Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Blaðsíða 35
43 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1993 dv Skák Tal-stíllinn lifir í Lettlandi Lettinn ungi, Alexei Sírov, er ís- lendingum að góðu kunnur frá Reykjavíkurskákmótinu í fyrra er hann varð efstur ásamt Jóhanni Hjartarsyni. Sírov var fimmti stiga- hæsti stórmeistarinn á miiiisvæða- mótinu í Biel en tókst ekki að krækja sér í eitt áskorendasætanna tíu. Margir hefðu þó fagnaö þátttöku hans í áskorendakeppninni því að hann teflir bráðskemmtilega - oft í anda gömlu meistaranna. Ef mið er tekið af skák Sírovs við bandaríska stómeistarann Seirawan á mótinu er auðvelt að geta sér til um það hvert hann sækir sér fyrir- myndir. Skákina hefði allt eins mátt finna í safni annars Letta sem oft var nefndur „töframaðurinn frá Riga“. Þarna er að sjálfsögðu átt við fyrr- verandi heimsmeistara Mikhail Tal og er ekki leiðum að líkjast. Tal var frægur fyrir glæsilegar fléttur og óvæntar fómir svo að mörgum and- stæðingum hans fannst eiga meira skylt við töfrabrögð en skák. Skák Sírovs við Seirawan er ein faUegasta skákin sem tefld var í Bi- el. Sírov er aðeins 21 árs gamall og trúlegt er að hann eigi eftir að láta að sér kveða 1 heimsmeistarakeppn- inni þótt síðar verði. Hvitt: Yasser Seirawan Svart: Alexei Sirov Enskur leikur. 1. c4 e5 2. Rc3 Bb4 3. Rd5 Be7 4. Rf3 d6 5. d4 e4 6. Rd2 f5 7. e3 RfB 8. Rxe7 Dxe7 9. d5 Á þennan hátt hindrar hvítur að svartur fái sjálfur leikið peði til d5 og treyst miðborðsstöðuna. En leik- urinn hefur þann augljósa annmarka að gefa eftir e5-reitinn þar sem svart- ur riddari getur hreiðrað um sig og orkar því tvímæhs. 9. - 0-0 10. Be2 Rbd7 1L 0-0 Re5 12. Rb3 Bd7 13. Rd4 Rfg4 14. h3 Seirawan grunar ekki hvað hann á í vændum... 14. - HfB! Sírov telur ástæðulaust að hörfa með riddarann heldur byggir stöðu sína upp eins og ekkert hafi í skor- ist. Nú er andi Tals farinn að svífa yfir vötnum. Hvítur hefur áreiðan- lega ekki gott af því að þiggja ridd- arafómina. Svarið við 15. hxg4 yrði einfaldlega 15. - fxg4 og hótanir eins og Hh6 ásamt Dh4, eða Haf8 og Rf3 + vofa yfir. 15. g3 Hh6! 16. Kg2 Enn er hæpið að þiggja fómina. Eftir 16. hxg4 fxg4 17. Kg2 Df7! (best) á svartur afar hættuiega sókn. Reyni hvítur að andæfa á h-línunni, grípur svartur f-línuna - ef 18. Hhl HfB 19. Hfl Hf8 20. Del Rf3 með vinnings- stöðu. Önnur tilraun til vamar væri 18. Re6 en þá yrðu lokin faheg: 18. - Bxe619. dxe6 Hh2+!! 