Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1997, Side 32
32 Ifrjelgarviðtalið
LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997 3D"V
JDf"W LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
tfelgarviðtalið
Linda Samúelsdóttir, bóndi og húsfreyja ííungu í Svínadal, safnar liði gegn fyrirhuguðu álveri á Grundartanga:
- álverið skal ekki koma, segir Linda en mótmælaferð er farin til Reykjavíkur í dag
„Ég er baráttumanneskja í mér
og finnst að enginn eigi að láta fara
illa með sig á nokkurn hátt. Það er
alltof lítið um að fólk standi upp og
segi sína skoðun þegar stjómvöld
fótum troða lýðræði og sjálfsögð
mannréttindi,“ segir Linda Samú-
elsdóttir, bóndi, húsfreyja og sex
barna móðir á bænum Tungu í
Svínadal í Hvalfjarðarstrandar-
hreppi, í viðtali við DV en hún hef-
ur verið framarlega í flokki and-
stæðinga fyrirhugaðs álvers Col-
umbia Ventures á Grundartanga. í
byrjun vikunnar kom hún ásamt
fleirum af stað undirskriftalistum
gegn álverinu og stofnuð var undir-
búningsnefnd til „bjargar Hval-
firði“ í Félagsgarði í Kjós sl. mið-
vikudagskvöld. Fyrirhugað er að
stofna samtök síðar meir.
Á hálfum hraða til
Reykjavíkur
Undirskriftalistar liggja áfram
frammi en í dag stendur fyrir dyr-
um mótmælaferð til Reykjavíkur
þar sem afhenda á mótmæli í hend-
ur Finns Ingólfssonar iðnaðarráð-
herra i ráðuneyti hans í Amarhvoli.
Lagt verður af stað á ökutækjum í
Leirársveit, við vegamótin til Akra-
ness, kl. 11 í dag og ekið „á hálfum
hraða“ eins og Linda orðar það, til
Reykjavíkur.
Hún vonast eftir góðri þátttöku í
mótmælaferðina. Upphaflega stóð til
að afhenda mótmælin fyrir utan
heimili Finns í Grafarvogi en vegna
gífurlegra viðbragða frá fólki þótti
rétt að valda ekki algjöru umferðar-
öngþveiti og fara frekar í gegnum
borgina og niður í ráðuneytið. Eftir
að mótmælin hafa verið afhent þar
stendur til að halda útifund á Arnar-
hóli upp úr klukkan 14 í dag.
Hefði gengið fyrir Hval-
fjörðinn
Ferðin verður farin á ökutækj-
um eins og áður sagði en Linda
segist vera fullviss um að hún
hefði tekið þátt í að ganga fyrir
Hvalfjörðinn til Reykjavíkur væri
hún heil heilsu. Fyrir rúmiun fjór-
um árum veiktist hún nefnilega
heiftarlega og er í dag aðeins með
hálfan mátt. Hún fékk slæman
vöðvasjúkdóm sem læknar stóðu
ráðþrota frammi fyrir. Hún missti
allan kraft og mikill bjúgur safnað-
ist utan á hálsinn. Hún segist eig-
inlega hafa læknað sig sjálf með
ýmsum aðferðum, læknarnir hafi
lítið sem ekkert getað gert. Hún
lætur þetta ekki aftra sér í dag.
Linda hefur vakið athygli fyrir
skörungsskap í málflutningi sín-
um gegn álverinu. Þegar DV-
menn voru í heimsókn hjá henni
þá var hún önnum kafin í að
hringja í fólk og dreifa undir-
skriftalistum. Síminn stoppaði
heldur ekki. Þó fannst Lindu þetta
hátíð miðað við daginn áður þeg-
ar hún fór af stað fyrir alvöru. Þá
hefði síminn ekki þagnað.
Gifti sig inn í fótbolta-
fjölskymu
En hver er hún, þessi kjarn-
orkukona? Linda er fædd og upp-
alin á Akranesi og er rúmlega fer-
tug að aldri. Eins og áður sagði er
hún sex barna móðir, átti það
fyrsta 22 ára gömul. Yngsta bam-
ið er á fimmta ári en þau Guðni
Þórðarson, bróðir knattspyrnu-
kappanna Ólafs og Teits af Skag-
Linda telur sig vera viðráðan-
lega í samningum, sé ekki það
þver. Ef hlutirnir séu réttlátir þá
sé hægt að semja við sig. En í
þessu máli sé ekki um neitt rétt-
læti að ræða.
