Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Blaðsíða 45
JjV LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, reiddist mjög þegar forseti ASI kallaði hann og fleiri verkalýðsleiðtoga lýðskrumara. Hér fylgist Kristján með talningu atkvæða eftir félagsfund þar sem samþykkt var að draga uppsögn kjarasamninga ekki til baka. DV-mynd Ægir Már Klofningurinn innan verkalýðshreyfingarinnar: r Akveðnir forystumenn talast ekki lengur við - hætta á varanlegum klofningi innan Alþýðusambandsins er fyrir hendi Oft hefur komið upp málefnaleg- ur ágreiningur innan Alþýðusam- bands ísiands en alltaf hefur tekist að leysa hann. Sá ágreiningur sem nú er uppi og margir kalla klofning er einn sá alvarlegasti sem komið hefur upp í áratugi. Stór orð hafa fallið. Forseti Alþýðusambandsins kallaði formenn þeirra verkalýðsfé- laga sem vilja standa við uppsögn kjarasamninga lýðskrumara. Þei'r reiddust þessu heiftarlega og mættu ekki á miðstjórnarfund ASÍ í vik- unni. Nú er líka svo komið að sumir toppanna í verkalýðshreyfmgunni talast ekki við nema í algerri neyð. Þar má nefna þá Guðmund J. og Benedikt Davíðsson sem dæmi. En hver er undirrótin að þessum mikla ágreiningi sem nú bunar upp á yfir- borðið? Klofningurinn innan ASÍ: Menn hafa ekki verið samstiga í samningum - segir Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambandsins „Ég skal ekki segja um hvað þessi klofningur, sem nú er uppi, er djúpstæður. Ég vona að hann sé frekar afmarkað mál tengt nið- urstöðu launanefndar en varan- legur. Það hafa vissulega gerst vondir atburðir hjá verkalýðs- hreyfingunni að undanförnu. Ég hef haldið því fram að það þurfi að reisa verkalýðshreyfinguna sameiginlega upp og fá hana til að stíga fastar tii jarðar gagnvart at- vinnurekendum í kjarabarátt- unni. Ég tel að vegna þess þjóðar- sáttarforrits sem farið hefur verið eftir við gerð samninga síðustu árin hafi verkalýðshreyfingin misst frumkvæðið og dregist aft- ur úr. Vandamálið er ekki síst vegna þess að kaupmáttur kaup- taxtanna var allt of lágur þegar fyrsti þjóðarsáttarsamningurinn var gerður 1990. Ég tel að nú hafi verið tækifæri til að reisa kaup- taxtana við ef við bara hefðum öll staðið saman. Þá hefðum við geta sagt við atvinnurekendur að þeir mættu visa málum til allra dóm- stóla landsins en verkalýðshreyf- inguna brytu þeir ekki niður. Þessu tækifæri var glútrað nið- ur,“ segir Björn Grétar Sveins- son, formaður Verkamannasam- bandsins. Hann segist sannfærður um að hægt sé að sýna fram á að for- sendur kjara- samninga séu brostnar, bæði hvað snertir vinnuveitend- ur og ríkis- stjórn. Hann segir að þessir aðUar heföu ekki ljáð máls á neinum viðræö- um og lagfæringum nema vegna þess að þeir vissu þetta. „Því miður fóru menn innan verkalýðshreyfingarinnar þarna hver í sína áttina. Ef til vill er það vegna þess að menn hafa haft mismunandi skoðanir á því hvernig ætti að stíga fram og einmitt það hefur líka gerst í nokkrum undanfórnum kjara- samningum. Þetta er að mínum dómi aðalorsök þess ágreinings sem nú er uppi. Þessu verður að bréyta. Það verður að breyta ásýnd verkalýðshreyfirigarinnar gagnvart atvinnurekendum. Við þurfum að hefja umræður um stöðu okkar og þá ekki síst um hlutverk Alþýðusambandsins. Ég held að þegar menn hafa andað djúpt og fengið sér súrefrii eftir þau átök sem nú standa