Dagur - 19.12.1995, Síða 42
42 B - DAGUR - Þriðjudagur 19. desember 1995
- mtt viÓJóhann Ólafsson, hónda og organista
á Ytra-Hvarft í Svarfaóardal
Þessa dagana vinnurJóhann Ólafsson bóndi á Ytra-
Hvarfi í Svarfaðardal að up>p>setningu myndarlegs
kirkjuorgels heima í stofu hjá sér. Það er kjörgripur
mikill og góðup sem hefur um taeplega hálfrar aldar
skeið verið í kirkjunni á Eyrarbakka, en er nú kominn
norður. Jóhanni miðar vel við að setja hljóðfœrið up>p> og
má vænta að á Ytra-Hvarfi verði Heims um ból sungið
á aðfangadagskvöld við öllu hljómmeira undirspil en á
flestum öðrum heimilum landsins.
Sendum öllutn
vióskiptavinum okkar
bestu óskir utn
gleðilegyjáiy
og gœfuríkt komandi át:
Pökkum viöskiptin á árinu sem er að líða.
Hjólbarðaþjónustan
Undirhlíð 2 ■ Akureyri ■ Sími 462 2840
Sendum öllum Polariseigettdum
heótw jálar Qg
. ngárskmðjur
Pökkuiti viðskiptiti
Polarisumboðið á íslandi
Hjólbarðaþjónustan
Undirhlíð 2 ■ Akureyri ■ Sími 462 2840
„Ég fór suður á Eyrarbakka í byrj-
un nóvember til að taka orgelið
niður. Að taka gripinn og fjar-
lægja hann var í raun og veru það
eina sem ég greiddi fyrir orgelið.
Naut ég við það verk aðstoðar
Ketils Sigurjónssonar, orgelsmiðs
í Forsæti í Flóa, og þetta var dags-
verk okkar tveggja. Ketill hefur
smíðað mörg orgel í kirkjur lands-
ins, síðast það sem er í Víðidals-
kirkju í Húnavatnssýslu. Við Ket-
ill settum hljóðfærið í gám, sem
var fluttur norður sjóleiðina til
Dalvíkur,“ sagði Jóhann, þegar
blaðamaður Dags ræddi við hann
nýlega.
Músíkherbergi húsbóndans
„Gámurinn kom hingað norður
fyrir um tveimur vikum og ég hef
unnið við það síðustu vikurnar að
í garðinum heima. Jóhann og Unn-
ur María hafa talsvert fengist við
skógrækt og skógurinn heim við
bæ, sem í bakgrunni er, er orðinn
stæðilegur eins og sjá má.
Myndir: Sigurður Bogi
setja hljóðfærið upp. Hef ég verið
einn í því verki. Það er talsvert
flókið verkefni, því orgelið féll
ekki inn í lofthæðina hér í her-
berginu. Ég hef því orðið að taka
ofan af hljóðfærinu. Síðan eru
ýmsar tilfæringar í kringum þetta.
En þetta er að smella saman og
eftir fáeina daga verður hljóðfærið
raftengt. Herbergið hér inn af stof-
unni, þar sem orgelið verður, ætla
ég að kalla „músíkherbergi hús-
bóndans". Þar verður þó ýmislegt
fleira, eins og til dæmis tölvan
mín. Fram til þessa hef ég fengið
að æfa mig á orgelinu í Dalvíkur-
kirkju. Þeir tímar sem ég hef feng-
ið þar, það er þegar önnur starf-
semi er ekki í kirkjunni, hafa hins
vegar ekki alltaf hentað mér. Því
er afar gott og kærkomið að fá
hljóðfæri hingað heim,“ sagði Jó-
hann.
Orgelið góða er upphaflega
smíðað í London og var sett upp í
kirkjunni á Eyarbakka árið 1947.