Málið illa kynnt
„Ég er engin ofstopamanneskja en
þetta með álverið héma var komið
út fyrir allan þjófabálk. Það var ekki
einu sinni haldinn kynningarfund-
ur í sveitinni til að segja okkur frá
því að landið undir álverið hefði
verið selt ríkinu í ágúst á síðasta
ári. Hreppsnefnd og oddvita Hval-
fjarðarstrandarhrepps, sem átti
landið ásamt Skilmannahreppi,
fannst að þeim bæri ekki skylda til
að láta vita að álverið væri kannski
að koma og láta kanna hug okkar.
Þeir mega ekki halda að þeir eigi
hreppinn. Þeir era í rauninni famir
að haga sér alveg eins og stjóm-
málamennirnir, eins og einræðis-
herrar.“
Allt verður gert
Linda er harðákveðin á því að ál-
verið verði aldrei reist á Grandar-
tanga. Andstæðingar álversins við
Hvalfjörðinn muni gera allt sem í
þeirra valdi stæði til að mótmæla
fyrirætlunum stjórnvalda. Sömu-
leiðis segist hún gagnrýna harðlega
hvernig staðið hefur verið að undir-
búningi málsins. Þegar sé búið að
skipuleggja Hvaifjörðinn sem
stærsta stóriðnaðarsvæði landsins,
án þess að spyrja nokkum mann.
„Engum er kynnt neitt. Það var
skipulagsfundur haldinn á Hlöðum,
að mér skilst i fyrrahaust, sem ég sá
enga auglýsingu um. Þar var lóðin
kynnt sem iðnaðarlóð, ekki sem lóð
undir stóriðju en þar er meginmun-
ur á. Menn hafa komið fram opin-
berlega, m.a. oddviti Skilmanna-
hrepps, og sagt að margir kynning-
arfundir hafi verið haldnir. Það er
bara ekki rétt. Ætli Skilmanna-
hreppur hafi ekki haldið einn fund,
líkt og Hvalfjarðarstrandarhreppur
gerði á Hlöðum, og fór hann framhjá
mörgum.“
Álver hvorki hár ná
annars staðar
Linda segist hvorki vilja sjá meiri
stóriðju við Hvalfjörð eða annars
staðar á landinu. íslendingar hafi
ekkert með þetta að gera. Næga at-
vinnu væri að hafa ef stjómvöld
hugsuðu nægjanlega vel um framat-
vinnuvegina, landbúnað og sjávar-
útveg. Þar væra margir möguleikar
ónýttir. Hún segist ekki sannfærast
þó sagt sé að nýtt álver skapi at-
vinnu og bæti hag þjóðarbúsins.
Hún er fullviss um að mengun
komi frá álverinu. Margar rann-
sóknir sýni ótvíræða mengun, jafn-
vel þótt hún fari kannski ekki yflr
leyfíleg mörk þá skaði hún án efa
umhverfið til langs tíma litið. Hún
vilji ekki færa landið mengað í
hendur komandi kynslóða. Stjórn-
málamenn og aðrir verði að muna
að við höfum jörðina einungis að
láni.
Stofnun í rassvösum
ráðherra
„Ég verð að segja að Hollustu-
vemd ríkisins hefur alveg bragðist í
að kynna sér nákvæmlega hvaða
efni þarna eru á ferðinni og upplýsa
almenning um hættuna sem þarna
getur skapast. Þetta er stofnunin
sem á að gefa endanlegt starfsleyfi
Linda Samúelsdottir ásamt dóttur sinni og nöfnu, Lindu Björgu, 4 ára, þeirri yngstu af sex börnum þeirra Guðna Þóröarsonar. Guðni er af miklum knattspyrnu-
ættum á Skaganum, bróðir Ólafs og Teits. DV-myndir Brynjar Gauti
anum, eiga saman fjórar stelpur
og tvo stráka.
Þau áttu heima á Akranesi til árs-
ins 1981 að þau keyptu bæinn Tungu
ásamt foreldrum Lindu og fluttu
þangað með allt sitt hafurtask.
Hamingjuegg
Guðni hélt áfram sínu aðalstarfi
sem vörubílstjóri en þau hafa verið
með hesta og nokkrar kindur til
heimagagns. Þá hafa þau verið með
ferðaþjónustu og rekið hænsnabú
og selt egg undir nafninu Ham-
ingjuegg. Hænurnar, um 1 þúsund
talsins, fá að ganga frjálsar í stórri
skemmu, era ekki í búrum. Þess
vegna nefnir hún eggin Hamingju-
egg, frjálsræðið skapi betri afurð,
eggin geri fólk hamingjusamt og
gott ef ekki frjósamara líka!