yfir þá sé hægt að jafna ágreininginn. Ég vona það alla vega,“ sagði Björn Grétar Sveinsson. -S.dór Gamlar væringar Það er nokkuð til í því sem Bene- dikt Davíðsson segir að deilan snú- ist um menn en ekki málefni. Það er hluti skýringarinnar. Sérstaklega á þetta við hvað varðar eldri menn- ina. Þeir Benedikt Davíðsson og Guðmundur J. hafa eldað grátt silf- ur saman í bráðum 20 ár. Sumir segja að það hafi verið Guðmundur J. sem kom í veg fyrir að Benedikt yrði kjörinn forseti ASÍ 1978. Þá varð til hugtakið uppmælingaraðall og það kom frá Guðmundi J. Síðan þá hefur verið mjög kalt á milli iðn- aðarmannanna og Guðmundar J. Hann hefur vissulega verið sterkur maður innan verkalýðshreyfingar- innar vegna þess hve Dagsbrún er sögulega sterkt afl innan hennar. Vondir samningar Flestir verkalýðsleiðtoga eru sammála um að Þjóðarsáttarsamn- ingarnir 1990 hafi verið réttlætan- legir til að ná niður verðbólgunni og koma skikki á efnahagsmálin hér á landi. Það er hins vegar rétt sem Guðmundur J. segir að menn höfðu um það loforð að þegar því tak- marki yrði náð ætti vinnandi fólk að njóta þess í bættum kjörum. Svo hefur ekki verið og vondir kjara- samningar hafa verið gerðir allar götur síðan. Þessir vondu kjarasamningar hafa bitnað fyrst og fremst á ófag- lærðu verkafólki sem ævinlega hef- ur riðið á vaðið og samið fyrst. Síð- Fréttaljós á laugardegi Sigurdór Sigurdórsson innlent fréttaljós <9 Klofningurinn innan ASÍ: Smánarsamningar ár eftir ár orsökin - segir Guðmundur J. Guðmundsson „Ég játa það að ég er ánægður meö að hafa tekið þátt í þjóðar- sáttarsamningunum 1990. En Iþeim átti að fylgja að þegar verð- bólgan væri komin niður og ástandið orðið eðlilegt ætti að bæta verkafólki fórnina. Það var ekki gert og til að mynda bankar sviku öll loforð og jafnvel hækk- uðu vexti í stað þess að lækka þá. Verkalýðshreyfingin gekk ekki eftir því að við þetta væri staðið. Síðan hafa verið gerðir hveijir kjarasamningarnir á fætur öðr- um í samfloti undir forystu ASÍ og ekkert komið út úr þeim. Hver smánarsamningurinn á fætur öðrum á síðustu árum er upphaf óánægjunnar, ágreiningsins og Inú klofnings innan verkalýðs- hreyfingarinnar," segir Guð- mundur J. Guðmundsson, for- maður Dagsbrúnar, þegar hann var spurður um ástæður þess klofnings sem nú virðist kominn upp innan verkalýðshreyfingar- innar. „Sá klofningur sem kominn er upp á yfirborðið er ekki síst vegna þess að það er mikill launa- munur innan Alþýðusambands- ins. Iðnaðarmennirnir eru með miklu betri kjör en verkafólk. Ég er ekki að segja að þeir séu of haldnir, síður en svo, en launa- munurinn er mikill og þeir fengu miklu betri kjarasamninga í febr- úar en verkafólk. Og það eru þeir sem ráða ferðinni innan ASÍ ásamt verslunarmönnunum," seg- ir Guðmund- ur. Hann segir að það hafi verið efni til umtalsverðra kauphækkana við gerð kjara- samninganna í febrúar. Það tækifæri hafi ekki verið nýtt. Síðan áttu þessir at- burðir sér stað í haust sem leiddu til útifundanna. Þjóðin stóð við baki verkalýðshreyfingunni til að ná fram leiðréttingu á kjörum sínum. En þá hafi forysta ASÍ gef- ist upp og farið að tala um laga- greinar og samþykkt hungurlús frá VSÍ. „Þetta var gert þrátt fyrir að hvert verkalýðsfélagið á fætur öðru segði upp kjarasamningum og væri tilbúið að berjast fyrir leiðréttingu sinna kjara,“ segir Guðmundur. Hann segist telja að sá ágrein- ingur sem nú er uppi verði ekki settur niður fyrr en á eða eftir Al- þýðusambandsþingið næsta vor. „Það þarf að vekja verkalýðs- hreyfinguna af svefrii. Það þarf að endurskipuleggja hana og fá menn til að hætta að sætta sig við þessi lágu laun sem greidd eru hér á landi. Það verður að blása til sóknar. Takist það er hægt að sameina verkalýðshreyfinguna aftur, annars er hætta á varan- legu sundyrlyndi," sagði Guð- mundur J. Guðmundsson. -S.dór ———Sa» an hafa aðrir komið i kjölfarið og fengið meira. Jafnvel félög og sam- bönd innan ASÍ eins og kom fram eftir febrúarsamninga. Þetta hefur valdið mikilli óá- nægju meðal forystumanna verka- mannafélaganna og er ef til vill höf- uðorsök klofningsins nú. Og þegar svo launahækkanir embættis- manna, ráðherra og þingmanna komu í haust sauð upp úr. Verkamannasambandið ályktaði bæði á sambandsstjórnarfundi í haust og síðan á þingi sínu á dögun- um að segja upp kjarasamningum. Tuttugu og þrjú verkalýðsfélög gerðu það. Þegar svo Benedikt Dav- íðsson og Ingibjörg R. Guðmunds- dóttir ákváðu í launanefndinni, gegn vilja Björns Grétar Sveinsson- ar, að ganga að tilboði VSÍ og leggja til að samningum yrði ekki sagt upp var komið að ákveðnum punkti sem kallaði á klofning. Menn bentu á að launanefndarmenn hefðu ekki haft umboð til þessarra samninga. og flestir vildu láta slag standa og segja samningum upp. Menn hafa ekki dregið uppsögn samninga til baka með glöðu geði. Hvort þessi klofningur leiðir til alvarlegra atburða innan Alþýðu- sambandsins er ekki gott aö segja. Hættan á varanlegum klofningi er fyrir hendi. Meiri líkur eru þó á því að einhvers konar sættir takist. Hins vegar er Alþýðusambandsþing i vor og það getur orðið sögulegt. Klofningurinn innan ASÍ: | Snýst um menn en ekki málefni segir Benedikt Davíðsson, forseti Alþýðusambandsins „Það er rugl að um klofning sé að ræða innan Alþýðusambands- ins. Þeir sem því halda fram eru að rangtúlka málið. Það eru bara nokkrir einstaklingar innan Verkamannasambandsins sem um er að ræða. Þetta snýst um menn en ekki málefni. Sá ágrein- ingur sem uppi er snýst um menn en ekki málefni að mínum dómi. Ég er ekkert hræddur um að þessi ágreiningur sé hættulegur hvað Alþýðusambandið snertir. Ég tel að það hafi verið uppi miklu al- varlegri ágreiningur í vetur þegar þeir klufu Verkamannasamband- ið og bjuggu til Flóabandalagið. Fyrir Verkamannasambandið var það alvarlegur atburður,“ segir Benedikt Davíðsson, forseti Al- þýðusambands íslands. Hann segir að enda þótt hann óttist ekki að sá ágreiningur, sem nú er uppi en hann vill alls ekki kalla klofning, sé ekki hættulegur fyrir Alþýðu- sambandið, þá sé alltaf viss hætta þegar ágreiningur kemur upp. „Það er alltaf alvarlegt þegar menn ná ekki saman í meg- inatriðum og fara að bera hverjir aðra sökum sem eiga ekki við rök að styðjast. Þegar slíkt gerist er eitthvað annað undirliggjandi heldur en efnið,“ sagði Benedikt. Hann tekur ekki undir það að sá launamunur sem er á ófag- lærðu verkafólki og iðnaðar- mönnum sé orsök óánægjunnar og ágreiningsins. „Það getur ekki verið vegna þess að það hefur dregið saman hvað varðar kjör þessara hópa eins og gögn Kjararannsókna- nefndar sýna,“ sagði Benedikt Davíðsson. -S.dór
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.