Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1992, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1992, Page 27
26 LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1992. Ásmundur Stefánsson, fráfarandi forseti ASÍ: Skapstór og þrjóskur vinnuþj ar kur - segja samferðamenn - umber lítt þá sem eru á öndverðum meiði „Það hefur löngum verið haft á móti Ásmundi að hann kæmi inn í starfið sem starfsmaður sambands- ins og í skjóh sinnar þekkingar og menntunar sem hagfræðingur. En það er nauösynlegt fyrir verkalýðs- hreyfinguna og stjórnvöld á hverium tíma að hafa menn með viti við stjórnvölinn og borga þeim almenni- lega. Þau sjónarmið að það væri verra að hafa einhverja skólamennt- un hafa verið furðu lífseig í verka- lýöshreyfingunni og þessi viðhorf hafa aíltaf bitnað svolítið á Ás- mundi. Því hefur meðal annars verið haldið fram að hann þekkti ekki nægilega vandræði þeirra sem hann væri að vinna fyrir. Menn eru alltaf að reyna að finna ailan skollan í þessa veruna en hann á það ekki skilið, hann hefur verið heiðvirður allan sinn tíma sem forseti," segir fyrrum samstarfsmaður Ásmundar Stefánssonar, forseta ASÍ, um Ás- mund. Ásmundur Stefánsson lýkur störf- um sem forseti ASÍ á Álþýðusam- bandsþinginu í næstu viku, eftir 12 ára veru í því embætti. Þennan tíma hefur Ásmundur verið mjög áber- andi í þjóðmálaumræðunni, ekki síst í kringum kjarasamninga. Nú síðast hefur Ásmuiidur verið í fréttum vegna starfa í atvinnumálanefnd sem hefur verið að reyna að móta tillögur til lausnar efnahagsvandanum. Hér verður reynt aö varpa öðru ljósi á Ásmund en venja er, í nær- mynd sem byggist á samtölum við bæði fyrrum og núverandi samferða- menn. Vel liðtækur í fótbolta Ásmundur er fæddur 21. mars 1945. Hann er sonur Stefáns Odds Magn- ússonar, leigubílstjóra og fram- kvæmdastjóra Hreyfils, og konu hans, Áslaugar Ásmundsdóttur. Ás- mundur á tvö yngri systkini, Þór Stefánsson kennara, sem nú vinnur að fransk-íslenskri orðabók hjá Emi og Örlygi, og Ásu sem er fóstra í Danmörku og gift þarlendum manni. Ásmundur sleit bamsskónum í Hlíðunum en fjölskyldan bjó að Blönduhlíð 4 allt þar til Ásmundur var byriaður í Menntaskólanum í Reykjavík. Þá flutti fjölskyldan í Brekkugerði. Hann æfði fótbolta með Fram í stuttan tíma en hafði meiri áhuga á fóboltafélagi sem leikfélagamir í hverfinu stofnuðu, Voninni. Þeir fengu nafniö lánað frá félagi sem hafði verið í gangi á Njálsgötunni löngu áður og blandaðist síðar Fram. í Voninni vora auk Ásmundar bræð- umir úr næsta húsi, númer 2, Jón Steinar og Grettir Gunnlaugssynir, en Gunnlaugur, faðir þeirra, var þekktur Framari. „Ásmundur þótti vel liðtækur í fót- bolta á þessum árum. Hann kom mér fyrir sjónir sem staöfastur baráttu- jaxl,“ segir Grettir Gunnlaugsson, „Hann er ákaflega ósérhlifinn, mikill vinnuhestur og lítið fyrir að koma vinnu yfir á aðra. Hann hefur lagt gífur- lega orku í formannsstarfið og ég hef ekki reynt af honum neinn ódrengskap. Hann er hins vegar nokkuð viðkvæm- ur og sár gagnvart sjálfum sér. Ef eitthvað er borið upp á hann tekur hann því afar illa,“ segir Guðmundur Jaki um Ásmund Stefánsson. DV-mynd JAK jafnaldri Ásmundar. Vonin æfði á Valsvelhnum og spilaði við önnur drengjafélög. Mjög stríóinn Ásmundur gekk í bamaskóla Aust- urbæjar og síðar í Gaggó Aust, var þar í A-bekk, besta bekk. Viðmælendur