Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1993, Síða 10
10
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993
Mæðgur í útgáfustarfsemi:
Unnu í nálægð-
inni hvor við aðra
Guðrún Guðlaugsdóttir gefur út skáldsögu og Móeiður Júníusdóttir plötu
Fjölskyldu-
samkunda
„Fjölskyldan er mjög samhent og
hefur svipuö áhugamál. Þess vegna
er skemmtilegt að við skulum vera
að koma þessu frá okkur á sama
tíma,“ segja mægðurnar Guðrún
Guðlaugsdóttir og Móeiður Júníus-
dóttir. Guðrún er að senda frá sér
fyrstu skáldsöguna, Nellikur og
dimmar nætur. Móðeiður, dóttir
hennar, er hins vegar að gefa út
sína fyrstu sóló-plötu, Móa syngur
- Lögin við vinnuna.
„Bókin er skáldsaga en hún er
byggð á eigin lífsreynslu á vissan
hátt. Ég hef tekið viðtöl við fjölda
fólks í gegnum tíðina og hef komist
að því að það er fleira sameiginlegt
með ævi fólks heldur en það sem
aðskilur það. Þetta er þroska- og
örlagasaga konu. Hún verður fyrir
áfollum í lífinu rétt eins og viö öll
hin. Það er þó sjaldnast fyrirséð
hvað eru mestu áfolhn í lífi fólks.
Þetta er kona sem upplifir bæði
mótlæti og gleði,“ segir Guðrún og
er frekar treg að segja frá sögu-
þræði þessarar fyrstu skáldsögu
sinnar. „Það má ekki taka spenn-
una frá lesandanum," segir hún.
Guðrún Guðlaugsdóttir hefur áð-
ur skrifað tvær viðtalsbækur og
tvær ljóðabækur. Hún hefur starf-
að sem blaðamaður á Morgunblað-
inu undanfarin níu ár en var þar
áður dagskrárgerðar- og frétta-
maður á Ríkisútvarpinu. Guðrún
segir að það hafi lengi blundað í sér
að skrifa þessa bók. „Fyrir þremur
árum fékk ég þriggja mánaða frí í
vinnunni og ákvað þá að setjast
niður og byija. Það var ákveðið
söguefni sem mér fannst ég þurfa
að koma á blað og fékk ekki betra
tækifæri en í þessu fríi til að byija.
Mér hefur oft fundist samtíminn
vera séður með augum karlmanna
í íslenskum bókmenntum. Mig
langaði til að skoða þennan sam-
tíma með mínum augum og flétta
honum saman við örlög einnar
manneskju," segir Guðrún.
Lögin
viðvinmma
Móeiður, dóttir hennar, hefur
hins vegar gefið sig sönglistinni á
vald og plata hennar, Lögin við
vinnunna, hefur strax vakið mikla
athygh. Móeiður er þó ekki sú eina
í fjölskyldunni sem syngur því
söngurinn er ríkur þáttur í lífi
þeirra beggja. Guðrún tók söng-
tíma þegar hún var við nám í Leik-
hstarskóla Þjóðleikhússins og síðar
hjá fóðursystur, sinni Guðmundu
Ehasdóttur. „Ég fór síðan í tónhst-
arskólann sl. vetur en hef lagt
sönginn tímabundið á hihuna,“
segir móðirin. Dóttirin hóf hins
vegar feril sinn fyrir nokkrum
árum er hún varð númer tvö í
Söngkeppni framhaldsskólanna.
Móeiður hefur einnig verið að
læra söng. Hún hefur farið í nokkra
tíma til frænku sinnar, Guðmundu.
Einnig stundaði hún nám í Tónhst-
arskólanum í Reykjavík. Móeiður
hefur vakið mikla athygh fyrir
flutning sinn á gömlu góðu dægur-
lögunum sem hún hefur nú komið
á plötu. „Þetta eru bæði íslensk lög
sem erlend og má reyndar finna lög
á fjórum tungumálum á plötunni,“
segir hún. „Þetta er ijóminn af efn-
Guörún Guölaugsdóttir og dóttir hennar, Móeiður Júníusdóttir, halda upp á þaö þessa dagana að gefa út
sína fyrstu skáldsögu og plötu. DV-mynd Brynjar Gauti
isskránni sem ég hef verið að
syngja undanfarin ár,“ segir Mó-
eiður sem er 21 árs. Hún túlkar
lögin í djassaðri útgáfu meö
skemmtilegri útkomu. Móeiöur
hélt útgáfutónleika á Hótel Borg
fyrir nokkrum dögum og tókust
þeir með eindæmum vel. Hún setti
saman hljómsveit fyrir plötuna
sem er skipuö Kjartani Valdimars-
syni, sem spilar á harmoníku og
píanó, Þóri Högnasyni, kontra-
bassa, Matthíasi Hemstock,
trommuleikara og Jóel Pálssyni,
sem leikur á saxófón og klarínett.
