Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1997, Blaðsíða 64
KIN
Wjj&jýká&lm'
& &
II"
Verta viðbúin[n) 'jicwinai
Vinningstölur
17.01/97
16) (19) (22)
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
Akurnesingar
leggjast ekki
gegn álveri
DV.Akranesi:
Á aukafundi bæjarstjómar Akra-
ness vegna fyrirhugaðs álvers á
Gnmdartanga var samþykkt með at-
kvæðum allra bæjarfulltrúa að leggj-
ast ekki gegn byggingu verksmiðjunn-
ar. Samþykktin var gerð með fyrir-
vara um breytingar á ýmsum ákvæð-
um í tillögum Hollustuvemdar ríkis-
ins að starfsleyfí fyrir verksmiðjuna.
Þá var lögð áhersla á að hert yrði á
eftirlitsþáttum til að minnka líkur á
teljandi mengun og einnig var óskað
eftir frekari rannsóknum á áhrifum
verksmiðjunnar á nágrenni hennar.
Þá var ítrekuð sú krafa bæjarstjómar
að ef svo færi að vatnsból bæjarins
yrði fyrir mengun af völdum verk-
"s smiðjunnar þá væri íslenska ríkið
skaðabótaskylt. Ennfremur var þess
óskað að þegar í stað yrði hafin leit að
öðm vatnsbóli til að leysa hitt af
hólmi ef til kæmi. -DVÓ
íslenska torfæran aö slá í gegn:
Keppnisgengi torfæru-
kappa til Portúgals
- portúgalskur auðmaöur borgar brúsann, um 12 milljónir króna
íþróttafélag í bænum Albufeira í
Portúgal ætlar að halda keppni í ís-
lenskri torfæru um páskana. Allir
keppendurnir, 22 talsins, ásamt
fimm manna áhöfn aðstoðarmanna á
hvem bíl verða íslenskir og bílamir
líka og verður allt úthaldiö flutt út á
kostnað portúgalsks auðmanns og
hóteleiganda í bænum sem er tilbú-
inn að borga brúsann, um 12 milljón-
ir króna.
Keppendur og aðstoðarliðsmenn
þurfa engu að kosta til í fargjöldum,
flutningskostnaði eða uppihaldi en
fá ekki laun önnur en þær auglýsing-
ar sem þeir kunna selja á bíla sína.
Keppnin verður kvikmynduð og síð-
ar sýnd í Eurosport-sjötívarpsstöð-
inni.
„Við erum búnir að vinna okkar
undirbúningsvinnu og þeir í Portúg-
al sína. Það eina sem vantar er að
við fáum í hendur fjárhagslegar
tryggingar en þeirra er vænst í
næstu viku,“ segir Bragi Bragason
hjá Landssambandi íslenskra akst-
ursíþróttafélaga. Hann segir að allir
samningar vegna málsins séu frá-
gengnir og verði undirritaðir um
leið og peningamir veröa sýndir og
bankaábyrgðin frá auðmanninum er
komin. Hennar er vænst um miðja
vikuna. Landssambandið, LÍA, er
þegar búið að semja við alla helstu
torfærukappa landsins og þeir búnir
að undirrita skuldbindingu um að
fari til Portúgals um páskana.
Þessi áhugi í Portúgal fyrir ís-
lensku torfærukeppninni er sprott-
inn af sýningum af henni á sjón-
varpsstöðinni Eurosport en þar hef-
ur hún slegið í gegn og að sögn
Braga hafa í sumar og haust 40-50
milljónir manna séð þættina og þeir
sýndir mun oftar en ætlunin var í
upphafi. íslenska torfæran er enn
sem komið er einungis stunduð hér
á íslandi og í Svíþjóð. -SÁ
Upplýmlngar fri
Sunnudagur
/loksvargagn\
AF ÍSLENSKA
V VEGAKERFINU! J
Enski víkingabardagamaöurinn Phil Burtham mundar hér sverö sitt á vold-
ugan hátt gegn íslenska víkingnum Ágústi Pedersen á æfingu í gær. Um 10
manna hópur íslenskra víkinga æfir fyrir Víkingahátíöina í Hafnarfiröi f sum-
ar. DV-mynd Hilmar Þór
Varnarliðið:
Sprengjuhót-
un til sjúkra-
hússins
„Það var hringt í sjúkrahúsið eftir
hádegi í fyrradag og málið er í rann-
sókn,“ sagði Friðþór Eydal hjá upplýs-
ingaskrifstofu Vamarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli í morgun um sprengju-
hóhrn sem barst til sjúkrahússins.
Samkvæmt upplýsingum DV mun í
hótuninni hafa verið tekið fram að
sprengjan myndi springa klukkan 17 í
fyrradag. Leitað var í sjúkrahúsinu
og þegar ekkert fannst var málið af-
greitt sem gabb. Sjúkrahúsið var ekki
rýmt. Ekki er vitað hver hringdi. -sv
6 tölvum stoliö
Brotist var inn í fyrirtækið Metró-
Normann í Hallarmúla i fyrrinótt.
Þjófamir bratust inn um glugga bak-
dyramegin og stálu sex tölvum úr fyr-
irtækinu.
„Þetta vora allar tölvumar okkar
og því er þetta slæmt og veldur mik-
illi röskun hjá fyrirtækinu,“ segir
Bergur Hjaltason, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins. Þrátt fyrir þetta verður
verslunin opin um helgina. Þjófamir
og þýfið hafa ekki fundist. -RR
Veöriö á morgun:
Bjartviðri og vægt frost
Á morgun veröur suðvestlæg átt, allhvöss um landið norðvestanvert
en hægari annars staðar. Vestan til má reikna með lítils háttar rigningu
eða súld og hita ofan frostmarks en bjartviðri og vægu frosti annars stað-
ar.
Veðrið á mánudag:
Sunnanátt með rigningu
Á mánudaginn er búist við nokkuð hvassri sunnanátt með rigningu um
mestallt land, einkum þó sunnanlands og vestan. Hitinn verður á bilinu 3
til 7 stig.
Veðrið í dag er á bls. 65.
Bardagar æföir fyrir víkingahátíö:
Besti bardaga-
hópur sem ég
hef þjálfað
- segir víkingurinn Phil Burtham
„Það er mjög gaman að þjálfa ís-
lensku strákana. Þeir eru líkam-
lega sterkir og fæddir víkingar.
Þetta er besti bardagahópur sem
ég hef þjálfað/ segir Englending-
urinn Phil Burtham, en hann er
ÓDÝRASTI
____ EINKAÞJÓNNINN
snmzzn
BÍLSKÚRSHURÐA-
OPNARI
Verð kr. 21.834,-
ýbýlavegi 28 Sími 554 4443
staddur hér á landi í þeim tilgangi
að þjálfa hóp íslenskra víkinga
undir bardagaatriði á víkingahá-
tíð í Hafnarfirði.
Phil er foringi í víkingasamfé-
lagi í Englandi sem nefnist Jom-
vikings. Hann hefur æft og þjálfað
þessa bardagalist í 12 ár og hefur
m.a. þjálfað og leikið í fjölmörgum
bíómyndum sem tengjast víking-
um eöa riddurum. Hann lék m.a. í
myndinni First Knight með Sean
Connery og Richard Gere sem
sýnd var i fyrra. Nú hefur hann
nýlega leikið og þjálfað fyrir nýj-
ustu útfærsluna af ívari hlújám
sem breska sjónvarpsstöðin BBC
sýnir um þessar mundir.
-RR