lýsa Ásmundi sem þéttum og kubbslegum þegar hann var í barna- og gagnfræðaskóla. í bekk með Ásmundi vom meðal ann- arra Guðjón Friðriksson sagnfræð- ingur og Georg Ólafsson verðlags- stjóri. Asmundur og Guðjón urðu Austurbæjarskólameistarar i hand- bolta í 12 ára bekk en kappsemi Ás- mundar nýttist hðinu vel. „Við vorum mikhr vinir í skóla, lékum okkur saman og buðum hvor öðrum í afmæh. Ásmundur var alltaf ákaflega stríðinn en án þess þó að vera hrekkjóttur. Hann var glað- lyndur en skaphundur mikill og fylg- inn sér. Þannig hefur hann ahtaf verið þó nú beri kannski minna á glaðlyndinu," segir Guðjón Friðriks- son. Hugrakkur kommi Ásmundur þótti enginn félags- málagarpur í menntaskóla, var held- ur htið áberandi, en sat þó í stjórn málfundafélagsins Framtíðarinnar um tíma og kom við sögu í starfi Æskulýðsfylkingar Alþýðubanda- lagsins og síðar Fylkingarinnar. „Hann hefur aha tíð haft áhuga á póhtík. Pabbi var virkur í Sósíalista- flokknum þegar hann var og hét. Þó einhverjum kunni að þykja Ásmund- ur virka hlédrægur þá var hann það ahs ekki sem unglingur, hann var virkur í félagahópnum. Ég er reynd- ar yngri en hann og fannst hann því ahtaf í flokki foringjanna," segir Þór, bróðir Ásmundar, og lýsir honum þannig: „Hann er mjög rökfastur og stund- um svolítið einstrengingslegur, fast- ur á sínu. Hann er líka mjög raunsær og ætti vel heima í póhtík þar sem það er eitthvað að marka það sem hann segir og gerir." Guðjón Friðriksson segir Ásmund aldrei hafa verið hræddan við að standa upp og segja sína skoðun umbúðalaust. „Kalda stríðið var í hámarki þegar við voram í bama- skóla. Umræðan htaðist mikið af heimhunum en mikih hluti bam- anna kom frá sjálfstæðisheimhum. Böm frá kommaheimilum fóra held- ur leynt með sín sjónarmið og völdu helst að þegja vegna hörkimnar sem einkenndi þennan tíma - nema Ás- mundur. Hann var hvergi hræddur við að segja að hann væri kommi og þurfti oftar en ekki að svara fyrir sig. Þetta sýnir best hugrekki hans og hörku. Þijóskan var líka óskap- lega ríkur þáttur í fari Ásmundar," segir Guðjón. 1965 kvæntist Ásmundur Guðrúnu LAUGARDAGUR 21. NÓVEMBER 1992. 39 Guðmundsdóttur, viðskiptafræðingi og fyrrum framkvæmdastjóra á Þjóðvhjanum. Þau eiga tvö böm, Gyðu, 21 árs, og Stefán, 19 ára. Ósérhlíflnn Eftir stúdentspróf hélt Ásmundur utan th Kaupmannahafnar þar sem hann lauk hagfræðiprófi 1972. Hann var hagfræðilegur ráðgjafi hjá Hag- vangi fyrstu tvö árin heima og síðan hagfræðingur ASÍ fjögur ár þar á eftir, th 1978. Hann var fram- kvæmdastjóri ASÍ 1979-1988 og stundakennari við MH og Háskólann 1972-1978. Á ASÍ-þingi 1980 var hann síðan kosinn forseti. Ásmundur tók við embættinu af Snorra Jónssyni, sem er kvæntur foðursystur Ás- mundar. Snorri gekk hart eftir því að Ásmundur yrði kosinn og það gerði Guðmundur J. Guðmundsson einnig. „Ásmundur er uppalinn á róttæku heimih og hefur fengið gott vega- nesti frá foreldrum sínum. Hann er eðlisgreindur og hefur góða menntun sem hagfræðingur. Hann er ákaflega ósérhlífinn, mikih vinnuhestur og htið fyrir að koma vinnu yfir á aðra. Hann hefur lagt gífurlega orku í formannsstarfið og ég hef ekki reynt af honum neinn ódrengskap. Hann er hins vegar nokkuð viðkvæmur og sár gagnvart sjálfum sér. Ef eitthvað er borið upp á hann tekur hann því afar iha,“ segir Guðmundur Jaki. Við kaupiim