Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Qupperneq 53

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1993, Qupperneq 53
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1993 61 Hlýrra sunnanlands Nytt lista- safná Akureyri Listasafnið er nýr sýningasalur á Akureyri og var opnað formlega um helgina. Mjólkursamlagið var þar áður tíi húsa en bærinn keypti eignina fyrir þremur árum. Fyrri innréttingar eru látnar halda sér að hluta og úr þeim fæst sérstakt rými fyrir verk. Til dæmis verða gamlir mjólkurkælar með þungum Sýningar hurðum og gægjugötum látnir halda sér í sínu upprunalega formi og gefa möguleika á litlum innsetningum og gægjuverkum. Sýningin, sem nú stendur yfir, er tvískipt. Þar eru annars vegar eldri myndir eftir þekkta mynd- listarmenn sem hafa verið keypt- ar af Akureyrarbæ frá árinu 1930. Hins vegar eru nýjar myndir eftir starfandi myndlistarmenn á Ak- ureyri. í miðsal er samsýning ungra myndlistarmanna sem eiga það sameiginlegt að vera úr Eyjafirði og hafa valiö sér starfs- vettvang í Reykjavík eða erlend- is. í vestursal gefur að líta verk eftir Kristján Guðmundsson en hann á langan feril að baki í myndlist. Þá hefur Finnbogi Pét- ursson sett upp verk sem hann kaUar hljóðskúlptúra. Nútímafimleikar voru fyrst kenndir árið 1776. Fimleikar Fimleikar af frumstæðri gerð voru stundaðir í Grikklandi og Rómaveldi á tímum hinna fomu ólympíuleika Grikkja (776 f. Kr.- 393 e. Kr.) en Johan Fridrich Sim- on var fyrstur til að kenna nú- tímafimleika við Basedowskól- ann í Dessau í Þýskalandi árið 1776. Löng erfðaskrá! Lengstu erfðaskrá, sem sögur fara af, gerði Frederica Cook í Bandaríkjumun snemma á þess- ari orð. Erfðaskráin var 95.940 orð í fjórum bindum. Blessuð veröldin Stutt erfðaskrá! Stysta gilda erfðaskrá í heimi er „Vse Zene“ sem er tékkneska og útleggst „Allt til eiginkonu". Hana skráði Karl Tausch frá Langen í Hessen í Þýskalandi hinn 19. janúar 1967. Stærstu öskuhaugar Reclamation Plant No. 1 Fresh Kills á Staten-eyju í New York, sem tók til starfa í mars 1974, er heimsins stærsta sorpfyllingar- stöð. Fyrstu fjóra mánuðina tók stöðin við 457 þúsund tonnum af sorpi sem þangað var flutt úr New York-borg. Það verður breytileg átt, víðast kaldi og rigning eða skúrir um svo til allt land. Síðdegis gengur í norðanátt Veðriðídag með skúrum norðanlands en í öðrum landshlutum léttir til. Veður fer held- ur kólnandi, einkum norðanlands. Á höfuðborgarsvæðinu verður breytileg átt með golu eða kalda og skúrum. Upp úr hádegi léttir til með norðankalda. Hiti verður á bilinu 7-11 stig. Veðrið kl. 12 í gær: Akureyri úrkomaí grennd 15 EgilsstaOir skýjað 15 Galtarviti skýjað 13 KeOa víkurOugvöilur alskýjað 11 Kirkjubæjarklaustur skúr 12 Raufarhöfh skýjað 9 Reykjavik úrk.