Það er 13 radda og pípurnar um
150; í þremur röðum. Alla jafna
ættu pípur að vera fleiri þegar
raddafjöldinn er nefnd tala. En
pípunar í þessu hljóðfæri eru
„Ég byrjaði sem organisti árið 1991,
sama ár og ég byrjaði í orgelnámi
hjá Birni Steinari Sólbergssyni á
Akureyri. Kannski er það upphafið
að þessu öllu, að mann hefur vantað
hljóðfæri til að æfa sig á,“ segir Jó-
hann hér í viðtalinu
margnota fyrir hverja rödd - og
því þarf þær ekki fleiri. Jóhann
segir að um margt sé þetta orgel
ekki í takt við kröfur líðandi
stundar, enda séu Eyrbekkingar nú
að skipta því út fyrir annað sem er
spánnýtt og er smíðað af Björg-
vini Tómassyni, orgelsmið á
Blikastöðum í Mosfellsbæ. „Þó að
þetta orgel sem ég fæ hingað sé
gamalt og úrelt á margan hátt er
ástand þess þó mjög gott. Það
mun engu að síður orðið erfitt að
fá varahluti í það, ef eitthvað bilar
á annað borð. Því getur maður
þurft að bjarga sér fyrir horn með
hlutina eða þurft að láta sérsmíða
hluti,“ segir Jóhann.
Við syngjum fleira
en sálma
Jóhann hefur síðustu árin verið
organisti í Valla- og Urðakirkjum
í Svarfaðadal. Því starfi tók hann
við af föður sínum, Olafi
Tryggvasyni, sem gegndi því í um
hálfa öld. „Ég byrjaði sem organ-
isti árið 1991, sama ár og ég byrj-
aði í orgelnámi hjá Bimi Steinari
Sólbergssyni á Akureyri. Kannski
er það upphafið að þessu öllu, að
mann hefur vantað hljóðfæri til að
æfa sig á. Jafnframt þessu stjóma
ég Kirkjukór Svarfdæla, sem
syngur í öllum kirkjunum þremur
hér í dalnum; það er á Völlum,
Urðum og Tjöm, en við síðast-
nefndu kirkjuna er Hlín Torfadótt-
ir organisti. Jú, það er talsverður
áhugi á kórsöng hér í dalnum,
enda þótt hann komi í bylgum. í
dag syngja fimmtán manns í
kirkjukómum. Það sem mér finnst
þó nokkuð fæla frá er að þetta sé
kallaður kirkjukór. Margir halda
að slfkir kórar syngi aðeins sálma,
en því fer víðsfjarri. Oft eru létt
lög á okkar efnisskrá. Því mætti
kórinn hugsanlega heita mismun-
andi nöfnum eftir atvikum; til
dæmis Samkór Svafdæla þegar
sungið er á öðrum vettvangi en í
kirkjunni. Það myndi ef til vill
efla söngstarf hér í dalnurn," segir
Jóhann.
Jafnframt þessu stjómar hann
svo Karlakór Dalvíkur, en hann
hóf starf sitt nú í haust eftir um
áratugs hlé. I kómum eru um
fjömtíu söngmenn. Kórinn hélt
sína fyrstu tónleika sl. föstudags-
kvöld, en þá var sungið í Dalvík-
urkirkju.
Birkivtn á porrablótum
En þótt listin sé ljúf og orgelspil
og tónlist mikið áhugamál Jó-
hanns bónda Olafssonar á Ytra-
Hvarfi hefur hann þó sitt lifibrauð
af kúabúskap. Hann og Unnur
María Hjálmarsdóttir, eiginkona
hans, búa með 30 kýr og hafa um
70 gripi í fjósi. Framleiðsluréttur
til mjólkurkvóta er um 100 þús-
und lítrar á ári hverju.
„Nei, við emm ekki með neinn
annan búpening, fyrir utan hund-
inn okkar - hann Bensa. Hitt er
svo annað að síðastliðin tólf ár
höfum við verið að fást við skóg-
rækt. I hlíðinni hér inn af bænum
og ofan við höfum við verið að
fást við að gróðursetja tré og
þama er að spretta upp myndar-
legur skógur. Og hvarvetna þar
sem land hefur verið friðað hér
um slóðir em birkisprotar að
skjóta sér upp. Við höfum gróður-
sett stafafuru, sitkagreni, ösp,
hvítgreni, þyn, lerki og birki. Hef
ég látið mér detta í hug að ná safa
úr birkinu - og bjóða uppá birki-
vín hér á þorrablótum. Við þeirri
hugdettu minni hafa menn ekkert
sagt, en brósa þó vingjamlega.
Það finnast mér góðar undirtektir í
fyrstu lotu,“ segir Jóhann. -sbs.
m
-Brrf
• •
&
t>v
Okkar bestu óskir um
gleðilegyjál
ogfarscelt komandi ár.
Pökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
Verslunarmiðstöðin
Sunnuhlíð
rtf