hagfræðinga Guðmundur segir sögu frá þinginu þegar Ásmundur var kosinn. Þá var hér staddur forseti danska Alþýðu- sambandsins (LO), stór og mikih. „Hann fylgdist með þinginu af mik- ihi innlifun en þaö fór ekki fram hjá neinum að hann var nokkuð sár þeg- ar Ásmundur var kosinn forseti. Menn forvitnuðust um þessi við- brögð hans og spurðu hvort honum þætti ekki rétt að kjósa hagfræðing sem forseta ASÍ. Hann svaraði með nokkram þjósti: „Nej, vi köber dem (nei, við kaupum þá). Þetta svar hneykslaði mig en ég neita því ekki að það hefur nokkuð leitað á mig í seinni tíð,“ segir Guðmundur. Ofstækisfullur jafnréttissinni Hugur Ásmundar stefndi á þing en hann tók þátt í prófkjöri hjá Álþýðu- bandalaginu rétt fyrir jól 1986. Hann varð undir í baráttu við Svavar Gestsson og Guðrúnu Helgadóttur, lenti í 3. sæti. í kosningunum sumar- ið eftir munaði ekki nema 60-70 at- kvæðum á landsvísu að Ásmundur kæmist á þing. Hann var varaþing- maður og sat á þingi sem slíkur í hálfan mánuð haustiö 1987. Svavar Gestsson er ekki í vafa þeg- ar hann er beðinn um að tjá sig um Ásmund. „Ég tel aðalkost Ásmundar vera hreinskiptni. Það er mikih kostur nú th dags, á þessum síðustu og verstu tímum. Hins vegar má segja að hans helstu gahar séu fólgnir í þessu sama. Hann segir hlutina oft með þeim hætti að það hrekur fólk frekar frá. Menn eiga misjafnlega auðvelt meö að heyra þaö sem er kannski hið sanna og rétta um þá eða það þeir sem standa fyrir. „Diplómatía" er ekki einn af höfuðkostum Ás- mundar Stefánssonar. En hann er jafnréttíssinni, nánast ofstækisfuh- ur, og tílbúinn að ganga mjög langt í þeim efnum. Þá hefur hann yfir- burðahæfni th að gegna'póhtískum trúnaöarstörfum." Vinnusemi og greind era hugtök sem oft koma upp í samtölum við sam- ferðamenn Ásmundar en nær ahir þeirra sögðu að hann ætti erfitt með að umgangast fólk sem hefði ekki sömu skoðun og hann sjálfur. Hann væri óvæginn í þess garð og léti kné fylgja kviði þegar því væri svarað. „Hann er býsna miskunnarlaus í að svara fólki þegar th þess kemur og lentí í talsverðum sviptingum í Alþýðubandalaginu á sínum tíma,“ segir Svavar. Þjóðviljastríð En það er ekki aðeins í Alþýðu- bandalaginu að Ásmundur hefur lent í rimmum. Á Þjóðviljanum og utan hans var um tíma mikið stríö sem stóð á mihi hans og ritstjómarfull- trúa og ritstjóra. Gekk ekki títið á. Það stríð er ekki th umfjöllunar hér en máttí meðal annars rekja tíl þess fyrir hvem Þjóðvhjinn ætti að vera og hverjir ættu að ráða. Var Ás- mundur sakaður um að ganga erinda flokksgæðinga en hugsa ekki aö sama skapi um það sem væri að gerj- ast í verkalýðshreyfingunni. Gagn- rýni á verkalýðsforystuna, frá reið- um ungum mönnum, var ekki vel séð hjá Ásmundi. Við höfðum samband við Óskar Guðmundsson. „Mér fannst hann harðvítugur og óbilgjam og smásálarlegur á köflum. í þá tíð fannst mér hann ekki ná neinu máli sem leiðtogi launa- mannahreyfingar. Ég var honum mjög reiður. Afstaða mín th málsins hefur hins vegar breyst. Við Þjóð- vhjamenn vorum auðvitað líka óbh- gjamir. Sumt af því sem ég gagn- rýndi hann fyrir þá tel ég í dag vera hluta af verkefnum hans sem forseta ASÍ. Ég óska honum bara ahs hins besta,“ segir Óskar. Annar maður, sem tengdist Þjóð- vhjanum og Ásmundur þekkti áður, kom ekkert við sögu í þessu stríði en varð engu að síður mjög var við skærumar. „Þetta ristí svo djúpt að Ásmundur virtí mig ekki viðlits þeg- ar við hittumst á fomum vegi. Það kom mér verulega á óvart og ég móðgaðist satt að segja.