Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1997, Blaðsíða 2
2
*%éttir
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 JL>V
Byggðamálaráðstefna Framsóknarflokksins:
Stundum mætti halda að
hamingjan byggi í Reykjavík
- en svo er alls ekki, segir Halldór Ásgrímsson, formaður B'ramsóknarflokksins
„Við ernm meðal annars að ræða
hér aukna möguleika með upplýs-
ingatækni. Það skiptir orðið minna
máli en áður hvar störfm eru unn-
in þegar ljósleiðari er kominn í
hvert hús í landinu. Við erum að
ræða þátt erlendrar fjárfestingar
við uppbyggingu í landinu sem og
skipulag opinberrar þjónustu. Þá
er hér ræddur hinn huglægi þáttur
málsins. Okkur íinnst að kostir bú-
setu í dreifbýli séu í alltof litlum
mæli dregnir fram í dagsljósið. í
umræðunni er dregin upp neikvæð
mynd og það mætti stundum halda
í þeirri umræðu að hamingjan
byggi í Reykjavík. Svo er alls ekki.
Kostir búsetu úti á landi eru mjög
margir," segir Halldór Ásgrímsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sem í gær hélt mikla byggðamála-
ráðstefnu.
„Ástæða þess að við höldum
þessa ráðstefhu er sú aö viö viljum
fara yfir þessi mál með skipulögð-
um hætti. Hér i dag erum við fyrst
og fremst að safna saman upplýs-
ingum um staðreyndir málsins og
hefja könnun á því hvaða leiðir eru
til úrbóta. Við erum sannfærð um
að sú þróun sem bæði á sér nú stað
og er framundan er mjög kostnað-
arsöm fyrir samfélagið. Ef fólki
heldur áfram að fækka víða úti um
land munu margvíslegar fjárfest-
ingar ekki nýtast í framtiðinni. Það
er að okkar mati nauðsynlegt að
leita svara við því hvort og hvem-
ig þessari þróun verði snúið viö,“
sagði Halldór.
Hann veir spurður hvort þessi
ráðstefna væri haldin vegna þess
að Framsóknarflokkurinn, sem
fyrst og fremst hefur verið lands-
byggðarflokkur, væri hræddur um
sinn hag.
„Við erum ekkert hrædd um eig-
in stöðu, enda er það ekki það sem
skiptir meginmáli. Við teljum það
hins vegar skyldu okkar að sinna
landsbyggðarmálunum og teljum
það jafhframt skyldu annarra
stjómmálaflokka.“
- Því hefur oft verið haldið fram
að það sé mjög dýrt fyrir þjóðfélag-
ið að halda uppi byggð í mörgum
smáþorpum hlið við hlið eða á ystu
annesjum. Þarf ekki að þétta
byggðina?
„Það er líka dýrt að byggja upp
Körfubölti:
Reynir hættur
með Haukana
Reynir Kristjánsson sagði í gær
af sér sem þjálfari úrvalsdeild-
arliðs Hauka í körfuknattleik. í
fréttatilkynningu, sem Reynir
sendi frá sér í gær, sagði hann:
„Ástæður uppsagnarinnar eru
stórkostlegar vanefndir
Körfuknattleiksdeildarinnar á
ráðningarsamningi mínum ásamt
misjöfnu gengi liðsins í vetur. Sér-
staklega hefur gengi liðsins frá
áramótum verið óásættanlegt."
-VS
Stöðvadeilan:
RLR vísaði
máiinu frá
RLR hefúr vísað frá máli fjög-
urra fyrrverandi yfirmanna á Stöð
2 sem kærðir vora til RLR sl. laug-
ardag.
„Við eram auðvitaö ánægðir
með þessa niðurstöðu enda vissum
við allan tímann að viö væram
með hreinan skjöld í málinu. Við
vorum kærðir fýrir þjófnaö en það
liggur nú Ijóst fyrir að við erum
engir þjófar. Ég á ekki von á öðru
en að þessu máli sé nú endanlega
lokið," segir Magnús E. Kristjáns-
son, sjónvarpsstjóri á Stöð 3 og
einn fjórmenningana sem kærðir
vora.
í fréttatilkynningu frá íslenska
útvarpsfélaginu segir að RLR hafi
afhent fulltrúum félagsins megin-
hluta þeirra gagna sem það taldi
vera í fórum starfsmannanna fyrr-
verandi.
