Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 13"V
Deilurnar innan bæjarstjórnar Húsavíkur:
Líklegast að Húsvíkingar fái
nýjan meirihluta i jólagjöf
DV, Akureyri:___________________
Meirihlutinn í bæjarstjórn Húsa-
víkur, sem riðar nú til faUs eftir af-
dráttarlausa samþykkt bæjarstjórn-
ar á sameiningu útgeröarfyrirtækis-
ins Höföa hf. og Fiskiðjusamlags
Húsavíkur hf., hefur ekki alltaf
staðið traustum fótum. Menn ráku
strax upp stór augu þegar þeir sáu
málefnasamning Framsóknarflokks
og Alþýðubandalags um meirihluta-
myndunina eftir kosningarnar á
síðasta ári og höfðu uppi efasemdir
um að Alþýðubandalagið myndi
skilyrðislaust eða án tilraunar til
undanbragða standa að sameiningu
útgerðar og fiskvinnslu í eigu bæj-
arins.
í málefnasamningnum, undir
liðnum „Vinnuáætlun um endur-
skipulagningu og fjármál og stjórn-
un á Fiskiðjusamlagi Húsavíkur, ís-
hafi og Höfða“ sagöi meðal annars:
„...Að útgerðarfyrirtækin íshaf hf.
og Höfði hf. verði sameinuð frá og
með 1. september 1995...“ - „...Höfði
og íshaf hf. verði sameinað Fiskiðju-
samlagi Húsavíkur hf. frá og með 1.
september 1996“.
Eina ágreiningsmálið
Þegar DV skýrði frá meirihluta-
viðræðum Framsóknarflokks og Al-
þýðubandalags 4. júní á síðasta ári
sagði að sameining sjávarútvegsfyr-
irtækjanna þriggja væri eina málið
sem gæti stöðvað myndun þess
meirihluta sem nú stendur á brauð-
fótum. Þar sagði einnig að Kristján
Ásgeirsson væri talinn andvígur
sameiningu en þó yrði gert sam-
komulag um það mál.
Sameining Höfða hf. og íshafs hf.
gekk eftir 1. september sl. og útgerð-
arfyrirtækin eru sameinuö undir
nafni Höfða. Það hefur hins vegar
komið á daginn sem margir óttuð-
ust að sameining Höfða og Fiskiðju-
samlagsins yrði meirihlutanum að
falli. En vissulega bar málið að á
nokkuð furðulegan hátt. Eftir mikl-
ar yfirlegur náðu meirihlutaflokk-
Stefán Haraldsson, Framsóknar-
flokki.
Meirihluti framsóknarmanna og alþýðubandalagsmanna innan bæjarstjórnar Húsavíkur er nú við það að springa
vegna deilna um sameiningu fiskvinnslu og útgerðarfyrirtækja á staðnum. Líklegt er talið að sjálfstæðismenn og
framsóknarmennn myndi nýjan meirihluta, jafnvel fyrir jól.
arnir samkomulagi sem leggja átti
fyrir bæjarstjóm. Framsóknarmenn
voru hins vegar allt annað en
ánægðir með það samkomulag og
mun Stefán Haraldsson, oddviti
framsóknarmanna, hafa kallað það
„bastarð". Það sem fór fyrir brjóstið
á framsóknarmönnum voru ýmsir
Sigurjón Benediktsson, Sjálfstæðis-
flokki.
FRÉTTAUÓS
fyrirvarar sem þeim fannst Alþýðu-
bandalagið hafa á málinu og settir
voru inn í tillöguna til bæjarstjórn-
ar. Þar var m.a. rætt um að kanna
veðhæfni fyrirtækjanna, „tapþol"
þeirra og arðsemi fyrir og eftir sam-
einingu.
Andstaðan í verki
Vitað er að á meirihlutafundinum
var einnig tekist á um orðalag. í til-
lögunni, eins og átti að leggja hana
fyrir bæjarstjórn, sagði t.d. að aðal-
fundir fyrirtækjanna myndu fá
„heimild" til aö samþykkja samein-
inguna. Framsóknarmenn reyndu
allt hvað þeir gátu til að fá oröalag-
inu breytt þannig að aðalfundunum
yrði „falið" að samþykkja samein-
ingu. Kristján Ásgeirsson, oddviti
Alþýðubandalagsins, var fastur fyr-
ir og neitaði þessu harðlega. Segja
framsóknarmenn að þar hafi hann i
raun og veru sýnt í verki andstöðu
sína við sameininguna.
Framsóknarmenn fóru með það
eins og mannsmorð að þeir hygðust
leggja fram aðra tillögu þegar á bæj-
arstjórnarfundinn kæmi enda kom
hún eins og reiðarslag yfir fulltrúa
Alþýðubandalagsins. Alþýðubanda-
lagskonan Valgerður Gunnarsdótt-
ir, sem er forseti bæjarstjórnarinn-
ar, viðhafði t.d. þau ummæli efnis-
lega á fundinum að hún hefði lagt
heiður sinn að veði með því að til-
laga meirihlutaflokkanna beggja
yrði lögð fram til samþykktar en
ekki einhver önnur tillaga.
