Þjóðviljinn - 24.12.1975, Blaðsíða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN — Jólablað 1975
veriö nýlunda, en varB varanleg,
Fjörðurinn er af náttúrunnar
hendi einhver besta höfn lands-
ins. Þar gekk mikill grandi norð-
austur úr Hvaleyrinni, Hvaleyr-
argrandi, og endaði á Klappar-
holti, Háa granda eða Granda-
höfði, nokkuð frá landi. Þar reis
fyrsti verslunarstaðurinn i firðin-
um, Fornubúðir, en skipalægi var
þar bæði traust og gott. Þar stóð
kirkja i eina tið og grafreitur, en
minjum um mannvirki og forna
ibúa á Háa granda var rutt burt
með grafvélum við hafnargerð á
tuttugustu öld.
Snemma á fimmtándu öld eða
árið 1419 tóku höfðingjar að setj-
ast að samningum og gefa út yfir-
lýsingar i Hafnarfirði, en siðasta
varðveitta skjaliö staðsett i Hval-
firði er frá sumrinu 1405. A árun-
um 1412—19 urðu alger umskipti á
siglingum hingað til lands.
— Aðrir helstu verslunarstaöir
við Faxaflóa og Breiöafjörð um
þetta leyti?
— Þerneyjarsund er fyrst nefnt
sem verslunarhöfn 1391, eða
sama ár og Hafnarfjörður. Þar
getur rústa fornra skreiðar-
byrgja, og einnig á að sjá þar
marka fyrir búöatóftum. Þerney
skýlir höfninni, svo að þar er gott
skipalægi. Úr Viðey hefur verið
skammt að sækja verslun á Þern-
eyjarsund.
Umskipti á högum
eignastéttarinnar
— Verslunarhöfnum hefur
fjölgað mjög hér á landi á fjórt-
ándu öld?
— A fjórtándu öldinni fer kaup-
sigling til landsins vaxandi. Þá
urðu til nýir verslunarstaðir, sem
siðan hafa haldist: Hafnarfjörð-
ur, Grunnasundsnes (Stykkis-
hólmur), Skutilsfjörður (Isa-
fjörður), Siglufjörður og Grinda-
vik, en Þerneyjarsund og Hval-
fjörður eða Búðasandur á Háls-
nesi lögðust af og Gásar fluttust
um set, en Straumfjörður og
Tálknafjörður virðast ekki hafa
náö þvi á miðöldum að verða var-
anlegar verslunarhafnir.
— Af hverju stöfuðu þessar
auknu kaupsiglingar til landsins?
— A fjórtándu öld urðu hér all-
mikil umskipti á högum eigna-
stéttarinnar i landinu. Þá varð
sjávarafli mörgum jarðeigendun-
um auðsuppspretta, en landbún-
aður fjárfesting, og hefur svo
haldist fram á þennan dag. fs-
lendingar hafa sótt gull i greipar
ægis, en skrimt af landbúnaði.
dþ.
Gleðileg jól
F arsælt
komandi ár
þökkum viðskiptin á liðna árinu
Efnagerðin Yalur
Kársnesbraut 124 Kópavogi
Sendum öllum viðskiptavinum og
velunnurum
beztu jólakveðjur
með ósk um farsælt nýtt ár
Þökkum viðskiptin á liðnum árum.
KAUPFÉLAG
STÖÐFIRÐINGA
Stöðvarfirði og
Breiðdalsvik
íslenzkar og erlendar
jólagjafabækur
í mjög fjölbreyttu úrvali
Bókaverzlun
Snæbjarnar
Hafnarstræti 4.
Bókaverzlun
Snæbjarnar
Hafnarstræti 9.