Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1997, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1997
Dregið í jólamyndagátu og jólakrossgátu DV:
Bíí alítaf eftir
svona
gátum fyrir jólin
- segir Erla Gísladóttir í Stykkishólmi sem hlaut 1. verðlaun fyrir myndagátuna
jólagátur
„Þetta kemur sér vel fyrir okkur.
Ég hef alltaf tekið þátt í þessum gát-
um og maður bíður eftir svona gát-
um fyrir jólin,“ sagði Erla Gísladótt-
ir, húsmóðir í Stykkishólmi, þegar
henni var tilkynnt að hún hefði
hlotið 1. verðlaun fyrir jólamynda-
gátu DV en dregið var í fyrradag
fyrir þá gátu og jólakrossgátu DV.
Skilafrestur rann út 11. janúar sl. og
var þátttaka mjög góð.
Erla hefur verið áskrifandi DV til
margra ára og aðspurð segist hún
einu sinni áður hafa unnið í getraun
af svipuðu tagi, í blaðinu Borgfirð-
ingi fyrir nokkrum árum. Núna
hlýtur Erla í verðlaun United-hljóm-
tæki frá Sjónvarpsmiðstöðinni,
Síðumúla 2, að verðmæti 23.700 kr.
Önnur verðlaun fyrir jólamynda-
gátuna, Akai-ferðatæki með geisla-
spilara frá Sjónvarpsmiðstöðinni
að verðmæti kr. 14.900, hlýtur Sig-
ríður Stefánsdóttir, Brekkuvegi 5 á
Seyðisfirði.
Lausn myndagátunnar var eftir-
farandi: „Hátíð ljóss og friðar fer í
hönd og landsmenn fagna henni
með söng. Blaðið sendir kveðjur
sínar.“
Eins og áður sagði var einnig
dregið úr réttum lausnum í
jólakrossgátu DV. Lausnin fólst í
öfugmælavísu sem var svohljóð-
andi:
Renna árnar upp í mót,
ofan gjósa hverir.
Hylur jökull hlfðarfót,
híma tindar berir.
Sá sem hlýtur 1. verðlaun fyrir
krossgátuna er Ásbjöm Valsteins-
son, Vesturbergi 146 í Reykjavík.
Ásbjörn fær Aiwa-hijómtæki frá
Radíóbæ, Ármúla 38, að verðmæti
29.900 kr.
Aiwa-vasadiskó að verðmæti
12.980 kr., einnig frá Radíóbæ, vora
í 2. verðlaun fyrir krossgátuna. Þau
hreppir Guðrún Ólafsdóttir, Suður-
götu 29 í Sandgerði.
DV óskar vinningshöfum til ham-
ingju og þakkar öllum þeim fjöl-
mörgu sem þátt tóku í gátunum.
Verðlaunum verður komið til skila í
næstu viku.
-bjb
S 'f-A
r
25
Guðrún Gyða
Árnadóttir,
blaðamaður DV,
dregur hér úr
réttum lausnum í
jólamyndagátu og
jólakrossgátu
blaðsins 1996.
Skilafrestur rann
út 11. janúar sl.
og þátttaka var
mjög góð eins og
sjá má.
DV-mynd Pjeiur
/T*
/
Holl og
Fullorðnir
Barnaflokkar
Unglingaflokkar
4 0 0 3
íþrótt fyrir alla
Listgrein
Sjálfsvörn
Líkamsrækt
Sensei KAWASOE, 7.dan
yfirþjálfari Shotokan
á íslandi
Brautarholti 22
Sensei Ólafur Wallevik, 4.dan,
yfirþjálfari Þórshamars.
/// f\J 11 fJ fJ h /AT J / JQ
Tilgangurinn með notkun nikótínlyfja
er að draga úr fráhvarfseinkennum
þegar reykingum er hætt. Lyfið má því
aðeins nota að reykingum sé algjörlega
hætt. Nicorette® tyggigúmmí inni-
heldur nikótín sem losnar smám saman
úr tyggigúmmíinu þegar tuggið er.
Tyggja skal hægt og með hléum.
Nicorette® tyggigúmmí er til í 2 mg
og 4 mg styrkleika og í þremur mis-
munandi bragðtegundum. Styrkleiki og
meðferðarlengd er einstaklingsbundin.
Algengur dagskammtur er 8-16 stk.
Nikótínið í tyggigúmmíinu getur valdið
aukaverkunum eins og t.d. svima, höfuðverk, hiksta, ertingu í munni,
koki, vélinda og meltingaróþægindum. Ekki er ráðlegt að nota
tyggigúmmíið lengur en 1 ár.
Nicorette® forðaplástur inniheldur nikótín sem frásogast með
jöfnum hraða úr forðaplástrinum í a.m.k. 16 klst. Algengustu
aukaverkanir Nicorette® forðaplásturs eru svimi, höfuðverkur,
verkir í liðum og vöðvum, einkenni sem líkjast inflúensu, kláði og
útbrot undan plástrinum, aukin svitamyndun, svefntruflanir, óróleiki
og depurð. Æskilegt er að hefja meðferð með Nicorette®
forðaplástri með sterkasta plástrinum. Einn plástur er settur á að
morgni og tekinn af fyrir sveín. Setja skal plásturinn á heila, hreina,
hárlausa og þurra húð, á brjósti, hrygg, upphandlegg eða mjöðm og
skipta um plástursstað á hverjum degi. Styrkleikinn á plástrinum er
síðan minnkaður smám saman og fer það eftir nikótínþörf við-
komandi á hverjum tíma. Nikótín getur valdið bráðum eitrunum hjá
börnum og er efnið því alls ekki
ætlað bömum. Gæta skal varúðar
hjá þeim sem hafa hjarta- og
æðasjúkdóma. Ófrískar konur og
konur með bam á brjósti eiga
ekki að nota lyfið. Lesið vandlega
leiðbeiningar á fylgiseðli sem
fylgir hverri pakkningu lyfsins.
Framleiðandi:
Pharmacia & Upjohn, Svíþjóð.
Innflytjandi:
Pharmaco hf., Hörgatúni 2,
Garðabæ.
NICORETTE