Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1997, Síða 22
22 í útlönd
*+ ----
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
Danadrottning heldur upp á aldarfjórðungssetu í elsta hásæti Evrópu:
Höldum í Margréti Þórhildi
eins og síðasta hálmstráið
Ef Margrét Þórhildur Danadrottn-
ing væri ekki til þyrftu Danir að
hafa hraðcir hendur og finna hana
upp.
Þessi orð, sem birtust í grein í
danska blaöinu Jótlandspóstinum
um síðustu helgi, í tilefni þess að
aldarfjórðungur er nú liðinn frá því
að Margrét Þórhildur settist í há-
sætið í Amalíenborg, eru til marks
um gífurlegar vinsældir drottningar
og þá virðingu sem hún nýtur með-
al þegna sinna. Sama máli gegnir
um aðra í konungsfjölskyldunni.
Á tyllidögum má sjá bæði virðu-
legt eldra fólk úr úthverfunum og
pönkara úr gamla bæniun bíða á
götuhomum eftir því að fá tækifæri
til að berja drottninguna augum, nú
eða þá Ingiríði gömlu drottningar-
móður, eða Friðrik krónprins eða
Jóakim, yngri son drottningar. Ekki
má svo gleyma Alexöndru
prinsessu, eiginkonu Jóakims og
nýjasta eftirlæti dönsku þjóðarinn-
ar. Sama hvemig viðrar.
Staða drottninqar vottur
um hörgulsjúkaóm
Ef svo ólíklega vildi til að kon-
ungdæmið í Danmörku, hið elsta í
gjörvallri Evrópu, yrði lagt niður og
lýst yfir stofnun lýðveldis, mundi
Margrét Þórhildur veröa kjörin for-
seti með yfirgnæfandi meirihluta at-
kvæða, ef hún þá á annað borð byði
sig fram. En áhugamenn um danska
konungdæmið þurfa væntanlega
ekki að hafa neinar áhyggjur af því.
„Margrét drottning uppfyllir ein-
hvem skort í samfélaginu. Við eig-
um ekki svo margt annað sem sam-
einar okkur og þess vegna höldum
við í hana eins og síðasta hálmstrá-
ið. Staða hennar ber öll einkenni
hörgulsjúkdóms," segir rithöfund-
urinn og sagnfræðingurinn Ebbe
Klovedal- Reich í samtali við Jót-
landspóstinn.
í dönsku samfélagi er óskrifað
boðorð sem segir að enginn skyldi
álíta sig vera yfir aðra hafinn. En
samt lætur þjóðin sér það vel líka
þótt ein fjölskylda fæðist með gull-
skeið í munninum og alist upp í
köstulum með þjónustufólk á hverj-
um fingri. Hvemig má slíkt vera,
spyrja sumir.
Stríðir gegn heilbrigðri
skynsemi
„Eftir því sem heimurinn verður
opnari ágerist þörf fólks fyrir að
þekkja eigin rætur. Áhuga fólks á
okkur má ef til vill einnig rekja til
aukins áhuga fólks á sögunni,"
sagði Margrét Þórhildur drottning á
fundi með fréttamönnum fyrir
skömmu þar sem hátíðahöldin vom
kynnt.
Ebbe Klovedal-Reich segir þetta
stríða gegn heilbrigðri skynsemi og
það sé 1 raun dálítið skrýtið. En
honum finnst það líka allt í lagi.
„Ég lít á það sem merki um heil-
brigði að samfélagið skuli viður-
kenna að æðsta yfirstjórn landsins
sé alls ekki byggð á skynseminni,“
segir Klovedal-Reich.
Féll fyrir frönskum
greifa í Svartaskóla
En hver er hún þá, þessi drottn-
ing sem þegnamir elska svo heitt og
við íslendingar dáum og virðum
Margrét Þórhildur Danadrottning, fjölskylda hennar og vinir stilltu sér upp fyrir Ijósmyndara í vikunni viö veisluhöld-
ir Ijósmym
in í tilefni 25 ára setu drottningar í hásætinu. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands,
dóttir forsetafrú eru meö á myndinni.
og Guörún Katrín Þorbergs-
Símamyndir Reuter
meira en flestar, ef ekki allar, kon-
ungbomar persónur núlifandi?
Margrét Þórhildur, sem er elst
þriggja dætra foreldra sinna Frið-
riks IX. kóngs og Ingriríðar drottn-
ingar, fæddist í Kaupmannahöfn 16.
apríl 1940, aðeins viku eftir að Þjóð-
verjar hernámu Danmörku. Þjóð-
fáninn var dreginn að hún um kon-
ungsríkið þvert og endilangt þegar
fæðing litlu prinsessunnar spurðist
út og var sú athöfn um leið tákn
andstöðu við þýska hemámsliðið.
Enda varð Margrét Þórhildur að
eins konar tákngervingi vonarinnar
um bjartari framtíð Danmörku til
handa.
Menntun sina hlaut Margrét í
tveimur dönskum háskólum en
einnig í Svartaskóla í París og há-
skólanum í Oxford og við hinn virta
Hagfræðiskóla í Lundúnum. Drottn-
ing hefur einhverju sinni lýst sjálfri
sér sem eilíföarstúdent.
Það var einmitt þegar hún var við
Svartaskóla að hávaxna, ljóshærða
prinsessan hitti ungan franskan
greifa, Henri de Laborde de Mont-
peza.t að nafni, manninn sem hún
fór svo fógrum orðum um í ræðu
sem hún hélt í krýningarafmælis-
veislunni í vikunni. Þetta var áriö
1963. Með þeim tókust góðar ástir og
enn betri árið eftir þegar bæði vom
í London, hún í skóla en hann í
starfi sem þriðji ritari við franska
sendiráðið þar í borg. Þau gengu
síðan í hjónaband þann 10. júni 1967
og af því tilefni gerði Friðrik kóng-
ur tengdason sinn að Danmerkur-
prinsi og kallaði hann Hinrik.
