Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1997, Blaðsíða 58
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
66
Mtikmyndir
K V I K M
Bíóborgin - Kvennaklúbburinn:
Köld eru kvennaráð ★★
Sumar bandarískar kvikmyndir frá draumaverk-
smiðjunni í Hollywood eru svo mengaðar af þeirri yf-
irborðsveröld sem þar þrífst að í raun ætti að banna
sýningar á þeim utan Bandaríkjanna og Kvenna-
klúbburinn (The First Wives Club) fellur undir þessa
skilgreiningu. Hvar annars staðar en í Hollywood
væri hægt að enda mynd á því að þrjár miðaldra kon-
ur, sem hefur tekist að hefna sína á fyrrum eigin-
mönnum, endi myndina á því að syngja saman með
miklum tilþrifum um það að enginn þekki þær og
vist er að ef ekki kæmi til að Goldie Hawn, Diane
Keaton og Bette Midler eiga góða spretti í hlutverkum
eiginkvennanna þá væri nánast ekkert púður í mynd-
inni.
Þær stöllur leika fyrrum vinkonur sem aliar hafa orðið fyrir því að eigin
menn þeirra hafa yfirgefið þær og skilja þær eftir í sárum. Þær hittast við útföi
fjórðu vinkonunnar sem einnig var yfirgefin af eiginmanni sínum en hafði farif
þá leið að stytta sér aldur. Þegar þær komast að því hvað þær eiga sameiginleg
taka þær til sinna ráða.
Undir öllum glansinum og gríninu er í raun beitt háðsádeila á millistéttarlíf
Bandaríkjunum og þá tilfmningakreppu sem fólk, sem hefur allt til alls, lendir í
En það er passað upp á að slíkt komist ekki upp á yfirborðið, allt er í gamni Oj
þá ekki síður allt í lukkunnar standi í lokin, nema að sjálfsögðu hjá eiginmönn
unum sem hafa fengið að kynnast hversu köld kvennaráð geta verið.
Leikstjóri: Hugh Wilson. Handrit: Robert Harling eftir skáldsögu Oliviu
Goldsmith. Kvikmyndataka: Donald Thorin. Tónlist: Marc Shaiman.
Aðalleikarar: Goldie Hawn, Bette Midler, Diane Keaton, Sarah Jessica Park-
er, Maggie Smith og Dan Hedaya.
Hilmar Karlssor
Saga-bíó - Ógleymanlegt:
Líkskoðari í morðingjaleit ★★
John Dahl er ungur leikstjóri sem hefur hægt en
ákveðið verið að vinna sér sess meðal þeirra
fremstu sem fást við gerð sakamálamynda. Þrjá
kvikmyndir á hann að baki, Kill Me again, Red
Rock West og The Last Seduction, og er hægt að
merkja framfarir með hverri mynd og þótt vissu-
lega sé erfitt að gera betri mynd en The Last Se-
duction, sem er meðal betri sakamálamynda sem
gerðar hafa verið á undanfomum árum var nú al-
veg óþarfi fyrir Dahl að falla í þá gryfju að ofmetn-
ast en það er í raun eina skýringin á þvf hversu
illa hann heldur á spöðunum í myndinni Ógleym-
anlegt (Unforgetable).
Deihl er mikill kunnáttumaður í kvikmyndagerð og hefur í myndum sín-
um notað sterkt myndmál. Hér má ætla að hann hafi treyst um of á slíkt
því hann hlýtur að hafa gert sér grein fyrir því að sagan um líkskoðar-
ann, sem reynir töfraformúlu á sjálfum sér í leit sinni að morðingja eigin-
konu sinnar, hefúr enga burði tÚ að geta haldið áhorfandanum við efnið.
En svo bregðast krosstré sem önnur tré og Dahl fmnur sig aldrei í stjóm-
andahlutverkinu og bregst bogalistin að mestu. En þrátt fyrir að Ógleym-
anlegt sé gölluð kvikmynd er sums staðar vel gert og Dahl nær upp
spennu um tíma en dettur síðan í lokin aftur niður í meðalmennskuna.