„Hugurinn stefndi alltaf upp í
sveit. Okkur líður vel hérna í
Svínadalnum og við Hvalfjörðinn
og engin áform uppi um að flytja
burtu. Hér er gott að ala upp böm
þótt vissulega geti það stundum
verið erfitt, sérstaklega á vetumar
þegar allt er ófært og erfitt að kom-
ast burtu. En við höfum fengið góð-
an stuðning frá foreldrum mínum
og börnin hafa haft gott af því að
eiga þau héma að í næsta húsi,“
segir Linda.
minnst. Hún segir að nú sé hins
vegar nóg komið, það verði ekki
fleiri verksmiðjur byggðar við
Hvalfjörðinn. Nóg sé búið að eyði-
leggja náttúruna og ímynd lands-
ins.
Aðspurð segist hún ætíð hafa
haft mikinn áhuga á umhverfis-
málum. Sér þyki vænt um líflð og
tilveruna. Hún hafl reyndar ekki
áður mótmælt svo kröftuglega
áformum í stóriðju eða öðru sem
tengist spjöllum á náttúrunni. En
hafi t.d. tekið þátt í prestskosning-
um og öðru sliku þar sem skýra af-
stöðu hefur þurft að taka með eða
á móti einhverjum málstað.
Folkinu er haldið niðri
„Ég er oft ósammála því hvað
fólkinu í landinu er haldið mikið
niðri. Ég er ósátt við að þjóðarat-
kvæðagreiðsla skuli ekki fara fram
í mörgum mikilvægum málum.
Það hlýtur að vera hið eðlilegasta í
lýðræðisríki. Fólkið verður að fá
að segja sinn hug. Þegar stjórn-
málamenn eru komnir til valda
mega þeir ekki halda að þeir séu
orðnir einræðisherrar. Því miður
hefur hins vegar orðið sú raunin.
Þeir eru komnir úr takt við fólkið
þegar búið er að hala inn atkvæð
unum.“
Nóg búið að eyðileggja
náttúruna
Hún segist ekki hafa til þess
staðið í mótmælum gegn þeim
verksmiðjum sem fyrir væru, sam-
anber sementsverksmiðjuna á
Akranesi og Járnblendiverksmiðj-
una á Grundartanga. Þær tilheyri
fortíðinni nema að hún geri þá
einu kröfu að þær mengi sem allra
Linda segir að heföi hún fullan mátt þá hefði hún gengiö fyrir Hvalfjöröinn til
Reykjavíkur í mótmælaferöinni í dag. Fyrir fjórum árum fékk hún
vöðvasjúkdóm og var fársjúk um tíma. Læknar voru ráðþrota og tókst Lindu
að ná bata með eigin aðferðum.
Linda segist hafa átt von á und-
irtektum við sinn málstað en ekki
svona sterkum. Viðbrögðin hafi
verið ólýsanleg og oftast mjög
ánægjuleg. Margir hafi hringt og
þakkað henni fyrir hennar fram-
lag.
Biður fyrir náunganum
En þeir eru líka til sem eru
hlynntir álverinu. Fólk úr öllum
nærliggjandi hreppum og víðar um
land sem um leið er andvígt mót-
mælum Lindu og félaga hennar.
Hún segir börnin sín m.a. hafa
fundið fyrir þessu í skólanum frá
jafnöldrum sínum. Hún segist alls
ekki óttast illt umtal í sveitinni um
sig og sína. Málið sé stærra og mik-
ilvægara en það að hún hræðist
hvað aðrir haldi og segi. Hún hafi
ávalt haft það að leiðarljósi að
hugsa hlýtt til náungans, sýna hon-
um skilning, jafnvel biðja fyrir
honum. Öllu máli skipti að hún
myndi aldrei selja sálu sína til að
vera vinur einhvers. Fyrir hana
snúist málið t.d. alls ekki um pen-
inga.
Þetta skal takast
fara beint í lækina hérna til að geta
drakkið besta vatn í heimi, eins og
þeir segja. Þeir eru ástfangnir af
hreinleika landsins. Svo myndu þeir
í framtíðinni koma upp úr Hval-
fjarðargöngunum og aka fram hjá
hverri stóriðjunni á fætur annarri,
nákvæmlega það sem þeir eru að
forða sér frá í Þýskalandi.“
ins. En hvað segir hún við þá sem
segja að mótmælin séu of seint
fram komin, álverið rísi hvort eð
er?