„Tvö lög sem Móa syngur koma
fyrir í bókinni minni,“ segir Guð-
rún. „Þar sem erfitt var fyrir mig
að skrifa hér heima fékk ég fyrst
inni hjá elstu dóttur minni meðan
hún var í vinnunni. Þar sem bókin
er skrifuð í þremur áfóngum leigði
ég mér næst þakherbergi á Birki-
melnum og endurskrhaði bókina
þá frá byijun og breytti um frá-
sagnarhátt. í þriðju atrennu, sem
var sl. sumar, fékk ég afnot af kvist-
herbergi á Hringbrautinni þar sem
Móeiður býr. Meðan Móeiður æfði
lögin í stofunni sat ég og skrifaði,"
segir Guðrún ennfremur. Næst-
elsta dóttir mín, Ásgerður, sem er
að ljúka áttunda stigi í söngnámi,
býr í sama húsi og Móeiður, en
maður hennar er Siguijón Sigurðs-
son, Sjón, sem einnig sat og skrif-
aði á þessum tíma. Ég heyrði því
tikkið frá honum úr annarri áttinni
og Móu syngja úr hinni,“ útskýrir
Guðrún. Sjón kom þó ekki sinni
bók út fyrir jólin en sambýhsmað-
ur Móu, Eyþór Arnalds tónhstar-
maður, var hins vegar að gefa út
plötu með Todmobile og má því
segja að mikið sé um að vera í fjöl-
sk'yldunni.
Guðrún Guðlaugsdóttir er sex
bama móðir, það yngsta, Sigríður
Elísabet, er sjö ára. Guðrún varð
ung ekkja með fimm börn en er nú
ght Benedikt Jónssyni, fram-
kvæmdastjóra Lífeyrissjóðs
bænda.
Guðrún á sautján ára tvíbura,
Kristin og Guðlaug, sem eru saman
í hljómsveit og urðu þeir í öðru
sæti í Músíktilraunum Tónabæjar
í vor. Tengdasonur hennar, Ævar
Ágústsson, sem kvæntur er elstu
dótturinni, Ragnheiði, tók stúd-
entspróf úr öldungadeild sl. vor.
Þannig að segja má að hægt sé aö
halda fjölskyldusamkvæmi að öhu
þessu loknu. „Siguijón er gesta-
skáld í Bretlandi núna en þegar
hann kemur heim mun fjölskyldan
öll hittast og borða góðan mat sam-
an í tilefni af þessu viöburðaríka
ári,“ segir Guðrún.
Áframhaldandi
útgáfa
Platan varð til við mjög fmm
stæðar aðstæður á aðeins fjórum
klukkustundum. „Hún var tekin
upp í Gerðubergi með eldgömlum
hljóðnemum sem við fengum lán-
aða hjá Ríkisútvarpinu. Það má
segja að Gerðubergi hafi verið
breytt í risastórt stúdíó. Síðan tók-
um við upp tuttugu lög en völdum
sextán á plötuna. Á vissan hátt er
þetta því „hfe“ plata," segir hin
unga söngkona. „Þetta eru aht
þekkt lög þó þau séu úr ýmsum
áttum. Þau eiga það sameiginlegt
að vera klassískar dægurperlur."
Móeiður segir að hún og Eyþór
Amalds vinni mikið saman við að
semja tónhst. Þau sendu eitt lag
sameiginlega frá sér á nýrri safn-
plötu hjá Spori. Einnig voru þau
með lag á plötunni Núll og nix.
Móeiður telur hugsanlegt að sam-
starf þeirra verði enn meira í fram-
tíðinni þar sem Todmobhe er að
hætta.
Guðrún segist vera komin með
ákveðna hugmynd að næstu bók
en veit ekki hvenær hún muni
byija á henni. „Það kemur út önn-
ur bók fyrir þessi jól sem ég á hlut
að en það er ævisaga Odds Ólafs-
sonar á Reykjalundi. Ghs Guð-
mundsson er höfundur hennar en
ég lagði honum lið með því að taka
íjölda viðtala í bókina. Talsverð
vinna fór í það einnig þannig að
þetta hefur óneitanlega verið anna-
samurtími." -ELA