Staðreyndin er að kvikmyndaunnendur gera miklar kröfur til manna eins
og Johns Dahls og því verða vonbrigðin kannski meiri en ella þegar slík-
um mönnum mistekst. En batnandi mönnum er best að lifa og Dahl á
framtíðina fyrir sér og lærir vonandi af mistökunum. Þá er ekki síður
slæmt að horfa upp á Lindu Fiorentino eins og illa gerðan hlut í illa skrif-
uðu hlutverki en hún sló eftirminnilega í gegn í The Last Seduction.
Leikstjóri: John Dahl. Handrit: Bill Geddie. Kvikmyndataka: Jeffrey Jur.
Tónlist: Christopher Young.
Aðalleikarar: Ray Liotta, Linda Fiorentino, Peter Coyote, Christipher
McDonald og Kim Cattrall.
Hilmar Karlsson
Stjörnubíó - Ruglukollar:
Kennarinn leysir vandann ★
Kvikmyndin Ruglukollar ber svo sannarlega nafn
með rentu. Annað eins rugl er vandfundið. Hér á
að vera á ferðinni skopstæling á þessum væmnu
hetjumyndum um kennarann sem kemur til starfa
í vandræðagemlingaskólanum sem kerfið og starfs-
fólkið er löngu búið að gefast upp á, myndum á
borð við Hættulega hugi og þar fram eftir göt-
unum. En nýi kennarinn er staðráðinn í að koma
þeim nemendum til manns sem það vilja, þótt
brautin sú sé þymum stráð. Skopstæling sagði ég,
en skopið hefur að mestu orðið út undan og þess
vegna stendur myndin ekki undir nafhi. Hins veg-
ar er í henni nóg af alls konar aulafyndni og neð-
anbeltis fimmaurabröndurum.
Jon Lovitz leikur nýja kennarann, óttalegan aula sem vill losna undan
ægivaldi rektorsins fóður síns og sýna að hann geti nú staðið á eigin fót-
um. í nýja skólanum, sem kenndur er við Marion Barry, hinn umdeilda
dópétandi borgarsfjóra Washington D.C., hittir hann stórskutluna Tiu Car-
rere sem leikur hér aðstoðarkonu skólastýrunnar, bráðhuggulega stúlku
sem fellur fyrir aulabárðinum, hversu trúlegt sem það nú er. Nóg um það
Hér rekur hver vitleysisgangurinn annan og það er ekki nema einstaka
sinnum að hægt er að kreista fram bros.
Þegar Jon Lovitz var einn aðstandenda hins vinsæla gamanþáttar Saturday
Night Life í sjóvarpinu í Ameriku, var hann slappastur félaga sinna og ekki
hefur hann skánað mikið eftir að hann fór að leika í kvikmyndum. Aðrir leik-
arar eru heldur skárri, ef hægt er að nota svo fint orð yfir vitleysuna.
Leikstjóri: Hart Bochner. Handrit: David Zucker, Robert LoCash og Pat
Proft. Kvikmyndataka: Vernon Layton.
Leikendur: Jon Lovitz, Tia Carrere, Mekhi Pfifer, Guillermo Diaz, John
Neville, Louise Fletcher, Malinda Williams.
Guðlaugur Bergmundsson
Banvæn bráðavakt í Regnboganum:
Fand yfir morkin
í læknisfræðinni
Hugh Grant hefur
nánast eingöngu
leikið í gam-
ansömum
kvik-
myndum
að und-
anfóm-
um
sem
hafa
ekki
farið
varhluta
af rómantík-
inni. í Banvæn
bráðavakt
(Extreme Measure),
sem er spennutryllir,
leikur hann allt öðmvísi
persónu en hann hefur
leikið áður og þykir honum
hafa tekist ágætlega upp.
Grant leikur lækninn Guy
Luthan sem vinnur í bráða-
móttöku. Þegar myndin hefst
er hann á annasamri vakt
Komið er með úti-
gangsmann
sem
og það er kallað. Hann hlaut
menntim sína í Oxford.
Þegar kom að því að
velja eitthvað visst
nám valdi hann að
nema við Oxford
University Drama
Society og hlaut
eldskirn sína árið
1982 í skólaverk-
efiii. Nokkur mög-
ur ár tóku við þar
sem þrætt var það
einstigi sem leik-
arar þurfa að fara
sem hafa litla
vinnu.