„Ég segi bara að við vitum að
þetta er pólitískur áróður. Stjórn-
málamenn koma allt i einu með þá
vitneskju að álverið verði á Grund-
artanga. Áður höfðu þeir sagt
kannski þetta og kannski hitt, álver
Linda að störfum í hænsnabúinu í Tungu. Þar elur fjölskyldan 1 þúsund hænur með „frjálsri aðferö". Hamingjuegg nefn-
ast afurðirnar sem seldar eru víða í verslunum, m.a. á Akranesi og í Borgarnesi og Reykjavík.
En hvað er hún tilbúin til að
ganga langt í andstöðu sinni? Ætl-
ar hún að leggjast í veg fyrir
vinnuvélar þegar og ef þær koma
til Grundartanga?
„Ég er ákveðin í að ekkert verði
af byggingu álversins. Það skal tak-
ast. En ég ætla ekki að upplýsa hér
og nú um öll okkar vopn í barátt-
unni. Fyrst er að safna þessum
mótmælum og koma þeim til
stjórnvalda. Hvað síðar gerist verð-
ur að koma í ljós. Við erum með
eitt og annað í athugun. Þegar allt
er síðan afstaðið, og við búin að
koma í veg fyrir byggingu álvers-
ins, þá ætla ég að hverfa hægt og
hljótt úr sviðsljósinu, koma mér
en hún er greinilega i rassvasa ráð-
herranna. Þessir menn sögðu
blákalt við okkur að hafa engar
áhyggjur, mengunin yrði það lítil.
Þetta er algjört eitur. Þeir ætla t.d.
að leyfa sex sinnum meiri útblástur
efna en leyfilegt er í Noregi. Svo era
það vatnsbólin og laxveiðiámar.
Hvað verður um vatnsveitu Akur-
neslnga, svo ég taki dæmi? Ætla
menn bara að krefjast skaðabóta
þegar vatnið verður orðið mengað?“
spyr Linda.
Mengunin fer víða
Hún segist hafa heyrt af rannsókn
þýskrar konu hér á landi fyrir
nokkram áram sem sýnt hafi m.a. í
mælingum að mengun frá álverinu í
Straumsvík hafi fundist í Kjós,
mengun frá áburðarverksmiðjunni í
Gufunesi hafi fundist uppi í Heið-
mörk, og mengun frá Grandartanga
hafi fundist í Reykjavík, jafnvel suð-
ur fyrir borgina. Þetta telur hún
sýna í hnotskum að stóriðja sé skað-
valdur fyrir íslenska náttúru, hvar
sem hún sé niðurkomin á landinu.
Hún minnir einnig á kjúklingabú-
ið í Straumi í nágrenni álversins í
Straumsvík. Þar hefði allt drepist
vegna flúormengunar en eigendur
búsins hvorki fengið krónu í skaða-
bætur né uppreisn æra. Málið hefði
tapast i undirrétti sem hæstarétti og
telur Linda það í hæsta máta óeðli-
legt. Dómarar hljóti að hafa verið
undir þrýstingi frá stjómvöldum i
því máli.
Ferðaþjónustan hrynur
Eins og kom fram áður reka
Linda og Guðni ferðaþjónustu á
Tungu. Hún óttast framtíð þeirrar
greinar í héraðinu verði álver reist.
Áformin muni skaða ferðaþjónust-
una gífurlega.
„Persónulega þekki ég fjölmarga
Þjóðverja sem koma sérstaklega til
íslands til að anda að sér hreina loft-
inu og fanga náttúrufegurðina. Þeir
flýja mengunina í Þýskalandi og
I
■
%
\
I
f.
„Þegar allt er síöan afstaðiö og við búin aö koma í veg fyrir byggingu álversins.þá ætla ég aö hverfa hægt og hljótt úr
sviösljósinu, koma mér huggulega fyrir í sveitinni í friði og ró í hreinni náttúru," segir Linda m.a. í viötali við DV um af-
stöðu sína gegn álverinu á Grundartanga sem til stendur að reisa.
hér og álver þar. Núna hefur fólki huggulega fyrir í sveitinni í friði
fyrir alvöru verið sagt að álverið og ró í hreinni náttúra.“
eigi að koma hingað. Við erum alls -bjb
ekkert of seint á ferðinni. Þetta er
rétt að byrja.“
Pólitískur áróður
Aðspurð segist hún trúa því
innst inni, í einlægri hreinskilni,
að ekkert verði af byggingu álvers-