“ Samferðamaður úr verkalýðsbar- áttunni síðastliðin 8 ár segir: „Hann er mjög hæfileikaríkur, afburða- greindur og vinnusamur. Hann hef- ur ótrúlegt vinnuþrek og er mjög fylginn sér. Helstu gahamir era þeir að hann vhl sthla mönnum upp sem ekki era sömu skoðunar og þvi geta þeir átt mjög erfitt uppdráttar í ná- lægð við hann. Þá verða átök sem alveg má komast hjá, öhum að skað- lausu.“ Kann við sig í átökum Lára V. Jútíusdóttir, framkvæmdá- stjóri ASÍ og samstarfsmaður í ára- tug, segir: „Hann er góður félagi sem á þaö th að vera mjög skemmthegur. Við höfum ferðast mikið saman og þá getur hann endalaust haldið manni uppi á snakki. Hann er ótrú- lega víðlesinn og óhætt að segja að hans aðaláhugamál sé lestur. Hann hefur mikla sögulega þekkingu og áhuga á ótrúlegustu hlutum. Hann undirbýr sig mjög vel fyrir aha hluti, veður ekki óundirbúinn í sjónvarpsviðtal og heldur ekki ræðu án þess að hafa hugsað hana í þaula áður. Þú hittír hann aldrei óundirbú- inn. Maður á ekki von á stíkum vinnubrögðum hjá fólki sem hefur jafn mikið að gera og hann en hann er mikill vinnuhestur." Lára segir pólitík vel geta átt við Ásmund. „Hann getur vel staðið sig í þeim hanaslag. Hann telur sig gjaman vera í algerri andstöðu við þann sem síðastur átti orðið og er mjög upptekinn af því aö gagnrýna það eða koma sínum andstæðu sjón- armiðum á framfæri. Átök eiga mjög vel við hann og hann stillir málunum mjög gjaman þannig upp. Það vinnur kannski gegn honum í pólitík því fólk getur fengið á tilfinninguna aö hann sé þessi eilífi þrasari. En þetta er ákveðin leið til að nálgast vanda- málin, hann fær fólk til að skerpa þær hugmyndir sem þaö hefur.“ Smart í tweed-jakka Fólki hefur stundum orðið tíðrætt um framkomu og útlit Ásmundar og því leituðum við til Heiðars Jónsson- ar snyrtís. „Ásmundur er akkúrat þessi týpa sem blasir við fólki. Ef hann fer í elegant fínstrokin föt verður hann hreinlega ekki Ásmundur Stefáns- son. Ég sé hann sjaldan en hann er afskaplega mismunandi, virðist stundum heldur hafa gleymt sér. Ég held að Ásmundur sé dæmi um blóraböggul íyrir þetta stíltal allt saman. Sumt fólk títur bara þannig út, er með þetta háralag og vaxtar- lag. Ásmundur verður alltaf frekar gróf týpa. En ég hef séð hann mjög sportí og smart, í grófum tweed-jakka og skyrtu úr grófu efni. Heföbundin stjórafót passa honum ekki en það gerði hins vegar ekkert til þó hann notaði hárblásarann af og ttí,“ segir Heiöar. un. Guðrún Pétursdóttir 1 húsmóðir í Rvk Pétur Kristinsson útvb. í Engey h Guðrún Pétursdóttir húsfr. Skildinganesi * Asmundur Jónsson b. í Miðvogi Ingveldur Narfad. húsfr. Miðvogi Ólöf Snorradóttir húsfr. í Engey Sigurður Sigurðsson 1 b. i Karlsbrekku h Sigurður Jónsson 1 b. í Sanddalstungu | Ástriður Elíasdóttir 1 húsfr. i Karlsbrekku | h Elías Magnússon | b. á Háreksstöðum | Gísli Einarsson b. í Hliði á Akranesi | Guðbjörg Oddsdóttir 1 húsm. í Hliði Oddur Snorrason | b. í Engey Sigurður Jónsson Margrét Ólafsdóttir | 1 Haukur Morthens 1 dægurlagasöngvari ( m .11 Tolli /I myndiistarmaður | wwftk . j Kristinn Morthens 1 listmálari Rósa Guðbrandsd húsm. í Rvk Guðbrandur Sæmundsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.