Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996
fólk
Guðjón Vilhjálmsson er nýja stjarnan í sýningunum hjá Calvin Klein í Bandaríkjunum:
Gullfallegur strákur og
bambino" tískuheimsins
-er fullkominn og öruggt að hans bíður mikill frami, segir umboðsmaður hans í New York
Tvítugur íslenskur piltur, Guðjón
Vilhjálmsson, er nú staddur í New
York þar sem hann stendur í samn-
ingaviðræðum við hinn heims-
þekkta tískurisa Calvin Klein um að
starfa sem fyrirsæta hjá fyrirtæki
hans og sýna hönnun þess.
„Hann á mikla möguleika á að
verða eitt heitasta andlitið í dag“
sagði Ásta Kristjánssdóttir hjá Esk-
imo models, en sú skrifstofa hefur
séð um málefni Guðjóns, en hann
hóf feril sinn hér á landi.
Síminn hefur ekki
stoppað
„Þeir úti eru alveg æstir í hann“
sagði Ásta „við höfum verið að
senda myndir af honum út og sím-
inn hefur ekki stoppað síðan, við er-
um að fá símtöl frá Bandaríkjunum,
Evrópu, Japan og víðar. Hann er
búin að vera að vinna í Evrópu und-
anfarið en eftir að mennirnir frá
Calvin Klein sáu myndirnar þá
voru þeir ekki rólegir fyrr en þeir
fengu hann út til sín.“
DV náði tali af Guðjóni í New
York og var hann hinn rólegasti
yfir þessu öllu. Hann sagði samn-
inginn ekki enn vera staðfestan en
allt virtist lofa mjög góðu. Guðjón
hefur ekki áður starfað í Bandaríkj-
unum en er búinn að vera að vinna
fyrir umboðsskrifstofuna Face við
gerð auglýsingaherferða og við sýn-
ingar. „Ég get ekki kvartað, allt hef-
ur gengið mjög vel en þetta verður
það stærsta hingað til“ sagði Guð-
jón. „Þetta lítur vel út en maður
veit aldrei með Calvin Klein, hann á
það til að skipta um skoðun á síð-
ustu stundu. Þess vegna vil ég ekki
taka þetta sem öruggt fyrr en ég er
búinn með verkefnið. Það kemur
allt i ljós í þessari viku.“
Datt bara inn í þetta af
slysni
En er þetta ekki ansi erfitt ? „Jú,
svolítið. Ég fór til Parísar í apríl,
kom í síðustu viku til íslands og
kom síðan beint hingað. Þetta er
svona frekar erfitt þar sem ég er
heimakær og á fjölskyldu og kær-
ustu heima.“
Hvernig kom fyrirsætustarfið til?,
,Ég fór með kærustinni minni á
skrifstofu Módelsamtakanna, hana
langaði í þetta og ég var bara að
fylgja henni og þannig komst ég inn
í þetta. Síðan hitti ég fólk frá Mílanó
og París og þá fór allt af stað. Það
var síðan í París sem ég hitti fólkið
frá Bandaríkjunum, þannig að þetta
hefur hlaðið allt upp á sig.“
Hvað hefur Guðjón hugsað sér að
vera lengi í fyrirsætubransanum ?
„Ég er búin að vera í þessu í hluta-
vinnu í u.þ.b. ár en það er nú fyrst
sem ég er að fara út í þetta af ein-
hverri alvöru. Nú er ég að kynna
mig og hitta fólk og það virðist vera
einhver áhugi fyrir mér hérna. Ég
er að sýna mig og það kemur í ljós
núna í vikunni hvernig viðbrögðin
verða, en hingað til hafa þau verið
mjög góð. Ef allt gengur síðan vel þá
nota ég veturinn í þetta og sé hvern-
ig gengur" sagði Guðjón og var
mjög hógvær og rólegur yfir öllum
látunum þrátt fyrir að honum sé
spáð glæsileg framtíð í tískuheimin-
um.
Við elskum hann!
DV ræddi einnig við fulltrúa hjá
Stórlaxar fyrirsætuheimsins segja Guðjón Vilhjálmsson vera hið fullkomna karlmódel og hann muni eiga framtíöina
fyrir sér. Stórnöfn í tískuheiminum á borð viö Calvin Klein og Ralp Lauren sýna hinum tvítuga íslending mikinn
áhuga.
alltaf óskaplega rólegur og lítið
fyrir að trana sér fram.“ sagði
Jóhanna Sigríöur Guðjónsdóttir
móðir hans og er hin rólegasta
yfir velgengni sonarins. „Hann
var ekkert fyrir að láta taka af sér
myndir sem barn en þótti mjög fal-
legt barn. Það stefndi ekkert í þessa
átt, það komu bara til óvæntir hlut-
ir.
Áður en fyrirsætuferillinn hófst
var Guðjón í Fjölbrautarskólanum í
Breiðholti og vann líka í Hagkaup.
Þar beið hans vinna þegar hann
kom frá París en nú hefur hann
sleppt henni, enda kominn inn á
töluvert aðrar brautir.
