Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Side 16
16 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1993 Toyota Corolla ’90, rauður, elnnig '91, '92 og '93 á sölu. Ford Explorer 9t, dyra, einnig '91, 2ja Chrysler LeBaron ’89, rauöur. BMW 316, '92, dökkgrænn. gylltur/einnig tvílitur Ford Bronco, Eddie Bauer, ’88, ek. 37 þ. km. v/Miklatorg simi 621055 * Fjögur íslenskböm nýkomin úr sumarbúðum í Japan: „Borðuöum alltaf með prjónum" - segja þau Áslaug, Dagmar, Kristófer og Logi „Þaö var mjög gaman aö koma í svona ólíkan heim og við kynntumst mörgu sem viö höfum aldrei séð áö- ur. Verst var hversu erfitt var að tjá sig þar sem viö erum ekki nógu góö í ensku. En Japan er skemmtilegt land og viö viljum gjaman koma þangað aftur,“ segja fjórir ellefu ára krakkar, Áslaug Einarsdóttir, Dag- mar Una Ólafsdóttir, Kristófer Egils- son og Logi Guðjónsson, sem eru nýkomin heim úr mánaðardvöl í sumarbúöum í Japan. Fararstjóri þeirra var Jón Víöis Jakobsson. Bömin fóru á vegum CISV, sem em alþjóðlegar sumarbúöir bama, en það var dr. Doris ARen, bandarískur barnasálfræðingur, sem stofnaði samtökin sem vinna í anda og stefnu yfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna um rétt bamsins. íslandsdeild var stofnuð árið 1981 og em sumarbúðir barna haldnar hér þriðja hvert ár, síðast fyrir ári. Á hverju sumri fara íslensk börn í sumarbúðir víða um heim og má þar nefna Noreg, Svíþjóð, Bandaríkin, Mexíkó og Brasiliu svo eitthvað sé tahö. Þá fóru þau Dagmar, Áslaug, Logi og Kristófer til Japans en þang- að hafa krakkar farið einu sinni áö- ur. Þegar börnin vom spurð hvað hefði komið þeim mest á óvart svara þau að það hafi verið siðirnir, maturinn og klósettin. „Maturinn var ekkert sérstaklega góður, eiginlega allt djúpsteikt eða hrár fiskur og svo hrísgijón með öllu. Þaö var hræði- legt að borða sushi,“ segja þau. Böm- in vom ákveðin áöur en þau fóru að heiman að prófa sushi og það geröu þau strax á leiðinni frá Kaupmanna- höfn til Tokyo í flugvélinni. Þau voru ekki hrifin, svo vægt sé til orða tekið. Maturinn skrítinn Logi segir að hann hafi sérstaklega óskað eftir að fara til Japans þegar ákveðið var að hann færi í sumar- búðir. í fyrstu var þó annað land, talsvert nær, ákveðið. Þar sem allt var fullt þar bauðst honum að fara til Japans og segist hann hafa orðið mjög hrifinn. „Mig hefur oft langað aö koma þangaö. Þetta var eiginlega alveg eins og ég átti von á. Það var bara maturinn sem var öðruvísi en ég hélt. En ég gæti vel hugsað mér að fara aftur," segir Logi. Kristófer segir að mamma hans hafi fyrst stungið upp á að hann færi til Japans. „Mér var alveg sama, leist bara vel á það. Ég hafði ekki hugsað mikiö um Japan áður en ég fór og kveið ekkert fyrir. Svo fannst mér þetta rosalega garnan.” Dagmar Una segir að sér hafi fund- ist það mjög spennandi þegar Japan var nefnt við hana. „Mamma mín og fararstjórans þekkjast og það voru þær sem töluðu fyrst saman um þessa ferð. Mér leist vel á ferðina en kveið þó hversu langt flug þetta væri. Japan var allt öðravísi en ég bjóst við. Ég hélt að í Tokyo væra húsin eins og musteri en svo voru þau bara venjuleg. Þetta var líkara því sem maður þekkir.” Áslaug segir að hún hafi sérstak- lega óskað eftir að komast til Mexíkó eða Japans. „Þetta var svolítið erfitt ferðalag en mér fannst rryög gaman að koma til Japans. Ég fékk smá- heimþrá meðan ég dvaldi hjá fjöl- skyldu minni, enda kunni hún ekki ensku og það var erfitt að tjá sig. Það var á miðju tímabilinu sem við fórum til fjölskyldna hvert í sína áttina en þá fór ég með stúlku frá Filippseyjum til japanskrar fjölskyldu. Hins vegar Jón Víðis og börnin fjögur sem hann fór með til Japans i sumarbúðir: Logi, Dagmar, Aslaug og Kristófer. DV-mynd ÞÖK Hreinlætisaöstaðan i Japan kom krökkunum mjög á óvart. Eitt kvöldið i sumarbúðunum áttu strákarnir að vera stelpur og öfugt. Fararstjórinn breyttist í kvenmann með skegg. var maturinn ekkert sérstakur en ég fékk uppáhaldsmatinn minn þegar ég kom heim.