Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Page 18
18 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 TlV Dagur í lífi Magnúsar Vers Magnússonar: Keppt tií sigurs með vott af flensu Ég þurfti að vakna snemma á sunnudagsmorguninn því ég stóð fyrir áskorenda móti Pizza ’67 um sterkasta mann jarðar. Þrátt fyrir áform mín um að vakna snemma var hringt í mig enn fyrr og mér sagt að vandamál væru komin upp varðandi keppnina. Sérstakar tunnur, sem við höfðum látið stækka og fyllt með vatni til að þær yrðu stöðugar, höfðu byrjað að ieka og bæta þurfti úr vandanum. Ég lofaði að kíkja á málið og fór fram úr. Unnusta mín lá í rúminu með yfir 40 stiga hita og ég var ekki frá því að ég væri að veikjast líka. Ég var ekki eins og ég átti að mér að vera - nokkuð slapp- ur. Það þýddi ekkert að vorkenna Sjálfum sér þannig að ég reif mig á fætur og bjó til kjarngóðán morg- unverð - sannkallaðan orkudrykk. Henti banana í blandarann, hellti mjólk yfir og skóflaði þyngdarbæt- andi dufti út í og kveikti á. Eftir að hafa drukkið þennan kaloriuríka drykk tók ég saman dótið mitt og gerði mig kláran til brottfarar. Höllinni ásamt samstarfsmönnum keyrði ég Benz-rútuna, sem við höfðum til afnota, og renndi eftir öðrum þátttak- endum niður á hót- ;j\ el. Þaðan fórum við á Pizza ’67 í hádegis- verð. Menn borð- uðu mest pasta, súpu og brauð - létt var á réttu róli og þótt maður hefði viljað sjá fleiri þá þurfti maður ekki að borga með mótinu. Mútið tekið með trukki Ég kýldi á þetta og mótið var tekið með trukki. Maður hafði samt áhyggjur af eigin frammi- stöðu því undirbúningur móts ins hafði , tekið a 3 mein tíma frá mér, tíma sem nota hefði átt til æfinga og undirbúniiigs, en ég hafði ætlað mér í upphafi. Auk þess fann ég að heilsan var ekki upp á sitt besta en Það þýddi ekkert að vorkenna sjálfum sér þannig að ég reif mig á fætur og bjó til kjarngóðan morgunverð - sannkallaðan orkudrykk. Henti banana í blandarann, hellti mjólk yfir og skóflaði þyngdarbætandi dufti út í og kveikti á. DV-mynd JAK Leyst úr vandamálum Ég settist undir stýri og ók nið- ur í höll og fór yfir málin. Utan smávægilegra vandamál virtist allt á réttu róli. Eftir að hafa gert allt klárt í en orkuríkt fæði svo þeir væru bet- ur búnir undir að takast á við átök dagsins. Eftir að hafa spjallað sam- an og kankast á fóru menn aftur niður í höll og tóku léttar æfingar og gerðu klárt. Maður hafði léttar áhyggjur af því hvórt allt væri ekki á réttu róli og hvort nógu margir myndu mæta til að dæmið myndi borga sig. Allt keppnin gekk vel hjá mér. Um tíma óttaðist ég þó að Heinz Ollesch myndi hafa mig og adrena- línið fór á fullmikla hreyfingu. Ég fór því og losaði mig við hluta af hádegisverðinum sem ég virtist ekki geta haldið niðri. Hvort um var að kenna adrenalíninu eða slappleikanum sem var að hellast yfir mig veit ég ekki en þegar þetta er skrifað ligg ég í rúminu í flensu og tvísýnt er hvort ég kemst til Kaupmannahafnar nú um helgina. Þegar að síðustu grein var kom- ið, burði steina á tunnu, var enn mjótt á mununum en mér tókst að knýja fram sigur enda er þetta ein af minum betri greinum og Heinz lenti í öðru sæti en honum hefur einnig oft gengið vel í þessari grein. Eftir að hafa hampað verðlaun- um og tekið saman tækin í Höll- inni var farið heim í sturtu og klætt sig í betri fötin. Um kvöldið var sigrinum fagnað i góðra félaga hópi. Öllum keppendum og starfs- mönnum var boðið til veislu þar sem árangrinum var skolað niður með drykk og mat. Heilsan var góð, þannig séð, um kvöldið. Menn urðu mjúkir en þó var farið snemma heim að sofa. Vinnunni við mótið var engan vegin lokið því þátttakendurnir fóru sumir hverjir ekki heim fyrr en á þriðju- dag og það þurfti að hafa ofan af fyrir þeim. Þeim sem fóru heim á mánudag' þurfti hins vegar að fylgja út á flugvöll. Dagurinn var sem sagt hinn besti og enn einn sigurinn í höfn. -pp Vinningshafar fyrir þrjú hundruð þrítugustu og fjórðu getraun reyndust vera: 1. Hjörtur Jón Hjartarson Vallarási 1 110 Reykjavik 2. Inga Jóna Jóhannsdóttir Kjalarlandi 30 108 Seltjarnarnes Finnur þú fimm breytingar? 336 Nú er komið að þeim þætti Sinfóníunnar sem ég venst aldrei. Nafn: Myndirnar tvær viröast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: TENSAI ferðaútvarp með kassettu, að verðmætl kr. 4.990, frá Sjónvarpsmið- stöðinni, Síðumúla 2, Réykjavík. 2. verðlaun: Úrvalsbækur. Bækurnar sem eru í verðlaun heita Líkþrái maðurinn og Athvarf öreigans, úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, að verðmæti kr. 1.790. Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 336 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.