Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Side 14
14 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 JjV Nýstárlegt myndband komið út: Sigga Beinteins í leikskólaleik „Hugmyndin að þessu myndbandi kom upp í haust en fyrirmyndin er útlend. Mér fannst hugmyndin góð og ákvað þess vegna að vera með að vinna hana. Síðan fékk ég krakka úr ísaksskóla mér til aðstoðar en þeir voru bæði skemmtilegir og lag- vissir," segir Sigríður Beinteins- dóttir, sem var að gefa út myndband með barnasöngvum og leikjum, sem ætlað er yngstu aðdáendunum. Þetta er fyrsta myndbandið sinnar tegundar sem gefið er út hér á landi. Á myndbandinu syngur Sigga með krökkunum ýmiss þekkt leik- skólalög eins og Berta bakarísterta, Allur matur á að fara..., Ég á gamla frænku og fleiri skemmtileg barna- lög. Einnig eru þulur, þjóðsaga og fræðandi vísur. Sigga segist hafa fengið afbragðs viðbrögð við myndabandsspólunni og miklu meiri en hún átti von á. Það var skólastjóri ísaksskóla sgm var henni innan handar að velja bömin en upptökur fóru fram á ein- um degi frá morgni til kvölds, Þá var bömunum skipt í hópa til að þreyta þau ekki. Flest börnin eru á aldrinum 5-6 ára en nokkur þó eldri. Sigga segir að krakkamir hafi verið mjög spenntir að taka þátt í þessu verkefni og ein stelpan hafi meira að segja hætt við að fara til Bandaríkjanna vegna þess. „Ég hef aldrei gefið neitt út fyrir börnin, maður hefur meira hugsað um fullorðna fólkið og unglingana. Það var því ekki vitlaus hugmynd að gera eitthvað fyrir þau núna. Auk þess á ég marga aðdáendur meðal yngstu kynslóöarinnar og það er gaman að geta gefið þeim eitthvað af mér líka,“ segir Sigga. Var fljót að læra Á myndbandinu eru sungin 37 leikskólalög og krakkarnir spyrja sig sjálfsagt af því hvort Sigga hafi kunnað lögin þeirra svona vel. „Ég kunni fá lög fyrst en er fljót að læra og við æfðum okkur nokkrum sinn- um. Ég þurfti ekki að byrja í leik- skóla til að iæra,“ segir hún. „Þetta gekk mjög vel en krakkarnir kunnu lögin náttúrulega miklu betur en ég. Þau voru stundum að stoppa upp- tökur til að leiðrétta mig en það var bara skemmtilegt." Myndbandið var tekið upp fyrir stuttu og að sögn Siggu tók ótrúlega stuttan tíma að koma því á markað. Ekki var gerð geislaplata en með myndbandinu fylgir söngbók með öllum textum. Að sögn Siggu var ekki tekin nein ákvörðun um að gefa lögin út á kassettu, sem hægt væri að hafa í biinum, en hún sagði það þó lítið mál. -öEn ætlar Sigga kannski að taka að sér stjórnina á barnatímanum? „Hver veit - það er mjög gaman að vinna með börnum." Plata í útlöndum Það hefur ýmislegt verið að ger- ast hjá Siggu Beinteins að undan- förnu. Hún hefur sungið með Stjórninni á hinum ýmsu skemmti- stöðum og segist aldrei hafa verið jafn mikið bókuð og núna. „Við erum að vinna plötu sem kemur á markað á nýju ári. Einnig vann ég plötu með Friðrik Karlssyni sem gefin verður út í Skandinavíu og víðar í Evrópu. Platan hefur þegar verið gefm út í nokkrum fylkjum í Bandaríkjunum og hefur fengið góð- ar viðtökur. Við erum að dunda við þetta framhjá störfum okkar hér heima til að gera eitthvað ööruvísi og skemmtilegt," segir Sigga Bein- teins. -ELA á hreinlætistækjum frá 1&NN »»• I»»1» Allt 20°/ Qfslóttur ...... ■ \ !1 J Sphinx og Ifö Hornbaökörin vinsælu Verö frá kr. 55.300 stgr. Vinsælu Oras Skolvaskar blöndunartækini Verð frá kr. 3.117 stgr. Sturtuhorn matt gler Verö frá kr. 28.310 stgr. ORMANN Ármúla 22 - Simi 581 3833 - Fax 581 2664 Sigríður Beinteinsdóttir hefur gefið út nýstárlegt myndband fyrir yngstu að- dáendurna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.