Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1993, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1993, Síða 28
40 FIMMTUDAGUR 11. MARS 1993 Meiming Dauðinn og stúlkan: Margslungið leikverk með spennandi söguþræði Páll Baldvin Baldvinsson leikstjóri: „Stórar póltískar spurningar í þrillerformi." DV-mynd BG Guðrún S. Gísladóttir og Valdimar öm Flygenring í hlutverkum sínum í Dauðanum og stúlkunni. ^ DV-mynd GVA í kvöld frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur á litla sviöi Borgarleikhússins Dauðann og stúlkuna eftir chilenska rithöfundinn Ariel Dorfman. Leikritiö hefur farið sigurfór mn heiminn en það var fyrst kynnt í London síðla árs 1991. Sviðsetningin í Lon- don naut mikillar hylli og hefur hlotið margs kon- ar viðurkenningu. Leikritið var síðan frumsýnt á Broadway í fyrra í leikstjóm Mikes Nichols og fóra þá með hlutverkin þrjú Glenn Close, Gene Hackman og Richard Dreyfuss. Á þeim stutta tíma, sem leikritið hefur verið í umferð, hefur það verið sýnt í yfir þijátíu löndum. Dauðinn og stúlkan er margt í senn: Fyrst og síð- ast er það spennuverk en leikritið er ekki síður lýsing á póhtísku uppgjöri og heimspekileg um- fjöllun um andstæð sjónarmið í átökum samfé- laga. Verkið hefur óhugnanlega tilvisun til atvika sem standa samtíð okkar nærri, ekki aðeins hér á landi heldur líka nær og fjær, bæði í Evrópu og í Suður-Ameríku. Hlutverkin í Dauðanum og stúlkunni eru þrjú, Guðrún S. Gísladóttir, Valdimar Öm Flygenring og Þorsteinn Gunnarsson leika persónuraar. Leik- stjóri verksins er Páll Baldvin Baldvinsson og var hann beðinn að lýsa verkinu, umgjörðinni, boð- skapnum og höfundinum Af kynslóðum flóttamanna „Dauðinn og stúlkan er eitt fárra suður-amer- ískra leikrita sem hafa komist inn á vestrænan markaö. Höfundurinn, Ariel Dorfman, var einn þeirra menntamanna í Chile sem ákvað að flýja landið 1973 þegar, Pinochet komst til valda í upp- reisninni. Dorfman er að vísu uppalinn í Bandaríkjunum. Afi hans og amma komu þangað sem flóttamenn frá Rússlandi og faðir hans fæddist í Bandaríkjun- um. Var Ariel alinn upp í New York til tíu ára aldurs. Á McCarthy-tímanum flýr faðir hans með fjölskyldu sína til Buenös Aires og þaðan flúði fjöl- skyldan yfir til Chile. Að baki Ariel Dorfman standa þannig kynslóðir flóttamanna. Dorfman vakti fyrst athygli með bók sinni, Hvemig maður les Andrés önd, sem kom út í kringum 1970. Varð bókin nokkuð þekkt á þeim tíma sem brautryðjendaverk í lestri á teikni- myndasögum sem alvarlegt fyrirbæri. Dorfman flutti eför byltinguna til Hollands og bjó þar í nokkur ár og var leiðandi gegn herforingjastjóra- inni á alþjóðavettvangi. Hann flutti síðan til Bandaríkjanna og bjó þar að mestu þar til herfor- ingjastjórnin fór frá. Þá flutti hann aftur til Chile. Ariel Dorfman hefur aðallega skrifað skáldsögur og er Dauðinn og stúlkan eina leikrit hans sem vakið hefur athygh og er í dag langþekktasta verk hans. Skáldsögur hans hafa til að mynda ekki verið gefnar út í Evrópu þótt þær hafi verið gefn- ar út í stóru upplagi vestan hiafs.“ Höfðar sterkttil nýafstaðinna atburða - Hvenær komst Leikfélagið í tæri við verkið? „Dauðinn og stúlkan kom fyrst fram í Englandi í kynningarátaki sem Harold Pinter stendur fyrir, kynningarátaki sem felst í að birta leikverk eftir útlæg skáld. Við h)á Leikfélaginu fréttum fyrst af verkinu á alþjóðlegri leiklistarhátíð í London 1991 og keyptum það um haustið. Dauðinn og stúlkan höfðar mjög sterkt til atburða sem skeð hafa í heiminum á síðustu árum, ekki síst í Austur- Evrópu. Ariel Dorfman skrifar leikritið inn í hversdags- legt þriherform og notfærir sér formið í allri fram- vindu verksins. Það má segja að það sé óvenjulegt að hann skuh geta komið svona stórum póhtískum spurningum inn í þetta gamla útjaskaða form sem við þekkjum af öðrum hveijum spennuþætti 1 sjón- varpi og annarri hverri kvikmynd. Spumingar Doiifmans eru margar, th dæmis: Hvað er minni okkar óbrigóult, munum við rétt? Er það eöhslægt þeim sem tekur að sér hlutverk kúgarans eða er hlutverkinu þröngvað upp á hann? Eru þeir menn saklausir sem nú standa á torgum og hrópa hátt? Hvaða rétt á fómarlambið og hver á rétt á hefnd og hvað á samfélagið aö gera við slíkar aðstæður? Það er kannski þaö síðasta sem hggur Dorfman helst á hjarta því þegar herforingjastjómin fór frá völdum veitti hún öhum sem staðið höfðu í ein- hverjum pólitískum ódæðisverkum á vegum sljórnarinnar náðun. Sú náðun stendur fram til 1996.