Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Síða 29
JJV LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 29 ** ★ ★ ■ * skák Investbanka-mótið í Belgrad: Einvígi Gelfandsog Kramniks var gríðalega spennandi Stórmót Investbankans í Belgrad hefur fram farið árlega, þrátt fyrir stríð og aðra óáran í gömlu Júgó- slavíu. Mótið er jafnan með best skip- uðu mótum ársins og nálgast óðíluga Linares-mótið og fleiri slík hvað virð- ingu snertir. Hvorki Karpov né Kasparov voru meðal keppenda í ár en engu að síður var keppendahópurinn ekki árenni- legur. Meðalstig keppenda gerðu 17. flokk FIDE að styrkleika. Teílt var fjörlega, stórmeistara- jafntefli voru fátíð og hver þóttist öðrum fremri - a.m.k. framan af mótinu. Undir lokin tóku tveir menn völdin í sínar hendur - stórmeistar- arnir Vladimir Kramnik frá Rúss- landi og Boris Gelfand frá Hvíta- Rússlandi. Einvígi þeirra var gríðar- lega spennandi. Kramnik hafði for- ystu en tapaði í 8. umferð fyrir Peter Lekó, yngsta stórmeistara heims. Þá voru þeir Gelfand jafnir og þrjár umferðir til loka. Skipti engum tog- um að þeir unnu allar skákir sínar í lokaumferðunum og á endanum skildi hálfur annar vinningur þá og næsta mann að. Lítum á lokastöðuna: 1. - 2. Kramnik (Rússlandi) og Gel- fand (Hvíta-Rússlandi) 8 v. af 11 mögulegum. 3. Sírov (Spáni) 6,5 v. 4. Topalov (Búlgaríu) 6 v. 5. -7. Adams (Englandi), Timman (Hollandi) og Ivantsjúk (Ukraínu) 5,5 v. 8. Leko (Ungverjalandi) 5 v. 9. Ljubojevic (Júgóslavíu) 4,5 v. 10. -11. Beljavskí (Úkraínu) og Lautier (Frakkalandi) 4 v. 12. Miladinovic (Grikklandi) 3,5 v. Ólíkt höfðust sigurvegararnir að í síðustu umferð. Gelfand náði að knýja fram sigur gegn Michael Ad- ams eftir 82 leikja baráttu en Kram- nik tefidi glæsiskák gegn Beljavskí sem stóð aðeins yfir í 18. leik. Þá 1. RI3 d5 2. g3 Bg4 3. Bg2 e6 4. 0-0 Rd7 5. d4 e6 6. Rbd2 f5!? Beljavskí skiptir yflr í hollenska peðakeðju sem er athyglisverður kostur, einkum þar sem hann er sloppinn út með „vandræðabiskup- inn” á c8 sem annars væri fangi peð- anna. Skák Jón L. Arnason 7. c4 Bd6 8. Db3 Hb8 9. Hel Rh6?! Skynsemin segir svörtum að leika einfaldlega 9. - Rgf6 en Beljavskí hefur skyggnst dýpra í stöðuna. Hann ætlar drottningarriddaranum f6-reitinn en gælir við að valda e5- reitinn með RI7, eða hertaka e4-reit- inn síðar með Rf7-d6-e4. Hann nær hins vegar aldrei að hrinda þessari langtímaáætlun í framkvæmd. 10. cxd5 cxd5 11. h3 Bh5 12. e4!! Á óvæntan hátt nær hvítur að opna taílið og færa sér í nyt yflrburði í liðs- skipan. 12. - fxe4 13. Rg5! 16. Dxd5!! með vinningsstöðu því aö 16. - exd5 17. Rxd6+ er mát! Svarið við 13. - De7 hefði verið 14. Rxe6! 14. Rdxe4! Enn fórnar hvítur! Þetta varð Kramnik að sjá fyrir er hann lék kóngspeðinu í opinn dauðann í 12 leik. 14. - dxe4 15. Rxe6 Bxe6 Ef 15. - De7 16. Hxe4 og svartur er í úlfakreppu. 16. Dxe6+ De7 Betri vörn er fólgin í 16. - Be7 en eftir 17. Bxh6 gxh6 18. Hxe4 HÍ8 19. Hael er hvíta sóknin sterk. 