Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Blaðsíða 12
12 erlend bóksjá Metsölukiljur LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 Bretland Skáldsögur: 1. Dick Francls: Wild Horses. 2. Terry Pratchett: Interestlng Tlmes. 3. Wllbur Smlth: The Seventh Scroll. 4. Doug Naylor: The Last Human. 5. David Guterson: Snow Falllng on Cedars. 6. Jane Austen: Prlde and Prejudlce. 7. Danlelle Steel: The Gift. 8. Emma Tennant: Pemberley. 9. Pat Barker: Regeneratlon. 10. Maeve Binchy: The Glass Lake. Rit almenns eölis: 1. S. Blrtwistle & S. Conklln: The Making ot Prlde and Prejudice. 2. Alan Bennett: Wrlting Home. 3. S. Nye & P. Dornan: The A-Z of Bahavlng Badly. 4. Nelson Mandela: Long Walk to Freedom. 5. Andy McNab: Bravo Two Zero. 6. Gary Larson: The Far Slde Gallery 5. 7. Blll Watterson: Calvin & Hobbes lOth Annlversary Book 8. Carl Giles: Glles 1996. 9. lan Botham: Botham: My Autoblography. 10 Ranfurly: To War wlth Whltaker. (Byggt á The Sunday Times) Danmörk 1. Llse Norgaard: De sendte en dame. 2. Jung Chang: Vilde svaner. 3. Kirsten Thorup: Elskede ukendte. 4. Robert J. Waller: Broerne i Madison County. 5. Josteln Gaarder: Sofies verden. 6. Bret Easton Ellls: Uskrevne regler. 7. Peter Hoeg: De máske egnede. (Byggt á Politiken Sendag) Bækur sem þekktir höfundar mæla með Þegar líða tekur að jólum fá bresk blöð gjarnan þekkta rithöfunda til að nefna nokkrar þær nýju bækur sem þeir hafa lesið á árinu og telja sig með góðri samvisku geta mælt með. Hér á eftir er vitnað til ráðlegg- inga nokkurra höfunda í bókablaði The Sunday Times. í flestum tilvik- um er um að ræða bækur sem komu út í fyrsta sinn á árinu. Margar þeirra verða því ekki fáanlegar í enskum pappírskiljum fyrr en á næsta ári. Ævisögur og vísindarit Blaðið birti ummæli 36 höfunda sem höfðu að sjálfsögðu misjafnan smekk. Sumir lögðu áherslu á ævi- sögur, aðrir á hefðbundnar skáld- sögur og enn aðrir á spennusögur, svo dæmi séu tekin. Aðeins einn nefndi ljóðabók til sögunnar, fjög- urra binda safn sem heitir Animal Poems og er eftir lárviðarskáldið Ted Hughes. í sumum tilvikum nefndu nokkr- ir höfundanna sömu bókina. Þar ber fyrst að nefna The Faber Book of Science, sem rithöfundurinn og gagnrýnandinn John Carey rit- stýrði. P.D. James, sá kunni spennu- sagnahöfundur, sagði þetta safnrit hafa heilað sig gjörsamlega; hér sé saga vísindanna gerð aðgengileg og áhugaverð. Þrír aðrir tóku í sama streng, þeirra á meðal Melvyn Bragg. Meðal þeirra ævisagna sem mesta athygli höfðu vakið hjá viðmælend- um blaðsins má nefna Blake, mikið rit Peter Ackroyds um þetta óvenju- lega enska skáld, myndlistarmann Nýjasta skáldsaga Salman Rushides fær góð meðmæli. Umsjón Elías Snæland Jónsson og dulspeking frá átjándu öld. Einnig ævisögu rithöfundarins Kingsley Amis eftir Eric Jakobs, annað bindi bréfasafnsins John Betjeman Letters sem dóttir tón- skáldsins ritstýrði, og endurminn- ingarbók Gore Vidals, Palimpsest. Rushdie, Barker og Unsworth Nokkrar skáldsögur voru lang- vinsælastar hjá viðmælendum The Sunday Times. Þar var efst á blaði nýjasta skáldverk Salman Rushdies, The Moor’s Last Sigh eða Síðasta andvarp Márans. Martin Amis sagði hana tvímælalaust skáldsögu ársins í Bretlandi og fjórir aðrir töldu hana í fremstu röð. Fjórir höfundar mæltu sérstak- lega með The Ghost Road, þriðju skáldsögu Bookerverðlaunahafa árs- ins, Pat Barker, um hörmungar fyrra heimsstríðsins. Barry Unsworth, sem einnig kom sterk- léga til greina við veitingu Booker- verðlaunanna að þessu sinni, segir þennan þríleik Barkers eitt hið merkasta verk í skáldskap samtíð- arinnar. Sjálfur fékk Unsworth góð orð