Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1994, Page 11
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1994
11
Valgerður Hildibrandsdóttir forstöðumaður hefur ásamt starfsfólki sínu skil-
að miklum árangri í sparnaði í eldhúsi Ríkisspítalanna.
fólks eftir breytinguna. „Viö vorum
áður meö allt of stóra skammta af
kjöti og fiski og þar af leiðandi of
dýran mat. Nú förum við eftir mann-
eldisráðgjöf og höfum aukið kolvetn-
isskammta, svo sem kartöflur, græn-
meti og brauð. Við gerum því rétt
samansetta máltíð fyrir minni pen-
inga,“ segir Valgerður ennfremur.
Kvöldmatur undirbúinn en flestir fá
kaldan mat á kvöldin. Aldraðir og
börn fá hins vegar tvær heitar mál-
tíðir á dag.
Valgerður segir að þaö átak sem
gert var í eldhúsinu hafi skilað mikl-
um árangri og hún er þess fullviss
að víöar væri hægt að ná sambæri-
legri rekstarhagræðingu og þar með
sparnaði. „Það er mjög skemmtilegt
þegar maður flnnur árangur af því
sem við höfum verið að gera. Það er
mikið vinnuálag á starfsfólkinu
hérna en allir taka höndum saman
um að láta þetta ganga upp,“ segir
Valgerður Hildibrandsdóttir.
Góðurstarfsandi
í eldhúsinu er, að sögn þeirra
Valgerðar, Guðnýjar Jónsdóttur og
Olgu Gunnarsdóttur matarfræðinga,
mjög góður starfsandi og mikið lagt
upp úr sem bestum vinnuanda. Á
fimmtudaginn, þegar helgarblaðið
kom í heimsókn, voru soðnar kjöt-
bollur í matinn með jafningi, blönd-
uðu grænmeti, kartöflum og hrásal-
ati fyrir allflesta. Á meðgöngudeild
fæðingardeildarinnar er kominn
nokkurs konar vísir aö matseðli fyrir
þær konur sem þurfa að dvelja lengi
á spítalanum en þær geta nú valið
um tvo rétti. Einnig er sú nýjung á
kvennadeild Landspítalans að þar er
nú boðið upp á morgun- og kvöld-
hlaðborð þannig að enn er verið að
þróa eldhúsið.
Tökum upp nýjar
vörur í dag
Opið alla helgina
Grensásvegi 3 • Sími 88 4011
Hversu stór verður "ann?
Tvöfaldur fyrsti vinningur á laugardag!