Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Side 51

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Side 51
LAU'GARDAGÚR 20. JÚLÍ 1996 KVikmyfídir 59 Kynþokkafulli Brad Pitt: Við sáum Kyntáknið Prad Pitt hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn á stutt- um tíma. Á internetinu er hann kallaður kynþokkafyllsti núlifandi maður veraldar. I síðustu mynd sinni reynir hann að afmá þann stimpil að vera ljóshærði súkkulaðisæti drengurinn. Um er að ræða kvikmyndina Devil’s Own sem hann leikur í ásamt Harrison Ford. í myndinni leikur Brad íra nokkurn sem lögreglumaður (Ford) tekur að sér. Fortíð írans er síður en svo rósum stráð sem kemur þeim báðum í eldlínuna. Myndin er tekin upp í New York og verður bráðlega frumsýnd i Bandaríkjun- um. Hjartaknúsarinn er 33 ára en HVERNIG VAR MYNDIN? & Personal Eufemía Berglind Guðnadóttir: Mér þótti þessi mynd mjög góð. Alveg hreint frábær. Soffía Briem: Hún var bara alveg ágæt að mínu mati. Mjög vel leikin og allt það. Ingibjörg Briem: Mér fannst þessi mynd allt í lagi en hún var ekkert sérstök. Gottskálk Gizurarson: . Myndin kom mér á óvart. Mér fannst hún mjög skemmtileg og finnst að allir ættu að sjá hana. i H hann fæddist 18. desember árið 1963 í Shawnee í Oklahoma. Foreldrar hans eru þau Bill og Jane Pitt. Hann ólst upp í Springfield í Misso- uri. Þar líkaði honum vel og fólkið talar mjög vel um þennan sæta strák sem það Á þekkti. Brad er elstur þriggja systkina en , '/■ á ' bróðir hans Doug og )| systir hans Julie eru bæði gift. Brad var alls ekki hafinn yfir það að stríða bróður | og var óham- æsku. hætti í þeim íþróttum sem honum leiddust. Brad segist vera einn af fáum sem hefðu átt frábæra fjöl- skyldu. Þó sagði hann þeim ekki að hann hefði hætt í mennta- skóla áður en hann út- skrifaðist heldur lásu þau ólina yngri sínum frekar inn í Hann strax það í blöðunum. Fjölmiðlamaðurinn Brad Brad fór í fjölmiðlaskóla í Col- umbia háskólanum í Missouri og sérhæfði sig í auglýsingafræðum. Hann lauk þó aldrei prófi en að sögn prófessors sem kenndi honum við skólann stóð hann sig vel. Brad var alinn upp sem baptisti. Hann seg- ist þó sjálfur hafa snú- ið sér frá þeirri trú þegar á menntaskóla- árunum. Hann segist hafa trú en vill ekki fara nán- ar út í hana. Brad söng í kirkjukórn- um og þeir sem til þekkja sögðu að enginn hefði getað haft af honum augun þvi hann hefði ver- ið svo fal- legt barn. Brad viðraði óskir" sínar um að gerast' leikari í Hollywood' fyrst við vini sína þegar' þeir héngu niðri við vatnið í heimabæ sínum og slæptust. Hlutverkin stækka Áhorfendur muna áreiðanlega eftir Brad Pitt í kvikmyndinni Thelma and Louise en það var langt frá því að vera fyrsta myndin sem hann lék í. Áður hafði hann leikið í myndunum Cutting Class 1989, Happy Together 1989 og Across the Tracks 1991 sem óþekktur leikari. Eftir það lék hann í Cool World 1992 og Johnny Suede 1992, svo og í kvikmyndinni A River Runs through It þar sem hann lék sykur- sætan strák, þannig að hann hefur aldeilis haldið sig við efnið. Hann lék einnig í myndunum California 1993, True Romance 1993 og The Favor 1994. Það var ekki fyrr en í - Interview with the Vampire 1994 sem almennilega var tekið eftir Brad þegar hann lék á móti Tom Cruise. í Legends of the Fall lék hann meðal annars á móti stórleik- aranum Anthony Hopkins. í því hlutverki heillaði hann konur um allan heim og hefur kyntáknsstimp- illinn loðað fast við hann síðan. Á Internetinu er fjöldi síðna með myndum af goðinu og hægt er að berja hann augum með sítt hár, stutt hár, dökkt og ljóst og allt þar á milli fyrir þá sem hafa áhuga. -em Brad Pitt fagur sem grískur guð með Ijóst hár og skegg. Independence Day frumsýnd í fimm kvik- myndahúsum Aðsóknarmesta kvik- mynd vestanhafs um þessar mundir, Independence Day, verður frumsýnd hér á landi 16. ágúst og frumsýn- ingardagurinn ætti ekki að fara fram hjá neinum því