Dagur - 19.12.1995, Síða 6

Dagur - 19.12.1995, Síða 6
6 B - DAGUR - Þriðjudagur 19. desember 1995 Grímur Gíslason, sposkur á svip. „Það þætti ofmælt ef ég segði eins og forsetinn að ég væri á góðum járnum.“ Flestir landsmenn þekkja nafn Gríms Gíslasonar á Blönduósi. Um árabil hef- ur hann gegnt starfi fréttaritara Ríkisútvarys- ins í sinni heimabyggð og allir þekkja skeleggan fréttaflutning hans. I ára- raðir var Grímur bóndi á Saurbaz í Vatnsdal, en rúmlega síðasta aldar- fjórðunginn hefur hann verið búsettur á Blöndu- ósi. Þar starfaði hann um árabil hjá Kaugfélagi Austur - Húnvetninga, löngum sem gjaldkeri. Alla tíð kveðst Grímur hafa haft áhuga á mál- efnum líðandi stundar og svo sé enn. Þó segir Grím- ur að möguleikar tvítugs manns séu allt aðrir og meiri en áttræðs til að kveða sér hljóðs og láta til sín taka. „Ég er fæddur í Þórormstungu í Vatnsdal þann 10. janúar 1912 og er því orðinn ansi gamall,“ segir Grímur, þegar hann var í fyrstu beðinn að fara í stórum dráttum yfir æviferil sinn. Hver er maður- inn? spyrja blaðamenn viðmæl- endur sína gjaman og að Grími standa traustir stofnar bændafólks. Faðir hans, Gísli Jónsson var frá Stóra-Dal í Svínavatnshreppi, miklu myndarheimili og móðir hans, Katrín Grímsdóttir, var frá Syðri- Reykjum í Biskupstungum og var komin af ætt þeirri sem kennd er við Bolholt á Rangár- völlum. „í Þórormstungu ólst ég upp til þrettán ára aldurs. Þá flutti ég yfir Vatnsdalsána með foreldrum mín- um að bænum Saurbæ. Þar bjó ég síðan allt til vorsins 1967, en þá var ég beðinn að gerast fulltrúi kaupfélagsstjóra hér á Blönduósi og brá mér til þess ráðs með að- eins þriggja daga fyrirvara. Settist þá að hér á Blönduósi, en rak búið í Saurbæ næstu tvö árin ásamt dóttur minni og tengdasyni, er að þeim tíma tóku við allri jörðinni. Höfum við, ég og eiginkona mín, Sesselja Svavarsdóttir, búið hér á Blönduósi alllengi og lengst af hér á Garðabyggð 8. Hjá kaupfélaginu starfaði ég fram til sjötugs og nokkru lengur við einstök verk- efni. Það fer vel um okkur héma í Garðabyggðinni. En frá lífshlaupi mínu hef ég reyndar sagt á öðrum vettvangi svo ég veit ekki hversu ítarlegt við eigum að hafa þetta,“ sagði Grímur. Stór ættbogi Sesselja, eiginkona Gríms, er frá Akranesi og er Borgfirðingur að uppruna. Þau eiga fjögur böm sem eru í aldursröð; Sigrún, f. 1942, bóndi í Saurbæ og hreppstjóri í Ásahreppi. Hennar maður er Guð- mundur Guðbrandsson. Nær er Katrín, f. 1945, bóndi á Steiná III í Svartárdal. Hennar maður er Sig- urjón Stefánsson. Sæunn Freydís, f. 1948, starfsmaður Sorpu hf. í Reykjavík er þriðja í aldursröð- inni. Eiginmaður hennar er Guð- mundur Karl Þorbjömsson, verk- stjóri hjá sama fyrirtæki. Yngstur er svo Gísli Jóhannes, f. 1950, bóndi á Efri-Mýrum í Engihlíðar- hreppi, en hann gegnir jafnframt starfí skrifstofustjóra hjá rækju- verksmiðjunni Særúnu hf. á Blönduósi. Eiginkona hans er Sig- urlaug Halla Jökulsdóttir frá Núpi á Laxárdal. - Bamaböm Gríms og Sesselju em þrettán og barnabamabömin eru ellefu. Viðhorftií atdursmunar í upphafi samtalsins beindist talið að Lámsi Bjömssyni, hinum þekkta bónda í Grímstungu í Vatnsdal og fleiri rismiklum sam- tíðarmönnum þar í sveit. Láms og Grímur voru góðir vinir og nánir samstarfsmenn. „Láms var 23 ámm eldri en ég og hann var í blóma lífsins á mín- um uppvaxtarárum. Mér fannst hann þá mjög fullorðinn vera orð- inn og aðrir á hans aldri nánast gamlir. Ég hef oft hugsað um þetta og reynt að setja mig í spor unga fólksins á hverjum tíma og viðhorfi þess til þeirra sem eldri eru. Trúlega er það svo að unga fólkinu á hverju tíma þykir full- orðna fólkið vera gamalt og af þessum sökum geta og hafa orðið árekstrar, eins og dæmin sanna,“ segir Grímur. Og hann bætir við: „I dag berjast margir við raun- verulega fátækt og efnalegt örygg- isleysi og hafa hvergi nóg til þess að sjá sér og sínum farborða. Um þetta hefir kannski aldrei verið tal- að meira en einmitt nú. Sannleik- um á sólarhring.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.