Sjálfstæðismenn tilbúnir
Það er því ekki ofmælt að tala um
trúnaðarbrest milli meirihluta-
flokkanna og sjálfstæðismenn eru í
startholunum og meira en tilbúnir
að starfa í nýjum meirihluta í bæj-
arstjórn með Framsóknarflokknum
enda stóðu þeir að samþykktinni í
bæjarstjórn sem setti allt á annan
endann.
„Það eru ekki öll kurl komin til
grafar í þessu máli og þetta er bara
byrjunin. Það á eftir að kjósa full-
trúa bæjarins í stjórn nýja fyrirtæk-
isins og ég held að þar geti steytt á,
gangi ósættið svo langt,“ segir Sig-
urjón Benediktsson, oddviti sjálf-
stæðismanna.
„Að sjálfsögðu erum við tilbúnir í
nýjan meirihluta um málefni en
slíkt er ekki komið upp á borðið
enn þá. Annars er Kristján Ásgeirs-
son ótrúlegur í pólitík og hefur far-
ið langt á því. Hann getur alveg
kyngt þessu eftir einhvern tíma, sjái
hann sér hag í því,“ segir Sigurjón.
Nýr meirihiuti í jólagjöf?
Sigurjón nefnir einmitt það atriði
sem flestir telja að brjóta muni á
endanlega. Menn eru almennt þeirr-
ar skoðunar að meirihlutaflokkarn-
ir „hangi saman" fram að bæjar-
stjórnarfundi 18. desember en þá á
bæjarstjórn að tilnefna tvo menn í
stjórn nýja fyrirtækisins. Eftir sam-
runa fyrirtækjanna þriggja og
hlutafjáraukningu á Húsavíkurbær
aðeins 40 í Fiskiðjusamlaginu og
42% í Höfða og fær því aðeins 2
stjórnarmenn af fimm. Samkomulag
er um að meirihlutinn í bæjarstjórn
fái annan stjórnarmanninn en
minnihlutinn hinn. Þarna telja
menn fullvíst að ósamlyndið brjótist
upp á yfirborðið og meirihlutinn
falli endanlega. „Trúir einhver þvi,
eftir það sem á undan er gengið, að
þá verði samkomulag milli Fram-
sóknarflokksins og Alþýðubanda-
lags um stjórnarkjörið? Ekki ég, og
við fáum sennilega nýjan meiri-
hluta í jólagjöf," sagði viðmælandi
DV og talar sennflega fyrir munn
fjölmargra. -gk
Gróðurhús splundraðist
DV, Rjótum:___________________________
Mikiö hvassviðri hefur verið í
Fljótum þessa vikuna og talsverðar
skemmdir enda er suðvestanáttin
oft viðsjárverð á þessum slóðum.
Meðal annars splundraðist lítið
gróðurhús svo gjörsamlega að nán-
ast ekkert hefur sést af því síðan.
Pallbill fauk út af veginum við
Stafá á mörkum Hofs- og Fljóta-
hrepps og er talinn gjörónýtur. Bill-
inn fékk á sig snarpa vindhviðu og
skipti engum togum að hann valt á
veginum og fór síðan út af. Þykir
mildi að ökumaðurinn, starfsmaður
Hólalax, skyldi sleppa ómeiddur.
Á bænum Reykjarhóli í Vestur-
Fljótum brotnuðu rúður í tveimur
íbúðarhúsum og urðu skemmdir á
innbúi og innréttingum í báðum.
Enn fremur sprakk upp stór bíl-
skúrshurð og við það þeyttust út
bráðabirgðahuröir í hinum enda
bílskúrsins. Þær lentu á dráttarvél,
sem stóð skammt frá, og skemmdist
hún. Víðar i sveitinni urðu
skemmdir, meðal annars á tveimur
bílum.
-ÖÞ
Selfoss:
Apótekið flytur
DV, Seifossi:________________________
Apótekið hér á Selfossi flytur á
mánudag ll.desember af Austur-
vegi 44 í nýtt húsnæði í Kjarnann
hjá KÁ að Austurvegi 3-5. Átta
manns vinna í apótekinu, þar af
tveir lyfjafræðingar.
Þau góðu hjón, Halldór Magnús-
son apótekari og Svanhildur Þor-
valdsdóttir, tóku við apótekinu
1978 og hafa síðan rekið það með
miklum sóma og kunnáttu. Þau
eru bæði ættuð af Akranesi og
hafa unnið við flest störf við at-
vinnuvegi þjóðarinnar til sjós og
lands. Það er mesti háskóli allra.
-Regína
Smoby húsið er fallegt en þú ættir að sjá
eldhúsin, þvottavélina og VÖN U£) ElKFÖNG GeRA
grænmetismarkaðinn.
C3ÆFUMUNI n
Heildverslunin
Bjarkey
S: 5674151