“ - Hverfur ekki póhtíkin í spennandi atburðarás? „í leikritinu er áhorfandiim mataður á upplýs- ingum jafnt og þétt, upplýsingum sem á einfaldan hátt gera grein fyrir forsendum leiksins. Við sem höfum unnið að uppsetningunni vorum í byrjun nákvæmlega jafn mikið upplýst og hinn almenni áhorfandi kemur tíl með að vera um hvað Suður- Ameríka er. Um leið og við lærðum um Suður- Ameríku upp á nýtt áttuðum við okkur á því að leikritíö er margslungið verk og það var sífeht eitthvað sem var að koma okkur á óvart, ekki ein- göngu í framvindu verksins heldur einnig í mis- munandi valdaaðstöðu í þríhyrningnum sem fjall- að er um. Hins vegar útheimta ahar almennar forsendur í leikritinu ekki annað en að fólk hafi áhuga á að setjast niður í leikhúsi og njóta spenn- andi og áhugaverðrar kvöldstundar." -HK Pekkíírgestir ánorrænukvik- myndahátíðinni 10. norræna kvikmyndahótíðin verður haldin dagana 24.-27. mars í Háskólabíói. Margir þekktir gestir koma á hátiðina og skal þar fyrst telja leikarann fræga, Christopher Lee, sem hef- ur leikið i tjölmörgum kvikmynd- um. Þekktastur er hann sjálfsagt fyrir leik sinn i Drakúla- ogFran- kensteinmyndunum frá breska Hammer-fyrirtækinu en þær voru mjög vinsælar á sjöunda áratugnum. Aðrir sem heiðra okkur eru flestallir leikstjórar kvikmyndanna sem koma til með aö keppa um vegleg verðlaun. Má þar nefna Ari Kaurismáki, Jan Troel og Colin Nutley. Auk þess má nefna kvikmyndaskri- bentinn þekkta, Peter Cowie, sem hefur í gegnum tíðina sýnt norr- ænum kvikmyndum mikinn Kjarvalsstöðum Á laugardaginn verður opnuð á Kjarvalsstöðum sýningin ís- lenskt landslag 1900-1945. Á þess- ari yfirgripsmiklu sýningu eru um 120 myndir eftir 26 listamenn sem allir fengust við gerð lands- lagsmynda á fyrri hluta aldarinn- ar. Ekkert hefur verið th sparað svo sýning þessi verði sem vönd- uöust og glæsilegust og hefur jafnframt verið gefin út ákaflega faheg, litprentuð sýningarskrá og eru ahs í skránni 36 lítprentaðar myndir og er óhætt að segja að þetta sé ein vandaðasta lista- verkabók um íslenska landslags- hst frá fyrri hluta aldarinnar sem komíð hefur út. 250 þúsund fyrirbestu stuttmyndina Á síðasta ári voru haldnir stutt- myndadagar á Hótel Borg og tók- ust þeir með ágætum. Þar gafst ungum og óreyndum kvik- myndagerðarmönnum tækifæri th að sýna verk sín opinberlega. Nú hefur verið ákveðið að halda slíka kvikmyndahátíð aftur og verður hún dagana 7., 8. og 9. aprh 1993. Á áætlaðri dagskrá eru dagskrárliðir á borð við fyrir- lestra reyndra kvikmyndagerð- armanna þar sem kennd verður framleiðsla kvikmynda allt frá handritsgerð upp i dreiíingu. Ákveðið hefur verið aö verðlauna þijár bestu myndimar og verða fyrstu verðlaun 250 þusund krón- ur. Öhum er heimh þátttaka og er umnsóknarirestur til 1. apríl. Innsendar myndir skulu skilast tíl Kvikmyndafélags íslands. Leðurblakan áAkureyri Óperettan Sardasfurstynjan er nú sýnd í Reykjavik á vegum ís- lensku óperunnar. Akureyringar ætla sér ekki aö verða neinir eft- irbátar höfuðborgarinnar í óper- ettusýningum og standa nú yfir æfingar á Leðurblökunni eftir Johann Strauss yngri. Eins og flestar Vínaróperettur Strauss er Leðurblakan fræg fyrir gáska sinn og fiör. Leikurinn gerist i útjaðri Vínar um 1880 og er efnið sótt í þýskan skemmtheik. Aðal- hlutverkin eru í höndum Jóns Þorsteinssonar, sem leikur Eis- enstein, Ingibjargar Marteins- dóttur, sem leikur Rósalindu, og Guðrúnar Jónsdóttur sem leikur Adele. Leiksfjóri er Kolbrún Hah- dórsdóttir og hljómsveitarstjóri er Roar Kvam. Frumsýning er áætluð 26. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.