-RR
„Þetta er upphafið," segir Hjörleifur Alfreðsson, stýrimaður á Faxa RE, sem kom með fyrstu loðnu ársins til Reykja-
víkur í gær, alls 560 tonn. Þetta er góð og átulftil loöna, aö sögn verksmiðjustjóra f fiskimjölsverksmiöju Faxamjöls.
DV-mynd Sveinn
Fyrsta loðna ársins til Reykjavíkur:
Faxi landaði 560
tonnum hjá Faxamjöli
- þetta er upphafið, segir stýrimaðurinn á Faxa
„Við fengum loðnuna í sex köst-
um um 100 mílur austur af Homa-
firöi, hún kom upp og við náðum
henni í nótina. Þetta er ágæt loöna,
gott síli og átulítil. Veiðin er búin
að ganga djöfullega hingað til
þannig að þetta er upphafiö," segir
Hjörleifur Alfreðsson, annar stýr-
imaður á Faxa RE, sem landaði
fyrstu loðnunni á árinu, 560 tonn-
um, hjá verksmiðju Faxamjöls í
Örfirisey í Reykjavík í gær.
Kjartan Ólafsson, verksmiðju-
stjóri í loðnubræöslu Faxamjöls,
sagði að loðnan, sem Faxi kom með,
væri ágæt til bræðslu og átulítil.
Hins vegar væri ljóst að hún ætti
talsvert í land með að veröa fryst-
ingarhæf, hrognin væru ekki orðin
nægjanlega þroskuð. Kjartan segir
að þessi fyrsta loðna sé um. mánuði
fyrr en var á síðasta ári en þá kom
fyrsti farmurinn 14. febrúar.
-SÁ
Hús rýmd á Seyðisfirði og Sigló:
Snjóflóö féll
úr Bjólfinum
- enn hættuástand á báðum stöðum
Snjóflóð féll úr Bjólfinum við
Seyöisfjörð í fyrrinótt. Snjóflóöið
kom niður um 2 kílómetra frá
bænum og stöðvaðist í gili rétt fyr-
ir ofan veginn. Snjóflóöið er taliö
hafa verið um 200 metra breitt.
Ekkert tjón eða mannskaöi varð af
völdum flóðsins en þaö stefndi
beint á verksmiðjuhúsnæöi Vest-
dalsmjöls sem er hinum megin við
veginn.
Hættuástand var enn á Seyöis-
firði og Siglufiröi í gærkvöld
vegna viðvarandi snjóflóðahættu.
Að sögn Lárusar Bjamasonar,
sýslumanns á Seyðisfirði, hófust
aögerðir þar samkvæmt hættustigi
í neyðaráætlun rétt fyrir hádegi á
fimmtudag. Farfuglaheimilið í
bænum var þegar rýmt en þar inni
voru sex gestir auk gestgjafanna.
Voru gestir fluttir á gamla sjúkra-
húsið í bænum.
Á Siglufiröi voru 10 hús rýmd
um klukkan 19.30 i fyrrakvöld
vegna snjóflóðahættu. 39 íbúar búa
í húsunum og voru þeir fluttir á
hótelið eöa til vina og ættingja.
-RR
Læknanemum fjölgað um 9
- og tannlæknanemum um 6-7
Háskólaráð ákvað á fundi sínum í
gær aö hleypa 9 nemum til viöbótar
inn í læknadeildina en fjöldatak-
markanir segja til um vegna mistaka
sem urðu við tímavörslu í einu próf-
anna í desember. Fyrsta árs nemam-
ir, sem fá að halda áfram námi, veröa
því 39 talsins að þessu sinni í stað 30
eins og verið hefur.
Mistökin urðu í efnafræðiprófi
nemanna og fólust í því að hluti nem-
enda fékk lengri tíma en hinir til að
ljúka prófmu. Af þeim sem fengu
lengri tíma náðu hlutfallslega fleiri
prófinu.