17. Hxe4! Kd8 Hvíta sóknin virðist ganga upp í öllum afbrigðum. Ef 17. - Dxe6 18. Hxe6+ Be7 19. Bxh6 KÍ7! (ef 19. - gxh6 20. Hael og vinnur biskupinn) 20. Bd5! RI6 21. Bb3 gxh6 22. Hael Bb4 23. He7+ og hvort heldur eftir 23. - KfB 24. HÍ7 + , eða 23. - Kg6 24. Bc2+ vinnur hvítur - magnað af- brigði. 18. Dd5! Boris Gelfand frá Hvita-Rússlandi. kunni Beljavskí ekkert ráð betra en að gefast upp. Leikmáti Kramniks í þessari skák er slíkur að þar hlýtur að vera heims- E IMMI H k 1 * i 1 Á i ai m A i A A & & A ÉL 2 É, S S ABCDEFGH meistaraefni á ferð. Hvítt: Vladimir Kramnik Svart: Alexander Beljavski Reti-byrjun. 13. - Bf7 Ef svartur hefði bitið á agnið með 13. - Dxg5, hefði getað teflst mjög skemmtilega 14. Rxe4 De715. Bg5 DÍ8 í þessari stöðu taldi Beljavskí þann kost vænstan að gefast upp. Ef 18. - DÍ8 19. Bg5 + Kc7 20. Hcl + og hvítur vinnur létt. -JLÁ "W brídge Ráðherrann við stýrið í kjölfar fjórðungsúrslita Marl- boro-heimsmeistarakeppninnar mynduðu bridgeblaðamenn sveit, sem spilaði við nokkra ráðamenn Kínverja. Þótt bridgeblaðamenn eigi marga frambærilega bridgemeistara var þeim tjáð að ekki væri á vísan að róa hvað gestgjafana snerti. Enda fór svo að gestgjafarnir unnu 32ja spila leikinn með 104-59. Hér er eitt athyglisvert spil frá leiknum. V/A-V * D3 V D72 ♦ KDG94 + 653 ♦ K108 V K109 ♦ 652 + ÁG109 í a-v sátu tveir heimsþekktir bridge- blaðamenn og Evrópumeistarar að auki, Tony Priday og Patrick Jorda- in, en í n-s ráðherrasonurinn og ráð- N v A __s ♦ Á7642 V ÁG8654 ♦ 7 + 8 Umsjón * G95 V 3 ♦ Á1083 + KD742 Vestur Norður Austur Suður pass pass lhjarta 21auf 2tíglar 3tíglar pass 3grönd pass pass ' pass Stefán Guðjohnsen herrann Ding, einn af fulltrúum Politburo. Þriggja tígla sögn norðurs bað suð- ur um að segja þrjú grönd með tígul- stopp og ráðherrann hlýddi þrátt fyr- ir hjartaeinspilið. Hefði vestur spilað út hjarta hefðu þrjú grönd orðið tvo niður og spilið ekki verið fréttnæmt. En vestur spil- aði út tígulkóngi og það gaf ráðherr- anum tækifæri á því að sýna listir sínar. Hann hugsaði lengi um fyrsta slag, drap síðan á tígulás og byijaði á laufslögunum. Takið eftir því að leggi hann af stað með spaðaníu gefur austur. Þá getur sagnhafi ekki spilað hálit aftur því austur svarar þá uppi þeim hálit sem hann spilar. En aust- ur var í vandræðum að gefa í lauf- slagina. Hann kastaði hjarta í annað laufið en í þriðja laufið mátti hann ekki kasta spaða. Hann kastaði því réttilega hjarta og aftur hjarta í fjórða laufið. í fimmta laufið kastaði hann hins vegar spaða og þá spilaði ráðherrann spaðaníu og lét hana róa. Síðan spilaði hann litlum spaða, drottning, kóngur og ás. Priday spil- aði sig út á spaða og ráðherrann var inni á gosann. Hann spilaði síðan hjarta á níuna og beið síðan eftir níunda slagnum á hjarta. Laglega unnið úr litlum spilum. \ Stefán Guðjohnsen

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.