Dagur - 19.12.1995, Qupperneq 40
40 B - DAGUR - Þriðjudagur 19. desember 1995
Hafralaekjarskóli.
„Þetta er gmnnskóli með 100
nemendum í sjö bekkjar-
deildum. Það er samkennsla
par sem nemendurnir eru
ekki fleiri, en árgangarnir
eru tíu. Nemendurnir koma
úr hluta Ljósavatnshrep>p>s,
afTjörnesi, úr Reykjahrep>p>i
, og Aðaldal," segir Sigmar
Óiafsson, skólastjóri Hafra-
lækjarskóla. Þar stóð yfir
œfing fyrir árshátíð er Dagur
leit við og hvorki fieiri né
fœrri en allir nemendur skóí-
ans léku hlutverk í söngleikj-
unum, sem verið var að setja
á svið. „Mér hlýtur að líka
vel, nema ég sé svo latur að
ég nenni ekki að fara,"
sagði Sigmar skólastjóri,
sem starfað hefur lengi við
skólann. „Það ergott að vera
íHafralœkjarskóla en ég á
að sjálfsögðu far mínar erf-
iðu stundir; eins og annað
fólk á ílífinu annars staðar.
Það er samt miklu fleiri
stundir sem eru ánœgjulegar
og skemmtilegar."
segir Sigmar Ólafsson, skólastjóri
Hehningur nemenda
við tónlistarnám
- Er fjölmennt kennaralið við
skólann?
„Við erum með tíu stöðugildi
og hér kenna 13 manns fyrir utan
tónlistarskólann, sem er með tæp
tvö stöðugildi. Rétt um helmingur
nemenda grunnskólans er í tónlist-
arskólanum, en þar eru einnig
nokkrir fullorðnir nemendur.“
- Þið hafið sett upp nokkur stór
verkefni, söngleiki með nemend-
um?
„Já, sérstaklega eftir að Robert
og Juliet Faulkner komu að skól-
anum. Við vorum reyndar búin að
setja upp tvo dálitla söngleiki áð-
ur, með Guðmundi Norðdal."
- Er það þinn áhugi sem þama
ræður því að ráðist er í svo viða-
miklar sýningar?
„Eg vona að það sé að
einhverju leyti, þó það sé fyrst og
fremst Robert sem er kraftaverka-
kallinn héma. Óbilandi áhugi hans
og dugnaður gerir þetta kleift.
Hann er einnig duglegur við að
finna viðfangsefni sem henta okk-
ur hverju sinni.
Við frumflytjum tvo söngleiki
á árshátíðinni og það er ekki í
fyrsta skipti sem við frumflytjum
slík verk á Islandi. Við vomm
Yngstu borntn ■ hlutverkum sinum sem dýrin i aldingarðinum Eden.
Sigmar Ólafsson, skólastjóri.
fyrst til að setja upp Jósep 1987.
Einnig hafa söngleikir verið sér-
samdir fyrir okkur af eldri nem-
endum skólans. Flest ár erum við
eitthvað að brasa, en í fyrra féll
slíkt niður af ýmsum ástæðum,
t.d. veðurfari og kennaraverk-
falli.“
- Hvað finnst þér það gefa
krökkunum að vinna að þessu?
„Mér finnst það gefa krökkun-
um gríðarlega mikið. Ég held
reyndar að tónlist yfir höfuð sé
mjög þroskandi sem viðfangsefni.
Tónlistin væri heldur ekki svo
ríkjandi þáttur í skólastarfinu sem
raun ber vitni ef ég liefði ekki
slíka trú á henni. Ég er ekki að
segja að ekki væri hægt að gera
góða hluti án tónlistar, en hún set-
ur sterkan svip á uppsetningamar
og gefur okkur gott tækifæri til að
leyfa öllum að vera með og taka
þátt í uppsetningu á söngleikjum.
Það er mikilvægt að mínu mati.“
Börn gamaíía nemenda
- Hvert fara nemendur Hafralækj-
arskóla til framhaldsnáms og
starfa?
„Þau fara flest eða öll í fram-
haldsnám. Þau skiptast mest milli
þriggja staða: Laugaskóla, Fram-
haldsskólans á Húsavík og skól-
anna á Akureyri, MA og VMA.
Þau sem hafa verið duglegust við
tónlistarnámið fara flest til Akur-
eyrar til að geta haldið áfram
framhaldsnámi í tónlist og hafa
staðið sig mjög vel þar. Að mínu
viti hafa þau komið vel undirbúin
héðan.
Sérhæfing hefur orðið í Lauga-
skóla og Éramhaldsskólanum á
Húsavík, og það verður til þess að
krakkamir dreifast meira milli
skóla. Flestir nemendur héðan
standa sig ágætlega í framhalds-
skólunum og þó nokkuð margir
eru komnir upp í háskóla.
Því miður koma of fáir þeirra
aflur á heimaslóð, hvort það er
vegna þess að við menntum þau í
burtu eða vegna þess að tækifærin
em meiri og betri annars staðar.
Það er þróunin víðar en hér, að
við í sveitunum eigum undir högg
að sækja.
Samt er Hafralækjarskóli farinn
að taka við stórum liópi af annarri
kynslóð, það er að segja bömum
gamalla nemenda. Hér eru þó
nokkur böm sem eiga foreldra
sem voru hér í skóla í minni tíð,
og það finnst mér afskaplega gam-
an. Mér finnst einna skemmtileg-.
ast þegar gamlir nemendur heim-
sækja okkur, og ekki síst eftir að
þeir eru orðnir foreldrar.
Gamlir nemendur koma nefni-
lega oft í heimsókn, og við ýmis-
konar tækifæri. Það er gaman að
sjá þá sem flesta." IM