Fleiri tannlæknanemar
Á fundi ráðsins var enn fremur
ákveðið að leyfa þeim nemum tann-
læknadeildar sem náðu prófi í form-
fræði að halda áffarn þannig. að á
vormisseri verði nemendumir 8-9
talsins í stað þeirra tveggja sem voru
þeir einu sem náðu nýloknum próf-
um. Sex til sjö nemendur til viöbótar
fá því að spreyta sig og keppa um þau
fjögur sæti sem laus eru. Þeir verða
svo að ná öllum prófúm, sem væntan-
lega verða í ágúst, og tilskilinni aðal-
einkunn til að fá að halda áfram.
-ingo
Umhverfisráðuneytið bíður enn
Skýrsla sú sem umhverfisráðuneyt-
ið kallaði eftir hjá Hollustuvemd rík-
isins um mengunaróhöpp hjá jám-
blendiverksmiðjunni á Grundartanga
undanfama mánuði og ár er enn í
vinnslu.
Ráðuneytið kallaði eftir skýrslunni
í síðustu viku en vegna mannfæðar
hefur ekki tekist að ljúka henni enn
þá, en þess er vænst að hún verði til-
búin í næstu viku, að sögn Ólafs Pét-
urssonar, deildarstjóra mengun-
ardeildar stofiiunarinnar.
^ -SÁ
margvíslega þjónustu í þéttbýli.
Það þarf dýrari samgöngumann-
virki, dýrari frárennslismannvirki.
Það er meiri mengun og svona
mætti áfram telja. Við megum held-
ur ekki gleyma því að margvísleg
þjóðfélagsvandamál era kostnaðar-
samari þar sem fólkið er flest. Það
er meira um glæpi og meira um eit-
urlyfjaneyslu, svo að dæmi séu tek-
in. Ég vil einnig benda á að það er
rangt að dýrara sé fyrir samfélagið
að fólk búi úti um land,“ sagði Hall-
dór Ásgrímsson. -S.dór
Stuttar fréttir
Lukkuleyfi
Enn á ný gefst Islendingum
kostur á að taka þátt í „happ-
drætti" um innflytjendaleyfi til
Bandaríkjanna, svokallað
lukkuleyfi. Umsóknir má senda
bandaríska sendiráðinu frá 3.
febrúar til 5. mars nk.
Mótmælaferö
Mótmælaferð gegn álveri
verður farin til Reykjavíkur í
dag. Hefst hún við Akranes-
vegamót kl. 11 og lýkur með úti-
fundi við Amarhól kl. 14. Finni
Ingólfssyni ráðherra verður af-
hend greinargerö frá andstæð-
ingum Grundartangaálversins.
Umhverfisverölaun
Auglýst hefur verið eftir um-
sækjendum um evrópsku um-
hverfisverðlaunin 1997, Prinsa-
verðlaunin svokölluðu, sem af-
hent veröa 5. júní nk. Vigdís
Finnbogadóttir situr í heiðurs-
nefnd verðlaunanna.
Bæjarstjórinn hsttir
Samkomulag hefúr orðið um
að Gísli Ólafsson, bæjarstjóri
Vesturbyggðar, hættir störfum
um stundarsakir. Jón Gauti
Jónsson tekur við starfi hans
samkvæmt RÚV.
Sleppt lausum
Tveimur mönnum af sjö, sem
verið hafa í gæsluvarðhaldi
vegna stóra hassmálsins, var
sleppt lausum í gær. Sömuleið-
is var manni sleppt úr varð-
haldi sem tekinn var á dögun-
um með falsaða sænska seðla
og fíkniefni í fóram sínum.
iökulsbréf uppseld
Öll hlutabréf í útboði Jökuls
hf. á Raufarhöfii seldust upp og
fjölgaði hluthöfum um 114. Um
var að ræða 20 milljónir króna
á genginu 5,0. Kaupendur voru
einkum stofnanafjárfestar og
einstaklingar.
Fundað um sæstreng
Fulltrúar íslenskra stjórn-
valda, Icenets-hópsins svokall-
aða og þýskra og breskra aðila
vegna athugunar á lagningu
sæstrengs verður líklega hald-
inn í Reykjavík í mars nk. Sam-
kvæmt Bylgjunni var hist í
Hollandi í vikunni þar sem
málin voru rædd.
Milljarösvelta
Óvenjumikil velta var á
Verðbréfaþingi íslands í gær,
eða upp á 1.200 milljónir króna.
Þar af vora 840 milljóna við-
skipti með rikisvíxla.
-bjb