Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Side 27
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1993 27 í úrtöku fyrir HM komst Viola Hail- mann í iandsliö Hollands á stóðhest- inum Sel frá Aldenghoor. Voldug og rík Viola Hallmann er ein af ríkustu og voldugustu konum í Evrópu. Hún er hluthafi, forseti og stjórnarfor- maður í fyrirtækinu Theis Cold Roll- ing Mills sem rekur sex stálverk- smiðjur í Þýskalandi, þá sjöundu í Bandaríkjunum og áttundu á Spáni. Viola Hallmann styrkti mótshald- ara verulega í framkvæmd mótsins. Viola Hallmann ræktar islenska hesta á búgarðinum Aldenghoor i Hollandi. Hér er hún með Kára frá Aldenghoor og Vin frá Víðidal I Skagafirði. DV-mynd E.J. Framkvæmdastjóri ársins 1979 Viola Hallmann hefur staðið sig með prýði í hinum harða heimi við- skiptanna og var valin framkvæmda- stjóri ársins í Evrópu árið 1979, árið sem Evrópumót var haldið í Hollandi í fyrsta skipti. Skömmu áður hafði hún séð ís- lenska hesta í fyrsta skipti. „Mitt aðal- tómstundagaman" „Ég sá íslenska hesta í fyrsta skipti á Equitana-sýningu í Essen og kynnt- ist þeim betur á heimsmeistaramót- inu í Hollandi árið 1979,“ segir Viola Hallmann. „Síðan hefur þetta verið mitt aðaltómstundagaman. Garpur frá Oddstöðum er fyrsti gæðingurinn sem ég eignaðist, fékk hann hjá Sig- urbimi Bárðarsyni og Fríðu Stein- arsdóttur sem eru miklir vinir mínir. Ég hef fengið flest bestu kynbóta- hross mín frá íslandi og þau nota ég í ræktun minni. Ég hef ekki ræktað hross nema í tíu ár en fékk snemma tíu hryssur frá íslandi og stóðhest- ana Vin frá Víðidal og Skarða frá Syðra-Skörðugili. Þeir hafa gefið vel af sér ásamt hryssunni Sædísi frá Reykjavík og fleiri hryssum. „Vel sjálf stóð- hesta á hryssur" Nú er ég með átta virka stóöhesta og margir ungir eru á uppleið. Ég vel sjálf undir hvaða hest á að setja hvaða hryssu. Ég fylgi ekki sérstök- um línum en er þó með Kirkjubæjar- stóðhestinn Skól, undan Dreng og Snerru frá Kirkjubæ. Ræktunin hefur gengið mjög vel og hafa tveir Aldenghoor-stóðhestar fengið heimsmeistaratitil, Selur frá Aldenghoor, undan Fáfni frá Laugar- vatni og Sædísi frá Reykjavík, í Dan- mörku 1989 og Kári frá Aldenghoor, undan Skarða frá Syðra-Skörðugili og Kempu frá Hólum, hér á HM í Hollandi. Nú eru hrossin orðin það mörg og kostnaður það mikill að ég verö að fara að selja. Heimsæki vini mína á íslandi næsta sumar Þá ætla ég að kaupa töluvert af merum til uppeldis og fer til íslands á næsta ári að heimsækja vini mína og kaupa merar, hugsanlega fylfull- ar. Bestu meramar okkar eru orðnar tuttugu ára og ég þarf nýtt blóð í ræktunina. Ég vildi að ég gæti eytt meiri tíma í ræktunina en ég geri eins og ég get. Þegar ég verð hætt að þekkja öll hrossin er tími til kominn að einbeita sér betur að þeim,“ segir stáldrottn- ingin Viola Hallmann sem hefur fundið sitt tómstundagaman í ís- lenskahestinum. -E.J. Aldenghoor var nafn sem gaf að líta víða á heimsmeistaramótinu í hestaíþróttum í Spaarnvoude í Hol- landi og hefur reyndar heyrst nefnt á heimsmeistaramótum undanfarin ár. Aldenghoor er búgarður Violu Hallmann, þýsks viöskiptajöfurs sem býr í Hollandi og er heltekin áhuga á íslenska hestinum. Á þessum búgarði er hún með tæp- lega eitt hundrað íslensk hross og ræktar af mikilli elju. Sem dæmi um umönnun hrossanna má nefna að á Aldenghoor eru dýralæknir og járn- ingamaður í fullu starfi allan ársins hring. Átta viðurkenndir stóðhestar eru notaðir í ræktuninni, sem er um 30% af heildinni i Hollandi. Þar er einnig aö finna fimm alda gamalan kastala. *150.50 kr.: Verð á 1 mínútu símtali (sjálfvirkt val) til Japan á næturtaxta m.vsk. Það kostar minna ; en þig grunar að “ hringja til útlanda PÓSTUR OG SÍMI stóð í Hollandi Stáldrottning með hundrað hrossa Allt að 70% afsláttur málningarvörur blöndunartæki flísar, dúkar, teppi og margt, margt fleira. Skeifan 8, s. 813500.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.