Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1993, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1993
Kvikmyndir
Dave:
Tvífari forsetans
Sam-bíóin munu bráðlega taka til
sýningar bandarísku gamanmynd-
ina Dave sem hefur notið mikilla vin-
sælda vestanhafs að undanfbrnu.
Þetta er nýjasta kvikmynd Ivans
Reitmans sem meðal annars leik-
stýrði Ghostbuster myndunum. Kev-
in Khne leikur aðalhlutverkið Dave
Kovic sem rekur atvinnumiðlun.
Hann er ánægður í sínu starfi enda
góðviljaður maður sem er alltaf
ánægður þegar hann getur bjargaö
einhverjum fátækhngum um at-
vinnu. Dave er ekki ríkur maður en
kemst vel af. Hann er sem sagt hinn
dæmigerði milhstéttarmaður. Eitt
hann öðruvísi en fjöldinn, hann er
tvífari forseta Bandaríkjanna, Will-
iam Harrison Mitchell.
Það sem Dave veit ekki er að starfs-
mannastjóri forsetans er að leita að
manni sem gæti komið í staöinn fyr-
ir forsetann, svo hann geti sinnt
áhugamálum sem þjóðin má ekki
frétta af. Dave er boðið að verða stað-
genghl forsetans í veislu einni og
þiggur boðið. Á meðan veislan stend-
ur sem hæst fær forsetinn harkalegt
hjartaslag og er ekki hugað líf.
Starfsmannastjórinn sér að allt
stefnir í voða og fær því Dave til að
halda áfram leiknum. Dave hefur
gaman af og það kitiar metnaðargimi
hans að fá aö stjórna bandarísku
þjóðinni. Það reynist honum auðvelt
en erfiðara er að blekkja eiginkonu
forsetans.
Auk Kevin Kline leika í myndinni
Sigourney Weaver, sem leikur forset-
afrúna, Frank Langella, sem leikur
starfsmannastjórann, og Ben Kings-
ley sem leikur varaforsetann. Auk
þess koma fram margir þekktir
stjórnmálamenn og annað frægt fólk,
má nefna öldungadeildarþingmenn-
ina Paul Simon, Alan Simpson, Tom
Harkin, Howard Metzenbaum og Chri-
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
Vinsælar kvikmyndir
Leikstjórinn Ivan Reidman á að baki
margar bráðskemmtilegar gaman-
myndir. Áður hafa verið nefndar
Ghostbuster myndimar. Til viðbótar
má nefna Stripes, Twins og Kinder-
garten Cop. Legal Eagles er eina
myndin sem hann hefur leikstýrt
sem ekki er gamanmynd. Það er stað-
reynd að síðasthðin tíu ár hafa kvik-
myndir hans halað inn hvorki meira
né minna en 10 billjónir dohara sem
sagt er að sé met hjá einum leikstjóra
á þessu tímabih.
Áður én Reitman byriaði sjálfur að
leikstýra framleiddi hann meðal
annars hina vinsælu kvikmynd
National Lempoon’s Animal House
og Heavy Metal.
Ivan Reidman var aðeins fjögurra
ára þegar fjölskylda hans flúöi
Tékkóslóvakíu og settist að í Kanada.
Eftir að hafa numið tónhst í mörg
ár sneri hann sér að sjónvarpinu og
leikstýrði mörgum stuttum kvik-
myndum sem kanadíska sjónvarpið
sýndi. Hann var einnig framieiðandi
sjónvarpsþáttaraðar sem hét Greed
og var Dan Aykroyd kynnir.
Staðgengill forsetans sýnir heimilis-
lausum dreng töfrabrögð.
Leikstjórinn Ivan Reidman hefur
leikstýrt mörgum vinsælum gaman-
myndum.
stopher Dodd. Aðrir sem koma fram í
myndinni eru Ohver Stone, Amold
Schwarzenegger, Larry King og Jay
Leno svo einhveriir séu nefndir.
Kevin Kline leikur staögengil forsetans og Sigourney Weaver leikur forsetafrúna sem veit ekki betur en að Dave
sé eiginmaður hennar.
