Þjóðviljinn - 24.12.1975, Blaðsíða 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN — Jólablað 1975.
FIMM TÆKIFÆRISLJÓÐ
EFTIR
SIGURÐ A. MAGNÚSSON
LÍFTAUGAR
Forði mér hollvættir
frá skáldlegu orðfæri
þessu glamrandi dinglumdangli
á lifandi máli
Ég vil siður vera hefðarfrú á pressuballi
að sýna nýjasta kjól sinn
og perlur frá Majorka
— i senn falskar og tollsviknar —
það er nóg af slikum fraukum
i skáldskap
Ég vil vera hversdagsklæddur
og helst bindislaus einsog Ási i Bæ
— sem er réttilega veikur fyrir
ljóðrænni dul Stefáns Harðar —
láta orðin koma eðlileg og óþvinguð
til móts við þig
og helst segja þér eitthvað
sem skiptir máli
þó það sé hrjúft og kannski tvirátt
Ljóð
eru liftaugar milli okkar
Liftaugar
eru snarþættir
ekki perlubönd
12 VÍSUR UM 144 ÍSLENSK MANNANÖFN
sbr. lög nr. 54 frá 27. júni 1925
„Hver maður skal heita einu islensku
nafni eða tveim og kenna sig til föður,
móður eða kjörföður og jafnan rita nafn
og kenningarnafn með sama hætti alla
ævi. — Ættarnafn má enginn taka sér hér
eftir. — Ekki mega menn bera önnur nöfn
en þau, sem rétt eru að lögum islenskrar
tungu. Prestar skulu hafa eftirlit með, að
þessum ákvæðum sé fylgt. Risi
ágreiningur um nafn, sker heimspeki-
deild háskólans úr.”
(1., 2. og 4. grein)
Möller Tulinius Thors
Thoroddsen Jensen & Schram
Gröndal Johannessen Juul
Johnsen Zimsen & Briem
Waage Mathiesen Maack
Michelsen Nielsen & Klein
Hansen Blumenstein Beck
Biering Wendel & Sen
Scheving Blomsterberg Brown
Bertelsen Lorange & Pitt
Whitehead Thorsteinsson Thejll
Thorberg Clausen & Smith
Claessen Thorlacius Torp
Timmerman Figved & Busk
Mawby Flygenring Fuchs
Finsen Malmquist & Schiöth
Wathne Christiansen Kjeld
Cassata Fjeldsted & Bang
Fenger Petersen Piihl
Proppé Wiium & Long
Taylor Weisshappel Wright
Walderhaug Bendtsen & Lentz
Klingbeil Stephensen Storr
Stiklund Thomsen & Gránz
Cortes Hjaltested Hall
Hjaltalin Bridde & Toft
Zoéga Ammendrup Als
östlund Bachmann & Hobbs
Kaaber Jörgensen Jack
Jeppesen Krúger & Bruun
Richter Kjærnested Kragh
Kjerulf Bernhöft & Dan
Schopka Hertervig Hirst
Hatlemark Ormslev & Bisp
Tynes Nordgulen Nehm
Norland Randrup & Pind
Sandholt Lilliendahl Lund
Lauritsen Malmberg & Kemp
Madsen Kornerup Kratsch
Kröyer Havsteen & Ward
Linnet Bögeskov Burr
Bieltvedt Imsland & Dahl
Carlsen Didriksen Dam
Dalhoff Bender & Kress
Morthens Huseby Hjelm
Hákansen Faaberg & Grund
Schröder Herlufsen Hohn
Haarde Goldstein & Strahd