Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1995, Síða 76
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
550 5000
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995
íslendingur bjargar Færeyingum úr salmonelluvandræðum:
Sér Færeyingum fyrir
Vestmannaeyjar:
Löggan
stöðvaði
boxæfingar
DV, Vestmannaeyjum:
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Kaldi eða stinningskaldi
Á morgun verður sunnan- og suðvestanátt, kaldi eða stinningskaldi. Skúrir verða sunnan- og vestanlands en þurrt og
bjart norðan- og austanlands.
Á mánudaginn verður sunnan- og suðvestankaldi eða stinningskaldi. É1 eða slydduél verða sunnan- og
vestanlands en úrkomulaust norðan- og austanlands.
Veðrið í dag er á bls. 77
Jólagetraun
DV lýkur á
mánudag
Nú er eins gott að allir miðarnir
úr jólagetrauninni séu á vísum stað
því að 12. og síðasti hlutinn verður
í blaðinu á mánudag. Þá verður
jafnframt tilkynnt um skilafrest og
hvert á að senda lausnirnar.
Þátttakendur í jólagetrauninni
eiga möguleika á að vinna einn
hinna 19 glæsilegu vinninga sem í
boði eru. Verðmæti þeirra nemur
samtais hálfri milljón króna.
Dularfullt
dufl
CþapereinsgottX
AÐ HANN SENDI ]
FÆREYINGUM EKKi I
ÍSLENSK SVIÐ! J
-=y
Lögreglan stöðvaði boxæfingar í
heilsuræktarstöðinni Hressó í Vest-
mannaeyjum nú í vikunni. Lög-
reglumenn höfðu haft spurnir af að
4-5 menn væru að æfa hnefaleika í
Hressó. Þegar þeir komu á staðinn
var æfing að hefjast og voru 2 menn
með boxhanska í töskum sínum.
„Samkvæmt lögum er bannað að
kenna, æfa, keppa og sýna box og
óheimilt er að eiga áhöld tO æfinga.
Þar er átt við boxhanska. Þetta er í
annað sinn á tveimur árum sem slíkt
mál kemur upp í Eyjum og í báðum
tilfellum stóð sami aðili að þeim,“
sagði lögreglumaður við DV.
Eigendur Hressó segja að boxæf-
ingarnar hafi ekki verið á þeirra veg-
um. Þeir hafi aðeins leigt strákunum
salinn. Ekki útvegað þeim þjálfara
eða búnað til boxæfinga. -ÓM
Gunnar Kristjánsson með önd í Hagkaupsverslun í Reykjavík þar sem kílóið er á 729 krónur. Hann seldi Færeying-
um tuttugu tonn í heildsölu á 370 krónur kílóið og bjargaði þar með jólum frænda vorra sem ekki búa við innflutn-
ingshöft á landbúnaðarafurðum. DV-mynd BG
Togarinn Hoffell SU kom í gær
með torkennilegt dufl til Fáskrúðs;
fjaröar. Af lýsingum að dæma gæti
verið um æfingadjúpsprengju að
ræða en enginn var þó viss í þeirri
sök.
Sprengjusérfræðingar Landhelg-
isgæslunnar fóru austur í gærkvöld
að kanna málið en af lýsingum að
dæma mátti búast við að um hættu-
legan grip væri að ræða.
Duflið var geymt um borð í togar-
anum en það kom í vörpuna suð-
austur af Hvalbak. -GK
8-9 þúsund jólaöndum
- selur þeim fuglakjötið á 370 krónur kílóið
Sunnudagur
„Þetta er lítil og skemmtileg jóla-
saga sem endar vel. Þó að tíminn
hafi verið naumur fyrir jólin náði
ég að sjá Færeyingum fyrir 20 tonn-
um af jólaöndum. Þetta eru 9-9 þús-
und fuglar og því voru Svíar undr-
andi á að 45 þúsund manna smá-
þjóð borðaði svo mikið af öndum
um jólin,“ sagði Gunnar Kristjáns-
son, verslunarmaður hjá Icetrade í
Gautaborg, í samtali við DV.
Illa leit út með að Færeyingar
fengju jólaöndina sína í ár þar sem
nýlega var sett bann á innflutning
anda frá Danmörku eftir að
salmonellusmit kom upp. Gunnar
sagði að smitið hefði verið svo út-
breitt að í einni prufúnni hefðu
fúndist 39 sýktir fuglar af 43. Eftir
að innflutningsbannið kom upp á
öndum frá Danmörku útvegaði
hann endur frá Svíþjóð.
„Þetta er ótrúleg andasala. Ég
hef verið að senda þeim þetta á síð-
ustu tveimur vikum og það getur
verið að gámur fari í næstu viku,“
sagði Gunnar.
Aðspurður um verðið sagði
Gunnar að Færeyingar borguðu
um 370 krónur fyrir andakflóið í
heildsölu. Það væri hins vegar selt
á tæplega 600 krónur kílóið í versl-
unum í Færeyjum.
Tfl samanburðar kostar kílóið af
önd í Reykjavík um 729 krónur.
Gunnar sagði að hann gæti ábyggi-
lega útvegað endur frá Svíþjóð á
sama verði til íslands •»- vandamál-
ið væri hins vegar innflutnings-
höft íslenskra yfirvalda. -Ótt
AMSUN
-gi 11
Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888
Grœnt númer: 800 6 886