Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Side 43

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Side 43
47 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 Hólmavík: Hús Magnúsar Jónssonar frá Skrið- ■ / nesenm i eigu Dagrenningar HANNAÐU þinn eigin bol til þess að gefa í Komdu með tilbúna fyrirmynd eóa hugmyndir sem við hjálpum þér við að útfæra. Hús Magnúsar Jónssonar frá Skriðnesenni, sem er á Hólmavík, hefur verið gert upp og er komið í eigu Dagrenningar, björgunarsveitar Slysavarnafélags Islands. DV-mynd Guðfinnur. BR05-&0UR ÐUMUIA 33 SIMI 581 4141, FAX 588 4141 Guðfinnur Finnbogason, DV, Hólmavík: Eitt af eldri og glæsilegustu hús- um á Hólmavík frá fyrri helmingi þessarar aldar, kennt við Magnús Lýðsson, bónda og járnsmið frá Skriðnesenni, sem byggði það, hef- ur nýverið komist í eigu Dagrenn- ingar, björgunarsveitar Slysavarna- félags íslands á Hólmavík. Húsið hefur við það tekið allmiklum stakkaskiptum á stuttum tíma. Það er þrjár hæðir, reist 1931. Magnús og Elín Jónsdóttir kona hans ásamt börnum bjuggu á miðhæðinni og segja má að efsta hæðin og kjallar- inn hafi alltaf verið í útleigu. Oftast hafa verið þar frumbýlingar og fólk komið á efri ár. Leigugjald var alltaf lágt hjá þeim hjónum. Rætt um að brjóta það niður Ungur trésmiður keypti húsið 1965 af ekkju Magnúsar og börnum þeirra. Hann breytti því nokkuð og byggði við að trésmíðaverkstæði. Við brottfór hans komst það í eigu Kaupfélags Steingrímsfjarðar sem leigði það oftast starfsfólki sínu en við það lét það mjög á sjá og um tíma var rætt um í alvöru að réttast væri að rífa það og brjóta niður. Sú skoðun fékk svo aukinn byr í seglin þegar eldur varð laus á miðhæð þess síðla árs 1989 og af hlutust verulegar skemmdir. „Við keyptum það á 600 þúsund kr., vaxta- og verðbótalaust, það var þá vægast sagt í mjög slæmu ástandi," segir Eysteinn Gunnars- son, stjórnarmaður í björgunar- sveitinni Dagrenningu. Heldur nær alveg fyrra útliti „Við höfum síðan kostað miklu tO að koma því í það horf sem það er í núna. Gert var við allar múr- skemmdir, skipt um glugga og sett í þá tvöfalt gler. Þakið hefur verið endurnýjað að nær öllu leyti. Húsið heldur þó nær alveg fyrra útliti sínu að öðru leyti en því að settur hefur verið stærri kvistur á norðurhlið þess. Við höfum nú tekið í notkun neðstu hæðina. Þar erum við með útbúnað okkar ásamt sjúkra- og tækjabíl. Þá erum við að kaupa okk- ur gúmbát til hjálpar og björgunar á sjó og vötnum þegar þörf kallar að.“ Eysteinn segir mikið ógert innan- húss á efri hæðum hússins. Þar verði nægilegt verkefni á næstu mánuðum fyrir margar vinnufúsar hendur. Hár verði allt til staðar „Slysavarnafélag Islands hefur lagt fram 1,5 milljónir króna til þessa verkefnis. Nær sömu upphæð höfum við lagt fram af okkar eigin aflafé auk vinnu. Við viljum sjá þann draum rætast að við verðum svo vel útbúin tækjum og öllum öðr- um búnaði til hjálpar- og björgunar- starfa að fólk geti komið til okkar í þeim fötum sem það er þegar það er kallað út. Hér verði allt til staðar sem á þarf að halda hvaða verkefni sem það svo er sem sinna þarf við útkall,“ segir Eysteinn Gunnarsson. QIB0 húsgögn ® (iL00'(EB0'llC00’(M3‘CI00‘QI00’QiB0'Qi00’(jL[03 Domino hornsófí kr. 67.890 stgr. Stóllinn ehf. Smiðjuvegi 6d, Kópavogi 1 sími 554 4544 RAÐGREIÐSLUR ^MPAÐGPEWSLUP TIL SA MÁNAOA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.