fyrir skáldsögu sína, Morality Play, en þrir viðmælenda blaðsins töldu hana með bestu skáldverkum ársins. Af öðrum ritum, sem nefnd voru, má minna á: Oswald’s Tale: An Am- erican Mystery eftir Norman Mailer. Darwin’s Dangerous Idea eftir Daniel C. Dennett. Thieves’ World eftir Claire Sterling og Comrade Criminal eftir Stephen Handelman en báðar bækurnar Qalla um framsókn glæpamanna í evrópsku viðskiptalífi. The Pale Blue: Vision of the Human Future in Space eftir Carl Sagan. To Close to Call eftir Sarah Hogg og Jonath- an Hill um fyrstu fimm ár Johns Majors sem forsætisráðherra Breta. The Unconsoled, nýjasta skáldsaga Kazuo Ishiguros. Gladstone, ævi- saga þessa breska stjórnmálamanns eftir Roy Jenkins. Landscape and Memory eftir Simon Schama um samskipti mannsins og náttúrunn- ar. Og loks The Brontes þar sem Judith Barker fjallar mun ítarlegar um skáldsysturnar frá Howarth en áður hefur verið gert. Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. Mary Hlgglns Clark: The Lottery Wlnner. 2. Dean Koontz: Dark Rlvers of the Heart. 3. Jonathan Kellerman: Self-Defense. 4. Tom Clancy & Steve Pieczenik: Mirror Image. 5. George Dawes Green: The Juror. 6. Sidney Sheldon: Nothlng Lasts Forever. 7. David Guterson: Snow Falling on Cedars. 8. Sandra Brown: Heaven’s Prlce. 9. Catharine Coulter: The Duke. 10 Whitney Otto: How to Make an Amerlcan Qullt. 11. V.C. Andrews: Hiddel Jewel. 12. John Sandford: The Empress File. 13. W.E.B. Griffin: The Murderers. 14. Carol Shlelds: The Stone Dlaries. 15. Danielle Steel: Wings. Rit almenns eölis: 1. Tlm Allen: Don’t Stand to Close To a Naked Man. 2. Rlchard Preston: The Hot Zone. 3. Mary Pipher: Reviving Ophella. 4. H. Johnson & N. Rommelmann: The Real Real World. 5. R. McEntlre & T. Carter: Reba: My Story. 6. Paul Relser: Copplehood. 7. Tom Clancy: Fighter Wing. 8. Delany, Delany & Hearth: Havlng Our Say. 9. Dorls Kearns Goodwln: No Ordinary Time. 10. Thomas Moore: Care of the Soul. 11. B.J. Eadle & C. Taylor: Embraced by the Light. 12. Clarissa Plnkola Estés: Women Who Run wlth the Wolves. 13. M. Scott Peck: The Road Less Travelled. 14. Laurie Garrett: The Comlng Plague. 15. Barbara Bush: Barbara Bush: A Memolr. (Byggt á Now York Times Book Revlow) vísindi Kindur í gigtarrannsókn Vísindamenn austur í Ástral- 1 íu eru að rannsaka liðamót í kindum í þeirri von að það muni koma fólki sem þjáist af liðagigt og öðrum sjúkdómum að góðum notum. Að sögn Gwidons Stachowi- | aks, prófessors við háskóla Vest- ur- Ástralíu, eru liðvökvaliða- mót í mönnum, eins og mjaðma- og hnjáliðir, mjög svipuð liða- S mótum í kindum. Vísindamennirnir nota sér- j stök tæki, þar á meðal liðamóta- hermi, til aö leita að slitögnum í j liðvökva úr kindum. Slitagnir { úr liðamótum kinda eru svipað- ar þeim sem eru gigtsjúkum . liðamótum i fólki. Róbótar beita hnífnum Þess verður ef til vill ekki langt að bíða að róbótar taki að 1 sér skurðaðgerðir i Bretlandi og Bandaríkjunum. Að sögn vís- indamanna er líklegt að róbótar þessir yrðu mönnunum fremri á ýmsum sviðum, bæði nákvæm- ari og áreiðanlegri. í breska læknablaðinu kemur | fram að enn sem komið er sé verið að gera tilraunir með fá ' róbóta en þó hafi verið sótt um leyft fyrir einum eða tveimur. Þegar hafa verið hannaðir ró- bótar til að gera aðgerðir á blöðruhálskirtli og á eyrum. Umsjón Guðlaugur Bergmundsson Maðurinn veldur gróðurhúsaáhrifum Ef jarðarbúar breyta ekki um lífsstíl, mun meðalhiti á jörðinni hækka um tvær gráður fram til árs- ins 2100. Afleiðingarnar verða heit- ari sumur, hærra yfirborð sjávar og bæði þurrkar og flóð verða tíðari og alvarlegri. Þetta eru