Hugh Grant datt svo
í lukkupottinn árið
1987 þegar þeir félagar
Ishmail Merchant og
James Ivory fengu hann
til að leika titilhlutverk-
ið í Maurice en sú
mynd fjallar um
ungan pilt, sem
Hugh Grant leikur lækni sem grunar að ekki sé allt með felldu við dauða umrennings.
deyr á spítalanum. Enginn skiptir sér af honum nema
Luthan sem fær fræðilegan áhuga á sjúkdómseinkenn-
um hans sem honum þykja óvenjuleg. Smám saman
kemst hann á snoðir um einkarekna rannsóknarstofu
sem tengist einum virtasta lækni landsins, Dr.
Lawrence Myrick, sem leikinn er af Gene Hackmann.
Mannorði, starfsferli og lífl Luthans er því meira ógn-
að eftir því sem hann kemst nær sannleikanum. Hversu
langt er læknavísindunum heimilt að fara í rannsókn-
um á lækningu útbreiddra sjúkdóma?
Auk þeirra Grants og Hackmans leika í myndinni
Sarah Jessica Parker, David Morse og Bill Nunn.
Fjölskrúðugt líf
Þaö hefur mikið gengið á í lífi Hugh Grants frá því
hann sló eftirminnilega í gegn í Four Weddings and a
Funeral. Er skemmst að minnast uppákomunnar þegar
Gene Hackman leikur virtan lækni sem fer ekki hefðbundnar leiöir í rannsóknum sínum.
hann var hirtur glóðvolgur í Hollywood ásamt vændis-
konu. Þá hefúr samband hans við fyrirsætuna og
leikkonuna Elizabeth Hurley verið á mllli tannanna á
fólki en Hurley er einmitt einn framleiðenda Extreme
Measure. f öllum hamaganginum hefur það næstum
gleymst að Grant er prýðisgóður leikari og á að baki
fjölbreyttan feril þótt sumir vilja meina að hann hafi
mikið staðnað eftir að hann varð heimsfrægur.
Hugh Grant fæddist í London og er af fmu fólki, eins
hommi, í byrjun aldar. Grant fékk mikið hrós fyrir leik
sinn og var valinn besti leikarinn á kvikmyndahátíðinni
í Feneyjum. Frammistaða hans í Maurice leiddi til þess
að Ken Russell valdi hann til að leika aðalhlutverkið í
The Lair of the White Worm og sama ár lék hann Chop-
in i Impromptu. Hugh Grant hefur verið duglegur að
leika í kvikmyndum frá þvi hann varð þekktur og meöal
hans helstu kvikmynda eru Bitter Moon, Sirens, Sense
and Sensibility og Nine Months.
Breti í Hollywood
Leikstjópri Extremes Measures er Michael Apted sem
er breskur að uppruna en hefur nær eingöngu unnið í
Hollywood á undanfomum árum og hefúr verið að gera
góða hluti þar. Meðal kvikmynda, sem hann hefur gert
vestanhafs, em Coal Miner’s Daughter, Gorillas in the
Mist, Nell, Gorky Park og Thunderheart.
Michael Apted stund-
aði nám í sögu við
Cambridge háskólann
þegar hann fékk áhuga
á kvikmyndagerð.
Apted fékk vinnu við
rannsóknir hjá
Granada sjónvarpsstöð-
inni en tók fljótlega að
gera heimildarmyndir
sjálfur auk þess sem
hann leikstýrði um
tima sápuóperunni
Coronation Street. Þeg-
ar Apted yfirgaf breska
sjónvarpið og hóf gerð
kvikmynda hafði hann
unnið til margra verð-
launa.
Fyrstu kvikmyndina,
Triple Echo, gerði
Apted 1973. Áður en
hann yfirgaf fósturjörð
sína gerði hann Agatha
með Dustin Hofiman og
Vanessu Redgrave í að-
alhlutverkum. Auk þess
að leikstýra leiknum
kvikmyndum hefur
Apted fengist þó nokkuð
við gerð heimildar-
mynda og er skemmst að minnast Incident at Oglala þar
sem hann beindi augum sinum að indíánanum Leonard
Peltier. í Bring on the Night fyldi hann Sting eftir á tón-
leikaferðalagi. The Long Way Home er um rússneska
rokksöngvara. Síðasta heimildarmynd Apted er Moving
the Mountains sem fiallar um fiöldamorð í Tianammen
Squera. Sú mynd hefur unnið til tvennra viðurkenndra
verðlauna.
-HK