Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1997, Blaðsíða 28
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 JjV
- segir Kathryn Pasternak, aðstoðarforstjóri Natinnal Gengraphic, sem keypt hefur sýningarrétt á myndinni
„Ég er komin hingaö fyrst og fremst til að sjá
hvað Þorfinnur hefur verið að gera og fylgjast
með lokafrágangi. Hann kynnti fyrir okkur svo
grípandi og heillandi sögu að ég fékk strax
mikinn áhuga. Við framleiðum og aðstoðum
við gerð fjölda náttúrulífsmynda í samstarfi
við kvikmyndagerðarmenn um allan heim. Erf-
iðast er alltaf að finna góða sögu, helst með
söguþræði, og yfir þeim eiginleikum býr
einmitt mynd Þorfinns. Þannig myndir viljum
við fá til okkar,“ sagði Kathryn Pasternak, að-
stoðarforstjóri sjónvarpsstöðvar National
Geographic i Bandaríkjunum, í samtali við
DV en hún er stödd hér á landi um þess-
ar mundir til að kynna sér
gerð „leikinnar“ heim-
ildarmyndar Þorfinns
Guðnasonar kvik-
myndagerðarmanns
um hagamúsina.
Tvær mýs, Óskar
og Helga, eru í að-
alhlutverkum
mynd-
mynd Þorfinns væru allt aðrar og nýjar hliðar
á lífi músa dregnar fram í dagsljósið. Mörg
myndskotin hefðu aldrei áður komið fyrir
augu almennings.
Nær til 65 milljón heimila
National Geographic er með heimildarþætti
í nokkrum sjónvarpsstöðvum í Bandaríkjunum
og Evrópu og kemur mynd Þorfinns til með að
verða sýnd í sumar eða næsta haust á besta
tíma í vikulegum tveggja tima þætti á TBS
Superstation sem nefnist National Geographic
Explorer. Þátturinn nær til 65 milljón heimila
í Bandaríkjunum og er síðan dreift um allan
heim til annarra sjónvarpsstöðva. Engir aðr-
ir heimildarþættir ná slíkri út-
breiðslu.
Náttúrulífsmyndir National Geo-
graphic hafa unnið til 32 Emmy-
verðlauna og hlotið mörg önnur
kvikmyndaverðlaun. Aðspurð seg-
ir Kathryn að mynd Þorfinns eigi
góða möguleika á verðlaunum.
Mikill heiður
Þorfinnur segir samstarfið við
National Geographic vera mikinn
heiður fyrir sig. Sem strákur hefði
hann lesið öll tímaritin sem
hann komst í og heillaðist
þar af efhinu sem boðið var
upp á, og ljósmyndunum
ekki síst.
„Um leið og National
Geograhic sýndi áhuga þá
hafa fleiri aðilar viljað fá
myndina til sýninga. Við
höfúm fengið ótal fyrir-
spurnir úr nær öllum
heimshlutum," sagði Þor-
finnur en auk myndarinnar
um hagamúsina er hann
í mynd Þorfinns
er hagamúsinni
fylgt eftir við
hinar ýmsu að-
stæður. Hér er
hún við skógar-
þrastarhreiður
þar sem ung-
arnir hafa ný-
lega skriðið úr
eggjum.
Hreiðrið fannst
fyrir tilviljun í
nágrenni Fells
ofan á rabbar-
barahnaus og
músarhola þar
við.
DV-mynd GVA
með i vinnslu framhaldsmynd um íslenska ref-
inn. Margar evrópskrar sjónvarpsstöðvar,
ásamt Stöð 2, hefðu sýnt þeirri mynd áhuga,
sem og músamyndinni.
Unnið af alúð og ástríðu
Kathryn segir það sömuleiöis vera heiður fyr-
ir sig að fá að vinna með Þorfmni. Hann vinni
efnið af mikilli alúð og ástríðu sem eigi eftir að
skila mjög góðri mynd. Hann hefði mjög áhuga-
verðan söguþráð í höndunum.
„Það er mjög gefandi að geta hjálpað sjálf-
stæðum kvikmyndagerðarmönnum. Fyrir þá
sem vinna heimildarmyndir er mjög erfitt að
komast að hjá stóru framleiðendunum og ég
geri ráð fyrir að það sé enn erfiðara ef þú býrð
á íslandi. Ekki síst þess vegna hefur Þorfinmu-
náð frábærrun árangri," sagði Kathryn Pastem-
ak. -bjb
mm
Þorfinnur Guönason kvikmyndageröarmaður,
Kathryn Pasternak, aöstoöarforstjóri National
Geographic, og Þorvaldur Björnsson, starfs-
maöur Náttúrufræöistofnunar og „dýratemj-
ari“, sem veriö hefur Þorfinni til halds og
traust viö tökur í myndverinu aö Felli í Bisk-
upstungum. DV-mynd GVA
og fylgir Þorfinnur þeim eftir í hörðum heimi
náttúrunnar. í þessu skyni hefur hann komið
sér upp myndveri að Felli í Biskupstungum og
unnið þar og víðar um landið að myndinni um
nokkurn tíma.
Þorfinnur komst í samband við National
Geographic á kvikmyndaráðstefnu í Amster-
dam fyrir ári síöan. Þar ákvað stofnunin að
taka músamyndina til sýninga og aðstoða Þor-
finn við lokaíjármögnun.
Engu líkt
Kathryn segir mynd Þorfinns hafa vakið
mikla athygli hjá National Geographic. Þar
væru menn búnir að sjá ýmislegt í gegnum tíð-
ina en ekkert í líkingu við það sem Þorfmnur
væri að gera. ímynd fólks af músum væri mis-
munandi, í teiknimyndum væri yfirleitt brugð-
ið upp jákvæðri mynd en þegar fólk sæi alvöru
mús þá stykki það upp á stól og öskraði. í
Mynd af þessu tagi hefur ekki áöur komiö
fyrir augu almennings hér á landi og þótt
víöar væri leitaö. Hún sýnir hagamús meö
nýfæddu afkvæmi sínu, nokkuö sem ákaf-
lega erfitt er aö festa á filmu. Þetta myndskot
og fleiri prýöa nýja heimildarmynd Þorfinns
um íslensku hagamúsina sem National
Geographic ætlar aö sýna í Bandaríkjunum.
Mynd: Jóhann Óli Hllmarsson