Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1997, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 8. MARS 1997 13 "'V Ifréttir •”& .... ... ' ------- " 1 ------------------------------------------------- Sjópróf haldin í gær vegna strands Vikartinds: Utgerðin vildi semja við Gæsluna um björgun - skipstjórinn sagðist aldrei hafa látið akkeri falla við hliðstæðar aðstæður Ingimar Ingason, lögfræðingur tjónadeildar Eimskips, sagði við sjó- próf vegna strands Vikartinds í gær að fulltrúi Peters Döhler, útgerðar skipsins, hetði staðið í þeirri mein- ingu að Eimskipafélag íslands væri rikisfyrirtæki - því hefði útgerðin, á meðan skipið lá við akkeri, viljað nota „tengsl“ til að semja við Land- helgisgæsluna á „viðskiptalegum grunni“ um aðstoð eða björgun varð- skips - ekki samkvæmt stöðlum Ll- oyds sem yfirleitt er farið eftir þegar björgunarlaun eru ákvöröuð. Einnig kom fram í gær að á meðan forsvarsmenn Landhelgisgæslunnar reyndu að gera skipstjóranum á Vi- kartindi ljósa þá hættu sem skipið var í hefðu viðræður um björgun staðið yfir. Bragi Guðmmidsson, for- stöðumaður tjónadeildar Eimskips, sagöist hafa haft samband viö for- stjóra Landhelgisgæslunnar vegna björgunar en forstjórinn heföi þá tjáð í dómsalnum Óttar Sveinsson honum að „bannað“ væri að semja um björgun eða aðstoð fyrirfram enda hefði slíku verið hrundið með dómum. Bragi kvað sig reka minni tO að forstjórinn hefði vísað í sigl- ingalög. Þegar Michael Barz, skipstjóri á Vikartindi, var spurður að því hve oft um daginn hefði verið lagt að hon- um að þiggja aðstoð staðfesti hann að það hefði gerst „nokkrum sinnum“. Þegar Kristján Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sjóslysanefndar, spurði Miehael Barz skipstjóra um reynslu hans við hliðstæðar aðstæð- ur kvaðst hann aldrei hafa komið til íslands á Vikartindi. Hann hefði ver- ið tvo og hálfan mánuð á skipinu á Michael Barz, skipstjóri á Vikartindi, til vinstri, ræðir viö Hjörleif Jakobsson, forstööumann rekstrarsviös Eimskips, fyrir utan réttarsal í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. síðasta ári en hin örlagaríka ferð, sem endaði uppi í ijöru við Þjórsár- ósa á miðvikudagskvöld, hefði verið fyrsta ferð sín með skipinu á þessu ári. Kristján var búinn að spyrja skip- stjórann nákvæmlega út í hve marg- ir liðir hefðu verið látnir falla í sjó af akkeriskeðjum skipsins þegar hann vék spumingum sínum að því hvort skipstjórinn hefði nokkru sinni, fyrr eða síðar, látið akkeri falla við hlið- stæðar aðstæöur - í 6-8 metra háum öldum uppi við strönd. Svar Michaels Barz við þeirri spurningu var einfalt: „Nei.“ Samband viö útgerö Michael sagði að vindur hefði far- ið upp í 11 vindstig í verstu hviðun- um þegar skipið lá við akkeri. Hann kvaðst hefðu verið undir það búinn að þurfa að þiggja aðstoð en sagðist í raun hafa veriö sannfærður um að skipið væri ekki í hættu. Þrautspurður um framangreind at- riði varðandi aðstoð sagðist Michael síðan ekki hafa talið ástæðu til að þiggja slíkt. Skipstjórinn sagðist hafa verið á um 30 mínútna fresti i sam- bandi við fúlltrúa útgerðar sinnar. Hvað varðaði ákvarðanatöku um að þiggja aðstoð eða ekki sagði skip- stjórinn að endanleg ákvörðun hefði alfarið verið í sínum höndum. Hann vísaði hins vegar til þess að viðræð- ur um slíkt stæðu yfir á milli hinnar þýsku útgerðar með milligöngu Eim- skips við björgimaraðila - hann yrði látinn vita. Hann sagðist ekki hafa tekið þátt í þeim viðræðum sjálfur. Hvað varðaði eigið mat sagðist Mic- hael hafa metið það svo að skipið væri ekki í slæmri stöðu. Túlkur hans hafði síðan eftirfar- andi eftir honum: „Mér var sagt að þar sem staða okkar væri í lagi að gera þá ekki samning við varðskip- ið.