Prinsessan varð að
drottningu
Margrét Þórhildur og Hinrik
prins eignuðust tvo drengi. Friðrik
krónprins fæddist í maí 1968 og
Jóakim í júní árið eftir.
Það var svo 14. janúar 1972 aö
Margrét Þórhildur, sem þá var að-
eins 31 árs, varð drottning Dan-
merkur við lát fóður síns. Friörik
hafði þá legiö sjúkur í tvær vikur.
„Friðrik konungur níundi er lát-
inn, lengi lifi hennar hátign Mar-
grét drottning önmn-,“ hrópaði Jens
Otto Kragh, forsætisráðherra Dan-
merkur, þrisvar sinnum af svölum
Kristjánsborgarhallar þann 15. jan-
úar 1972. Margrét prinsessa var orð-
in drottning.
Breyting sem var gerð á dönsku
stjórnarskránni árið 1953 heimilaði
stúlkum að taka við ríkiserfðum í
Danmörku. Margrét Þórhildur varð
af þeim sökum fyrsta konan til að
setjast í hásætið frá því að Margrét
drottning fyrsta var krýnd árið
1353. Ýmsir hafa haldið því fram að
enn ein Margrétin hafi orðið drottn-
ing milli 1353 og 1972 og þess vegna
sé Margrét Þórhildur í raun og vem
númer þrjú. Eins og það skipti ein-
hverju máli.
Danadrottningu er margt til lista
lagt. Hún er kunn fyrir hæfileika
sína í málaralist og hefur hlotið
mikið lof fyrir myndir sem hún hef-
ur haldið sýningar á. Hún hefur
einnig hannað leikmyndir og bún-
inga fyrir sjónvarpið og Konunglega
ballettinn og myndskreytt dönsku
útgáfúna á Hringadrottinssögu eftir
breska rithöfundinn J.R.R. Tolkien.
Blaðamaður spurði hana að því á
dögunum hvort hún væri jafn góð í
hversdagslegri listgreinum, eins og
matargerðarlist og listinni að aka
bíl. Drottning svaraði því til að hún
væri slarkfær kokkur en svo langt
væri um liðið frá því hún settist
sjálf undir stýri að ökuskírteini
hennar væri fallið úr gildi.
„Við skulum bara orða það svo að
maturinn minn mundi ekki drepa
neinn en ég er ekki jafn viss um að
þú mundir lifa af ökuferð með mér,“
sagði drottning við fréttamanninn.
Reykingarnar ekkert
vandamál
Margrét Þórhildur og fjölskylda
hennar hafa ekki verið jafn umdeild
og frænka hennar á Bretlandi og
frændi, Elísabet og Filippus og
bömin þeirra. Á tímabili var hrað-
akstur krónprinsins vinsælt um-
fjöllunarefni fjölmiðla og síðar ást-
arævintýri hans með nærfatasýn-
ingarstúlku. En það sem helst hefur
verið deilt um í fari drottningar upp
á síðkastið eru stórreykingar henn-
ar. Svo mikið reykir hún að sérstak-
ur þjónn með öskubakka í höndun-
um fylgir henni hvert fótmál.
Nýjasta uppákoman byrjaði með
klausu eftir sænska dálkahöfúndinn
Hagge Geigert í Gautaborgarpóstin-
um fyrir skömmu. Þar skammaði
Geigert drottninguna fyrir að vera
síður en svo til fyrirmyndar með
því að púa á almannafæri og m.a.
kveikja sér í sígarettu á astmadeild
elliheimilis. Dálkahöfundurmn bar
drottningu saman við Karl Gústaf
Svíakóng sem reykir líka, en aldrei
á almannafæri.
Danskir fjölmiðlcir risu sem von-
legt er upp á afturlappimar og
fengu góða útrás fyrir andúð sína á
nágrönnunum handan Eyrarsunds.
„Er það til merkis um virðuleika
sænska kóngsins að hann skuli
laumast fram á klósett til að fá sér
smók í laumi?“ spurði Ekstra Bla-
det.
Á fréttamannafundinum á dögun-
um var drottning spurð út í „reyk-
ingavandamál“ sitt?
„Þetta er ekkert vandamál," svar-
aði hún, stutt og laggott.
Ekkert fararsnið á
drottningu
Margrét Þórhildur hefur setið í
hásætinu í aldarfjórðung og enn er
ekkert fararsnið á henni. Friðrik
krónprins gæti því þurft að biða í
allmörg ár enn áður en hann sest í
sæti móður sinnar.
„Það er engin hefð fyrir afsögn í
þessu landi. Það er skylda manns að
halda áfram til æviloka. Ég er sjálf
á því að manni beri skylda til að
sitja ævina á enda,“ sagði hún á
fréttamannafundinum. Hinrik prins
samsinnti, fremur dapur í bragði.
„Auðvitað væri það mjög gaman
að eiga eiginkonu sem hefði meiri
tíma fyrir eiginmanninn en ég sé
ekki fyrir mér að þaö gerist,“ sagöi
Hinrik prins drottningarmaður.
Byggt á Reuter og
Jyllands- Posten
Margrét Þórhildur Danadrottning kemur á aöaljárnbraut-
arstööina f Kaupmannahöfn þaöan sem haldiö var aö
gröf fööur hennar, Friöriks kóngs níunda, í Hróarskeldu.
Margrét Þórhildur meö sfgarettu f munninum á sfnum
yngri árum. Sígarettuna hefur hún aldrei skiliö viö sig.