Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1997, Síða 37
DV LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1997
heilsurækt «
^$%tím
Bakverkurinn hvarf fyrsta daginn:
Ný og fullkomin skó-
innlegg björguðu
- landsliðskonan, tvískorin á ökklum, þarf ekki að Ijúka ferlinum um tvítugt
nga Dóra Magnúsdóttir, knatt-
spymukona með meisturum Breiða-
bliks og landsliðinu, var um árabil
búin að vera mjög slæm í ökklunum
og hafði því farið í uppskurð á þeim
báðum. Frá því sumarið 1994 var
hún farin að fmna fyrir bakverk og
var með stöðuga verki innan á
hnjánum og undir það síðasta
fannst henni verkimir í vöðvum og
liðamótum hreinlega vera orðnir
stöðugir.
„Ég var alltaf í meðferð hjá
sjúkraþjáifara og svo var komið í
fyrra að ég þurfti hreinlega að hvíla
mig i tvo til þrjá daga eftir erfíða
keppnishelgi," sagði Inga Dóra þeg-
ar við ræddum við hana.
Þetta voru sannarlega ekki góðar
horfur hjá ungri og efnilegri íþrótta-
konu sem enn var ekki orðin tvítug.
Mundi ferillinn enda vegna álags-
meiðsla sem ekkert væri við að
gera?
Eim lausnin fannst og í dag kenn-
ir Inga Dóra sér einskis meins. Bak-
verkurinn og vöðvaverkir alveg
farnir og bjartara yflr framtíðinni
hjá landsliðskonunni í knattspymu.
Fyrir skömmu sögðum við hjá
Trimmsíðunni frá nýjum tækjum
þar sem hægt er að mæla og finna
lausn á alls konar álagsmeiðslum og
losa jafnframt fólk við afleiðingar
ýmiss konar missmíða á líkama sín-
um. Missmíðar sem með tíð og tíma
valda óhjákvæmilega svonefndum
álagsmeiðslum. Tækin eru byggð
upp á tækni tölva og sjónvarps, sem
sérfræðingar í stoðtækni lesa síðan
á og mæla hvernig laga má álags-
GRoup ö
CELAND
^orway \
P|nland \
USA \
skoðun og mælmgar stoðtækjafræð-
ings með hjálp nýju tækjanna voru
húin til innleg i skó Ingu Dóru.
„Strax fyrsta daginn sem ég not-
aði nýju innleggin hvarf bakverkur-
inn,“ sagði Inga Dóra. „Og eftir um
meiðsli með sérhönnuðum innleggj-
um í skóm eða öðru.
Inga Dóra fór í skoðun í þessum
tækjurii. Strax kom í ljós að vinstri
fóturinn var tæplega sentímetra
styttri en sá hægri. Eftir frekari
—
Þarna er inga Dóra á göngubrettinu, vel tengd við öll mælitæk-
in sem síðan gefa til kynna hvernig bæta megi úr ýmiss konar
álagseinkennum eða hvort allt sé í besta lagi.
Þarna skoða Inga Dóra og þjálfari myndbandsupptöku af fótum hinnar fyrrnefndu og
hvernig hún beitir þeim. Af fótaburðinum geta sérfræðingar séð hvort eitthvað megi bet-
ur fara og hvort úr því megi bæta með sérsniðnum innleggjum í skóna.
Umsjón
Olafur Geirsson
það bil mánuð voru önnur óþægindi
og einkenni alveg horfin." íþrótta-
konan, sem var farin að óttast að
ferli sínum væri að ljúka, kennir
sér einskis meins. „Ég nota nýju
innleggin alltaf, hvort sem er á æf-
ingum eða við dagleg störf. Þá sjald-
an ég er í öðrum skóm
en íþróttaskóm set ég
sérstök hælainnlegg í
þá og þau gera líka
gagn.“
Inga Dóra Magnúsdóttir verður
tvítug 22. þ.m. Hún hóf íþróttaferil-
inn á Sauðárkróki. Knattspyrnan er
í fyrirrúmi en áður fyrr lék hún
einnig körfubolta. „Það var of mik-
ið þegar ég var bæði í unglinga-
landsliðinu og 20 ára landsliðinu.
Síðasta sumar lék hún einnig 6 leiki
með aðallandsliði íslands. Einnig
lék Inga Dóra með unglinga- og
aðallandsliði íslands í körfubolta.
ISI-forseti í klössun
Ellert B. Schram, forseti íþróttasambands íslands,
hefur þurft að hægja á í líkamsræktinni að undanfómu
en er nú í óðaönn að endurhæfa sig eftir nokkurt hlé.
„Ég fór að flnna til í baki fyrir nokkrum misserum og
í ljós kom að brjósklos var í baki,“ sagði Ellert þegar við
hittum hann í Líkamsræktarstöðinni Þokkabót, rétt við
KR-heimilið, á dögunum. „Aúk þess er liðþófinn í
vinstra hné farinn að gefa sig og vildi læknirinn að ég
tæki mér hlé. Ég stunda uppbyggjandi æfingar um þess-
ar mundir og á von á því að verða kominn aftur í gott
form innan skamms."
En af hverju að halda áfram hreyfingu og likamsrækt
þrátt fyrir þessa kvilla? •
„Ég hef alltaf verið í einhvers konar íþróttum frá
barnæsku," svarar Ellert, „og þekki vel gildi þess að
hreyfa sig eitthvað daglega. Það veitir mér stöðugt
ánægju og lifsnautn - lífsnautn sem ég skynja vel að er
mér nauðsyn. Þetta er líka áframhald á keppninni forð-
um daga, þó að nú sé þetta einkum keppni við sjálfan
mig,“ sagði Ellert að lokum.
Auk þess að skokka að staðaldri stundar hann knatt-
spyrnu tvisvar í viku með KR-ingum, eldri en þrítugum.
Brýtur Árni þriggja stafa múrinn á vigtinni:
Mataræði og
rétt markmið
- við fræðumst um það og margt fleira næsta laugardag
Kílóin 28 sem Árni
Sigurðsson losnaði við
frá 10. ágúst sl. fram til
áramóta hurfu
auðvitað af honum á
fimm mánuðum en
ekki sex eins og við
héldum fram á
trimmsíöunni síðasta
laugardag. Við
Biðjumst velvirðingar
á þveim mistökum.
Eins og við einnig
sögðum frá ætlum við
að fylgjast með Árna og
sjá hvemig honum
tekst til með
lífsháttabreytinguna
sm meðal annars á að
leiða til þess að hann
verði orðinn 99 kg hinn
1. júlí nk.
Árni Sigurösson losaöi sig viö 28 kílóin á
fimm mánuðum, en ekki sex eins og okkur
varö á aö segja í síöustu viku.
Tekst Ama Sigurðssyni, sem
orðinn var tæp 170 kg í ágúst sl.
„að brjóta 3 stafa múrinn á
vigtinni“ fyrir 1. júlí nk. og ná þar
með 99 kg markinu? - Trimmsíða
DV fylgist með. Næsta laugardag
munum við ræða við Áma og þá
meðal annars um hvernig hann
hagar mataræði sínu þennan tíma
sem hann er að nálgast kjörþyngd
sína.
Einnig ætlum við að fræöast
um hvemig hann setur sér
markmið viö lífsháttabreytinguna
og hvernig hann seynir að hafa
þau raunhæg en jafnframt ströng
og árangursrík.
Hvemig ætlar Ámi að standa
við það fyrirheit sitt að fara aldrei
aftur í megrun en losna samt
varanlega vi’ð upp undir 70 kg á
tæpu einu ári?