“ Enginvandamál komu upp Jón Víðis segir að það hafi veriö skemmtilegt að fara með krökkunum til Japans. Systir hans starfar hjá CISV og hann kynntist starfinu í gegnum hana. Fararstjórar starfa í sjálfboðavinnu. „Ég hafði aldrei komið til Japans áður og þetta var jafn framandi fyrir mig og krakkana. Þetta gekk ótrúlega vel. Allir farar- stjórar tóku saman á vandamálum sem upp komu en íslensku krakk- amir voru mjög þægilegir og engin sérstök vandamál komu upp,“ segir hann. Jón Víðis segir að hreinlætisað- staðan hafi komiö þeim mjög á óvart. „Hreinlæti er mjög mikið í Japan en okkur fannst aðstaðan framandi. Við þurftum að fylla lítinn bala með vatni og skvetta yfir okkur áður en við fórum í baðiö sjálft. Klósettin minna á skálar á vestrænum karla- snyrtingum." Talsverður undirbúningur - Þurfti ekki talsverðan undirbún- ing áður en þið hélduö til Japans? „Jú, við bjuggum til bækling um okkur og landið okkar. Síðan var öllum afhentur bæklingurinn um ís- land og við fengum annan eins frá hinum sem voru þarna. Þau voru frá Austurríki, Kanada, Þýskalandi, Bretlandi, Ítalíu, Japan, Kóreu, Hol- landi, Filippseyjum, Bandaríkjun- um, Brasilíu, Frakklandi og Noregi. Undirbúningsvinnan fór að miklu leyti í að búa til bæklinginn og kynn- ast þannig áður en við færam út. Einnig reyndum við að fræðast um Japan, siði og menningu. Allir hóp- amir, sem fóra til útlanda á vegum samtakanna, fóra í útilegu og þar var farið í gegnum dagskrána í tvo daga. Þannig kynntust allir nokkuð áður en haldið var í ferðina. Við flugum síðan til Kaupmanna- hafnar og þaðan til Tokyo. Þá þurfti ég að fara beint í sumarbúðirnar ásamt fararstjórum hinna landanna til að undirbúa komu krakkanna. Þeir vora hjá japönskum fjölskyld- um á meðan, tveir saman hjá hverj- um. Logi og Kristófer voru saman hjá einni og Dagmar og Áslaug hjá annarri. Fjölskyldur þeirra bjuggu í sama hverfi þannig að þau hittust. Leikir og samvinna Lífið í sumarbúðunum sjálfum ein- kenndist af hinum ýmsu leikjum og áhersla var lögð á að börn frá ólíkum löndum kynntust. „Við byrjuðum daginn á að haldast í hendur og mynda hring og síðan sungu allir saman sérstakan söng CISV. Síðan sögðu allir góðan daginn, hver á sínu tungumáh. Eftir morgunverö áttu krakkarnir að hreinsa til í herbergj- unum því mikið er lagt upp úr að allt sé í röð og reglu. Svo er farið í ýmsa leiki. Á kvöldin vora kvöldvök- ur, t.d. átti hvert land að koma með sína skemmtidagskrá. Við kynntum ísland með því að sýna skyggnur sem við höfðum tekið á ýmsum stöðum í Reykjavik og víðar. Einnig sýndum við myndir af okkur með forsetan- um, frú Vigdísi Finnbogadóttur, og með borgarstjóranum, Markúsi Emi Antonssyni. Það vakti mikla athygli að við skyldum fá að mynda okkur með svo háttsettu fólki. Síðan spiluð- um við þjóðsönginn og dönsuðum þjóðdans í þjóðbúningum,” segir Jón Víðis. Krakkamir era sammála um að mjög skemmtilegt hafi verið aö kynnast jafnöldram frá svo mörgum löndum þó tungumálaerfiðleikar hafi stundum verið. „Við gátum þó alltaf gert okkur skiljanleg," segir Dagmar. Þegar þau era spurð hvort þetta sé eitthvað svipað og fara í sum- arbúðir á íslandi svara þau neitandi. „Þama er miklu strangara pró- gramm að fara eftir en t.d. í Vatna- skógi. Hér heima ræður maður frek- ar hvað maður gerir,” segja strák- amir. Jón Víðis segir að mikið sé lagt upp úr að hafa samvinnuleiki þannig að

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.