Leið hans lá næst á Broadway þar
sem hann hann um síðir kom á svið
The National Lampoon Show. Stutt
er síðan Ivan Reidman sneri aftur á
Broadway og leikstýrði söngleiknum
Merlin og fékk hann Tony verðlaun
fyrir leikstjórn sína.
-HK
Kvikmyndafestival á vegum Regnbogans og Hvíta tjaldsins.
Kryddlegin hjörtu fýrst í
röð listraenna kvikmynda
Mary McDonnell og Alfre Woodard leika aðalhlutverkin í kvikmynd John
Sayles, Passion Fish.
Regnboginn ásamt kvikmynda-
klúbbnum Hvíta tjaldinu mun í vetur
efna til sýninga á listrænum kvik-
myndum undir heitinu Kvikmynda-
festival. Ekki verða ahar myndirnar
sýndar í einu á stuttum tíma heldur
verða þær látnar ganga í nokkurn
tíma áður en sú næsta tekur viö.
Ahs eru þetta þrettán kvikmyndir
og eru flestar þeirra franskar. Fyrsta
kvikmyndin sem sýnd verður er aft-
ur á móti mexíkósk, Como Agua Para
Choocolate, sem var mjög vel sótt í
Bandaríkjunum og hefur fengið góða
dóma. Mynd þessi gerist á tímum
mexíkósku byltingarinnar í byriun
þessarar aldar og segir af tveimur
persónum, Pedro og Tita, sem ekki
fá að njótast, en Tita kann ýmislegt
fyrir sér, meðal annars að elda
ástríðufuha rétti. Aðrar myndir eru:
Toto the Hero sem er margverð-
launuð mynd frá Belgíu.
Arizona Dream, sem er gerð í sam-
vinnu Frakka og Bandaríkjamanna
með amerísku leikurunum Johnny
Depp, Jerry Lewis og Fay Dunaway
í aðalhlutverkum.
Les nuits Fauves, frönsk kvikmynd
sem hlaut Cesar verðlaunin sem
besta kvikmynd á þessu ári. Var hún
valin að leikstjóranum látnum en
hann lést úr eyðni fáum dögum áður.
Les Visteurs er einnig frönsk kvdk-
mynd. Hún er ein vdnsælasta kvik-
mynd í Frakklandi síðustu ára. Þetta
er gamanmynd sem segir frá tveimur
víkingum sem óvart fara í tímaferða-
lag til nútímans þegar þeir drekka
göróttan drykk.
La Corsa deh’Innocente er ítölsk
kvdkmynd sem fjahar um ungan
sveitadreng sem verður fyrir því að
fjölskylda hans er drepin á hroðaleg-
an hátt sunnudagsmorgun einn.
Hann kemst undan en morðingjamir
fylgja fast á eftir.
IB5 er síðasta kvdkmyndin sem
einn ástsælasti leikari Frakka. Yves
Montant lék í. Lést hann um sama
leyti og tökum á myndinni lauk.
Leikstjóri er Jen-Jacques Beinex.
Germinal er dýrasta kvdkmynd
sem Frakkar hafa gert, nánar er sagt
frá henni hér til hhðar.
Into the West er írsk kvdkmynd þar
sem aðalhlutverkin eru í höndum
tveggja drengja, en með þeim leika
hjónin Gabriel Byrne og Ellen Bark-
in, en Byme er írskur. Myndin segir
frá drengjunum tveimur sem stinga
af á töfrahesti í vesturátt.
Pasion Fish er leikstýrt af John
Sayles og er víða sýnd um þessar
mundir. Mynd þessi hefur alls staðar
fengið góða dóma. Leikstjóri er John
Sayles, en aðalhlutverkin leika Mary
McDonneh og Alfre Woodard.
Tous les du monde er frönsk kvdk-
mynd sem gerð er eftir hinni rómuðu
skáldsögu Pascal Quignard sem
komið hefur út á íslensku undir
nafninu Alhr heimsins morgnar. Það
er Gerard Depardieu sem leikur að-
alhlutverkið ásamt Jean-Pierre
Mariehe og Anne Brochet. Leikstjóri
er Alain Comeau.