myndin verður frumsýnd í fimm kvikmyndahúsum; í Reykjavík í Regnboganum, Háskólabíói, Laugarásbíói og Stjömubíói og á Akur- eyri í Borgarbíói. Með því að sýna í þessum fjölda kvikmyndahúsa í höfuð- borginni er reynt að koma þvi þannig fyrir að hægt er að fara að sjá myndina á klukktíma fresti eftir að sýn- ingar hefjast dag hvern. Streisand leikur og leikstýrir Það hefur ekki mikið farið fyrir Barbra Streisand frá því hún lék og leikstýrði í The Prince of Tides. En hún ;r nú komin af stað með nýja nynd, The Mirror Has Two ?aces sem hún að sjálfsögðu leikstýrir. Um er að ræða rómantíska gamanmynd þar sem Streisand leikur háskólaprófessor sem tekur upp á því að breyta útliti sínu. Það eru engir aukvisar sem leika á móti henni. Jeff Bridges leikur eig- inmann hennar og Pierce Brosnan aðdánda hennar. Leyniþjónustumynd úr kalda stríðinu Kvikmyndin Mission Impossible var frumsýnd í Bandaríkjunum við góðar undirtektir fyrir stuttu enda kostaði myndin hvorki meira né minna en 64 milljónir Bandaríkja- dala. Kvikmyndin fjallar um fyrrum rússneskan njósnara sem selur al- þjóðlegt hugvit á svarta markaðn- um. Myndin er tekin upp í Prag og á Englandi. Myndin er byggð á sjónvarpsser- íunni meö sama nafni sem Bruce Geller skapaði. Söguna skrifuðu David Koepp og Steven Zaillian. Tom Cruise leikur aðalhlutverkið og er jafnframt annar framleiðandi myndarinnar ásamt Paulu Wagner. Mission Impossible er fyrsta mynd- in sem fyrirtækið Cruise/Wagner framleiðir en það var stofnað árið 1992. Meðleikarar Toms eru Jon Voigt, Emmanuelle Beart, Henry Czerny, Jean Reno, Ving Rhames, Kristin Scott-Thomas og Vanessa Redgrave. Leikstjóri myndarinnar er Brian De Palma. Tom hyggst halda áfram að fram- leiða Tom Cruise segir að fyrirtæki hans hyggist í framtíðinni einnig framleiða myndir sem hann leiki ekki í sjálfur og segist tilbúinn i slaginn aftur. Hann þurfti þó að að- skilja þessi tvö hlutverk að leika og framleiða þannig að álagið var mik- ið á meðan tökur stóðu yfir. Tom lýsir Ethan, sem er aðalper- sónan, sem manneskju sem hefur meiri andlegan styrk en líkamlegan. Hann getur hugsað sig inn og út úr aðstæðum en það er mjög mikilvægt fyrir hann, segir Tom. „í svona spennutryllum verður áhorfandinn að trúa því að aðalpersónan gangi í gegnum helviti. Leikarinn verður að fá áhorfandann til þess að skilja að lífíð sé að hrynja undan fótum hans og að aðstæður komi til með að mala hann,“ segir Tom. Hann segir jafnframt að til þess að sagan gangi þurfi áhorfandinn að trúa þessu. Hann vonast til þess að það hafi tekist í myndinni. Veik persónusköpun Gagnrýnendur eru þó ekki allir á sama máli. í gagnrýni frá Los Ang- eles Times segir að persónusköpun sé alls ekki nógu sterk. Áhorfendur kynnast aðalpersónunni lítið og hinum persónunum minna. Gagn- rýnandinn er ósáttur við hlut Em- manuelle Becirt í myndinni þar sem hún á eingöngu að vera falleg. Be- art er ein af rísandi stjörnum Frakka en hún hóf feril sinn árið 1983. Síðan hefur hún leikið í mörgum myndum og kannast ís- ^ lenskir áhorfendur kannski við hana úr Une Femme Francaise eða Frönsk kona. Mission Impossible er af gagnrýnendum álitin góð afþreying enda hvernig ætti annað að vera þar sem hún kostaði 64 millj- ónir Bandaríkjadala, eins og fyrr segir. Margt mælir með myndinni eins og per- sónutöfrar Tom Cruise, frábær leikstjórn og mátu- lega mikið af spennu, sam- _ V Tom Cruise ásamt Jon Voight og Emmanuelle Beart í hlutverkum sínum í Mission Impossible. Tom Cruise í hlutverki Ethans í Mission Impossible. kvæmt gagnrýni Los Angeles Times. Sumir gagnrýnendur telja að of mikið sé gert af því að gera kvik- myndir eftir sjónvarpsmyndum. Einn gagnrýnenda tók þannig til orða að Mission Impossible gæti aldrei orðið neitt annað en augna- konfekt til afþreyingar. Sambíóin og Háskólabíó taka Mission Impossible til sýningar 26. júlí. -em

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.