20. Kxh2 Dh5 + 21. Kgl Rf3+ 22. Bxf3 gxf3 og óveij- andi mát með Dh3-g2. Eftir textaleikinn virðist svarta sóknin loks vera að renna út í sandinn... >1 7 A 6 1 * iM á A i I 5 4 % k 4 & k 3 2.4 1 s 4 ÉL Á. 4 2 p 4 ABCDEFGH Alexei Sírov, sem sigraði á Reykjavíkurskákmótinu 1992 ásamt Jóhanni Hjartarsyni, tefldi glæsilega skák í sannkölluðum Tal-stíl gegn Seirawan á millisvæðamótinu í Biel. 16. - Hxh3!! 17. Kxh3 f4! 18. exf4!? Skákskýrandinn var dágóða stund að komast að því hvað Sírov hafði í huga eftir 18. Kg2 og fann loks eftir- farandi afbrigði: 18. Kg2 f3+ 19. Rxf3 Umsjón Jón L. Árnason exf3+ 20. Bxf3 Rxf3 21. Dxf3 Re5! 22. De2 (22. De4 gefur svörtum góð færi; t.d. 23. f4? Bf5 24. Dd4 Dh5 með vinn- ingsstöðu) Bg4 23. f3 Rxf3! 24. Hxf3 De4! og hótuninni 25. - Hf8 er aðeins möguiegt að svara með 25. Kf2 en þá kostar 25. - Bxf3 26. Dxf3 Hf8 drottn- inguna. Af þessum ástæðum kýs Seirawan að láta drottninguna með góðu og þykist sjá fram á að fá nægUegt Uð í staðinn. 18. - Rf2+ 19. Kg2 Rxdl 20. fxe5 Dxe5 21. Hxdl Ef hvítur ætti nú leik gæfi 22. Be3 álitiega stöðu. 21. - e3! 22. Rf3 De4 23. Hd3 Dxc4 24. Hxe3 Dxd5 25. b3 Bb5 26. Bxb5 Dxb5 27. Bb2 He8 28. Hxe8+ Dxe8 Drottning og þrjú peð gegn hróki, biskup og riddara gefa svörtiun góða vinningsmöguleika. Seirawan hefði trúlega getað veitt meiri mótspymu en eins og skákin teflist er honum smám saman ýtt út af borðinu. 29. Kf2 h6 30. Hel Df7 31. g4 c5 32. Kg3 g5 33. Bcl b6 34. Bd2 d5 35. He5 d4 36. Hf5 De6 37. Bel De2 38. b4 c4 39. Hd5 d3 40. Bd2 Ddl 41. b5 Da4 42. Kf2 Dxa2 43. Hd8+ Kf7 44. Hc8 Ke7 45. Ke3 c3 46. Hxc3 De6+ 46. Kxd3 Dxg4 48. Rd4 Kd6 49. Hc6+ Kd5 50. Be3 h5 51. Re2 h4 52. Rc3+ Ke5 53. Hh6 h3 54. Hh8 Dg2 55. He8+ Kf5 56. Re4 h2 57. Hf8+ Kg6 58. Hg8+ Kf7 59. Hxg5 hl=D 60. Hxg2 Dxg2 - Nú þarf varla að rekja skákina lengra. Svartur á auðunnið tafl. 61. Rc3 Ke6 62. Bd4 Dfl+ 63. Kd2 a6 64. bxa6 Dxa6 65. Rdl Kd5 66. Bg7 b5 67. Re3+ Ke4 68. Rc2 b4 69. Bb2 Dd3+ 70. Kcl Dfl+ 71. Kd2 b3 - Og nú var Seirawan nóg boðið. NUMIIMIM A BROTT AF GEIMVERUM 5. NOVEMBER, 1975 KL. 5:49 E. H. ARIZONA MYND BYGGÐ A SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM leikstjóri ROBERT LIEBERMAN % AÐALHLUTVERK D. B. SWEENEY, ROBERT PATRICK, CRAIG SHEFFER, PETER BERG OG JAMES GARNER í tilefni frumsýningar myndarinnar ELDUR A HIMIMI verður haldin athyglisverð ráðstefna laugardaginn 28. ágúst í Háskólabíói á vegum Snæfellsáss hf. um geimverur. Rádstefnan stendur frá kl. 10.30 til 16.30. HASKOLABIO ELDUR Á HIMIMI sýnd á öllum sýningum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.