Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1993, Page 36
14
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993
Sviðsljós
Þaö er hart barist í Hollywood um kvenhlutverkin enda eru þau eitt á móti fjórum karlhlutverkum. Ungar, sætar konur eru eftirsóttastar í kvikmyndaborg-
inni um þessar mundir.
Eldri leikkonur eiga undir högg að sækja í Hollywood:
Ungar og sætar leik-
konur selja myndirnar
Þær konur sem viröast eiga vel-
gengni að fagna í Hollywood um
þessar mundir eru ungar og kyn-
þokkafullar. Eldri konumar eiga erf-
iðara uppdráttar. í kvikmyndaborg-
inni er rætt um hvaða konur munu
selja best. Bíómyndirnar eiga helst
að vera uppfullar af ást, kynlífi,
spennu og hraðri atburðarás. Konur
eins og Daryl Hannah, Julia Roberts
og Sharon Stone þykja eftirsóttar.
Myndir sem þær leika í trekkja að.
Kvikmyndafyrirtækin í Hollywood
selja myndir til Evrópu fyrir 3,7
milljarða dollara á hverju ári.
Stærstu hlutverkin ganga til eftir-
sóttustu leikaranna þrátt fyrir að
þeir setji upp hátt verð.
Hartbarist
í Hollywood er aðeins eitt kven-
hlutverk í bíómyndum á móti fjórum
fyrir karlmann. Þar er því barist
hart. Fyrir kvenstjörnurnar getíir
það verið erfitt þegar þær finna höfn-
unina einungis sökum þess að aldur-
inn færist yfir. Það er einmitt með
aldrinum sem reynslan fer að segja
til sín. Sagt er að ekki séu nógu mörg
hlutverk skrifuð fyrir eldri leikkon-
ur þó vissulega séu undantékningar
eins og Hús andanna eftir Isabel AI-
lende. Þar fara meö hlutverk leik-
konurnar Meryl Streep sem er 44ra
ára og Glenn Close sem er 46 ára. í
raun fá eldri leikkonur einungis
hlutverk þegar góð bókmenntaverk
em mynduð eins og Hús andanna og
myndin Out of Africa eftir Karen
Biixen. Einnig má nefna myndina
Steikta græna tómata. Sumar konur
halda sig þó bara við einn leikstjóra
og láta hann um að finna fyrir sig
hlutverk eins og Diane Keaton, 44ra
ára, og Woody Allen.
Fjölskyldan kallar
Leikkonurnar vilja oft hverfa frá
starfinu um tíma til að vera meira
með fjölskyldum sínum. Þá er ekki
alltaf létt að koma til baka. Að
minnsta kosti bíða stóm hlutverkin
ekki endilega. Margar leikkonur
hafa flutt til afskekktra staða til að
koma í veg fyrir að börnin þeirra
alist upp innan um glauminn og glys-
ið í Hollywood. Má þar nefna Meryl
Streep, Jessica Lange (44) og Sissy
Spacek (43). Meryl Streep er reyndar
kominn aftur til kvikmyndaborgar-
innar. En sumir verða einfaldlega
mjög þreyttir á Hollywood. Jane
Fonda, 56 ára, ætlar ekki að flytja til
baka enda er hún hamingjusamlega
gift og komin í nýtt umhverfi. En þar
sem eiginmaöurinn hefur hug á að
kaupa eitt stykki kvikmyndaver er
aldrei að vita hvað hún gerir í fram-
tíðinni.
Stjömunar mega heldur aldrei
verða svo stórar með sig að þær geti
ekki leikið hvaða hlutverk sem er.
Oftast þarf að vinna með öðrum
stjörnum. Áhorfendum fellur þó ekki
aÚtaf samsetningin. Til dæmis vom
ekki allir sáttir við að Roseanne Barr
léki með Meryl Streep í Kvendjöflin-
um. Þá hefur leikkonan Whoopi
Goldberg leikið jafnt í alvarlegum
myndum sem gamanmyndum.
Leikstýra og leika
Margar eldri leikkonur hafa tekið
að sér leikstjórn þegar þær hafa eng-
in hlutverk. Jafnvel Liv Ullman (54)
er gott dæmi um það. Sumar eru svo
klárar að þær framleiða, leikstýra
og jafnvel leika í einni og sömu
myndinni eins og Goldie Hawn (48),
Victoria Principal (48) og Barbra
Streisand (51).
