Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Blaðsíða 40
■m sviðsljós
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995
Val Kilmer. Cindy Crawford.
Kilmer og Crawford
hyggja á barneignir
Heitasta pariö i Hollywood um
þessar mundir eru Vai Kilmer,
stjaman úr Batman og Doors, og of-
uifyrirsætan Cindy Crawford. Svo
heit er ást þeirra að almannarómur
segir brúðkaup vera á næsta leyti.
Hvað sem vilja þeirra líður verða
þau bæði að bíða eftir lögskilnaði
frá fyrri mökum, Cindy frá Richard
Gere og Val frá Joanne Whalley-Kil-
mer.
„Val og Cindy hafa átt með sér
náið samband undanfarna tvo mán-
uði og þau eru eins og sköpuð hvort
fyrir annað," lét góðvinur Cindy
hafa eftir sér í fjölmiðlum um dag-
inn.
Þau eru bæði skilin við fyrri
maka sína að borði og sæng. Þau
hittust fyrst árið 1991 þegar verið
var að taka upp kvikmyndina Doors
þar sem Val lék goöið Jim Morri-
son.
„Cindy sagði seinna við mig að
hún hefði strax þá uppgötvað að það
væri eitthvað á milli þeirra. Ekkert
varð hins vegar af nánu samlífi
þeirra þá þar sem þau voru bæði í
öðru sambandi. Þegar þau hittust
aftur í október í teiti í Los Angeles
voru þau bæði á lausu og gátu því
eytt nóttu saman áhyggjulaus."
Cindy sagði nýlega „trúnaðarvin-
konu“ sinni, sem svo aftur trúði
„trúnaðarblaðavini" sínum fyrir
því að örlögin hefðu ráðið því að
hún og Val hittust á ný. „Ég er al-
veg jafrTsjúklega hrifin af Val í dag
og þegar ég hitti hann árið 1991. Þá
mátti ég hins vegar ekki við því að
flækja líf mitt meir en það var þeg-
ar orðið,“ sagði Cindy við hina
„traustu" vinkonu sína.
Val og Cindy ku hafa jafn mikinn
áhuga á börnum og barnauppeldi og
því segja kunnugir að stutt sé í
barneignir hjá þeim ef sambandið
verður jafn hamingjusamt og hing-
að til.
Þau eru hvorug á flæðiskeri
stödd. Cindy hefur halað inn litlar
110 mOljónir árlega fyrir störf sín og
hefur nýlega leikið í kvikmyndinni
Réttlátur leikur, sem að vísu hlaut
afar slæma dóma hjá gagnrýnend-
um. Val, sem á tvö börn af fyrra
hjónabandi, rakar einnig saman
peningum af kvikmyndaleik sínum.
Vinir Lizu Minelli hafa verulegar
áhyggjur af holdarfari hennar
eftir að skipt var um
mjaðmarlið í henni ný-
lega. Liza hefur hríðhor-
ast eftir uppskurðinn sem
hún fór í fyrir nokkrum
mánuðum og er vart svip-
ur hjá sjón lengur.
Gamla Kabaret-stjarn-
an heldur því hins vegar
fram að ekkert sé að.
Henni líði bærilega og sé ánægð
með útlitið. „Mér líður mjög vel. Það er
frábært að láta skipta um mjaðmarlið í
sér,“ segir Liza, sem er 49 ára.
Staðreyndin um bágborið holdarfar
Lizu varð lýðum ljóst þegar hún var
gestur í gala-veislu til heiðurs Frank Military, plötuút-
gefanda í New York.
Hún hafði grennst svo mjög að hún fór létt með að
klæðast 28 ára gömlum klæðskerasaumuðum kjól.
„Hún er svo horuð," mátti heyra suma gesti í veisl-
unni segja. Heyra mátti vin hennar segja: „Þetta er
ekki sama Liza og ég þekkti. Hún er eins og skugginn
af sjálfri sér.“
Liza, sem eru dóttir Judy Garland heitinnar, fór í
mjaðmariiðsskipti 17. desember sl. Aðeins þremur dög-
um seinna var hún komin á ról á ný og þremur mán-
uðum seinna lék hún í sjónvarpsmynd, ásamt Kathy
Bates og Shirley MacLaine, sem frumsýna á um þess-
ar mundir.
Sjálf segir Liza ekkert ama að sér og talsmaður
hennar sagði það sama í samtali við fjölmiðla nýlega.
„Hún lítur mjög vel út,“ sagði talsmaðurinn.
Liza Minelli létt-
ist og láttist
Demi kroppur
sýnir þokkann
Demi Moore verður seint sögð
miðaldra hvapholda mamma enda
hafði hún álit á sjálfri sér á dög-
unum þegar hún kom fram í
spjallþætti Davids Lettermans,
Late show.
Demi hefur tekið að sér að leika
hlutverk fatafellu í kvikmyndinni
Striptease sem framleiða á í
Holiywood á næstunni. Var keUa,
. sem er móðir þriggja barna Bruce
WiUis, búin að bæta á sig
nokkrum aukakUóum þannig að
hún þótti vart orðin boðleg í hlut-
verkið að eigin sögn. í samvinnu
við karlinn sinn dreif hún sig í
stíft æfmgaprógramm og losaði
sig við 5 kíló og styrkti líkamann
allan.
Eftir allt þetta brá Demi sér í
þáttinn hans Lettermans, klædd
flík með númeruðum spjöldum á.
Taldi hún svo niður og stóð að
lokum klædd pjötlum tveimur ein-
um fata. Áhorfendur voru yfir sig
hrifnir að afklæðingu lokinni og
klöppuðu Demi lof í lófa og höfðu
á orði að ekki væri að sjá að þessi
kona hefði átt böm. Sjálf sagði
Demi: „Ekki slæmt af gamalli
mömmu að vera,“ og hló.
Þá og nú. Þarna
er ekkert sem
ekki á að vera.
.. . að að öllum líkindum fengi
John Travolta 800 milljónir fyrir
næstu mynd sem hann léki i.
Kvikmyndin Get shorty, sem
Travolta fékk 300 milljónir fyrir
að leika í, halar nú inn milljónir
vestra og bráðlega verður sýnd
önnur mynd sem hann lék orr-
ustuflugmann í.
... að Maradonna hefði nýlega
haldið ræðu í Oxford. Kappinn,
sem mætti með litaða rönd í
hárinu, fjaliaði um æsku sína
og peningana í boltanum en
kom ekkert inn á skuggalegan
feril sinn með fíkniefnin. Goðið
spilar nú fótbolta í Suður-
Kóreu.
. . . að 10 ára sonur Farrah
Fawcett, sem er 48 ára og sat
nakin fyrir á síðum karlablaðs-
ins Playboy nýlega, hefði farið
með bunka af karlablöðunum í
skólann nýlega, svo stoltur var
hann af móður sinni. Móður
hans brá í brún þegar strákur-
inn kom með blöðin aftur heim
með þá ósk skólafélaga sinna í
farteskinu að sú „gamla" áritaði
myndirnar fyrir pabba þeirra.
. . . að Antonio Banderas hefði
ákveðið að gefa Melanie Griffith
bronsafsteypu af sínu allra
heilagasta í jólagjöf.
. . . að Robin Williams hefði
ískyggilega orðið var við sam-
keppni af hálfu Jim Carrey þeg-
ar kæmi að kvikmyndahlutverk-
um. Þó fékk Williams hiutverk í
kvikmyndinni svaramaðurinn
og þáði litlar 200 milljónir fyrir
en aðeins eftir að Carrey hafði
hafnað sama hlutverki en verið
boönar 550 milljónir fyrir.