Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1997, Blaðsíða 9
UV LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
1993: Hver græddur
fermetri lands er sigur
„Hver fermetri
lands sem okkur
tekst að græða
upp er sigur fyrir
alla þá sem standa
frammi fyrir
þeirri vá, að allt
að einni smálest af
jarðvegi tapast á
ári á hvert manns-
bam í heiminum. Ef okkur, rétt sunn-
an við heimskautsbaug, tekst að vinna
til liðs við okkur örfoka land, þá er
það sannarlega saga til næsta bæjar,
til annarra landa sem eiga einnig við
jarðvegseyðingu að stríða. Hvar sem
menn koma saman til að fjalla um
ástand jarðar telst það mikil frétt, að
íslendingum hafi tekist að ná þeim
áfanga að grððursetja sextán tré á ári
á hvert mannsbam - og bregða menn
þá gjama á skáldlegan talnaleik."
1994: Fátækt er blettur
á samfálaginu
„Viðfangsefni
handa öllum verk-
fúsum höndmn
hafa verið gæfa
þessarar þjóðar
mestan hluta sjálf-
stæðistímans og
lýðveldisáranna.
Oft hefur meira að
segja skort vinnu-
afl í landinu. En nú kreppir að. At-
vinna er ekki nóg, og framtíðargötum-
ar reynast ekki eins sjálfgengnar til
auðsældar og áður sýndist. Okkur sem
enn njótum fullrar atvinnu hlýtur öll-
um að vera ljóst að atvinnuleysi og sár
fátækt, sem við vitum af, era blettir á
samfélagi okkar, blettir sem okkur ber
siðferðileg skylda til að beita öllum
ráðum til að afmá. Enginn íslendingur
getur unað því að horfa á meðbræður
og -systur líða fyrir atvinnuleysi."
1995: Skorað á stjórn-
málamenn
„Erlendir for-
ystumenn á ýms-
um sviðum hafa á
undanfómum
mánuðum fúllyrt
að það sem ráða
muni úrslitum
varðandi velgengi
einstakra þjóða í
harðnandi sam-
keppni á komandi ámm verði mennt-
un þeirra og þekking. Mitterand, for-
seti Frakklands, skoraði nú á haust-
dögum á alla stjórnmálaflokka lands-
ins að setja menntamál í öndvegi þeg-
ar stefnan yrði mörkuð fyrir næstu
kosningar. Hliðstæða áskomn ber ég
nú fram gagnvart islenskum sfjórn-
málamönnum og bið þá að bera
menntunina sérstaklega fyrir brjósti,
svo kunnátta okkar megi verða kunn
um allan heim svo til verði vitnað.“
1996: I sextándaog
síðasta sinn
„í sextánda og
siðasta sinn á-
varpa ég ykkur
nú, landa mína, úr
þessu sæti og frá
þessum stað. Þessi
ár í embætti for-
seta íslands hafa
verið mér dýr-
mætur tími og oft
til mikillar gleði - svo ríkrar vinsemd-
ar og gestrisni hefl ég notið á ferðum
minum um landið, svo mikinn hlýhug
hefi ég fundið í minn garð, að ekki
mun mér endast aldur til að þakka
það allt sem skyldi. Mest fagnaðarefni
hefur það jafnan verið að fmna hve
mikinn stuðning þau hugðarefni, sem
ég hef borið næst hjarta, hafa hlotið
hjá þjóðinni, þau mál sem ég freistast
stundum til að nefna „yrkjurnar" mín-
ar og snúist mn ræktun lýðs og lands.“
aramótaávörp 9
1997: Hörð samkeppni
um æsku landsins
„Ekki er jafn
sjálfgefið og fyrr
að nýjar kynslóðir
telji eðlilegt að
búa alla sína ævi á
íslandi og gera
okkar fagra land
að ættjörð barna
sinna. Þjóðin á nú
í fyrsta sinn í
harðri samkeppni við heiminn allan
um hug og hjörtu æsku landsins. Úr-
slitum getur ráðið í þeirri glímu að
þau sem nú ráða för í þjóðmálum og
viðskiptalífi, og reyndar allir sem for-
ræði hafa í stofhunum og samtökum,
átti sig í tæka tíð á nauðsyn þess að
opna nýjum kynslóðum braut til
áhrifa á öllum sviðum þjóðfélagsins,
skapa ungu fólki aðstöðu til að geta
hafíst handa við að umskapa ísland.“
• Ótrúlegt verð: 980.000 kr. (3-dyra)
• Arewarúegur og ódýr í rekstri.
• Meiri búnadur, mikil þægindi og aukið öiyggi.
Kaupleigu- eða íónakjörsem létta þér bílakoupin.
• Sterkbyggður á öflugri grind.
Dísilvél með forþjöppu og millikæli gefur rífandi afl.
• Mjög léttkeyrandi með miHa seiglu.
• Verð aðeins 2.180.000 kr. (beinskiptur)
OPIÐ
LAUGARDAG OG SUNNUDAG FRA 12-17
SÝN
$
SUZUKI
Með Swift verður aksturinn áreynslulous.
Vitara er vinsœlasti jeppinn á Islandi.
Og skildi engan undra.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
SUZUKl
AFL OG
ÖRYGGl
..J
NÝR VTTARA
SWIFT DIESEL