„Þetta er sérstakur heimur" sagði
einn viðmælenda
blaðsins sem þekk-
ir bæði til Guðjóns
og tískuheimsins.
„Hann er ákveðinn
og rólegur og fer
sínar leiðir, hafi
hann tekið ákvörð-
un verður því ekk-
ert breytt. Þetta
eru ólíkar borgir
Guöjón þykir
myndast sér-
lega vel enda
berast fyrir-
spurnir um
hann
hvaðanæva að
úr heiminum.
Reykjavík, nánar til-
tekið í Seljahverfinu
i Breiðholtinu.
„Hann var
Guðjón er fæddur og uppalinn í
Lauru Lightbody sem er eftirsóttur
umboðsmaður í New York og sér
um málefni Guðjóns þar í borg. Þar
á skrifstofunni átti fólk vart til orð
til að lýsa ágæti Guðjóns.
„Hann er fullkominn og hefur allt
sem til þarf. Við erum öll yfir okkur
hrifm af honum. Hann er fyrsta
flokks módel og það er öruggt að
það bíður hans mikill frami.
Nú þegar er orðin mikil eftir-
spum eftir honum og það
eru allt kúnnar af svip-
aðri stærðargráðu og Cal-
vin Klein sem vilja fá
hann til liðs við sig. Hann
er gullfallegur strákur með
frábæran persónuleika sem
hefur óendanlega möguleika,
hann á eftir að verða þekktur út
um allan heim. Við höfum mikla
trú á honum, hann hefur allt sem
til þarf til að fara á toppinn."
Lítið fyrir að
trana sér fram
sem hann hefur verið að vinna í en
hann er að sjóast. Hann er það jarð-
bundinn að hann á alveg að geta
tekist á við þennan heim. Þetta er
nefnilega hörð vinna.“
Bambino
fyrirsætuheimsins
Guðjón er einn af fáum íslensk-
um karlmönnum sem hafa starfað
sem fyrirsætur á alþjóðamæ-
likvarða og örugglega einn af þeim
allra yngstu. Reyndar er hann í
yngri kantinum hvað karlmódel
varðar, aðeins tvítugur, enda eru
þeir flestir milli 25 og 30 ára. Á ítal-
íu var hann langyngstur karlmódel-
anna og því almennt kallaður
„bambino“ eða bamið.
Guðjón á kærustu hér heima sem
fylgist með öllu sem er að gerast.
Hún heitir Rebekka Sif Kaaber og
er 19 ára verzlunarskólamær sem
vinnur i sumar í bakaríi. Það var
einmitt í gegnum hana sem Guðjón
byrjaði í þessu en hún reyndist of
lágvaxin i fyrirsætustörf. Þau eru
búin að vera saman í tvö og hálft ár
og trúlofuðu sig síðan fjórða júlí í
fyrra. Svo óheppilega vildi til að
Guðjón var í París á eins árs trúlof-
unarafmælinu.
Fer utan
til hans
Hvernig er að hafa kærastann
svona á flakki út um allan heim ?
„Ég er ekkert yfir mig hrifín af því,
ég sakna hans og fer líklega með
honum út til New York í september.
Að vísu þýðir það að ég verð að
hætta í skólanum en ég á bara eitt
ár eftir þar en ég vil fara með hon-
um. En ailt er óákveðið, kannski
förum við bara ekki neitt. Við
hringjumst bara á á fullu þangað til,
ætli símreikningurinn verði ekki
svona 70 til 80 þúsund" segir
Rebekka og hlær. Voru þau farin að
búa?
„Nei viö höfum búið heima hjá
mér en ef það kemur góður pening-
ur út úr þessu þá myndum við vilja
kaupa okkur íbúð“. Eru launin ekki
rosaleg?
„Jú þau eru ágæt en umboðsskrif-
stofurnar taka mikið. Þessi í París
tók t.d. 70% af öllum tekjum og síð-
an þurfti hann að greiða leigu,
prufumyndatökur, uppihald og allt
annað fyrir sín 30%. Þetta er mjög
erfitt. En sýningarstörf í New York
borga vel svo þetta ætti allt saman
að ganga.“ Ætla þau að búa á ís-
landi? „Ég veit það ekki. Þeir vilja
hann aftur út til New York í septem-
ber og ef allt heldur áfram að ganga
svona vel þá verðum við þar eitt-
hvað áfram. Ég sakna hans mikið
og ætla örugglega með næst.“
Fallegri að innan
Er hún ekkert óróleg að vita af
honum þarna innan um allar fyrir-
sæturnar? „Nei, alls ekki. Hann er
yndislegur og góður, hefur meiri
innri fegurð en ytri og það er hægt
að treysta honum 100%. Honum
finnst þetta ekkert æðisgengið og er
lítið hrifm af að vera með meik og
svoleiðis framan í sér. En það er
sennilega út af því hvað hann er lít-
ið að sýna sig að honum gengur
svona vel. Hann er bara hann og
það er það sem gengur. Ralph
Lauren er t.d núna með áhuga en
við tökum bara öllu með ró.“
-ggá