Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1993, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1993, Page 27
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993 27 Skólafélagar á Laugarvatni: F.v. Ragnheiður Magnúsdóttir, Þórhallur Arason frá Patreksfirði, Dadda, Guðmundur Kærnested, Sigríður Rósa og Valdína. fyrir þessi smáu fyrirtæki en fékk aðstoð við ársuppgjör. Ég fór til Noregs 1. desember og þegar líða fór á desembermánuð kom í ljós að viðgerðimar myndu dragast og skipið yrði að liggja þarna yfir jólin. Það varð úr að við hjónin urð- um eftir þegar aðrir úr áhöfninni fóru heim til íslands og héldum viö jólin um borð í skipinu. Við höfðum eftirlit með vinnunni þar til henni lauk 20. janúar 1973. Ég sá um mat- seldina og það má segja að ég hafi verið verkstjóri því ég varð að tala við Norðmennina þar sem Ragnar þóttist ekki geta það. Ég notaði þá tækifærið og lét þá laga ýmislegt í dagstofunni aftur á þar sem var brot- in klæöning og fleira smálegt. Mér féll aldrei verk úr hendi. Eftir að Norðmennimir hættu að vinna, á slaginu klukkan hálfíjögur á daginn, unnum við Ragnar í vélinni fram að kvöldmat og var ég þá handlangari. Þess á milli gerði ég handavinnu og saumaði út í áklæði á rokokkóstól. Á kvöldin fengum við oft heimsókn af íslenskum hjónum sem bjuggu í Egersund og við heimsóttum þau líka. Þau heita Jón Þorgeirsson, byggingatæknifræðingur, og Sigur- björg Runólfsdóttir. Og á hverjum morgni, virka daga, kom ungur skipamiðlari til okkar og fylgdist með framvindu verksins. Leiland, hét þessi ungi maður. Einn morgun- inn séttist hann niður í borðsalnum og sagði: „Ég ætla að sitja héma í hálftíma því það er svo rólegt hjá ykkur. Þeg- ar ég kem upp á skrifstofu verður allt vitlaust, hamrandi vélar, hávaði og stress." Og hann naut þess að slappa af í amstri hversdagsins þama um borð. Hann hafði byrjað 16 ára gamall sem skipamiðlari, ásamt félaga sínum, og fengu þeir aðstöðu á skrifstofu pabba hans og vom nú komnir með mikil umsvif eftir 10 ára starf. Mér þótti vænt um það að tveimur árum seinna fékk ég kveðju frá verkamönnunum á vélaverkstæðinu sem sá um viðgerðimar. Þeir sögðust aldrei áður hafa haft konu til að segja sér fyrir verkum og þó að maðurinn minn hafi verið til staðar og haft fag- þekkingu á verkunum sögðust þeir ekki hefðu unnið líkt því eins vel ef ég hefði ekki verið til staðar. Enda gerðu þeir allt sem ég bað þá um að gera. Þegar líða tók að lokum fram- kvæmdamia kom áhöfnin út og við sigldum heim. Morguninn eftir að við komum heim vakti Ragnar mig og sagði að farið væri að gjósa í Vest- mannaeyjum. Það tók mig tíma að átta mig og trúa að þetta væri satt. Þar með var ætlun okkar um að gera Víði Trausta út frá Vestmannaeyjum á vertíðinni úr sögunni. Annað rot- högg reið yfir tæpri viku seinna. Þann 28. janúar sökk Jón Kjartans- son þegar hann var að koma heim úr fyrsta loðnutúmum með fullfermi af loðnu. Ég sem hafði vandað mig svo við að láta snurfusa skipið úti í Noregi. Þar með varð það allt til einskis. Barátta í tíu tíma Ekki er vitað hver orsökin var að því að skipið sökk. Þeir voru að háfa úr nótinni þegar slagsíða kom á skip- ið og það náði ekki að rétta sig við. Þeir börðust í tíu tíma við að reyna að ná landi en Jón Kjartansson sökk skammt utan við Vattames. Síðastir frá borði vom skipstjórinn, stýri- maðurinn og Ragnar. Jón tengdason- ur minn, maður Guðnýjar, var líka um borð. Það vantaði ekki að fólkið í landi þættist vita hver orsökin var fyrir þessu óhappi og komust marg- víslegar sögusagnir á kreik en mestu skipti auðvitað að ekki varð mann- fjón. Ragnar fékk sér vinnu í landi þenn- an vetur og varð þetta mikið fjár- hagstjón fyrir okkur. Við höfðum gert ráð fyrir því að hluturinn á Jóni Kjartanssyxú gæti orðið um 400.000 krónur þessa vertíð en Ragnar hafði 64.000 krónur fyrir vinnuna í landi. Það fór því ýmislegt úrskeiðis hjá okkur efnalega við þetta og það fékkst ekkert bætt. Um