Þjóðviljinn - 24.12.1975, Síða 37
Jólablað 1975 — ÞJÓÐVILAINN — SÍÐA 37
RÆTT VIÐ HERDÍSI MAGNÚSDÓTTUR
UM STARFSEMI
HEKLUKLÚBBSINS
Síðan 1875 hefur verið litil en
blómleg vestur-islensk nýlenda i
Minnesota, og i „tviburaborgun-
um” Minneapolis og Saint Paul er
nú starfandi vestur-islenskt kven-
félag, sem nefnist Hekluklúbbur-
inn. Formaður hans er Herdis
Magnúsdóttir, sem er reyndar al-
islensk og frá Hafnarfirði, en hef-
ur veriðbúsett i Minneapolis i sex
og hálft ár, og náði blaðamaður
bjóðviljans tali af henni, þegar
Karlakór Reykjavikur hélt söng-
skemmtun i Menneapolis þ. 10.
október.
Hvað eru margir vestur-islend-
ingar i Minnesota?
„Sagt er aö hér séu tæplega
þúsund manns af islensku bergi
brotnir, og er Minnesota aðalborg
vestur-islendinga i fylkingu. I
„tviburaborgunum” eru um 200
vestur-islendingar, en auk þess
eru hér um 12—15 islendingar að
heiman.”
Hvemig er starfsemi Heklu-
klúbbsins háttað?
„í Hekluklúbbnum eru um
fimmtiu konur, sem hittast einu
sinni i mánuði. A vorin höldum
við svo samkomu fyrir eiginmenn
og alla þá sem ekki eru i klúbbn-
um. Við reynum mikið að kynna
landið og halda uppi þvi sem is-
lenskt er. Einnig reynum við að fá
ýmislegt að heiman, t.d. kera-
mik. Við tökum þátt i „Festival af
Nations” en það er hátið allra
þeirra þjóðabrota, sem hér búa,
og er haldið á vorin þriðja hvert
ár. Næsta hátiðin verður i vor.
Þær þjóðirsem taka þátt i þessari
hátið sýna t.d. búninga og þjóð-
dansa og háfa á boðstólum ýmsan
mat, sem er einkennandi fyrir
þær. Konurnar i Hekluklúbbnum
hafa bakað vinartertur, kleinur
og rjómapönnukökur”.
Hve margar þessara kvenna
kunna islensku?
„Um fimmtán tala ágæta is-
lensku, en ýmsar aðrar skilja
málið þótt þær tali litið. Vest-
ur-islendingum hér þykir mjög
gaman að tala islensku þótt kunn-
áttan sé ekki alltaf mjög mikil.
Fyrir þremur árum skipulögðum
við kvöldnámskeið i islensku, og
sá Ingvar Guðmundsson frá
Keflavik um kennsluna. Hann var
þó ekki nema eittárhér, og þá tók
annar kennari við, en þegar hann
hætti lagðist námskeiðið niður.
Það var mikill skaði, þvi að mikill
áhugi var á þessari kennslu og
munu um 20 menn hafa tekið þátt
inámskeiðinu. Mikill vilji er á þvi
að hefja þessa starfsemi aftur”.
VESTUR-ÍSLENSK MENNING
Framhald af bls.35.
lendinga. Hún sagði blaðamanni
Þjóðviljans að vestur-islendingar
hefðu mjög rika tilfinningu fyrir
Islandi, en hún brytist þó sérstak-
lega út, þegar einhverjir sérstak-
ir atburðir gerðust heima, t.d
gosið i Vestmannaeyjum eða
landhelgismálið. Söfnuðust menn
þá saman og ræddu þessi mál.
En athyglisverðasta merkið um
áhuga manna á islenskri menn-
ingu er þó tvimælalaust islensku-
kennslan, sem nú er að hefjast i
barna- og unglingaskólum á Nýja
Islandi. Það hefur lengi verið
stefna Kanadastjórnar að hlúa að
menningu smáþjóða i landinu og
hyggjast þeir efla þannig frum-
lega kanadiska menningu gagn-
vart hinni bandarisku. Stærsti
þáttur þessarar stefnu er vitan-
lega viðleitnin til að efla franska
menningu og gera Kanada að tvi-
tyngdu landi, þar sem bæði mál-
in, enska og franska, eru jafn
rétthá. Eri'þessi viðleitni er feyki-
lega óvinsæl i þeim hlutum Kan-
ada, þar sem enska er rikjandi,
og hafa sprottið af þessu miklar
umræður og deilur. Svo virðist
sem togstreita ensku- og frönsku-
mælandi manna hafi einmitt
komið af stað vakningu meðal
annarra þjóða og aukið áhuga
þeirra á eigin menningararfi.