niðurstöður sérfræð- inga alþjóðavinnuhóps um veður- farsbreytingar (IPCC) sem fundaði í Madríd á Spáni fyrir stuttu. Þar voru samankomnir vísindamenn og fulltrúar ríkisstjórna og tókst hin- um fyrrnefndu að sannfæra þá síð- arnefndu, eftir miklar umræður, að maðurinn og athafnir hans hefðu áhrif á veðurbreytingar. „Gögnin sýna fram á að áhrif mannsins á veðurfar heimsins séu merkjanleg," segir í skýrslu hóps- ins sem verður rædd á ráðstefnu í Róm eftir helgi. Fulltrúar olíuframleiðsluríkja sem komu til Madrídarfundarins reyndu að milda orðalag skýrslunn- ar þar sem fjallað er um að draga eigi úr notkun olíu og kola. Það er einmitt bruni þessara tveggja orku- gjafa sem talinn er stuðla að gróð- urhúsaáhrifunum svokölluðu. I IPCC-innuhópnum eru um 2500 vísindamenn, loftslagsfræðingar og sérfræðingar frá rúmlega 100 lönd- um. Hlutverk þeirra er að meta vís- indaleg gögn um loftslagsbreyting- ar, reikna út áhrif þeirra og leggja fram tillögur um andsvör, í náinni samvinnu við stjórnvöld. Umhverfisverndarsinnar vonast til þess að viðurkenning IPCC á gróðurhúsaáhrifunum muni knýja ríkisstjórnir til að vinna saman að því að draga út losun lofttegunda sem stuðla að hækkandi hitastigi á jörðinni. Deilan um gróðurhúsaáhrifin snerist m.a. um það að hitastig af völdum þeirra lækkaði sums staðar en hækkaði ekki eins og alla jafna er. Mannfolkið stuðlar að qroðurhúsaáhrifunum Vísindamenn og ríkisstjórnir alls staðar að úr heiminum urðu sam- mála um það á fundi í Madríd að mannskepnan ætti sök á hluta þeirra breytinga sem hefðu orðið á loftslagi á jörðinni GRÓÐURHÚSAÁHRIFIN 1: Koltvísýringur úr útblæstri flugvéla, verksmiðja og ökutækja Hækkun meðalhita á jörðinni 2: Geislun sólarinnar (hiti) sem jörðin drekkur í sig. Yfir- borð jarðar varpar hita aftur út í and- rúmsloftið 3: Hiti sem kemst hvergi vegna mikils koltvísýrings SÓUN Heildarvatnsmagn jarðarinnar er 525 milljón rúmkm Vatn innilokað í ís % norðurskautsins Vatn innilokað í ís BB HÆKKANDI YFIRB0RÐ SJAVAR Ytirborð sjávar hefur hækkað um milli 10 og 25 sentímetra síðastliðin 100 ár. Yfirborðið gæti hækkað um meira en metra á næstu 100 árum ~s \ %r , V* \-ss r-s p j Svmði í flnfahættn 3 etytirborð sjávar ■ hækkar V . V '7V h 1 J \J j ^V/ f v y REUTER Heimildir: Greenpeace, The State ot the Environment Atlas, The Intemational Visual Survey Gaukar í mafíuleik Ýmislegt þykir benda tO að spænskir gaukfuglar beiti skjóa miklu harðræði og þvingi þá til að ala upp unga sína með morð- herferðum í anda mafíunnar. Það eru danskir vísinda- menn, undir forustu Anders Papes Möllers við Kaupmanna- hafnarháskóla, sem halda þessu fram. Þeir komust að því að gaukar verptu eggjum sínum í rúmlega sex af hverjum tíu skjóahreiðrum í Andalúsíu. Að- eins fimm prósent skjóanna ; henda aðskotaeggjunum og Möller og hans menn tóku þá : að stela hinum til að komast að af hverju svo væri. Það kom svo á daginn að gaukarnir ýmist eyðilögðu egg- in eða drápu ungana í flestum skjóahreiðrunum sem gaukseggjum hafði verið stolið úr. Vaktir vondar hjartanu Konur sem hafa unnið vakta- vinnu 1 sex ár eru í 50 prósenta meiri hættu á að fá hjartaáfall en konur sem aldrei hafa stund- að vaktavinnu. Þetta kemur fram í rannsókn Harvard háskólans í Bandaríkj- unum. Þar segir að vaktavinna kunni að valda aukinni streitu : á hjartað, líklega vegna lífefna- fræðilegra breytinga af völdum breytilegs svefnmunsturs. Visindamennirnir komust að því að konur sem unnu vakta- vinnu voru gjamari á að reykja I en aðrar konur, blóðþrýstingur | þeirra var hærri og þær voru almennt meiri um sig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.