sumarið gerðum við Víði Trausta út á humar og var Friðrik Rósmundsson ráöinn skipstjóri. Það gekk nokkuð vel en það var orðið erfitt að fá mannskap því nú vildu allir vera á skuttogumnum. Þeir lönduðu humrinum á Höfn og var honum ekið til viimslu í Hraðfrysti- hús Eskifjarðar. Þar með má segja að útgerðarsögunni hafi lokið. Ég var í raun neydd til að selja bátinn því það kom í ljós að karlarnir mínir, sem ég var að reyna að skaffa at- vinnutæki sem átti að sjá þeim og okkur öllum fyrir lífsviðurværi, vom ekkert náttúraðir fyrir atvinnu- rekstur. Ég hélt að þeir yrðu menn til að standa í því, sem fylgir því að eiga og reka bát, en svo var ekki. Kannski hafði ég innst inni hugsað mér bátinn gerðan út frá stað eins og Grenivík og sé stundum eftir því að hafa ekki bara farið með hann frá Eskifirði, t.d. að Rifi eöa til Ólafsvík- ur þar sem slík útgerð hefði getað gengið vel. En maður tekur sig ekki upp frá fjölskyldu og ég var enda bundin í báða skó, hvað sem löngun liði. VíðirTrausti aldrei nefndur Áður en til sölu bátsins kom tók ég loforð af þeim feðgum. Þeir skyldu aldrei minnast á útgeð Víðis Trausta í mín eyru. Ég hefði alls ekki þolað að hlusta á þá seinna barma sér yfir vitleysunni. Ég var algjörlega slegin út og var lengi að ná mér. En síðan hafa þeir ekki getað valdið mér von- brigðum. Það var ekki hægt að ganga naer mér. Á tímabili stóð til að Hafrann- sóknastofnun keypti Víði Trausta og kom fiskifræðingur einn þaðan aust- ur, ásamt fleirum, og þeir skoðuðu bátinn. Þeim leist ljómandi vel á hann enda var þetta nýr bátur. Við hluthafarnir vorum öll þama og það var rætt um verðið sem átti að vera 18,5 milljónir króna. Svö kom upp einhver vandræðagangur sem ég skildi ekkert í enda er ég ekki inni í þessum karlaviðskiptum. En þeir fóm án þess að semja um eitt eða neitt og viö heyrðum aldrei frá þeim meir. Seinna heyröi ég haft eftir þess- um fiskifræðingi að hann hefði ekki getað talað við mig um verðið, sem framkvæmdastjóra, af því að maður- inn minn var viðstaddur! Ekki veit ég hvort þetta er rétt. Ég vissi heldur ekki að þeir ætluðust til að fá borgað- ar mútur fyrir að kaupa bátinn. Ég hélt að það viðgengist bara í svört- ustu Afríku enda hefði ég aldrei borgað þær. Það var alla vega ein- hver kafbátastarfsemi í gangi í kring- um þetta, mér fannst þeir að minnsta kosti'æði djúpsigldir. Hafrannsókna- stofnun keypti svo gamlan bát á 26 miUjónir og hann þurfti það mikilla viðgerða við að mér var sagt að hann hafi kostað ríkið um 38 milljónir á endanum. Þetta em víst karlavið- skiptin í ríkisgeiranum. Hærra er nú ekki risið. Ath.: Millifyrirsagnir eru blaðsins Könnun - útboð Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins auglýsir eftir húsnæði undir vínbúð á Blönduósi og eftir sam- starfsaðila um rekstur verslunarinnar. Lýsing á þessu verkefni er fáanleg á skrifstofu Blönduósbæjar. Þeir sem áhuga hafa á samstarfi sendi nafn og heimilisfang til ÁTVR eigi síðar en 7. des. 1993. ÁTVR mun velja aðila úr röðum þeirra sem gefa erindi þessu gaum og þjóða þeim þátttöku í útboði. Áfengis- og tóbaksversiun ríkisins Stuðlahálsi 2, 110 Reykjavík ÚTSALA Vatnsrúm á stórlækkuðu verði. 20-40% afsláttur. Einnig fataskápar með 50% afslætti. | Vatnsrum hf | SKEIFUNNI 11 - SÍMI 688 466 Fyrirtæki - verslanir - heildsalar er kjörin leið til að koma afsláttartilboðum á framfæri við hagsýna neytendur. Kjaraseðill DV er öflug nýjung fyrir auglýsendur sem birtast mun í blaðinu þriðjudaga til föstudaga. Hafið samband við Sigríði Sigurðardóttur, auglýsingadeild DV. Sími: 63 27 00 Bréfasími: 63 27 27 Auglýsingadeild íslandsmeistarakeppni í suður-amerískum og standard-dönsum með frjálsri aðferð verður haldin sunnudaginn 28. nóv. í Laugardalshöllinni. Einnig verður einsdanskeppni í grunnspomm fyrir 10 ára og eldri. Við viljum hvetja darisáhugafólk til að koma og horfa á spennandi og skemmtilega keppni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.