Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1993, Page 29
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 1993
Þa skammast þeir sín
og fara að vinna líka
- segir Ásdís Jóhannsdóttir, sextug kona, sem stjómar malbikunarflokki
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri;
Þegar malbikunarflokkur Bæjar-
verks á Akureyri er að störfum vek-
ur jafnan athygli að flokknum stjóm-
ar smávaxin kona sem reyndar ekki
bara að stjórnar heldur tekur hún
rækilega til hendinni líka. Hún heitir
Ásdís Jóhannsdóttir og þeir sem til
þekkja segja að það sé heldur betur
Eigendurnir þrír, Þorsteinn, Asdís
og Vignir.
gangur á hlutimum þegar hún tekur
til hendinni. Ásdís og Vignir Jónas-
son, eiginmaður hennar, eru eigend-
ur Bæjarverks ásamt Þorsteini, syni
þeirra, og þau starfa öll við fyrirtæk-
ið.
„Ég öskra ekki mikið á strákana
ef þeir eru linir í vinnunni, heldur
tek þá á sálfræðinni. Ef þeir nenna
ekki að vinna og eru að kjafta tímun-
um saman djöflast ég eins og ég get
og þá skammast þeir sín og fara að
vinna líka, þeir kunna ekki við ann-
að. En ég get svo sem öskrað líka ef
því er að skipta," sagði Ásdís er við
spurðum hana hvort hún væri harð-
stjóri yfir malbikunarflokknum.
Heppinmeð
starfsfólk
„Við höfum nær alltaf verið mjög
heppin með starfsfólk en síðasta
sumar lentum við aö visu í smáerfið-
leikum. Mér fmnst það raunhæft að
gera kröfur til manna í vinnu, við
hjá Bæjarverki borgum starfsmönn-
um okkar góð laun og þeir eiga auð-
vitað að vinna fyrir þeim launum.
Vinnudagurinn er langur og mikið
að gera svo hlutirnir verða að ganga
vel.“
Þau Ásdís, Vignir og Þorsteinn
eignuðust Bæjarverk alveg árið 1991
en áttu hlut í fyrirtækinu áður. Fyr-
irtæki þeirra var lengi eina fyrirtæk-
ið í malbikun á Norðurlandi og þau
hafa starfað mikið á þéttbýhsstöðum
1 Eyjafirði, t.d. á Dalvík og fyrirtæki
þeirra sá um malbikun í jarðgöngun-
um í Ólafstjarðarmúla. Þá hafa þau
einnig unnið mikið við malbikun
gangstétta, bílaplana við hús og fyr-
irtæki og ýmislegt annað. Einnig sér
Bæjarverk um jarðvegsskipti.
Eiga einnig
Hraðsögunhf.
Þau eiga einnig fyrirtækið Hrað-
sögun hf. en það fyrirtæki sérhæfir
sig í múrbroti og steinsögun og hefur
til þess mjög öflug og nýtískuleg
tæki. En malbikunin er það sem aht
snýst um, a.m.k. yfir sumartímann,
og þá er Ásdís á fleygiferð. „Hún sér
alveg um þetta á vinnustað og stjóm-
ar þessu, það er alveg óhætt að segja
þaö,“ sagði Vignir, eiginmaður henn-
ar.
Asdís við stýri malbikunarvélarinnar.
DV-myndir gk
41
Útboð '
Norðfjarðarvegur, Göng - Oddsdalur
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagningu
4,5 km kafla á Norðfjarðarvegi.
Helstu magntölur: Fyllingar 84.000 m3, burðarlag
29.000 m3 og klæðing 13.000 m2.
Verki skal að fullu lokið 1. september 1994.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Reyðarfirði og I Borgartúni 5, Reykjavík (aðal-
gjaldkera), frá og með 8. þ.m. Skila skal tilboðum
á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 21. júní 1993.
Vegamálastjóri
óskast I eftirtaldar bifreiðir og tæki sem verða til sýnis þriðjudaginn
8. júní 1993 kl. 13-16 í porti bak við skrifstofu vora að Borgartúni
7, Reykjavík, og víðar.
1. stk. Ford Explorer EB, 4x4, bensín 1991
1. stk. Jeep Wrangler, 4x4 bensín 1985
2. stk. Toyota LandCruiser, 4x4 disil 1985-86
1. stk. Daihatsu Feroza, 4x4 bensín 1990
1. stk. Chevrolet pickup, 4x4 bensín 1982
1. stk. Mitsubishi L-300,4x4 bensín 1986
6. stk. Subaru 1800 station, 4x4 bensín 1986-90
6. stk. Subaru Justi J-10,4x4 bensín 1986
l.stk. BMW320I bensín 1989
3. stk. Volvo 240 bensín 1988-90
3. stk. Lada station bensín 1987-89
1. stk. Volvo F-610 sendibifr. m/lyftu disil 1984
1. stk. Toyota hiace sendiferðabifr. bensín 1988
4. stk. Mazda E-2000 sendiferðabifr. bensín 1986-87
1. stk. Volvo F-10 vörubifreið 1. stk. tengivagn disil 1980
1. stk. Ski-doo vélsleði bensín 1981
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, birgðastöð, Grafarvogi
2. stk. tengivagnartil járnaflutninga 1968
1. stk. dísilrafstöð, 30 kw, í skúr 1979
1. stk. dísilrafstöð, 20 kw, I skúr (ógangfær) 1979
1. stk. dísilrafstöð, 30 kw, í skúr á hjólum 1972
1. stk. veghefill, Champion 740-A 6x4 dísil 1981
1. stk. færiband
Til sýnis hjá Vegagerð rikisins í Borgarnesi
1. stk. veghefill, Champion 740-A, 6x4 dísil 1980
1. stk. dísilrafstöð, 32 kw, í skúr á hjólum 1. stk. vatnstankur, 10.0001, með dreifibúnaði fyrirvörubíla Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri. 1. stk. veghefill, A. Barford Super 600, 6x6 1976
m/snjóvæng og snjótönn 1976
1. stk. Toyota Coaster, 19. farþ. dísil 1982
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, ísafirði.
1. stk. veghefill, Champion 740-A, 6x4 dísil 1980
Til sýnis hjá Rafmagnsveitum ríkisins á Egilsstöðum.
1. stk. Snow Trac beltabifreið bensín 1976
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri sama dag kl. 16.30 að við-
stöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum sem
ekki teljast viðunandi.
II\lNKAUPASTOFIMUN RIKISIIMS
BORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK
Á 21. öld er fólki refsað fyrir
að eiga fleiri en eitt barn
- og jafnvel enn þyngri
refsing er við að brjóta
reglurnar.
FORTRESS hefur notið
feikivinsælda íÁstralíu
STÁLISTÁL
■ FORTRESS
- dúndur vísindaþriller
í FORTRESS,
nýrri rriagnaðri stór-
spennumynd, leikur
Christopher
Lambert
(Highlander,
Graystoke)
mann, semfærður
er í rammgert
vítisvirki,
neðanjarðar,
þaðan sem
enginn sleppur
lifandi.
HASKOLABIO
Háþróaður
tæknibúnaður
virkisins nemur hverja
hreyfingu og hugsun.