarl þeirra er gufaður upp viö útþurrkun hug- myndafræði lenínismans. Þetta vita þeir og þetta veit almenningur. Engu að síður getur Þing þjóðfull- trúa gert Jeltsín erfitt fyrir. Form- lega renna völd hans til að stjórna meö tilskipun út um leið og þingið kemur saman. Það getur einnig samþykkt vantraust á ráðherra og ríkisstjóm. Jeltsín óskaði eftir að Æðsta ráð- ið frestaði samkomudegi Þings Erlendtídindi MagnúsTorfi Ólafsson þjóðfulltrúa fram í mars svo unnt væri að leggja fyrir það fmmvarp að endurskoðaðri stjómarskrá. Því var hafnað. Skömmu síðar var Jeltsín í opin- berri heimsókn í Bretlandi. í ávarpi til beggja deilda breska þingsins komst hann svo að orði að „stein- gerðar leifar hins liðna“ byggjust nú til atlögu gegn ungu lýðræði og frelsi í Rússlandi en hann og stjórn hans væra staðráðin í að gera það sem gera þyrfti til að ónýta áform þeirra. Eftir heimkomu Jeltsíns varð uppnám á fundi Æðsta ráðsins þeg- ar Iona Andronof æðstaráðsmaður kvaddi sér hljóðs og skýrði frá því að sér hefði borist vitneskja um það frá heimildarmönnum í Kreml að þar væm uppi áform um að leysa þingið upp 24. eða 25. nóvember með fulltingi hersins. Andronof er talinn hafa verið hátt settur í leyni- þjónustunni KGB. Pavel Gratséf landvamarráð- herra lýsti jafnharðan yfir að ekk- ert væri hæft í fullyrðingu þing- mannsins. Rúslan Khasbúlatof þingforseti, sem einatt hefur verið Jeltsín óþægur ljár í þúfu, gerði gys að henni. Jeltsín sjálfur er tekinn að leita sér bandamanna. Hann ávarpaði um síðustu helgi fund Sambands iðnrekenda og framkvæmda- manna í Moskvu. Þessi samtök eru í rauninni helsta miðjuaflið í rúss- neskum stjórnmálum. Þau skipa verksmiðjustjórar og kaupsýslu- menn, komnir úr gömlu forrétt- indastétt flokksins, nómenklatúr- unni. Nú hafa þeir margir hverjir selt sjálfum sér fyrirtækin sem þeir stjórnuöu eða hluta af þeim, aörir sljóma enn hreinum ríkisfyrir- tækjum. Meginafstaða þeirra er að ekki verði með nokkm móti horfið til þess sem áður var en ekki sé ráð að fara eins geyst í umskiptin til markaðskerfis og Egor Gaidar, varaforsætisráðherra Jeltsíns, stefnir að ásamt nánustu sam- starfsmönnum sínum. Fyrir þessum hópi fer gamal- reyndur verksmiðjustjóri, Arkadí Volskí. Hann hefur manna mest unrnð að því að koma á legg stjóm- málahreyfingu hans, Borgarasam- bandinu. Það hefur náö sér svo á strik að því er haldiö fram í Moskvu að taki Jeltsín höndum saman við Volskí eigi hann nokkuð víst að ekki náist meirihluti á Þingi þjóðfulltrúa til að vega að stöðu forsetans. Volskí boðaði í lok fundar Sam- bands iðnrekenda og fram- kvæmdamanna samkomulagsum- leitaiúr við Jeltsín og menn hans. Var gert ráö fyrir að niðurstaða fengist um miðja þessa viku. Engar fregnir höfðu borist af því þegar þetta er ritað hversu mál hefðu þróast á þeim vettvangi. Jeltsín virðist ömggari með sig en ráða mætti af aðvörunum þeim um tilraunir æsingamanna til að ala á æði og ofstopa til aö ónýta umbætur sem hann flutti Sam- bandi iðnrekenda og framkvæmda- manna. Hann lagði af stað í opin- bera heimsókn til Suður-Kóreu og dvaldi þar í þrjá daga. Jeltsín hefur þegar skipað í ríkis- stjóm Gaidars nokkra ráðherra tengda Sambandi iðnrekenda og framkvæmdamanna. Hugsanleg niðurstaða af samningaumleitun- um Volskís og manna Jeltsíns um að snúa bökum saman á fundi Þings þjóðfuUtrúa er að þeim verði fjölgað og fái aukin áhrif. í þá átt gæti bent að eitt síðasta verk Jeltsíns áður en hann lagði af stað til Suður-Kóreu var að skipa Viktor Geratsénkó, seðlabanka- stjóra Rússlands, ráðherra í ríkis- stjórninni. Formlega lýtur seðla- bankinn þinginu og seðlaprentun hans til að fjármagna halla ríkis- fyrirtækja hefur verið illa séð í rík- isstjóm vegna verðbólguáhrifa. Nú kemur hann að ríkisstjómarborð- inu og að sama skapi veikjast tengsl hans við þingið. Geratsénkó er tal- inn stuöningsmaður stefnu Borg- arasambandsins. Magnús T. Ólafsson Boris Jeltsín og Naina kona hans þiggja blómvendi af kóreskum börnum þegar þau komu til forsetabústaðarins í Seoul. Miili þeirra stendur Roh Taewoo, forseti Suður-Kóreu Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.