“ í kjölfar þess kom spuming frá Mjög góð aðsókn var að Framadögum Háskóla fslands í gær en þá kynntu 37 framsækin fyrirtæki háskólanemum starfsemi sína. Þær Sigrfður Sigurö- ardóttir og Anna María Urbancic, á markaðsdeild Frjálsrar fjölmiölunar, leiddu námsmenn í allan sannieika um hvaöa kröfur væru geröar um nám og starfsreynslu hjá félaginu og þá fjölbreyttu flóru starfa sem þaö heföi upp á að bjóöa á ýmsum sviöum. DV-mynd BG Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Ji g| Nel jjgg j rödd FÖLKSINS 904 1600 Á Landhelgisgæslan að geta tekið völdin af skipstjóra? Kjarasamningarnir í hörðum hnút: Nær öruggt að fyrstu verkföllin skella yfir - VSÍ óskaði gleðilegra páska Um tima í gær héngu kjarasamn- ingaviðræðumar á slíkum bláþræði aö eiginlega mátti segja að viðræðu- slit væru orðin. Einn af lykilmönn- um Vinnuveitendasambandsins virtist þá svo öruggur um að þetta væri búið að hann óskaði samninga- mönnum Verkamannasambandsins gleðilegra páska um leið og hann yf- irgaf herbergi þeirra. Þetta gerðist eftir að Verkamannasambandið hafði svarað tilboði VSÍ. Svar VMSÍ var að ítreka fyrri kröfur óbreyttar. Samningamenn vilja ekki láta hafa neitt eftir sér undir nafni. Einn þeirra sem DV ræddi við í gær sagði að það væri alveg ljóst að fyrstu boðuðu verkföllin nk. mánudag muni koma til framkvæmda. „Það ber svo mikið í mUli að þess- ir tveir dagar duga ekki til að ná samningum og forða verkföllum,“ sagði þessi verkalýðsforingi. Síðdegis í gær róuðust menn nokkuð og vinnuveitendur ákváðu að gera Verkamannasambandinu gagntilboð. Það var ekki komið fram þegar DV fór í prentun. Verslunarmannafélag Reykjavík- ur er mjög óánægt með tilboð vinnuveitenda og var taliö víst að félagið hafni tilboðinu eins og raf- iðnaðarmenn gerðu. Ákvörðun þar um verður tekin fyrri hluta dags í dag. „Ég tel þetta tilboð vinnuveitenda hreina sýndarmennsku og útspil VSÍ og ríkisstjómarinnar. Þetta er löngu ákveðið. Þeir setja fram svona öfgakennt tilboð en svo þegar slitnar upp úr vegna tilboðsins ætla þeir að búa til miðlunartillögu út frá því og tillögu landssambandsfor- mannanna frá því um daginn," sagði Guðmundur Gunnarsson, for- maður Rafiðnaðarsambandsins, i samtali við DV. Hann segir að það verði engin verkföll. Takist ekki samningar muni miðlunartillaga koma fram en hún frestar verkfóllum. Það mun taka tvær til þrjár vikur að afgreiða slika tillögu með póstkosningu hjá landsfélögunum. -S.dór fulltrúa sjóslysanefndar: Var þér bannað að semja um björgun? „Ég get ekki sagt að mér hafi verið bannað það en samningar voru í gangi og menn vildu láta mig vita hvemig það gengi. En auðvitað var það mín ákvörðun að þiggja aðstoð ef nauðsyn krefði.“ Aðspurður sagðist skipstjórinn síðan hafa ákveðið að kalla eftir að- stoð þegar skipið var að reka upp í fjöm, rétt eftir klukkan 19.00. Taldir þú ekki á fyrri stigum að ástæða væri til björgunar?" var þá spurt. „Nei, mér fannst það ekki nauð- synlegt. Ég stóð í þeirri meiningu að við værum í góðri stöðu.“ Gaf flugstjóranum gott orö Aðspurður hvort hann hefði aldrei talið skipið í hættu, með hliðsjón af því að það lá við akkeri skammt frá grunnbrotum á ströndinni, sagði Michael að engir brotsjóir hefðu rið- ið yfir skipið, hann hefði hins vegar verið hræddur um að það gerðist. Á hinn bóginn kvaðst hann aldrei hafa haft á tilfmningunni „að okkur væri hætta búin“. Hann sagðist hafa bundið veruleg- ar vonir við að viðgerð tækist á aðal- vél til að geta siglt skipinu út úr brimgarðinum. Eftir yfirheyrsluna spurði blaða- maður DV Michael út í björgunina - þegar TF-LÍF hífði hina 19 manna áhöfn hans um borð. „Ég er hamingjusamur og ánægð- ur með að við skulum allir vera heil- ir. En auðvitað höfum við orðið fyrir áfalli. Hvað varðar björgunina tel ég að flugstjórinn (Benóný Ásgrímsson), með fullri virðingu fyrir öðrum í áhöfn þyrlunnar, hafi sýnt sérstak- lega góða frammistöðu.“ Michael sagði síðan að útgerð sín hefði lagt að sér að ræða ekki við fjöl- miðla. \ stuttar fréttir Nýr útgerðarrisi Stjómir Utgerðarfélagsins í Sæbergs hf. í Ólafsfirði og Þor- móðs ramma á Siglufirði hafa | gert með sér samkomulag um I samruna félaganna. Engar upp- | sagnir á starfsfólki eru fyrir- \ hugaðar, að sögn stjómar- | manna. Skipaeign hins nýja út- j gerðarrisa verður 8 skip. ; Gæsluvarðhald lengt íslenskur karlmaður og hol- | lenskt par hafa verið úrskurð- uð í áframhaldandi gæsluvarð- ; hald til 18. apríl vegna aðildar * að stóra hassmálinu. Rann- | sóknin er vel á veg komin, að s sögn fikniefnalögreglunnar. | Líklegt er talið að þau fjögur | sem sitja inni vegna málsins | muni gera það þar til dómur j verður kveðinn upp. -RR/sv Guðrún í fjórða sæti DV, París Guðrún Amardóttir keppti í gær í 400 metra hlaupi á heims- meistaramótinu í frjálsum iþrótt- um innanhúss. Guðrún hafnaði í 4. sæti í sín- um riðli og hljóp á 53,41 sekúndu. Þessi árangur Guðrúnar dugði henni ekki til áframhaldandi keppni og hún er úr leik. -BH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.