Þá hafa söngkonur komist í feit
hlutverk og má þar nefna Diönu Ross
(49) sem lék í kvikmynd um Billie
Holiday og Angela Bassett sem lék í
Tinu. Cher hefur einnig fengið nokk-
ur hlutverk þó ekki hafi þau krafist
sönghæfileika eins og í Silkwood og
Moonstruck. Og Bette Midler (49)
hefur átt mörg góð hlutverk jafnt
syngjandi sem leikandi.
Framleiða ilmvatn
Elstu leikkonurnar svo sem Elisa-
beth Taylor hafa helst haldið frægð-
inni með því að setja á markað ilm-
vatn, snyrtivörur eða aðra hluti. Og
ekki má gleyma ævisögunum þar
sem þær segja frá lífsreynslusögum
sínum.
Sjónvarpið hjálpar
Hins vegar hafa nokkrar eldri leik-
konur fengið uppreisn æru með frá-
bærum hlutverkum sínum eins og
Katharine Hepburn og Jessica Tandy
á hvíta tjaldinu og Jane Wyman (79)
og Angela Lansbury (69) í sjónvarpi.
Sjónvarpsmyndaflokkar geta gert
heilmikið fyrir eldri leikkonurnar.
Ein leikkona sem var dauðhrædd um
að gleymast með aldrinum er Jean
Simmons (64) sem hefur fengið fín
hlutverk t.d. í myndaflokknum
Þyrnifuglar. Þá hefur leikkonan
Faye Dunaway (52) leikið mörg fræg
hlutverk jafnt á hvita tjaldinu sem 1
sjónvarpi. Hún hefur þó ekki sést
lengi og menn spyrja því - hvar er
Faye? Er hún orðin of gömul?
Játvaröur prins með litríkum persónum í Ghana.
Játvarður
heimsækir
Ghana
Sá aðili innan bresku konungsfjöl-
skyldunnar sem minnst virðist talað
um er Játvarður prins (Edward).
Fyrir stuttu fór prinsinn í heimsókn
til Ghana og þá fengu fjölmiðlamir
tækifæri til að mynda hann. Að öðru
leyti velta þeir lítið fyrir sér þó prins-
inn virðist ekki mikið upp á kven-
höndina. Prinsinn dvaldi í Ghana í
íjóra daga og hitti marga mæta menn
eins og Rawhngs forseta.
... að nú væri ekkert vafamál
að fjölgun yrði bráðlega hjá
furstafjölskyldunni í Mónakó.
Það er Stefanfa prinsessa sem
á von á sér aftur en hún á árs-
gamlan son fyrir. Prinsessan,
sem er 28 ára, er þegar komin
með það stóran maga að enginn
efast lengur um að hún er kona
ekki einsömul.
... að leikarinn Dean Martin,
sem er orðinn 76 ára, hefði bar-
ist við lungnakrabbamein und-
anfarið og vissi að hann ætti
ekki langt eftir. Leikarinn viður-
kennir þó að hann hafi átt gott
líf og sjái ekki eftir neinu.
... að eiginkona Mick Jaggers,
Jerry Hall, ætti nú söluhæsta
myndabandið I Englandi en það
kennir fólki jóga og hvernig eigl
að lifa heilsusamlega.
...að poppsöngkonan Cindy
Lauper, sem er fertug, hefðl
skritlð áhugamál. Hún og eigln-
maður hennar, David Thomton,
safna nefnilega dyrahömrum. Nú
þegar eru þau með þrjátiu dyra-
hamra á útidyrahurðinni. Ef
dyrabjallan klikkar er því lítið
mál fyrir gesti að iáta vita af sér.
dóttur linnli ekki. Þessi mynd
birtist af henni í Norsk Ukeblad
þar sem segir frá hinni íslensku
Björk sem breskir poppaðdá-
endur annaðhvort elska eða
hata. Þá má minnast á að Björk
er í forsiðuviðtali hjá poppblað-
Inu VOX ef einhver vill lesa um
hana.