ígr. 11 Vestmannaeyjar þokumóða 10 Bergen léttskýjað 15 Helsinki skýjað 14 Ósló hálfskýjað 15 Stokkhólmur þrumur 11 Þórshöfn súld 11 Amsterdam skúr 13 Barcelona léttskýjað 28 Berlin skýjað 17 Chicago léttskýjað 26 Feneyjar rigning 21 Frankfurt skýjað 20 Glasgow skýjað 19 Hamborg skýjað 16 London skýjað 17 Madrid hálfskýjað 22 Malaga léttskýjað 26 Mallorca léttskýjað 29 New York mistur 26 Nuuk þokaí grennd 2 Orlando hálfskýjað 23 París skýjað 19 Valencia léttskýjað 28 Vín skýjað 18 Winnipeg skúr 13 Kiefer Sutherland. Hvarfið Kvikmyndin Hvarfið hefur gengið í Bíóhöllinni um nokkurt skeiö. Efnisþráður myndarinnar er á þá leiö að kærustuparið Diane Shaver og Jeff Harriman eru á ferðalagi. Einn góðan veð- urdag hverfur Diane sporlaust og engar vísbendingar eru fyrir hendi. Jeff hafði lofað henni að styðja hana og vemda og er ekki Bíóíkvöld í rónni fyrr en hann kemst að þvi hvað hefur orðið um unnustuna. í þrjú ár heldur hann uppi spum- um og þá loks fara mái að skýr- ast. Jeff er hins vegar svo heltek- inn af leitinni að hann lifir nán- ast fyrir hana. Hvarfið eða Vanishing, eins og hún heitir á frummálinu, er end- urgerð hollenskar myndar sem hér Sporloos. Hér koma fram úrvals leikarar af yngri kynslóðinni: Jeff Bridges, Kiefer Sutherland, sem leikur Jeff, og Nancy Travis sem leikur Diane. Nýjar myndir Háskólabíó: Jurassic Park Laugarásbíó: Dauðasveitin Stjömubíó: Síðasta hasarmynda- hetjan Bíóhöllin: Jurassic Park Bíóborgin: Þrælsekur Saga-bíó: Ekkjuklúbburinn Regnboginn: Red Rock West Gengið Almenn gengisskráning LÍ nr. 199. 27. ágúst 1993 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 70,730 70,930 72,100 Pund 106,800 107,100 107,470 Kan. dollar 53,680 53,840 56,180 Dönsk kr. 10.2680 10,2990 10,7850 Norsk kr. 9,7250 9,7540 9.8060 Sænsk kr. 8.7260 8,7520 8,9360 Fi. mark 12,1420 12.1780 12,3830 Fra. franki 12,0870 12,1240 12,2940 Belg. franki 1,9841 1,9901 2,0254 Sviss. franki 48,0300 48,1700 47,6100 Holl. gyllini 37.7000 37,8100 37,2800 Þýskt mark 42,3900 42,5100 41,9300 it. lira 0,04421 0,04437 0,04491 Aust. sch. 6,0250 6,0460 5,9700 Port. escudo 0,4130 0,4144 0,4127 Spá. peseti 0.5206 0,5224 0,5154 Jap. yen 0,67970 0.68180 0,68250 irskt pund 98,840 99,130 101,260 SDR 99,61000 99,91000 100,50000 ECU 80.4800 80,7200 81.4300 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. Cancun: Hljómsveitin Silfurtónar heldur tónleika á Cancun í kvöld. Silfurtónar segjast hafa verið við lýði lengi, eða í tvo áratugi. Þeir hafi komið víða fram en hins vegar hafa fáir tekiö eftir þeim. í raun má segja aö hljómsveit- in reyni að byggja upp gamla ímynd með því að halda fatastíl sínum frá því snemma á átt- unda áratugnum. Að þessu leyti minnir hún svolítið á bresku hljómsveitina Big Daddy. Efhi hennar er þó að mestu leyti nýtt og frumsamið og skemmst er að minnast plötu hennar sem kom út fyrir síðustu jól. Samt sem áöur er tónlistin flutt í stil fýrri tíma. Hljómsveitina skipa Magnús Jónsson, Július Ólafs- son, Hlynur Höskuldsson, Birg- ir Baldursson og Árni Kreys. Sitturtónar Myndgátan Snúa bökum saman

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.