Gerard Depardiu leikur einnig að-
alhlutverkið í Mon pere le heros,
léttri gamanmynd sem fjallar um
unga stúlku sem fer með föður sínum
á sólarströnd og lýgur þar að öllum
að hann sé kærasti sinn. Að sjálf-
sögðu er faðirinn sá síðasti sem frétt-
ir það.
Síðasta myndin er einnig frönsk
Un coeur en hiver, dramatísk kvdk-
mynd um ástarþríhyming sem vakið
hefur töluverða athygh.
-HK
I>V
Dýrasta kvik-
myndFrakka
Þaö er ljóst að dýrasta kvik-
mynd sem Frakkar hafa gert,
Germinal, sem gerð er eftir skáld-
sögu Emile Zola um námumenn
í Norður-Frakklandi á seinni
hluta nítjándu aldar, á erfitt upp-
dráttar. Gagnrýnendur hafa farið
óbhðum orðum um myndina og
ekki aðeins fundist hún leiðinleg
heldur einnig kahað hana leg-
stein á kvikmyndastefnu sósíal-
ista. Germinal var gerð th höfuðs
bandarískum stórmyndum og
var sögð, áður en sýningar hóf-
ust, svar Frakka vdö Jurassic
Park. Nú þykjr ólíklegt að
óánægöir námuverkamenn eigi
nokkra möguleika í risaeðlur
Spielbergs, þótt aðalhlutverkið sé
i höndum Gerards Depardieu.
StanleyKubrick
farinnaðhuga
aðnýrrimynd
Litið hefur spurst til Stanleys
Kubrick frá því hann geröi Fuh
Metal Jacket árið 1987. Nú em
raddir uppi um að hann hugsi sér
til hreyfings og geri næstu kvik-
mynd sina „austantjalds”. Fjahar
myndin um ungan dreng og
ferðalag hans og frænku um
Austur-Evrópu. Þegar er búið að
ráða Joseph Mazzello, sem lék í
Jurassic Park, í hlutverk drengs-
ins en sagt er aö Julia Roberts,
Jodie Foster og Uma Thurman
séu allar meira en lítið thbúnar
að leika frænkuna.
„Tvíburarnir"
samanáný
Eins og flestir muna léku
Danny De Vito og Arnold
Schwarzenegger tvíbura í Twins
við góðan orðstír. Þessir tveir
ólíku leikarar hafa nú samþykkt
að endurtaka leikinn og leika
saman í kvdkmynd. Ekki verður
um framhald Twins að ræða.
Myndin, sem nefnist Oh Baby, er
gamanmynd og fjallar urn tvo vís-
indamenn sem rannsaka hvernig
framleiða megi einstaklinga eftir
pöntunum. Leikstjóri myndar-
innar er Ivan Reitman, sá hinn
sami og leikstýrði Twíns.
Frönsk
kvikmyndahátíð
Tvær kvdkmyndahátíöir hafa
verið í gangi að undaníörnu, önri-
ur á vegum SAM-bíóanna og hin
á vegum Kvikmyndahátiðar
Listahátiðar. Á fyrmefndu hátíö-
inni voru sýndar fáar en athyghs-
verðar kvikmyndir. Aftur á móti
voru kvikmyndimar á Kvik-
myndahátíð Listahátíðar 32 tals-
ins og hafa unnendur listrænna
kvikmynda því haft í nógu að
snúast að undanfömu. Kvik-
myndahátíðinni lýkur urn þessa
helgi en hvhdin verður stutt því
í nóvember er áætlað aö halda
franska kvdkmyndahátíö þar sem
sýndar verða nokkra nýjar
franskar kvikmyndir.
Fimmframhalds-
kvikmyndir
Engin vöntun verður á fram-
haldsmyndum í vetur. í Banda-
ríkjunum er ráðgert aö fimm
framhaldsmyndir verði frum-
sýndar fram aö jólum, allt gam-
anmyndir. Myndir þessar em:
Addams Family Values, meö Raul
Julia og Anjehcu Huston í fylk-
ingarbrjósti fjölskyldunnar,
Beethoven's 2nd en eins og marg-
ir muna er Beethoven hundur,
Ixwk Who’s Talkin’ Now en þar
er víst lofað talandi hundi, Sister
Act 2, Whoopi Goldberg aftur í
nunnufót, og Wayne’s World 2.