Gunnar Sæmundsson.
Blaðamaður Þjóðviljans heyrði
ungt fólk á Nýja Islandi — sem
kunni kannske ekki orð i islensku
— gjarnan segja að nær væri að
kenna islensku i skólum þarna
heldur en þessa helv. frönsku,
sem enginn vildi læra! Einfaldar
tilraunir leiddu það i ljós að
frönskukennslan var litt arðsöm á
þessum slóðum: unglingar sem
lært höfðu frönsku árum saman
skildu ekki einföldustu setningar i
málinu.
Þetta er sjálfsagt skýringin á
þvi að islenskukennsla á barna-
skólastigi hófst ekki með opin-
berri tilskipun heldur fyrir til-
stuðlan áhugamanna. Um 1970
byrjaði t.d. Guðrún Gislason að
kenna barnaskólakrökkum i Ar-
borg á heimili sinu, en aösóknin
varð fljótlega svo mikil að hún
fékk ekki við neitt ráðið, og varð
að fá afnot af barnaskólahúsinu
þar. I nokkurn tima var islenskan
svo kennd i þvi húsnæði eftir
skólatima, en Guðrún varð fljót-
lega að fá aðstoð fleiri sjálfboða-
liða. Sláandi árangur varö þegar
fyrsta árið, og var þá haldin árs-
hátið á islensku. 1 fyrra var is-
lenskan loks felld inn i kennsluna
sem fastur liður.
Þessi hreyfing breiddist út um
allt Nýja tsland, en það er ein
skólaheild sem ber heitið Ever-
green, og hefst á þessu skólaári
skipulögð kennsla i islensku i
Gimli, Arborg og Riverton amk.
Guðbjartur Gunnarsson hefur nú
tekið saman kennslubók, sem var
gefin út i haust. Talið er að i vetur
muni 250-300 börn og unglingar
stunda nám i islensku, og eru það
flest börn á barnaskólaaldri, en i
Árborg, þar sem kennslan er
lengst komin, eru einnig fram-
haldsnemendur.
Haraldur Bessason taldi aö
þessi kennsla myndi varla endur-
reisa islensku sem heimilismál
þar sem hún væri horfin, en hins
vegar væri það tryggt, að ef hópi
70 unglinga væri kennd islenska,
héldu alltaf einir tveir úr þeim
hópi áfram og næðu góðum tökum
á málinu. Þessir unglingar vita
vel að islenskan er lifandi mál, og
þá dreymir um að komast i nán-
ara samband við tsland. A þjóð-
hátiðarárinu 1974 fóru þegar
nokkrir unglingar i hópferð hing-
að, og eru allar horfur á þvi að
slikar ferðir haldi áfram. Harald-
ur Bessason nefndi ýmis vanda-
mál i sambandi við kennsluna:
nokkuð skortir á menntun þeirra
áhugamanna, sem hafa hana með
höndum, og væri æskilegt að geta
fengið kennara frá tslandi (þeir
yrðu þá vitaskuld að geta kennt
fleiri greinar). Einnig þyrfti að
tengja þessa kennslu við kennslu i
sögu og bókmenntum Nýja ts-
lands.
Gætu islensk yfirvöld margt ó-
þarflegra gert en styrkja is-
lenskukennslu og islenska út-
varpsþætti i Manitoba.
— p.m.j.
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu
Efnagerðin Yalur
Stéttarsamband
bænda
óskar meðlimum sinum, svo og
landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
OG FARSÆLDAR Á KOMANDI ARI
KASSAGERÐ
REYKJAVlKUR
sendir landsmönnum öllum bestu óskir
um
gleðileg jól
og farsælt komandi ár
þakkar starfsfólki og viðskiptavinum gott
samstarf og viðskipti á liðnum árum.
Við óskum viðskiptavinum okkar
gleðilegra jóla
og farsœls árs
G. Ólafsson hf.
Suðurlandsbraut 30
Óskum starfsmönnum o
og viðskiptavinum
g leðilegra
jóla
og farsæls komandi árs
Sælgætisgerðin FREYJA hf.
A-
Kaupfélag
V-Húnvetninga
llvammstanga
óskar öllum viðskiptamönnum sinum
gleðilegra jóla og allrar farsældar á
komandi ári og þakkar ánægjuleg við-
skipti á árinu sem nú er að liða.
Sendum starfsfólki okkar
á sjó og landi bestu
jóla og nýársóskir
og þökkum samstarfið
á líðandi ári.
Isafirði.